Tíu hlutir sem Íslandsbanki hefur spáð að gerist í íslenska hagkerfinu

Í gær­morgun var ný þjóð­hags­spá Íslands­banka birt. Frá því að spá bank­ans kom út í upp­hafi árs hefur öllum tak­mörk­unum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs verið aflétt og stríð skollið á í Úkraínu.

Hagvöxtur verður sá mesti síðan 2007

Íslands­banki spáir því að hag­vöxtur verði kröft­ugur í ár, eða 7,3 pró­sent. Gangi sú spá eftir mun það verða mesti hag­vöxtur á Íslandi í 15 ár, eða frá hápunkti banka­góð­ær­is­ins 2007 þegar hag­vöxtur mæld­ist 8,5 pró­sent.

Það verður þó að taka inn í reikn­ing­inn að sam­dráttur varð í þjóð­ar­bú­skapnum upp á 6,8 pró­sent árið 2020 og vöxt­ur­inn úr þeirri lægð í fyrra var 4,4 pró­sent, aðal­lega vegna mik­illar einka­neyslu. Íslands­banki spáir því að útflutn­ings­vöxtur muni vera helsta rót hag­vaxtar á síð­ari hluta yfir­stand­andi árs.

Í jan­úar spáði bank­inn því að hag­vöxtur í ár yrði 4,7 pró­sent, að hann yrði 3,2 pró­sent á næsta ári og 2,6 pró­sent árið 2024. Nú gerir bank­inn ráð fyrir að hag­vöxt­ur­inn verði mun meiri í ár, en minni á næsta ári (2,2 pró­sent í stað 3,2 pró­sent) og þarnæsta (2,4 pró­sent í stað 2,6 pró­sent).

Verðbólgan miklu meiri en fyrri spár gerðu ráð fyrir

Bankinn spáir því nú að árs­verð­bólgan í ár verði 8,1 pró­sent, en hún mælist sem stendur 9,7 pró­sent. Í þjóð­hags­spánni er sagt að það sé enn „langur vegur framundan og tals­vert í það að verð­bólga verði við 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans.“ Greining Íslands­banka telur að verð­bólgan verði 6,3 pró­sent á næsta ári og 3,9 pró­sent árið 2024. Því muni hún ekki ná að verða við verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans á spá­tím­anum.

Í jan­úar spáði bank­inn því að verð­bólga myndi hjaðna jafnt og þétt út þetta ár og yrði að jafn­aði 4,3 pró­sent á árinu 2022. Íslands­banki gerði þá ráð fyrir að verð­bólgan yrði að jafn­aði 2,5 pró­sent á næsta ári og 2,7 pró­sent árið 2024.

Stýrivextir áttu að verða 3,25 prósent en verða sennilega sex prósent

Stýri­vextir Seðla­banka Íslands hafa hækkað skarpt und­an­farna mán­uði. Frá því í maí í fyrra hafa þeir farið úr 0,75 í 5,5 pró­sent. Á árinu 2022 einu saman hafa þeir hækkað um 3,5 pró­sentu­stig. Í þjóð­hags­spá bank­ans sem birt var í jan­úar 2022 var sann­ar­lega ekki búist við þess­ari þróun, en þá spáði grein­ing Íslands­banka því að stýri­vextir Seðla­banka Íslands yrðu komnir upp í 3,25 pró­sent í lok þessa árs og myndu toppa í fjórum pró­sentum í árs­byrjun 2024.

Nú er annað hljóð í strokknum. Bankinn telur að stýri­vextir verði „í námunda við“ sex pró­sent í árs­lok og hald­ist óbreyttir inn á mitt ár 2023, þegar vext­irnir taki að lækka á seinni hluta þess árs. Við taki „hæg­fara lækk­un­ar­ferli“ sem gætu skilað stýri­vöxtum í grennd við 4,5 pró­sent undir lok árs 2024.

Gangi sú spá eftir er ansi langt þangað til að það fólk sem hefur séð greiðslu­byrði íbúða­lána sína hækka um rúm­lega hund­rað þús­und krónur á mán­uði á rúmu ári fari að sjá þá greiðslu­byrði minnka.

Fjöldi erlendra ferðamanna miklu meiri en gert var ráð fyrir

Íslands­banki spáir því að 1,7 millj­ónir ferða­manna muni heim­sækja Íslands heim á þessu ári. Það er svip­aður fjöldi og kom til lands­ins fyrir sex árum síðan. Á næsta ári náist það svo að ferða­menn­irnir verði á ný yfir tvær millj­ónir tals­ins og árið 2024 verði þeir 2,2 millj­ónir. Þetta er bara sá fjöldi sem kemur í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl. Þá á eftir að telja þá sem koma til Íslands í gegnum Akur­eyr­ar­flug­völl og með skemmti­ferða­skipum.

