Kaupin á WOW air björgunaraðgerð sem átti sér skamman aðdraganda

Lán­ar­drottnar WOW air, sem breyttu víkj­andi lánum í hlutafé nýverið fá 1,8 pró­sent hlut í Icelandair. Það fer eftir nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­unar hvað Skúli Mogensen fær í sam­ein­uðu félagi. Hann gæti fengið ekk­ert til við­bótar.

Sú ákvörðun Icelandair Group, móð­ur­fé­lags Icelandair, að kaupa WOW air átti sér ekki langan aðdrag­anda. Hug­myndin hafði reyndar verið viðruð fyrir nokkrum vikum síðan þegar ljóst var að skulda­bréfa­út­boð WOW air var að ganga afar illa, en alvöru við­ræður hófust ekki fyrr en á laug­ar­dag. Þær fóru síðan á fullt í gær­morgun og unnið var að sam­komu­lag­inu í alla nótt. Það lá síðan fyrir í morgun og var til­kynnt til Kaup­hallar Íslands klukkan 12:49 í dag.

Við­mæl­endur Kjarnans eru ein­róma sam­mála um að kaupin séu björg­un­ar­að­gerð til þess að bregð­ast við erf­iðri fjár­hags­stöðu WOW air, sem gat illa lifað af liðin mán­aða­mót. Ef ekki hefði verið gripið til aðgerða nú hefði rekstur WOW air lík­ast til stöðvast.

Ráða­mönnum hér­lendis var haldið upp­lýstum um stöð­una um helg­ina. Þá hefur Sam­göngu­stofa, sem gefur út flug­rekstr­ar­leyfi og hefur eft­ir­lit með þeim flug­fé­lögum sem hafa leyfi til að starfa, verið þátt­tak­andi í ferl­inu.

Hæstu vextir í Evrópu

Kaupin, og ástæður þeirra, eru þó á skjön við þau skila­boð sem send hafa verið úr her­búðum WOW air opin­ber­lega und­an­farnar vikur og mán­uði, eða frá því að opin­berað var að WOW air ætl­aði að sækja sér nokkra tugi milljón dali með útgáfu skulda­bréfa. Meðal þess sem opin­ber­lega hafði verið sagt, var að félagið stefndi að skrán­ingu á markað í Frank­furt og að framundan væri mik­ill vöxtur vegna fyr­ir­hug­aðs Asíu-flugs.

Illa gekk að fá fjár­festa til að taka þátt í útboð­inu en því var þó lokað með herkjum 18. sept­em­ber. Vext­irnir sem WOW air sam­þykkti að greiða af skulda­bréf­unum voru þó þeir hæstu sem nokk­urt flug­fé­lag í Evrópu greiddi. Vaxta­kjörin, níu pró­sent ofan á þriggja mán­aða Euribor vexti, voru hærri en vextir voru í útboðum hjá Air Berlin, Finnair, Norwegian Air, Air France, British Airways og Luft­hansa sem ráð­ist hefur verið í á tíma­bil­inu 2013 til 2018.

Áður voru hæstu vextir sem evr­ópskt flug­fé­lag hafði sam­þykkt að greiða 8,5 pró­sent í útboði sem Air Berlin fór í árið 2017 þegar fyr­ir­tækið sótti 125 milljón evra með víkj­andi skulda­bréfa­út­gáfu. Air Berlin fór í greiðslu­stöðvun í ágúst í fyrra og hætti starf­semi 27. októ­ber 2017. Önnur flug­fé­lög sem gáfu út skulda­bréf á tíma­bil­inu greiða, sam­kvæmt frétt Bloomberg um málið, 5,1 til 7,9 pró­sent vexti.

Í við­tali við Financial Times sem birt­ist dag­inn áður en til­kynnt var um að skulda­bréfa­út­boð­inu hefði verið lokað sagði Skúli Mogensen , stofn­andi, aðal­eig­andi og for­stjóri WOW air, að félagið ætl­­að­i að safna um 200 til 300 millj­­­ónum doll­­­ara í nýtt hlutafé í hluta­fjár­­­út­­­­­boði sem fyr­ir­tækið ætlar að ráð­­­ast í á næstu tveimur árum.

Af því hluta­fjár­út­boði verður aldrei.

Arion einn helst lánadrottinn WOW air

Ekki var greint frá því hverjir hefðu tekið þátt í skulda­bréfa­út­boð­inu að öðru leyti en að það væri bæði inn­lendir og erlendir fjár­festar. Þessi hópur var með belti og axla­bönd varð­andi WOW air þar sem kaupum þeirra fylgdi breyti­réttur á skulda­bréf­unum í hlutafé ef rekstur WOW air reynd­ist verri en lagt var upp með í áætl­unum. Hann reynd­ist verri. Mun verri.

Vegna skulda­bréfa­út­boðs­ins var heim­ild um að hækka hlutafé WOW air um 81 milljón hluta, sem er um þriðj­ungur alls hluta­fjár eftir hækkun, sam­þykkt í stjórn 24. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans kom krafan um að fara í við­ræður við Icelandair Group um kaup á WOW air frá lán­ar­drottnum félags­ins, m.a. þeim sem höfðu tekið þátt í útboð­inu. Arion banki er helsti lán­ar­drott­inn WOW air hér­lendis og hefur því án efa leikið lyk­il­hlut­verk í þeirri kröfu­gerð. Arion banki hefur ekki viljað upp­lýsa um hvort hann, eða sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Stefn­ir, hafi tekið þátt í skulda­bréfa­út­boð­inu hjá WOW air.

Skúli gæti fengið ekkert til viðbótar

Í til­kynn­ing­unni sem send var til Kaup­hallar í morgun kemur fram að Icelandair Group muni greiða 5,4 pró­sent af hlutafé sínu fyrir WOW air. Það getur þó farið svo að mun minna verði greitt fyrir það.

Fyrir liggur að ein­hverjir kröfu­hafar WOW air, nýttu sér breytirétt og breyttu víkj­andi lánum í hlutafé áður en við­ræð­urnar fóru af stað munu fá 1,8 pró­sent hlut í sam­ein­uðu félagi. Ekki hefur verið greint frá því hverjir þeir kröfu­hafar eru en lík­legt er að þar sé um Skúla Mogensen, að minnsta kosti að hluta, að ræða.

Þá er gengið út frá því að aðrir hlut­hafar, sem er félagið Títan fjár­fest­ingar í eigu Skúla Mogensen, muni fá um 3,5 pró­sent hlut í Icelandair. Það gagn­gjald er þó bundið nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­unar. Sýni slík könnun að staða WOW air sé betri en reiknað er með getur hlutur stofn­and­ans farið upp í 4,8 pró­sent. Sýni hún mun verri stöðu getur Skúli setið uppi með að fá ekk­ert til við­bótar fyrir WOW air.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið undanfarið ár