Öryrkjar skildir eftir í fátækragildru

Þegar verið er að taka ákvarð­anir um hækkun á örorku­líf­eyri milli ára er stuðst við spá um launa­þróun. Sú spá er oft­ast nær lægri en raun­veru­leg hækkun launa milli ára.

Um 21 þús­und manns eru með 75 pró­sent örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­mat á Íslandi. Fjöldi þeirra hefur tvö­fald­ast frá ald­ar­mótum, eða um 500 að með­al­tali á ári. Um 30 pró­sent hóps­ins eru undir fer­tugu. Þessi hópur á mjög erfitt með að sækja sér bjargir ann­ars staðar en í almanna­trygg­inga­kerfið, þar sem íslenskur vinnu­mark­aður tekur lítið sem ekk­ert við fólki með skerta starfs­getu og bætur sem rík­is­sjóður greiðir skerð­ast mjög hratt ef öryrkjar reyna að vinna. Þannig er frí­tekju­mark atvinnu­tekna til að mynda 109.600 krónur og hefur verið óbreytt í ára­tug. Ef það hefði fylgt verð­lags­hækk­unum væri frí­tekju­markið rúm­lega 151 þús­und krónur.

Lág­marks­fram­færslu­trygg­ing þeirra sem fá örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri er 247.183 krónur hjá þeim sem fá ekki greidda heim­il­is­upp­bót, en 310.800 krónur hjá þeim sem fá slíka.

Það þarf ekki að leggja lengi saman til að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að um fátæktr­ar­gildru sé að ræða sem erfitt er að kom­ast út úr. Ytri aðstæður, eins og hækk­andi hús­næð­is­kostn­aður, sem fjallað er um hér í hlið­ar­efni að neðan, ýkja síðan þessa stöðu enn frekar.

Bergþór Heimir Þórð­ar­son, vara­for­maður kjara­hóps Öryrkja­banda­lags Íslands, skrif­aði pistil sem hann birti á Facebook-síðu sinni þann 29. jan­úar síð­ast­lið­inn þar sem hann lýsti aðstæðum öryrkja sem vill vinna, og hvað það þýðir fyrir slíkan.

Lífeyrir hækkar ekki í samræmi við lög

Á Íslandi eru í gildi lög um almanna­trygg­ingar, sem ákvarða hver örorku­líf­eyrir eigi að vera. Í þeim, nánar til­tekið í 69. grein þeirra, er fjallað um hver almenn hækkun bóta almanna­trygg­inga eigi að vera. Þar segir að þær bætur skuli „breyt­ast árlega í sam­ræmi við fjár­lög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skal taka mið af launa­þróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verð­lag sam­kvæmt vísi­tölu neyslu­verðs.“

Ákvæðið var lög­fest árið 1997. Í ræðu Davíðs Odds­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, þann 9. des­em­ber 1997 sem flutt var vegna máls­ins sagði hann um ákvæðið: „Lásinn er tvö­faldur. Miðað er við að neyslu­vísi­talan sé í lág­marki og síðan er við­mið­unin kaupið að auki. [...] Það á ekki að láta nægja að miða við neyslu­vísi­töl­una. Það á jafn­framt að gæta þess að huga sér­stak­lega að og hafa við­miðun á launa­þró­un­inni og þá auð­vitað er bara hægt að gera það þegar launa­þró­unin er væn­legri kostur en vísi­tala neyslu­verðs.“

Textinn í lög­unum er nokkuð skýr. Líf­eyr­inn á að fylgja launa­þróun í land­inu og verð­bólga, sem er mæld með vísi­tölu neyslu­verðs, á ekki að geta étið virði bót­ana upp. Ef allt væri í sam­ræmi við laga­text­ann ættu því kjara­bætur öryrkja á hverju ári að vera hið minnsta hærri en verð­bólga hvers árs, og ef hún er lægri hlut­fallstala en hækkun launa þá eiga bæt­urnar að halda í við þá launa­þróun.

Þannig hefur málum þó ekki verið háttað. Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands,sem sýna þróun vísi­talna milli ára frá jan­ú­ar­mán­uði hvers árs, kemur skýrt fram að örorku­líf­eyrir hefur hækkað langtum minna en önnur laun í land­inu á síð­ustu 20 árum. Frá árinu 1998 hefur hækkun örorku­líf­eyris ein­ungis þrí­vegis verið hærri en annað hvort launa­þróun eða verð­bólga. Í alls 19 ár á því tíma­bili hefur hækkun örorku­líf­eyris hins vegar verið lægri en þróun þess­ara tveggja við­miða. Við það hefur átt sér stað kjaragliðnun.

Á manna­máli þýðir það að kjör öryrkja hafa oftar en ekki setið eftir á meðan að kjör ann­arra hafa batnað. Frá árinu 1998 nemur þessi kjaragliðnun 59,4 pró­sentum, sam­kvæmt tölum sem unnar hafa verið fyrir Mál­efna­hóp Öryrkja­banda­lags Íslands um kjara­mál. Frá árinu 2007 hefur gliðn­unin verið 28,4 pró­sent.