Ferðaþjónustan hefur tekið við sér af mun meiri krafti en reiknað var með.
Ferða­þjón­ustan hefur tekið við sér af mun meiri krafti en reiknað var með.

Í jan­úar var Íslands­banki tölu­vert svart­sýnni á það hvernig ferða­þjón­ustan myndi taka við sér en raun bar vitni. Þá spáði grein­ing bank­ans því að ferða­menn sem myndu heim­sækja Íslands yrðu 1,1 til 1,2 millj­ónir á árinu 2022, að þeir yrðu 1,5 millj­ónir á næsta ári og 1,7 millj­ónir á árinu 2024.

Nú er vandamálið ekki skortur á störfum, heldur skortur á starfsfólki

Hjöðnun atvinnu­leysis hér­lendis hefur verið mjög hröð síðan að heild­ar­at­vinnu­leysi mæld­ist 12,8 pró­sent í jan­úar í fyrra. Í ágúst síð­ast­liðnum var það komið niður í 3,1 pró­sent og er nú á svip­uðum slóðum og í byrjun árs 2019, áður en WOW air fór á haus­inn.

Nú er staðan sú að skortur er á starfs­fólki og þau störf sem verða til í hag­kerf­inu eru að stórum hluta fyllt af erlendu starfs­fólki, sem er nú um 20 pró­sent af öllu vinnu­afli hér­lendis. Íslands­banki spáir því að atvinnu­leysi verði á svip­uðum slóðum á næstu tveimur árum, eða á bil­inu 3,2 til 3,6 pró­sent.

Í jan­úar spáði bank­inn því að með­al­at­vinnu­leysi á Íslandi yrði 4,5 pró­sent á þessu ári og á bil­inu 3,6 til 3,7 pró­sent á árunum 2023 og 2024. Þá töldu um 40 pró­sent stjórn­enda 400 stærstu fyr­ir­tækja lands­ins að skortur væri á vinnu­afli en nú er það hlut­fall 54 pró­sent.

Viðsnúningur á íbúðamarkaði framundan

Í byrjun árs spáði grein­ing Íslands­banka því að íbúða­verð myndi hækka að nafn­virði um átta pró­sent á árinu 2022, og að hækk­un­ar­takt­ur­inn sem sleg­inn var árið áður með 15 pró­sent hækkun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu myndi taka að hægj­ast. Bankinn spáði því einnig að íbúða­verð myndi hækka um 3,5 pró­sent á næsta ári og 2,9 pró­sent árið 2024 sam­hliða því að jafn­vægi myndi mynd­ast á íbúða­mark­aði.

Í nýju þjóð­hags­spánni eru þessar tölur veru­lega end­ur­skoð­aðar. Þar er bent á að íbúða­mark­aðir hafi kólnað tals­vert hraðar í öðrum löndum en á Íslandi þrátt fyrir að stýri­vextir hafi verið hækk­aðir mun hraðar hér og skil­yrði fyrir lán­töku hert veru­lega. Þar skipti mestu að eft­ir­spurn er enn langt frá fram­boði vegna upp­safn­aðrar þarfar og að lýð­fræði­leg þróun ýki eft­ir­spurn­ina. Nú spáir bank­inn því að raun­verð íbúa muni hækka um 11,6 pró­sent í ár og að sú hækkun sé nú þegar að mestu komin fram. Á næsta ári verði raun­hækk­unin ein­ungis 0,8 pró­sent og á árinu 2024 muni verðið nán­ast standa í stað sam­hliða því að aukin fjöldi íbúða komi inn á mark­að­inn sem skapi nýtt jafn­vægi.

Kaupmáttur launa farinn að dragast saman

Íslands­banki spáði því í jan­úar að kaup­máttur myndi halda áfram að aukast á þessu ári, alls um 2,5 pró­sent. Sá vöxtur myndi halda áfram inn á næstu tvö ár.

Þessi spá hefur ekki gengið eftir. Kaup­máttur launa er nefni­lega far­inn að rýrna, alls um 4,2 pró­sent á þessu ári. Nú spáir bank­inn því að þessi þróun haldi áfram, eða þar til að verð­bólgan hjaðni veru­lega. Alls spáir grein­ing Íslands­banka því að kaup­mátt­ur­inn rýrni um 0,6 pró­sent á þessu ári en vaxi um 0,8 pró­sent strax á næsta ári.

Einkaneysla hægir á sér þegar fólk klárar sparnaðinn

Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á dróst einka­neysla saman, nánar til­tekið um þrjú pró­sent milli áranna 2019 og 2020. Í fyrra stórjókst hún hins vegar að nýju, enda mikil kaup­mátt­ar­aukn­ing að eiga sér stað vegna launa­hækk­ana, minni vaxt­ar­kostn­aðar og ýmissa ann­arra hag­felldra breyta.

Fyrir vikið taldi bank­inn að einka­neysla myndi halda áfram að vaxa og verða 4,2 pró­sent árið 2022 og 3,2 til 3,5 pró­sent á næstu tveimur árum eftir það.

Vöxtur í einka­neyslu hefur verið miklu meiri en spár gerðu ráð fyrir, og er gert ráð fyrir að hann verði 8,8 pró­sent á þessu ári. Íslands­banki spáir því einnig að einka­neyslan auk­ist um 1,8 pró­sent á næsta ári þegar heim­ili lands­ins hafi gengið umtals­vert á sparnað sinn í neyslu og kaup­mátt­ar­vöxt­ur­inn verður frekar lít­ill. Árið 2024 muni einka­neyslan svo aukast um 2,7 pró­sent sam­hliða því að verð­bólga hjaðni.

Krónan styrkist

Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á veikt­ist gengi íslensku krón­unnar umtals­vert og Seðla­bank­inn réðst í umfangs­mikil gjald­eyr­is­við­skipti til að draga úr sveiflum á gengi hennar. Í fyrra styrkt­ist gengið svo um tæp­lega þrjú pró­sent. Þegar grein­ing Íslands­banka spáði í spilin í upp­hafi árs varð nið­ur­staða þeirra bolla­legg­inga sú að krónan yrði átta til níu pró­sent sterk­ari í lok árs 2024 en hún var í árs­byrjun 2024. Raun­gengi miðað við hlut­falls­legt verð­lag yrði þá svipað og árið 2018.

Krónan hefur hins vegar sveifl­ast meira en búist var við. Hún styrkt­ist umtals­vert, alls um sjö pró­sent, frá byrjun árs og út maí­mánuð. Frá þeim tíma og fram að síð­ustu mán­aða­mótum hefur hún hins vegar veikst um fimm pró­sent. Stæor ástæða fyrir veik­ing­unni í sumar er aukið gjald­eyr­is­út­flæði vegna fjár­fest­inga, aðal­lega íslenskra líf­eyr­is­sjóða.

Íslenska krónan leikur sem fyrr lykilhlutverk í heilbrigði íslensks efnahags.
Íslenska krónan leikur sem fyrr lyk­il­hlut­verk í heil­brigði íslensks efna­hags.

Greining Íslands­banka spáir því nú að krónan verði um það bil sex pró­sent sterk­ari í lok árs 2024 en hún var í lok ágúst 2022. Raun­gengið miðað við hlut­falls­legt verð­lag verður á svipað og árin 2018 og 2019.

Spá því að halli verði afgangur

Í níu ár sam­fellt, fram að árinu 2021, var við­skipta­af­gangur af utan­rík­is­við­skiptum Íslands. Það þýðir að við seldum vörur og þjón­ustu fyrir hærri upp­hæð en við keyptum slíkt. Halli skap­að­ist hins vegar í fyrra upp á 65 millj­arða króna, vegna þess að inn­lend eft­ir­spurn jókst mun fyrr en útflutn­ingur eftir þann sam­drátt sem varð á fyrra ári kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, 2020.

Í jan­úar spáði Íslands­banki því að hall­inn myndi verða skamm­vinnur og strax árið 2022 myndi við­skipta­af­gangur verða 1,8 pró­sent. Hann myndi svo verða enn mynd­ar­legri á næstu tveimur árum, eða 3,1 pró­sent á hvoru ári fyrir sig.

Í nýju þjóð­hags­spánni er annað upp á ten­ingnum. Nú spáir grein­ing Íslands­banka því að það verði 1,5 pró­sent við­skipta­halli í ár. Það náist þó að snúa þeirri stöðu hóf­lega við strax á næsta ári með eins pró­sent afgangi og að hann verði svo 2,4 pró­sent árið 2024. Þó er sér­stak­lega til­tekið að það velti „ekki síst á þróun raun­gengis og við­skipta­kjara þegar frá líður hvort við­skipta­jöfn­uð­ur­inn verður áfram hag­felldur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár