Lögbrot að veita rannsóknarnefnd rangar eða villandi upplýsingar

Allt að tveggja ára fang­elsi er við því að segja rann­sókn­ar­nefnd Alþingis ósatt. Þeir sem hönn­uðu „Lunda­flétt­una“ í kringum aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á Bún­að­ar­bank­anum könn­uð­ust ekki við hana þegar spurt var út í málið við skýrslu­töku.

Samkvæmt lögum um rann­sókn­ar­nefndir Alþingis er refsi­vert að láta rann­sókn­ar­nefndum í té rangar eða vill­andi upp­lýs­ingar. Ákæru­vald getur sak­sótt þá sem það gera og við slíkum brotum liggja allt að tveggja ára fang­els­is­refs­ing. Í nýlegri skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um aðkomu þýska einka­bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­an­um í jan­úar 2003 var birt gríð­ar­legt magn gagna – meðal ann­ars skjöl og tölvu­póstar – sem sýndu að Hauck & Auf­häuser var aldrei raun­veru­legur eig­andi í Bún­að­ar­bank­anum heldur lepp­ur. Allir þeir sem komu með beinum hætti að þeirri blekk­ingu sem sett var á fót í kringum meinta þátt­töku bank­ans að kaup­unum sögðu ósatt um vit­neskju sína við skýrslu­töku fyrir rann­sókn­ar­nefnd Alþing­is.

Sá sem var lyk­il­leik­andi í þeirri fléttu sem sett var upp í kringum kaupin var Ólafur Ólafsson. Hann hefur óskað eftir því að koma fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd til að skýra frá sinni hlið máls­ins. Formaður nefnd­ar­innar hefur sagt opin­ber­lega að hann vilji ekki að fundur hennar með Ólafi verði opinn fjöl­miðlum. Verði það nið­ur­staðan munu almenn­ingur og fjöl­miðlar ekki fá upp­lýs­ingar um það sem Ólafur hefur að segja um málið, enda ólög­legt fyrir nefnd­ar­menn að greina frá því sem gestir hennar segja á lok­uðum nefnd­ar­fundum.

Sannreynt að stjórnvöld, fjölmiðlar og almenningur var blekktur

Nefndin sem rann­sak­aði aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á stórum hlut í Bún­að­ar­bank­anum árið 2003 skil­aði skýrslu sinni 29. mars síð­ast­lið­inn. Í nið­ur­stöðum hennar segir að sann­reynt hafi verið með ítar­legum skrif­legum gögnum að Ólafur Ólafs­son, sam­starfs­menn hans, stjórn­endur hjá Kaup­þingi og nokkrir erlendir sam­starfs­menn, meðal ann­ars innan Hauck & Auf­häuser, hefðu hannað fléttu sem sett var á svið í kringum kaup­in. Í henni fólst að Kaup­þing fjár­magn­aði meint kaup Hauck & Auf­häuser á hlut í Bún­að­ar­bank­an­um, end­an­legur eig­andi þess hlutar var aflands­fé­lagið Welling & Partners á Bresku Jóm­frú­areyj­unum og bak­samn­ingar tryggðu Hauck & Auf­häuser algjört skað­leysi af aðkomu sinni. Slíkir samn­ingar tryggðu einnig að allur ávinn­ingur af flétt­unni, sem varð á end­anum yfir 100 millj­ónir dala, skipt­ist á milli aflands­fé­lags Ólafs Ólafs­sonar og aðila sem tengd­ust Kaup­þingi. Á gengi árs­ins 2005 nam sú upp­hæð 6,8 millj­örðum króna. Í dag er hún um 11 millj­arðar króna. Ekki var greint frá neinu ofan­greindu opin­ber­lega heldur því haldið fram að þýski bank­inn væri raun­veru­lega að kaupa hlut­inn og hefði fjár­magnað kaupin sjálfur. Með flétt­unni voru stjórn­völd, fjöl­miðlar og almenn­ingur blekktir.

Fjórir lyk­il­menn í mál­inu voru boð­aðir til skýrslu­töku fyrir nefnd­ina á meðan að vinnu hennar stóð, en neit­uðu að mæta. Um er að ræða Ólaf Ólafs­son, Guð­mund Hjalta­son, Hreiðar Már Sig­urðs­son og Sig­urð Ein­ars­son. Þegar rann­sókn­ar­nefndin beindi því til Hér­aðs­dóms Reykja­víkur að boða þá kröfð­ust þrír þeirra þess að dóm­ari viki sæti í mál­inu. Þeirri beiðni var hafn­að.

Þegar beiðni rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar var tekin aftur fyrir í byrjun des­em­ber 2016 báru bæði Ólafur og Guð­mundur brigður á að þeim væri skylt að svara spurn­ingum nefnd­ar­inn­ar. Þessu var hafnað af Hæsta­rétti 17. jan­úar 2017.

