„Hvað myndir þú gera, ef þú værir dómsmálaráðherra?“

Útlend­inga­mál eru nú í brennid­epli, vegna máls egypskrar fjöl­skyldu með fjögur börn sem á að vísa á brott á mið­viku­dag. Kjarninn bað stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn um að setja sig í spor dóms­mála­ráð­herra. Hvað myndu þau gera?

Mistökin í laga­smíð­inni eru að í henni er ekki gert ráð fyrir því að fólk myndi tengsl eftir að mál­inu er lokið á stjórn­sýslu­stigi. Aug­ljós­lega er það fjar­stæða, sér í lagi þegar kemur að börnum. Fólk, og sér­stak­lega börn, myndar aug­ljós­lega tengsl þótt málið sé klárað á stjórn­sýslu­stigi. Börn hætta ekki að læra tungu­málið eða umgang­ast vini sína,“ segir Helgi Hrafn Gunn­ars­son þing­maður Pírata.

Kjarninn spurði hann og einnig þær Þor­björgu Sigríði Gunn­laugs­dóttur þing­mann Við­reisnar og Helgu Völu Helga­dóttur þing­mann Sam­fylk­ingar, að því hvað þau myndu gera ef að þau væru dóms­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands í dag.

Ástæða spurn­ing­ar­innar er sú að enn einu sinni er mál fjöl­skyldu með börn sem senda á úr landi til umræðu í sam­fé­lag­inu og margir spyrja sig að því hvort lögin og regl­urnar sem settar hafa verið í útlend­inga­málum séu í takt við það sem sam­fé­lagið vill.

Skorað er á dóms­mála­ráð­herra og aðra ráð­herra í rík­is­stjórn­inni um að koma í veg fyrir það að sex manna egypsk fjöl­skylda, sem hefur tengst sam­fé­lag­inu hér í rúm tvö ár, verði send aftur til Egypta­lands næsta mið­viku­dag, 16. sept­em­ber.

Þing­menn­irnir þrír sem Kjarninn hafði sam­band við hafa allir verið gagn­rýnir á þetta ein­staka mál og útlend­ingapóli­tík rík­is­stjórn­ar­innar almennt og telja breyt­inga þörf. En hvaða breyt­ingar ætti að gera í lögum og reglum um útlend­inga, að þeirra mati?

Í lögum um útlend­inga, sem sam­þykkt voru árið 2016, er kveðið á um að heim­ilt sé að veita útlend­ingi sem hér hafi sótt um alþjóð­lega vernd og ekki fengið nið­ur­stöðu í máli sínu á stjórn­sýslu­stigi innan 18 mán­aða eftir að hann sótti fyrst um vernd, dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum.

Í febr­úar á þessu ári ákvað rík­is­stjórnin að fresta brott­vís­unum barna­fjöl­skyldna ef að máls­með­ferð­ar­tími þeirra hefði farið yfir 16 mán­uði. Sú ákvörðun kom til góða fjöl­skyldu sem átti að senda úr landi á þeim tíma. En svarið sem dóms­mála­ráð­herra gaf varð­andi mál egyp­sku fjöl­skyld­unnar fyrr í vik­unni var að það sé ekki hægt að breyta reglu­gerðum „til að bjarga ein­staka fjöl­skyldum sem fara í fjöl­miðla“.

Helga Vala segir að tilmæli ráðherra um rýmri túlkun myndu duga

Síðan er einnig lögum sam­kvæmt heim­ilt að veita mann­úð­ar­leyfi þrátt fyrir að skil­yrði alþjóð­legrar verndar hafi ekki talist upp­fyllt við efn­is­með­ferð, ef umsækj­and­inn getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd. Þetta bendir Helga Vala á.

Hún seg­ist í grunn­inn sam­mála því að ekki eigi að breyta reglum eftir á, en segir einnig að þess þurfi í raun ekki í til­felli egyp­sku fjöl­skyld­unnar, þar sem áður­nefnd heim­ild sé í lögum þess að veita mann­úð­ar­leyfi á grund­velli ríkrar þarfar.

Dóms­mála­ráð­herra myndi því ekki þurfa að breyta neinni reglu­gerð, heldur ein­fald­lega mæl­ast til þess við þau stjórn­völd sem hún ber ábyrgð á að túlka ákvæði útlend­inga­laga um mann­úð­ar­leyfi ekki jafn þröngt og raun ber vitni.

