Mynd: Birgir Þór Harðarson

Heimilum sem fá fjárhagsaðstoð sveitarfélaga fækkar enn

5.142 heim­ili þurftu á fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­laga að halda í fyrra. Þeim hefur fækkað á hverju ári síðan 2013. Skatt­greið­endur í Reykja­vík greiða 74 pró­sent kostn­aðar vegna slíkrar sem veitt er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Fimmta árið í röð þá fækkar þeim sem sem fengu fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­laga. Árið 2013 þáðu 8.042 heim­ili á land­inu slíka fjár­hags­að­stoð en í fyrra voru þau 5.142. Þeim hefur því fækkað um 2.900 alls á tíma­bil­inu, eða um rúman þriðj­ung. Kostn­aður allra sveit­ar­fé­laga á land­inu vegna greiðslna var 3,2 millj­arðar króna á síð­asta ári. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun. Um er að ræða t.d. félags­lega fram­færslu, húsa­leigu­bætur, félags­lega aðstoð eða styrki ýmiss konar til þeirra sem á þurfa að halda.

Rúmur helm­ingur allra sem þiggja fjár­hags­að­stoð, eða 2.756 heim­ili, eru í Reykja­vík. Hin sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu veita 967 heim­ilum slíka aðstoð. Það búa 126.100 manns í Reykja­vík en 96.490 sam­tals í öðrum sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Ef að félags­legum stuðn­ingi væri dreift jafnt á sveit­ar­fé­lög svæð­is­ins myndi Reykja­vík greiða 57 pró­sent af kostn­að­inum vegna hennar. Raun­veru­leik­inn er hins vegar sá að höf­uð­borgin, og skatt­greið­endur hennar, greiða 74 pró­sent hans.

Kostn­aður Reykja­vík­ur­borgar vegna fjár­hags­að­stoðar var 2.137 millj­ónir króna í fyrra. Á sama tíma greiddu hin sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem 43 pró­sent íbúa svæð­is­ins búa, 497,8 millj­ónir króna í slíka aðstoð.

Sú fækkun sem orðið hefur í hópnum sem þiggur fjár­hags­að­stoð hefur hald­ist í hendur við bætt atvinnu- og efna­hags­á­stand í land­inu. Samhliða því að atvinnu­leysi hefur fallið hratt hefur þeim sem þiggja aðstoð sveit­ar­fé­lag­anna hríð­fækkað.

Þorri félagslegs húsnæðis í Reykjavík

Byrðunum vegna félags­legs hús­næðis er einnig mjög mis­skipt milli sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Um síð­­­ustu ára­­mót átti Reykja­vík­­­ur­­borg 2.445 félags­­­legar íbúð­­ir. Þeim var fjölgað um á annað hund­rað í fyrra. Til sam­an­­burðar áttu þau nágranna­sveita­­fé­lög höf­uð­­borg­­ar­innar sem koma þar næst, Kópa­vogur (436 félags­­­legar íbúð­ir) og Hafn­­ar­­fjörður (245 félags­­­legar íbúð­ir) sam­tals 681 félags­­­lega íbúð í lok árs 2016. Í Garðabæ voru á þeim tíma 35 slík­­­ar, 30 í Mos­­fellsbæ og 16 á Sel­tjarn­­ar­­nesi.

Í Reykja­vík voru 19,7 félags­legar íbúðir á hverja þús­und íbúa í lok árs 2016 á meðan að þær voru 2,3 á hverja þús­und íbúa í Garða­bæ, 3,6 á hverja þús­und íbúa Sel­tjarn­ar­ness og 4,5 á hverja þús­und íbúa í Mos­fells­bæ. Þessar tölur komu fram í könnun sem vara­sjóður hús­næð­is­mála lét gera á stöð­unni. Nið­ur­stöður hennar voru birtar í ágúst í fyrra. Þar sagði einnig að ef fram­­boð ná­granna­sveit­­ar­­fé­lag­anna fimm ætti að vera sam­bæri­legt og það er í Reykja­vík, miðað við stöð­una í lok árs 2016, þyrfti að fjölga félags­legum leigu­í­búðum þeirra um 1.080.

Miklar sviptingar á Suðurnesjum

Á árunum eftir hrun fjölg­aði þeim sem þurftu á fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­laga að halda mikið. Sú fjölgun náði hámarki árið 2013 þegar rúm­lega átta þús­und heim­ili fengu slíka.