Sögðu ósatt

Skýrslur voru loks teknar af mönn­unum í lok jan­úar og byrjun febr­ú­ar. Allir fjórir ofan­greindir svör­uðu þar spurn­ingum rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar með þeim hætti að fram­burður þeirra stang­ast með öllu á við gögn – bæði samn­inga og tölvu­pósta – sem nefndin hefur undir höndum og sýnir bæði beina aðkomu þeirra og fulla vit­neskju um þá bak­samn­inga sem gerðir voru þegar látið var líta út fyrir að Hauck & Auf­häuser hefði keypt stóran hlut í Bún­að­ar­banka Íslands í jan­úar 2003.

Ólafur og Guð­mundur sögðu að þær upp­lýs­ingar sem stjórn­völd, almenn­ingur og fjöl­miðlar hefðu fengið um kaupin hafi verið réttar og nákvæm­ar. Bæði Hreiðar Már og Sig­urður könn­uð­ust ekk­ert við að Kaup­þing, sem þeir stýrðu, hefði komið að eða fjár­magnað kaup Hauck & Auf­häuser í Bún­að­ar­bank­an­um. Þá höfn­uðu þeir því báðir að hafa ein­hver annar en Hauck & Auf­häuser hefði verið raun­veru­legur eig­andi að hlutnum sem keyptur var í Bún­að­ar­bank­an­um.

Gögn máls­ins sýna, líkt og áður sagði, að allir fjórir menn­irnir höfðu fulla vit­neskju um, og tóku fullan þátt í, þeirri fléttu sem opin­beruð er í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþing­is. Þess utan liggur fyrir að Ólafur hagn­að­ist með beinum hætti um marga millj­arða króna af flétt­unni og að rann­sókn­ar­nefndin dregur þá ályktun að aðilar tengdir Kaup­þingi hafi gert slíkt hið sama.

Kjartan Bjarni Björgvinsson var formaður rannsóknarnefndarinnar sem kynnti skýrsluna. Niðurstaða hennar var afdráttarlaus: stjórnvöld, fjölmiðlar og almenningur voru blekkt.
Kjartan Bjarni Björg­vins­son var for­maður rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar sem kynnti skýrsl­una. Nið­ur­staða hennar var afdrátt­ar­laus: stjórn­völd, fjöl­miðlar og almenn­ingur voru blekkt.

Rann­sókn­ar­nefndin tók líka skýrslur af Ármanni Þor­valds­syni, fyrr­ver­andi for­stöðu­manni fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Kaup­þings, Bjarka Diego, þá starfs­manni fyr­ir­tækja­ráð­gjaf­ar­inn­ar, Krist­ínu Pét­urs­dótt­ur, þá for­stöðu­manni fjár­stýr­ingar Kaup­þings, og Stein­grími Kára­syni, þá yfir­manni áhættu­stýr­ing­ar. Auk þess tók nefndin skýrslu af Magn­úsi Guð­munds­syni, sem stýrði Kaup­þingi í Lúx­em­borg.

Eng­inn þess­ara aðila „kann­að­ist við eða rak minni til þess að Kaup­þing eða dótt­ur­fé­lag þess í Lúx­em­borg hefðu komið að við­skiptum Hauck & Auf­häuser með hluti í Eglu hf. [fé­lag­inu sem keypti hlut­inn í Bún­að­ar­bank­an­um]“.

Gögn máls­ins, sem rakin eru í skýrsl­unni, sýna þó ótví­rætt að allir ofan­greind­ir, utan Ármanns, tóku beinan þátt í þeirri fléttu sem fram­kvæmd var í kringum kaupin á Bún­að­ar­bank­an­um. Það sýna skjöl og tölvu­póstar ótví­rætt.

Þau sögðu því einnig ósatt við skýrslu­töku.

Sigurður veitti annarri nefnd rangar og villandi upplýsingar

Þetta er ekki eina rann­sókn­ar­nefndin sem einn mann­anna hefur veitt rangar eða vill­andi upp­lýs­ingar um kaupin á ráð­andi hlut í Bún­að­ar­bank­anum. Einka­væð­ing bank­anna var líka á meðal þeirra atburða sem fjallað var um í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðdrag­anda og orsök banka­hruns­ins, sem kom út í apríl 2010.

Rann­sókn­ar­nefndin tók meðal ann­ars skýrslu af Sigurði Ein­ars­syni. Þar sagði Sigurður m.a.: „Það er nefni­lega þannig að þegar þetta einka­væð­ing­ar­ferli fer í gang þá komum við þar hvergi nálægt. Það er hins vegar þannig að bæði þeir sem keyptu Lands­bank­ann og þeir sem keyptu Bún­að­ar­bank­ann komu að máli við okkur – báðir þessir aðilar komu að máli við okkur áður en þeir keyptu – og spurðu hvort við, þegar þeir væru búnir að kaupa, ef þeir fengju að kaupa, ég man nú ekki nákvæm­lega hvernig það var orðað, værum til­búnir til að sam­ein­ast þeirra fyr­ir­tæki. Ég man ég átti ítrekað fundi bæði með Björgólfi Thor og Björgólfi Guð­munds­syni um þetta og þeir voru mjög áfram um það að Kaupþing og Lands­banki sam­ein­uð­ust. Síðan koma Ólafur Ólafsson og Hjör­leifur Jak­obs­son að máli við mig með nákvæm­lega sama erindi. Við hins vegar komum hvergi nálægt kaup­unum.“

Samkvæmt nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­nefndar um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á Bún­að­ar­bank­an­um er það ósatt að Kaupþing – og Sigurður – hafi hvergi komið nálægt kaup­unum. Því er ljóst að Sigurður sagði einnig ósatt við skýrslu­töku hjá rann­sókn­ar­nefnd­inni um banka­hrunið, þegar hann gaf skýrslu fyrir henni 14. júlí 2009.

Allt að tveggja ára fangelsi

Í 10. grein laga um rann­sókn­ar­nefndir Alþingis segir: „Ef maður lætur af ásetn­ingi rann­sókn­ar­nefnd í té rangar eða vill­andi upp­lýs­ingar sam­kvæmt fyr­ir­mælum laga þess­ara fer um refs­ingu fyrir slík brot skv. 145. og 146. gr. almennra hegn­ing­ar­laga[...]Um slík mál skal fara sam­kvæmt lögum um með­ferð saka­mála.“

Það þýðir að ákæru­vald getur ákært þá sem segja nefnd­inni ósatt. Samkvæmt almennum hegn­ing­ar­lögum varðar það allt að tveggja ára fang­elsi að gefa opin­beru stjórn­valdi „ranga yfir­lýs­ingu að við­lögðum dreng­skap eða á annan sam­svar­andi hátt, þar sem slík aðferð er boðin eða heim­iluð“ ef sök er stór­felld.

Þögn um það sem fer fram á lokuðum fundum

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd er nú með málið til með­ferðar og hún gæti mælst til þess að við­eig­andi ákæru­vald myndi rann­saka hvort að vitn­is­burður þeirra sem sögðu ósatt fyrir rann­sókn­ar­nefnd­inni hafi gerst brot­legir við lög um rann­sókn­ar­nefndir með því athæfi sínu.

Ólafur Ólafsson var höfuðpaurinn í „Lundafléttunni“ samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Hann hefur beðið um að koma fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til að skýra mál sitt. Ekki liggur fyrir hvort sá fundur verði lokaður eða opinn.
Ólafur Ólafsson var höf­uð­paur­inn í „Lunda­flétt­unni“ sam­kvæmt skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar. Hann hefur beðið um að koma fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd til að skýra mál sitt. Ekki liggur fyrir hvort sá fundur verði lok­aður eða opinn.

Meðferð nefnd­ar­innar á mál­inu vekur reyndar nokkra furðu. Brynjar Níelsson, for­maður nefnd­ar­innar, var um tíma verj­andi Bjarka Diego, sem gegndi lyk­il­hlut­verki í „Lunda­flétt­unni“, vegna hrun­máls. Brynjar taldi fyrst ekk­ert athuga­vert við að hann myndi stýra umfjöllun nefnd­ar­innar um skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar en sner­ist svo hugur þegar tölu­verð and­staða kom fram gegn því innan nefnd­ar­innar. Í fjöl­miðlum var greint frá því að Jón Steindór Valdi­mars­son, vara­for­maður nefnd­ar­innar, yrði fram­sögu­maður hennar í mál­inu og myndi stýra umfjöllun hennar um skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans.

Þrátt fyrir þetta hefur Brynjar verið sá full­trúi nefnd­ar­innar sem hefur verið í sam­bandi við Ólaf Ólafsson vegna áhuga hans á að koma fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd vegna máls­ins. Í Frétta­blað­inu í síð­ustu viku greindi Brynjar frá því að hann hefði rætt við Ólaf síð­ast­lið­inn mið­viku­dag um komu hans fyrir nefnd­ina. Í þeirri frétt sagði Brynjar einnig að hann teldi ekki að fundur nefnd­ar­innar með Ólafi ætti að vera opinn fjöl­miðlum og almenn­ingi. Það væri óskyn­sam­legt og óþægi­legt fyrir nefnd­ar­menn. Brynjar reikn­aði þó með að Ólafur myndi koma fyrir nefnd­ina í maí­mán­uði.

Verði það nið­ur­staðan munu hvorki almenn­ingur né fjöl­miðlar fá neinar upp­lýs­ingar um það sem Ólafur hefur að segja fyrir nefnd­inni. Í 19. grein þing­skap­ar­laga segir nefni­lega að óheim­ilt sé fyrir nefnd­ar­menn að vitna til orða gesta sem falli á lok­uðum nefnd­ar­fundi nema með leyfi við­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið undanfarið ár