Tíu hlutir sem Landsbankinn hefur spáð að gerist í hagkerfinu

Í lið­inni viku kom út ný hag­spá Hag­fræði­deildar Lands­bank­ans. Þar er spáð mesta hag­vexti sem hefur orðið á Íslandi frá banka­góð­ær­is­ár­inu 2007 í ár, áfram­hald­andi verð­bólgu á næsta ári oað vaxta­hækk­un­ar­ferl­inu sé lokið.

Mesti hagvöxtur sem mælst hefur frá 2007

Lands­bank­inn gerir ráð fyrir því að hag­vöxtur verði 6,5 pró­sent í ár en 2,1 pró­sent á því næsta. Í hag­spá Hag­fræði­deildar bank­ans segir að hag­vöxt­ur­inn ráð­ist að miklu leyti af upp­gangi ferða­þjón­ust­unnar. Það er umtals­vert jákvæð­ari spá fyrir árið 2022 en sú sem sett var fram í hag­spá Lands­bank­ans sem kynnt var í maí, en nei­kvæð­ari fyrir árið 2023. Þar var gert ráð fyrir að hag­vöxtur yrði 5,1 pró­sent í ár en 3,7 pró­sent á næsta ári.

Það verður þó að taka inn í reikn­ing­inn að sam­dráttur varð í þjóð­ar­bú­skapnum upp á 6,8 pró­sent árið 2020 og vöxt­ur­inn úr þeirri lægð í fyrra var 4,4 pró­sent, aðal­lega vegna mik­illar einka­neyslu.

Spá Lands­bank­ans er tölu­vert hóf­sam­ari en sú sem sett var fram í þjóð­hags­spá Íslands­banka í lok síð­asta mán­aðar. Í henni var því spáð að hag­vöxtur yrði 7,3 pró­sent í ár. Ef önnur hvor spá bank­anna gengur eftir yrði um að ræða mesta hag­vöxt sem orðið hefur á Íslandi frá árinu 2007, eða í 15 ár.

Verðbólgan hjaðni á næsta ári en verði samt langt frá markmiði

Bankinn spáir 8,1 pró­sent verð­bólgu á þessu ári, sem er nákvæm­lega sama spá og Íslands­banki setti fram í síð­asta mán­uði. Lands­bank­inn telur að hún verði 6,5 pró­sent á næsta ári á meðan að hinn bank­inn sem ríkið á hlut í spáði því að hún yrði 6,3 pró­sent á árinu 2023. Verð­bólgan er sem stendur 9,3 pró­sent.

Í maí spáði Lands­bank­inn því að hún yrði 7,4 pró­sent að með­al­tali í ár og 5,8 pró­sent á því næsta. Því er verð­bólga í verð­bólgu­spá rík­is­bank­ans milli birtra hag­spáa.

Verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands er 2,5 pró­sent. Lands­bank­inn telur að því mark­miði verði ekki náð á spá­tím­anum, sem stendur út árið 2025.

Kaupmáttur farinn að dragast saman

Í hag­spánni er bent á þau tíma­mót sem urðu í júní á þessu ári, þegar tólf ára sam­felldri kaup­mátt­ar­aukn­ingu lauk. Verð­bólga síð­ustu mán­aða hafi étið upp kaup­mátt sem hafi alls dreg­ist saman um 4,2 pró­sent frá því í jan­úar.

Lands­bank­inn telur margt benda til þess að tekið sé að hægja á vexti hag­kerf­is­ins og eru þar verð­bólga, vaxta­hækk­anir og kaup­mátt­arrýrnun stórir áhrifa­þættir. „Við gerum ráð fyrir að kaup­máttur drag­ist saman um 0,4 pró­sent milli áranna 2021 og 2022 og auk­ist aðeins um 0,5 pró­sent á næsta ári. Þetta yrði í fyrsta sinn síðan 2010 sem kaup­máttur dregst saman milli ára og er útlit fyrir að vöxtur kaup­máttar á næstu árum verði undir með­al­vexti frá alda­mótum.“

Þetta er nokkuð önnur staða en Lands­bank­inn spáði í maí, þegar hann reikn­aði með 0,1 pró­sent kaup­mátt­ar­aukn­ingu í ár og 0,9 pró­sent á næsta ári.

Fjöldi ferðamanna fari í 2,5 milljónir 2025

Spá Lands­bank­ans um veru­lega auk­inn hag­vöxt á þessu ári skýrist einna helst af því að Hag­fræði­deild bank­ans spáir nú að fleiri erlendir ferða­menn komi hingað á þessu ári en gert var ráð fyrir í maí.

Landsbankinn spáir því að nýtt met verði sett í fjölda ferðamanna sem heimsækja Ísland heim árið 2025. Gildandi met er 2,3 milljónir.
Lands­bank­inn spáir því að nýtt met verði sett í fjölda ferða­manna sem heim­sækja Ísland heim árið 2025. Gildandi met er 2,3 millj­ónir.