„Það er ákvörðun stjórn­valda að beita ekki þessu ákvæði,“ segir Helga Vala og segir að túlk­unin á því hafi verið hert á und­an­förnum árum. Það sé reynsla lög­fræð­inga sem starfi við þennan mála­flokk. Ráðherra þurfi því í raun bara að beina þeim til­mælum til Útlend­inga­stofn­unar að hætta að beita „svo þröngri lög­skýr­ingu að það kom­ist eng­inn inn í það þrönga nál­ar­auga,“ eins og raunin hafi verið.

„Nú er það auð­vitað ekki þannig að við getum bjargað öllum heim­inum, en þessi börn eru búin að vera hérna í tvö ár,“ segir Helga Vala um mál egyp­sku fjöl­skyld­unnar og bætir við að það hafi ekki verið þeirra val að festa hér rætur, heldur hafi mál þeirra tekið svo langan tíma í með­förum stjórn­valda.

Hún segir Sam­fylk­ing­una til­búna með frum­varp sem verði lagt fram á haust­þingi sem end­ur­vekji í raun­inni ákvæði um mann­úð­ar­leyfin eins og þau voru í eldri útlend­inga­lögum, þeim sem giltu hér fyrir árið 2016.

„Nú er það auð­vitað ekki þannig að við getum bjargað öllum heim­inum, en þessi börn eru búin að vera hérna í tvö ár.“

Það myndi gefa Útlend­inga­stofnun enn meira svig­rúm til að beita ákvæði um mann­úð­ar­leyfi, segir Helga Vala en bætir við að „þetta ákvæði eins og það er í lög­unum núna getur þó alveg komið í veg fyrir brott­vísun egyp­sku fjöl­skyld­unnar ef stjórn­völd hefðu yfir­leitt ein­hvern áhuga á því að vernda þessi börn.“

Börn mynda tengsl óháð því hvað stjórnsýslunni finnst

Helgi Hrafn þing­maður Pírata segir vand­ann við lögin eins og þau eru í dag að það geti liðið langur tími frá end­an­legri ákvörðun á stjórn­sýslu­stigi og þar til end­an­legur brott­flutn­ingur á sér stað. Hann telur að breyta ætti lögum á þá vegu að 18 mán­uð­irnir miði við þann tíma sem umsækj­endur hafi verið á land­inu, algjör­lega óháð því hvers vegna þeir séu hérna.

„Ef yfir­völd vilja endi­lega losna við fólk fyrir þann tíma, þá verða yfir­völd bara að gjöra svo vel að klára málin nógu hratt frá A til Ö. Alveg sama hvaða afsak­anir yfir­völd hafa fyrir seina­gang­inum, og alveg sama hvað stjórn­sýsl­unni finnst, þá munu börn bara samt halda áfram að mynda tengsl hérna eftir 18 mán­uð­ina, og öll rök fyrir því að hafa 18 mán­aða mörkin yfir­höfuð gilda nákvæm­lega jafn mikið eftir að mál­inu lýkur á stjórn­sýslu­stigi,“ segir Helgi Hrafn í svari sínu.

„Það eru veggirnir og verð­irnir á honum sem valda kostn­að­inum, ekki stimp­ill­inn í vega­bréfið.“

Hann segir að á þetta hafi verið bent í nefnd um útlend­inga­mál í þing­inu og að hann voni að sú umræða muni leiða af sér breyt­ingu á þessu atriði. Hann biður blaða­mann um að hafa í hug að þetta segi hann að því gefnu að ekki sé vilji til þess að koma á fót víð­tæk­ari flóru af dval­ar­leyfum hér­lendis, en hans vilji stendur til þess.

„Við erum að sóa ótrú­legum upp­hæðum og tæki­færum með því að vera svo log­andi hrædd við að ein­fald­lega leyfa fleira fólki að vera hérna. Það þarf hvorki að leggja niður landa­mæri né eyða meiri pen­ingum til þess,“ segir Helgi og útskýrir að það þurfi ekki að verja meira fjár­magni til þess að hleypa fleira fólki inn. Það kosti að halda fólki úti.

„Til þess að afgreiða mál hraðar við núver­andi kerfi, hins­vegar, verður að setja meira fjár­magn í kerfið. Það hefur hins­vegar frekar verið vilji til að draga úr tæki­færum umsækj­enda til að njóta rétt­inda sinna til fulln­ustu í reynd, frekar en að horfast í augu við þessa stað­reynd. Ef fólk vill í alvör­unni spara pen­inga við rekstur þessa kerfis, þá er aug­ljós­asta lausnin að auka heim­ildir fyrir fólk til að vera hérna. Það eru veggirnir og verð­irnir á honum sem valda kostn­að­inum, ekki stimp­ill­inn í vega­bréfið,“ segir Helgi Hrafn.

