Elvis lifir
Elvis lifir að því er virðist góðu lífi á Raufarhöfn, nyrsta þorpi landsins. Þarna norður undir heimskautsbaug búa 153 manns í miklum rólegheitum. En fyrir rúmri hálfri öld voru íbúarnir nær 600, enda annar stærsti síldarbær landsins á eftir Siglufirði. Síldin hvarf 1967.