Kátur í land
Marteinn Sigurðsson, skipstjóri á Akranesi, kemur trillunni Kát í land. Bátinn notar hann til að fiska í soðið en nú er kominn tími til að koma honum í skjól, fram á næsta vor. Enda var morguninn í morgun sá fyrsti uppá Skaga þar sem skafa þurfti af farartækjum.