Nú er gert ráð fyrir að fjöld­inn í ár verði 1,7 millj­ónir, eða 200 þús­und fleiri en spáð var í maí. Á móti hafa spár fyrir kom­andi ár lækkað. Lands­bank­inn reiknar með 1,9 milljón ferða­manna á næsta ári og 2,3 millj­ónum á árinu 2024. Fjöldinn nær síðan sögu­legu hámarki, sam­kvæmt spá bank­ans, á árinu 2025 þegar ferða­menn­irnir verða 2,5 millj­ónir.

Íslands­banki spáði líka að fjöld­inn í ár yrði 1,7 millj­ónir en að hann myndi skríða yfir tvær millj­ónir á næsta ári.

Stýrivextir hafa náð hámarki

Lands­bank­inn telur að stýri­vextir hafi nú náð hámarki og að þeir verði óbreyttir fram á haust 2023. Stýri­vextir eru nú 5,75 pró­sent og hafa hækkað um þrjú pró­sentu­stig frá því í maí síð­ast­liðnum. Þessi mikla hækkun hefur haft gríð­ar­leg áhrif á greiðslu­byrði óverð­tryggðra íbúða­lána með breyti­lega vexti sem eru 27-28 pró­sent allra slíkra lána.

Nú eru lægstu óver­tryggðu vextir sem íslenskir bankar, stærstu lán­veit­end­urnir á mark­aðn­um, bjóða upp á 7,25 til 7,59 pró­sent. Lands­bank­inn er sá banki sem býður upp á lægstu vext­ina, þótt nokkrir líf­eyr­is­sjóðir séu að bjóða upp á betri kjör. Slíkir vextir hafa ekki verið hærri frá árinu 2010, eða í skömmu eftir banka­hrunið þegar enn var verið að end­ur­reisa föllnu bank­ana og íslenskt atvinnu­líf.

Kjarninn fjall­aði í vik­unni um nýja mán­að­ar­skýrslu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar (HMS), þar sem greint var frá þeim áhrifum sem þessar vaxta­hækk­anir hafa haft á greiðslu­byrði óverð­tryggðra lána. Á fyrri hluta 2021, þegar stýri­vextir voru 0,75 pró­sent, var sá sem var með 50 milljón króna hús­næð­is­lán á breyti­legum vöxtum að borga 188.500 krónur af því á mán­uði. Nú, einu og hálfu ári síðar er sú afborgun komin í 311.500 krón­ur. Því borgar þessi lán­taki 123 þús­und krónur meira á mán­uði í afborg­anir af íbúða­lán­inu sínu nú en hann gerði í maí 2021. Það er hækkun upp á 65 pró­sent.

Íbúðamarkaður í kyrrstöðu næstu mánuði

Þjóð­skrá birti tölur í gær sem sýndu að íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 0,8 pró­sent í sept­em­ber, eftir að hafa lækkað um 0,4 pró­sent mán­uð­inn áður. Það var í fyrsta sinn síðan 2019 sem verðið lækk­aði milli mán­aða. Þriggja mán­aða hækkun íbúða­verðs hefur hins vegar tekið stakka­skipt­um. Það var 9,1 pró­sent í maí en er nú 1,5 pró­sent.

Lands­bank­inn spáir því að kyrr­staða verði á mark­aðnum næstu mán­uði og telur að íbúða­verð muni hækka um fimm pró­sent á árinu 2023, sem er undir með­al­breyt­ingu frá alda­mótum. Það er líka mikil breyt­ing frá 22 pró­sent verð­hækkun þessa árs, gangi spá Lands­bank­ans eftir.

Miklar hækkanir hafa verið á íbúðaverði á undanförnum árum. Það tímabil er nú á enda runnið. Mynd: Pexels
Miklar hækk­anir hafa verið á íbúða­verði á und­an­förnum árum. Það tíma­bil er nú á enda runnið. Mynd: Pexels

Í maí gerði Lands­bank­inn ráð fyrir að verðið myndi hækka um 20 pró­sent í ár en um átta pró­sent á næsta ári.

Einkaneysla dregst skarp saman á næsta ári

Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á dróst einka­neysla sam­an, nánar til­tekið um þrjú pró­sent milli áranna 2019 og 2020. Í fyrra stórjókst hún hins vegar að nýju, enda mikil kaup­mátt­ar­aukn­ing að eiga sér stað vegna launa­hækk­ana, minni vaxt­ar­kostn­aðar og ýmissa ann­arra hag­felldra breyta.

Sú neyslu­aukn­ing hefur haldið áfram af miklum krafti á árinu 2022, og hefur meðal ann­ars verið drifin áfram af stór­auknum ferða­lögum Íslend­inga erlendis.