Mikið ógagnsæi

Öryrkjar og aðrir líf­eyr­is­þegar hafa lengi bent á þessa stöðu, að þeir hafi verið skildir eftir í kjara­þróun á nán­ast hverju ári. Þrátt fyrir að tals­menn þess­ara hópa telji ákvæði laga nokkuð skýrt þá hefur þessi þróun haldið áfram.

Ástæðuna er að finna í því að hækkun bóta almanna­trygg­inga er breytt í sam­ræmi við fjár­lög hverju sinni. Þar sem fjár­lög eru eðli máls­ins sam­kvæmt gerð fyrir kom­andi ár byggja ákvarð­anir á hækkun bóta því á mati um hver launa­þróun mögu­lega verði. Hver skil­grein­ing á launa­þróun sé er ekki fjallað um í lög­unum. Öryrkja­banda­lagið hefur talið að eina rök­ræna leiðin til að finna slíka út sé að miða ein­fald­lega við vísi­tölu launa. Því hafa fjár­mála­ráð­herrar hvers tíma verið ósam­mála, þótt ekki hafi verið sam­ræmi í því hvernig þeir hafa hagað sínum útreikn­ingum.

Í skýrslu sem Benedikt Jóhann­es­son hjá Talna­könnun, sem síðar sett­ist um stund í stól fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, vann fyrir Öryrkja­banda­lagið á árunum 2012 og 2013 kom fram að hann hefði leitað eftir skýr­ingum um hvernig staðið væri að útreikn­ingi á breyt­ing­unni á ári víða. Hvorki vel­ferð­ar­ráðu­neytið né Trygg­inga­stofnun sögð­ust búa yfir vit­neskju um hvernig það væri gert. Í skýrslu Bene­dikts segir: „Í lok mars 2012 fékk Öryrkja­banda­lag Íslands svar við fyr­ir­spurn um málið frá Fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Af því svari má ráða að ekki eru nákvæmar, hand­fastar reglur um hvernig þetta skuli gert, heldur miðað við mat á ári hverju. Þó virð­ist sem litið sé til almennra, umsam­inna launa­hækk­ana, spár um launa­hækk­anir og verð­lags­breyt­ingar næsta árs skv. for­sendum fjár­laga­frum­varps.“

Benedikt sagði í skýrsl­unni að þetta fyr­ir­komu­lag á útreikn­ing bóta væri ekki heppi­legt því það væri ekki gagn­sætt hvernig bóta­grund­völl­ur­inn væri met­inn. Hann taldi mik­il­vægt að stuðst væri við við­mið sem reiknað væri af öðrum en fjár­mála­ráðu­neyt­inu, t.d. Hagstofu Íslands sem reiknar út vísi­tölu launa.

„Ef regl­urnar eru gagn­sæjar er auð­velt að sjá hvort bætur hafi verið skertar eða bætt við þær með póli­tískum ákvörð­unum, en með núver­andi fyr­ir­komu­lagi er þetta óþörfum vafa und­ir­orpið. Einnig þarf að hafa í huga að greiddar bætur ráð­ast af ýmsu, t.d. öðrum tekjum bóta­þega og skerð­ing­ar­reglum,“ skrif­aði Benedikt.

Stuðst við óskilgreint launaskrið

Ljóst má vera að lítið hefur verið gert með þessar ábend­ingar Bene­dikts. Fyrir rúmu ári spurði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um það með skrif­legri fyr­ir­spurn hvaða for­sendur lægju að baki útreikn­ingum hækk­unar á bótum almanna­trygg­inga, sem voru 4,7 pró­sent sam­kvæmt fjár­lögum þess árs.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Í svari Bjarna sagði að það væri mat hverju sinni í fjár­laga­gerð­inni „hvernig taka skuli mið af launa­þróun en almennt má segja að gengið sé út frá með­al­hækk­unum í kjara­samn­ingum á almennum vinnu­mark­aði að teknu til­liti til þess hvenær hækk­an­irnar taka gildi á árinu. Þessi við­mið hafa því falið í sér að tekið hefur verið mið af með­al­breyt­ingum á vinnu­mark­aðnum í heild fremur en af hækkun ein­stakra hópa, t.d. hinna lægst laun­uðu. Líkt og fram kemur í grein­ar­gerð með fjár­laga­frum­varp­inu fyrir árið 2018 var gengið út frá 4,7 pró­sent hækkun á bótum almanna­trygg­inga fyrir árið 2018 með hlið­sjón af spá um launa­þróun. Ákvörðun um hækkun bót­anna tók mið af spá Hagstofu Íslands um þróun launa­vísi­tölu milli áranna 2017 og 2018 að frá­dregnu launa­skriði.“

Kjarninn hefur undir höndum fyr­ir­spurn frá Öryrkja­banda­lagi Íslands til Hagstofu Íslands, sem send var með tölvu­pósti í nóv­em­ber 2018, þar sem leitað er eftir því hvort fyrir liggi skil­grein­ing á hug­tak­inu launa­skriði hjá stofn­un­inni. Í svari Hag­stof­unnar kemur fram að Hag­stofan hafi „því miður“ ekki lagt mat á svo­kallað launa­skrið umfram kjara­samn­inga. Þar segir enn fremur að engin ein skil­grein­ing sé til um hug­takið launa­skrið og að skiln­ingur sé oft ólíkur milli aðila.