Tilefni til að spyrja hvort þetta séu reglur sem samfélagið vilji

„Rauði kross­inn hefur nefnt að það skipti börn máli hversu lengi þau hafa verið hér. Þau hafa talað um að líta megi til þess ekki síður en máls­hraða. Ég tek undir það og myndi vilja sjá að litið væri til þess,“ segir Þorbjörg Sigríður þing­maður Við­reisnar í svari til blaða­manns.

Hún telur til­efni til að rýna regl­urnar vegna þessa máls sem nú er til umfjöll­unar, það myndi koma þess­ari fjöl­skyldu til góða og öðrum sem væru í sam­bæri­legri stöðu.

„Viðmiðin verða að vera almenn, þau verða að vera skýr en þegar nið­ur­staðan verður þessi hlýtur að þurfa að skoða hvernig það getur gerst og hvort að baki séu reglur sem við sem sam­fé­lag viljum,“ segir Þorbjörg Sigríður, sem skrif­aði grein á Kjarnann um málið í gær þar sem hún velti vöngum yfir afstöðu Ásmundar Einars Daða­sonar félags- og barna­mála­ráð­herra til þess.

Hann tók nær enga afstöðu til máls­ins í sam­tali við Vísi í gær og sagði það alfarið á borði dóms­mála­ráð­herra, sem hann sagð­ist treysta full­kom­lega fyrir því að gæta að Barna­sátt­mál­anum.

Þorbjörg segir að það þyrfti að líta bæði til veru­tíma á land­inu og máls­með­ferð­ar­tíma, þar sem reglur sem líti bara til ann­ars af tvennu gætu haft gloppur. Hún segir að það yrði hægt að girða fyrir mögu­lega mis­notkun á reglum með því að skoða fyrst hversu lengi afgreiðsla mála hefði tekið og svo hvort umsækj­endur hefðu sjálfir verið að tefja afgreiðslu, eins og sé gert til dæmis í saka­málum.

Varðandi stefnu Við­reisnar í mál­efnum flótta­manna og hæl­is­leit­enda almennt segir Þorbjörg Sigríður að hún myndi vilja sjá stjórn­völd hætta að senda fólk til ríkja á borð við Grikk­lands og Ung­verja­lands á meðan aðbún­aður fólks þar er eins og hann er. Hún segir að þetta verði gert í auknum mæli verði nýtt útlend­inga­frum­varp að lögum.

„Útlend­ingapóli­tík sem gengur bara út á að segja nei og segja nei hratt er ekki póli­tík sem ég get skrifað undir.“

„Ástæðan er að frum­varpið boðar þann skiln­ing að flótta­fólk sem hefur fengið alþjóð­lega vernd, sama hvar hún er, sama við hvaða ömur­legu aðstæður það nú er, telst þá ekki í hópi þess fólks sem sé í raun­veru­legri þörf. Þetta er flótta­fólk og þetta er fólk sem stendur frammi fyrir end­ur­send­ingum til þess­ara landa og þetta mun aukast. Þessu höfnum við,“ segir Þorbjörg Sigríður.

Hún segir að auð­vitað geti ekki allir komið hingað til lands, en Ísland þurfi að taka ein­hverja ábyrgð. Við for­gangs­röðun geti skil­virk og hröð máls­með­ferð þó ekki verið eina svarið.

„Útlend­ingapóli­tík sem gengur bara út á að segja nei og segja nei hratt er ekki póli­tík sem ég get skrifað undir. Styttri máls­með­ferð­ar­tími er ekki stóri sann­leik­ur­inn þegar nið­ur­staðan verður vond og jafn­vel ómann­úð­leg. Það er ekki það sem kallað hefur verið eftir. Við höfum séð sorg­legar sögur fólks, full­orð­inna og barna, sem sækja skjól á Íslandi og það er fólk sem raun­veru­lega þarf á þess­ari vernd að halda. Við hljótum að stefna að því að lögin séu skýr, fram­kvæmdin skil­virk en ekki þannig að mann­úðin hverfi. Jafnvel þótt reglur séu skýrar og almennar koma alltaf upp álita­mál. Lög­fræðin er ekki raun­vís­inda­grein. Það er svig­rúm fyrir mat. Og stjórn­völd verða að hafa kjark til að rýna regl­urnar ef við sjáum vís­bend­ingar um að nið­ur­staðan verður allt að því ómann­úð­leg,“ segir Þorbjörg Sigríður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið undanfarið ár