Lands­bank­inn gerir ráð fyrir því að aukn­ingin á einka­neyslu verði 6,7 pró­sent í ár en að það hægi veru­lega á henni á næsta ári og að hún verði þá um tvö pró­sent.

Í síð­asta Pen­inga­mála­riti Seðla­banka Íslands, sem birt var í lok ágúst, kom fram að heim­ili lands­ins hafi dregið hraðar úr sparn­aði en gert var ráð fyrir, en sparn­aður jókst gríð­ar­lega á meðan að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn stóð yfir þar sem fólk gat ekki eytt með í sömu hluti og áður. Nú eru margir að klára þann sparnað og munu ekki geta eytt jafn miklu í ferða­lög, mat­sölu­staði og nýja bíla.

Krónan leitar til styrkingar

Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á veikt­ist gengi íslensku krón­unnar umtals­vert og Seðla­bank­inn réðst í umfangs­mikil gjald­eyr­is­við­skipti til að draga úr sveiflum á gengi henn­ar. Í fyrra styrkt­ist gengið svo um tæp­lega þrjú pró­sent.

Hún styrkt­ist umtals­vert, alls um sjö pró­sent, frá byrjun árs 2022 og út maí­mán­uð. Frá þeim tíma og fram að lokum ágúst­mán­aðar veikt­ist hún hins vegar um fimm pró­sent. Stór ástæða fyrir veik­ing­unni í sumar var aukið gjald­eyr­is­út­flæði vegna fjár­fest­inga, aðal­lega íslenskra líf­eyr­is­sjóða.

Lands­bank­inn býst við því að krónan leiti til styrk­ingar fram að kom­andi ára­mótum og á næstu árum. „Á næsta ári gerum við ráð fyrir að evran endi árið í 138 krónum en að tölu­verður við­skipta­af­gangur árið 2024 leiði til meiri styrk­ingar og að evran endi árið í 132 krónum og 130 krónum í lok spá­tíma­bils­ins.“

Atvinnuleysi getur varla orðið minna

Hjöðnun atvinnu­leysis hér­lendis hefur verið mjög hröð síðan að heild­ar­at­vinnu­leysi mæld­ist 12,8 pró­sent í jan­úar í fyrra. Í lok sept­em­ber var það komið niður í 2,8 pró­sent og hafði ekki verið lægra síðan í des­em­ber 2018.

Nú er staðan sú að skortur er á starfs­fólki og þau störf sem verða til í hag­kerf­inu eru að stórum hluta fyllt af erlendu starfs­fólki, sem er nú um 20 pró­sent af öllu vinnu­afli hér­lend­is.

Í spá Lands­bank­ans er gert ráð fyrir að atvinnu­leysi verði áfram lágt, eða að jafn­aði 3,2 pró­sent á næsta ári. Ólíklegt sé að það geti dreg­ist mikið meira saman til lengri tíma, enda er óhjá­kvæmi­legt að ein­hver hluti vinnu­aflsins sé atvinnu­laus á hverjum tíma. Óvissan í spánni snýr einna helst að vinnu­mark­aði í aðdrag­anda kjara­samn­inga. „Vinnu­mark­aður hefur verið sterkur, launa­skrið tals­vert og fyr­ir­tæki fundið fyrir skorti á starfs­fólki. Við gerum ráð fyrir að laun hækki um 7,6 pró­sent á þessu ári og svo 7,1 pró­sent á næsta ári, sem er nokkuð í takt við breyt­ingar síð­ustu ára.“

Neikvæður viðskiptajöfnuður í ár

Í níu ár sam­fellt, fram að árinu 2021, var við­skipta­af­gangur af utan­rík­is­við­skiptum Íslands. Það þýðir að við seldum vörur og þjón­ustu fyrir hærri upp­hæð en við keyptum slíkt. Halli skap­að­ist hins vegar í fyrra upp á 65 millj­arða króna, vegna þess að inn­lend eft­ir­spurn jókst mun fyrr en útflutn­ingur eftir þann sam­drátt sem varð á fyrra ári kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, 2020.

Lands­bank­inn segir að horfur séu á að inn­flutn­ingur auk­ist mjög mikið í ár, sem skýrist meðal ann­ars af ferða­gleði Íslend­inga. Bankinn býst við 18,6 pró­sent vexti inn­flutn­ings í ár en að það hægi veru­lega á honum 2023-2025 þegar hann liggi á bil­inu 2,2 til 3,5 pró­sent. Í ár verður við­skipta­jöfn­uður við útlönd nei­kvæður um 2,2 pró­sent af lands­fram­leiðslu, gangi spá Lands­bank­ans eftir. „Þegar líður á spá­tíma­bilið munu utan­rík­is­við­skipti fær­ast úr halla í afgang sem við spáum að verði mestur árið 2025, 1,9 pró­sent af lands­fram­leiðslu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár