„Við gerum ekki reglugerðarbreytingar til að bjarga einstaka fjölskyldum sem fara í fjölmiðla“

Nú stendur yfir und­ir­skrifta­söfnun þar sem þess er kraf­ist að stjórn­völd stöðvi brott­vísun fjög­urra barna og fjöl­skyldu þeirra. Ummæli dóms­mála­ráð­herra vegna máls­ins hafa verið harð­lega gagn­rýnd.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra telur ekki ástæðu til að beita sér sér­stak­lega í máli sex manna fjöl­skyldu frá Egypta­landi sem dvalið hefur hér á landi í yfir tvö ár en til stendur að vísa fjöl­skyld­unni úr landi í næstu viku.

Ummæli Áslaugar Örnu í kvöld­fréttum RÚV í vik­unni hafa vakið mikla athygli en þar sagði hún þegar hún var spurð út í það hvort ekki kæmi til greina að gera reglu­gerð­ar­breyt­ingu til að bjarga þess­ari til­teknu fjöl­skyldu: „Við gerum ekki reglu­gerð­ar­breyt­ingar til að bjarga ein­staka fjöl­skyldum sem fara í fjöl­miðla.“

Þessi ummæli hafa verið sett í sam­hengi við breyt­ingar á máls­með­ferð­ar­tíma sem dóms­mála­ráðu­neytið kynnti þann 2. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þá var ákveðið að fresta brott­vísun barna í þeim málum þar sem máls­með­ferð hefur farið yfir 16 mán­uði. Í lok jan­úar og byrjun febr­úar komst mál Muhammeds Zohair Faisal og fjöl­skyldu hans í hámæli í fjöl­miðlum en þá höfðu átján þús­und manns skorað á íslensk stjórn­völd að virða Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna og hætta við brott­vísun Muhammeds Zohair Faisal en hann hafði dvalið hér­lendis í meira en tvö ár.

Hafa lært íslensku, eignast vini og fundið sér áhugamál

Málið sem nú hefur ratað í fjöl­miðla snýst um fjögur börn, þau Abdalla, Rewida, Hamza og Mustafa, sem komu til Íslands þann 7. ágúst árið 2018 ásamt for­eldrum sínum Doaa og Ibrahim. Nú stendur yfir und­ir­skrifta­söfnun þar sem þess er kraf­ist að stjórn­völd stöðvi brott­vísun þess­ara ungu barna „sem eru hluti af sam­fé­lag­inu okkar og drepið ekki drauma þeirra og fram­tíð. Ykkur ber laga­leg og sið­ferð­is­leg skylda til þess að veita þessum börnum skjól og vernd og þið getið gert það án þess að þurfa að hafa mikið fyrir því,“ segir í áskor­un­inni.

Þar kemur fram að á þessum rúmum tveimur árum sem þau hafa verið hér hafi börnin gengið í skóla og leik­skóla, lært íslensku, eign­ast vini, fundið sér áhuga­mál og velt því fyrir sér hvað þau vilji verða þegar þau verða stór. Þau hafi fest hér rætur og yngstu strák­arnir þekki ekki mikið annað en að vera á Íslandi. Þau hafi upp­lifað öryggi, frelsi, frið og skjól með þeim hætti að þau sjái raun­veru­lega fyrir sér fram­tíð – eitt­hvað sem sé ekki mjög algengt á meðal flótta­barna.

Börnin fjögur sem dvalið hafa hér á landi í yfir tvö ár og aðlagast íslensku samfélagi.
Börnin fjögur sem dvalið hafa hér á landi í yfir tvö ár og aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi.

Í áskor­un­inni segir að lög­reglan hafi mætt heim til þeirra fyrir stuttu og til­kynnti þeim að þau fengju ekki að vera á Íslandi lengur og að hér sé ekki pláss fyrir þau. „Að íslensk yfir­völd vilji nú losna við þau sem fyrst – nánar til­tekið þann 16. sept­em­ber næst­kom­andi. Þá verða þau sótt af lög­regl­unni heim til sín, neydd upp í flug­vél og flogið til Egypta­lands – þaðan sem þau þurftu að flýja vegna ofsókna og ofbeldis af hálfu stjórn­valda þar í landi. Þar geta þau ekki verið og því mun þessi brott­vísun frá Íslandi þýða að þau munu aftur þurfa að leggja á flótta.“

Enn fremur segir að algjör­lega óháð óskilj­an­legri nið­ur­stöðu yfir­valda um að veita fjöl­skyld­unni ekki vernd á sínum tíma þá sé ekki með nokkru móti hægt að reyna að rétt­læta það að senda flótta­börn úr landi sem hafa verið á Íslandi í meira en tvö ár og að öllu leyti orðin hluti af sam­fé­lag­inu. Það sé ekk­ert annað en ofbeldi af hálfu íslenska rík­is­ins að ætla sér að fram­kvæma slíka brott­vísun og íslensk yfir­völd geti gleymt því að slík mann­vonska og grimmd verði liðin.