Með öðrum orðum er notkun á hug­tak­inu „launa­skrið“ undir þeim komið sem setur það fram.

Kvartað til umboðsmanns

Öryrkja­banda­lagið hefur verið mjög ósátt með það að óskil­greint „launa­skrið“ hafi verið dregið frá launa­vísi­tölu þjóð­hags­spár Hagstofu Íslands þegar hækkun greiðslna til skjól­stæð­inga þeirra var ákveðin við fjár­laga­gerð síð­asta árs. Og raunar er það mjög ósátt með það að ekk­ert sam­ræmi virð­ist vera í því hvernig breyt­ingar á líf­eyri milli ára. Árið 2018 var til að mynda lögð til hækkun um 4,7 pró­sent en sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi átti launa­þróun að hækka um 6,3 pró­sent. Ástæðan fyrir þess­ari lækkun var að áður­nefnt en óskil­greint „launa­skrið“ yrði dregið frá launa­þró­un­inni.

Í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2019, sem sam­þykkt var í des­em­ber síð­ast­liðnum, var lagt til að líf­eyrir myndi hækka um 3,4 pró­sent en þá var stuðst við allt annan rök­stuðn­ing og sagt að um væri að ræða 0,5 pró­sent kjara­bót umfram áætl­aða 2,9 pró­sent verð­bólgu.

Í des­em­ber 2018 sendi það kvörtun til Umboðs­manns Alþingis vegna máls­ins og sagði þar að það teldi fram­kvæmd og til­lögu­gerð ráðu­neyt­is­ins vegna breyt­inga á fjár­hæðum

líf­eyris almanna­trygg­inga við fjár­laga­gerð væri ekki í sam­ræmi við lög um almanna­trygg­ingar. „Engin festa er í fram­kvæmd­inni sem er ógagnsæ og virð­ist oft á tíðum sem það sé háð til­vilj­unum hvernig nið­ur­staða er fengin. Telur ÖBÍ því fullt til­efni til þess að umboðs­maður Alþingis taki til skoð­unar stjórn­sýslu ráðu­neyt­is­ins við ákvörðun þeirrar til­lögu að fjár­hæð líf­eyris sem lögð er fyrir Alþingi í formi fjár­laga­frum­varps ár hvert. Þótt end­an­legt ákvörð­un­ar­vald sé í höndum Alþingis þá er ljóst að Alþingi á að geta treyst því að til­lögur ráðu­neyt­is­ins séu í sam­ræmi við lög.“

Ráðuneytið ekki svarað erindinu

Umboðs­maður sendi Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, bréf dag­sett 18. jan­úar síð­ast­lið­inn þar sem hann óskaði frek­ari skýr­inga á mál­inu áður en tekin yrði frekarið ákvörðun um með­ferð á kvörtun­inni. Í því óskaði emb­ættið eftir því að ráðu­neytið rök­styðji afstöðu sína til við­horfs Öryrkja­banda­lags­ins sem fram kemur í kvörtun þess, að það skýri nánar hvers vegna þau við­mið sem notuð voru fyrir rök­stuðn­ingi á hækkun bóta í síð­asta fjár­laga­frum­varpi hafi orðið fyrir val­inu, hvort að hækkun bóta í sama fjár­laga­frum­varpi hafi tekið mið af sömu for­sendum og launa­hækk­anir rík­is­starfs­manna og þess einnig óskað að ráðu­neytið lýsi afstöðu sinni til þess hvort fram­setn­ing þess á til­lögu um hækkun bóta almanna­trygg­inga í fjár­laga­frum­varp­inu 2019 hafi verið nægj­an­lega skýr í ljósi fyr­ir­liggj­andi laga.

Umboðs­maður Alþingis óskaði eftir því að allar upp­lýs­ingar og skýr­ingar sem hann bað ráðu­neytið um myndu ber­ast ekki síðar en 8. febr­úar. Samkvæmt nýj­ustu upp­lýs­ingum Kjarnans höfðu svör ekki borist mán­uði eftir að sá frestur rann út og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hafði ekki óskað eftir við­bót­ar­fresti. Næstu skref í mál­inu yrðu því sú að emb­ætti Umboðs­manns Alþingis myndi senda ítrekun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár