Endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar 2,1 milljarðar

End­ur­greiðslur til fyr­ir­tækja vegna rann­sókna og þró­unar jókst um 800 millj­ónir milli ára eftir að end­ur­greiðslu­þakið var hækkað. Ný rík­is­stjórn stefnir að því að afnema þakið.

End­ur­greiðslur til fyr­ir­tækja vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­verk­efna voru 2,1 millj­arðar króna á árinu 2016. Það er aukn­ing um 800 millj­ónir króna á milli ára. Þetta kemur fram í svari rík­is­skatt­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Ástæðan fyrir þess­ari miklu aukn­ing er sú að hámarks­upp­hæð sem nýta mátti í rann­sóknir og þróun og draga má frá skatti var hækkuð úr 100 millj­ónum króna í 300 millj­ónir króna með laga­breyt­ingu sem sam­þykkt var í byrjun júní 2016. Ef um er að ræða sam­starfs­verk­efni eða sem útheimta aðkeypta rann­sóknar- eða þró­un­ar­vinnu hækkar hámarkið í 450 millj­ónir króna. End­ur­greiðslan getur þó að hámarki numið 20 pró­sent af sam­þykktum kostn­aði.

Heild­ar­út­gjöld til rann­sókna og þró­unar juk­ust hins vegar ekki svo mikið milli áranna 2015 og 2016. Þau fóru úr 48,5 millj­örðum króna í 50,9 millj­arða króna, sam­kvæmt tölum Hagstofu Íslands og sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu dróg­ust þau saman, fóru úr 2,17 í 2,08 pró­sent. Þrátt fyrir að hámarkið hafi verið hækkað, og end­ur­greiðslur auk­ist, voru útgjöld vegna rann­sóknar og þró­unar lægra hlut­fall af lands­fram­leiðslu í fyrra en þau voru árið áður.

Ríkisstjórnin vill afnema þakið

End­ur­greiðsla á rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aði er ætlað að efla nýsköpun í land­inu. Samkvæmt lögum er ein­göngu heim­ilt að telja fram beinan kostnað við verk­efni og ann­arra aðfanga sem notuð hafa verið við vinnslu þess þegar sótt er um end­ur­greiðslu. Með öðrum orðum þá verða fyr­ir­tæki að aðskilja allan annan rekstur sinn frá því verk­efni sem um ræðir þegar lagðar eru fram kostn­að­ar­tölur við vinnslu þess.

Til þess að fá end­ur­greiðslu á kostn­aði vegna rann­sóknar og þró­un­ar­verk­efna þarf að gera sér­stak­lega grein fyrir verk­efn­inu í raf­rænni skrán­ingu umsóknar á heima­síðu Rannís. Með þarf að fylgja stutt við­skipta­á­ætlun og ef um sam­starfs­verk­efni er að ræða þá þarf sam­starfs­samn­ingur líka að ber­ast til Rannís. Þá á að fylgja með lýs­ing á verk­efn­inu ásamt verk- og kostn­að­ar­á­ætlun.

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur ætlar að leggja mikla áherslu á nýsköpun og rann­sóknir. Mála­flokk­ur­inn er sér­stak­lega til­greindur í stjórn­ar­sátt­mála hennar sem ein af meg­in­á­herslum hennar og orðið nýsköpun kemur fyrir 18 sinnum í honum. Þá er kveðið á um að rík­is­stjórnin ætli, til að bæta alþjóð­lega sam­keppn­is­hæfni lands­ins, að end­ur­meta fyr­ir­komu­lag á end­ur­greiðslu kostn­aðar vegna rann­sókna og þró­unar í því skyni að afnema þak sem verið hefur á slíkum end­ur­greiðslum. Það þak er nú 300 til 450 millj­ónir króna á ári.

40 mál komið til meðferðar

Kjarninn kall­aði eftir upp­lýs­ingum frá rík­is­skatt­stjóra um hvernig eft­ir­liti með end­ur­greiðsl­unum sé háttað og hversu mörg fyr­ir­tæki hafi þurft að sæta því. Þ.e. eft­ir­lit með því hvort þau fyr­ir­tæki sem leggi inn umsóknir um end­ur­greiðslu vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­verk­efna séu ekki að telja annan rekstr­ar­kostnað sinn fram sem hluta af kostn­aði við gerð verk­efn­is­ins.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur stefnir að því að afnema þak á endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar.
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur stefnir að því að afnema þak á end­ur­greiðslur vegna rann­sókna og þró­unar.

Í svari emb­ætt­is­ins segir að það hafi átt fundi með starfs­mönnum Rannís til að betur sé hægt að glöggva sig á ein­stökum hug­tökum sem máli skipti í þessu sam­bandi. „Hvað varðar efn­is­lega skoðun á til­greindum kostn­aði vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­vinnu í eft­ir­lits­skyni, eru gerðar skatt­breyt­ingar ef ástæða er til slíks. Haldið er utan um allar skatt­breyt­ingar og til­efni þeirra, þ.m.t. hvort það sé vegna almenns skatta­eft­ir­lits eða af öðrum ástæðum. Ekki er á hinn bóg­inn haldið utan um breyt­ingar á ein­stökum reitum fram­tals­ins. Því er ekki unnt að svara nákvæm­lega til um fjölda aðila sem sem hafa sætt sér­stakri skoðun á þessum lið fram­tals­ins. Vegna fyr­ir­spurn­ar­innar var gerð athugun í mála­kerfi emb­ætt­is­ins og leiddi hún í ljós að um 40 mál sem varða þennan mála­flokk hafa komið til með­ferðar eftir álagn­ingu.“

Verið að fylgjast með

Rík­is­skatt­stjóri segir einnig að það sé „sífellt og stöðugt verk­efni“ hjá emb­ætt­inu að ákveða hvernig skuli verja þeim tíma og starfs­kröftum sem það hefur yfir að ráða og hvaða atriði í skatt­skilum sæti for­gangi í eft­ir­liti.

Sérstök athugun á kostn­aði vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­verk­efna sé eitt þeirra atriða sem nú þegar sætir sér­stöku eft­ir­liti m.a. vegna þess um hve háar fjár­hæðir geta verið um að ræða í ein­stökum til­fellum og ekki sé loku fyrir það skotið að í þessu sam­hengi geti skatt­að­ili tví­fært ákveð­inn kostnað til frá­dráttar. „Slík offærsla getur stafað af mis­tökum en í því sam­hengi er oft svo að mörg ásetn­ings­verk við skattaund­an­skot bera á yfir­borð­inu svip mis­taka. Fjölgun aðila sem þarna á í hlut auk fjár­hæða var einnig ástæða þess að ákveðið var að beina eft­ir­liti að þessum þætti skatt­fram­kvæmd­ar­innar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið undanfarið ár