„Enn og aftur opin­bera íslensk stjórn­völd grimmi­lega og ómann­úð­lega stefnu sína í mál­efnum fólks á flótta sem felur fyrst og fremst í sér það mark­mið að veita sem fæstum vernd og koma fólki sem fyrst úr landi. Þegar íslensk yfir­völd eru ekki að reyna að end­ur­senda flótta­börn í skelfi­legar aðstæður á Grikk­landi reyna þau að losa sig við börn sem hafa verið hér á landi í meira en tvö ár.

Við viljum ekki þessa stefnu ykkar sem bygg­ist á illsku, skiln­ings­leysi, for­dómum, mann­rétt­inda­brotum, algjörum skorti á sam­kennd og kerf­is­bundnu ofbeldi á fólki á flótta.

Við krefj­umst þess að þið stöðvið brott­vísun þess­ara ungu barna sem eru hluti af sam­fé­lag­inu okkar og drepið ekki drauma þeirra og fram­tíð. Ykkur ber laga­leg og sið­ferð­is­leg skylda til þess að veita þessum börnum skjól og vernd og þið getið gert það án þess að þurfa að hafa mikið fyrir því,“ segir í áskor­un­inni.

Útlend­inga­stofnun synj­aði fjöl­skyld­unni um vernd í lok júlí í fyrra og var sú ákvörðun stað­fest af kæru­nefnd útlend­inga­mála rúmum fimmtán mán­uðum síðar. Reglu­gerð dóms­mála­ráð­herra um að veita skuli dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum ef máls­með­ferð hefur varað lengur en í sextán mán­uði á því ekki við um fjöl­skyld­una.

Til stendur að vísa þeim út landi á mið­viku­dag­inn næst­kom­andi en eins og áður segir hyggst dóms­mála­ráð­herra ekki beita sér sér­stak­lega í mál­inu.

„Við höfum stytt máls­með­ferð­ar­tíma og sér­stak­lega í málum barna svo að það taki ekki lengur en sextán mán­uði í til­viki þeirra að afgreiða mál og ef það tekur lengri tíma en það þá fær fólk hér mann­úð­ar­leyfi,“ sagði Áslaug Arna á RÚV.

Furða sig á kaldlyndi og ónærgætni í ummælum ráðherra

Eftir orð dóms­mála­ráð­herra á RÚV sendi stjórn Solaris – hjálp­ar­sam­taka fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi frá sér ályktun þar sem hún harmar ummælin.

„Stjórn Solaris furðar sig á kald­lyndi og ónær­gætni í ummælum ráð­herra um fólk í neyð sem lýsa algjöru skiln­ings­leysi á því óör­yggi, ótta, örvænt­ingu og óvissu sem flótta­fólk býr við.

Þá hafnar stjórn Solaris til­raun ráð­herra til þess að frýja sig ábyrgð í mála­flokki sem hann ber ábyrgð á og hvetur ráð­herra til þess beita sér fyrir því strax að öll börn sem hafa verið hér í svo langan tíma eins og tvö ár eru fyrir börn fái hér skjól og vernd. Það á við um Abdalla, Rewida, Hamza og Mustafa eins og önnur börn í svip­aðri stöðu sem hafa fest hér rætur og upp­lifa sig sem hluta af sam­fé­lag­inu. Það er með öllu óásætt­an­legt að komið sé fram við börn í við­kvæmri stöðu með þeim ómann­úð­lega og óskilj­an­lega hætti sem brott­vísun á slíkum tíma­punkti er. Við hljótum öll að vera sam­mála um það.

Að lokum vill stjórn Solaris koma því á fram­færi við ráð­herra að það væri ósk­andi að stjórn­völd settu sér stefnu í mál­efnum fólks á flótta sem byggir á mannúð, sam­kennd og mann­rétt­indum. Það yrði ef til vill til þess að fólk neydd­ist ekki til þess að fara með sín við­kvæmu mál­efni í fjöl­miðla, sem er staða sem eng­inn finnur sig í án þess að vera neyddur til þess af örvænt­ingu,“ segir í álykt­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið undanfarið ár