Ásbrú við Keflavíkurflugvöll.
Ásbrú við Kefla­vík­ur­flug­völl.

Utan Reykja­víkur var það svæði sem mest fann fyrir þessu aukna álagi Suðurnes. Þar fjölg­aði þeim heim­ilum sem þáðu fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­lags­ins úr 357 árið 2008 í 730 árið 2013. Það er rúm­lega tvö­földun á fjölda heim­ila.

Kostn­aður sveit­ar­fé­laga á Suð­ur­nesjum vegna fjár­hags­að­stoðar við íbúa jókst hlut­falls­lega enn meira á þessu tíma­bili. Á hru­nár­inu námu útgjöldin 62 millj­ónum króna en 2014, þegar þau voru hæst, voru þau 366,3 millj­ónir króna. Útgjöldin sex­föld­uð­ust því á nokkrum árum. Á sama tíma glímdi stærsta sveit­ar­fé­lagið á Suð­ur­nesjum, Reykja­nes­bær, við mikla fjár­hags­erf­ið­leika og við­bót­ar­kostn­að­ur­inn vegna fjár­hags­að­stoðar við fólk sem flutti í sveit­ar­fé­lagið, meðal ann­ars vegna mik­ils fram­boðs af þá ódýru leigu­hús­næði á Ásbrú, bætt­ist við þá erf­ið­leika. Mikill við­snún­ingur hefur hins vegar orðið á stöð­unni á Suð­ur­nesjum á und­an­förnum árum sam­hliða vexti í ferða­þjón­ustu, en alþjóða­flug­völlur Íslend­inga er stað­settur á svæð­inu.

Samhliða hefur þeim sem þiggja fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­laga þess fækkað mikið. Í fyrra voru þau heim­ili sem þáðu slíka 366 tals­ins, eða um helm­ingi færri en árið 2013. Kostn­aður vegna aðstoð­ar­innar var 184,4 millj­ónir króna á árinu 2017.

Færri börn þurftu á aðstoð að halda

Fjöldi þeirra ein­stak­linga sem bjuggu á heim­ilum sem þurftu á fjár­hags­að­stoð að halda var mestur 13.130 árið 2013. Í fyrra var hann 8.223 og því hefur ein­stak­ling­unum sem þurftu á fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­laga að halda fækkað um 4.907 á fimm árum.

Árið 2013 bjuggu 4.421 börn 17 ára og yngri við aðstæður þar sem heim­ili þeirra þurfti á fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­lags að halda. Þeim hefur fækkað ár frá ári og í fyrra voru þau 2.887 tals­ins, eða þriðj­ungi færri en fyrir fimm árum. Það eru 3,6 pró­sent allra barna á þeim aldri. Tæpur helm­ingur þeirra barna sem búa við slíkar aðstæður búa í Reykja­vík.

Af þeim heim­ilum sem fengu mesta fjár­hags­að­stoð árið 2017 voru heim­ili ein­stæðra barn­lausra karla 43,5 pró­sent og heim­ili, ein­stæðra kvenna með börn 23,4 pró­sent og heim­ili ein­stæðra barn­lausra kvenna 22,1 pró­sent. Heimili hjóna/sam­búð­ar­fólks voru 8,6 pró­sent. Árið 2017 voru 31,4 pró­sent við­tak­enda fjár­hags­að­stoðar atvinnu­lausir og af þeim 84 pró­sent án bóta­réttar, alls 1.359 ein­stak­lingar.

Erlendum ríkisborgurum fjölgar mikið

Á sama tíma og kostn­aður sveit­ar­fé­laga á Íslandi vegna fjár­hags­að­stoðar hefur dreg­ist veru­lega saman þá hefur erlendum rík­is­borg­urum sem flutt hafa til lands­ins fjölgað veru­lega.

Á árinu 2017 voru aðfluttir erlendir rík­is­borg­arar sem fluttu til Íslands 7.910 fleiri en brott­flutt­ir. Alls fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum á Íslandi um 25 pró­sent á síð­asta ári. Þeim hefur fjölgað um 81 pró­sent frá byrjun árs 2011 og eru nú 37.950 tals­ins. Þá eru ekki taldir með þeir sem koma hingað á vegum t.d. starfs­manna­leiga.

Lands­mönnum fjölg­aði um 10.130 á árinu 2017 og eru nú 348.580. Það þýðir að 78 pró­sent þeirrar fjölg­unar er vegna erlendra rík­is­borg­ara sem fluttu til lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið undanfarið ár