Mynd: Davíð Þór

Sjálfsafgreiðslukassar gætu fækkað störfum um 3.500

Inn­leið­ing sjálfs­af­greiðslu­kassa leiðir að lík­indum til þess að fjöldi starfa hverfi. „Ekkert til fyr­ir­stöðu“ að róbótar taki að sér hót­el­störf, segir verk­efna­stjóri Ferða­mála­stofu.

Í fyrstu skáld­sögu sinni, Player Piano, sá Kurt Vonnegut fyrir sér sam­fé­lag þar sem vélar höfðu verið smíð­aðar til að sinna flestum störfum. Á hverju ári urðu fleiri starfs­stéttir úreltar þar sem ódýr­ara var að skipta mann­fólki út fyrir vél­rænar eft­ir­myndir sem kvört­uðu aldrei, þurftu ekki svefn og báðu aldrei um launa­hækkun. Skáldsagan kom út árið 1952 en tit­ill­inn vísar til sjálf­spilandi píanós sem getur spilað lög án aðkomu mennsks píanó­leik­ara.

Vonnegut sótti inn­blástur til þriggja ára starfs­fer­ils síns hjá raf­tækja­fyr­ir­tæk­inu General Electric þar sem hann heyrði vís­inda­menn sífellt lof­syngja vél­væð­ingu og hug­myndum um að sjálf­virkni­væða vinn­una sem fór fram á færi­band­inu. Slíkar hug­myndir voru ekki nýjar af nál­inni; til að mynda höfðu Henry Ford og Karl Marx velt upp kostum þess að losa fólk undan heila­lausri og firr­andi erf­ið­is­vinnu.

Í Player Piano nýtir Vonnegut þessar hug­myndir til að teikna upp dystópíska fram­tíð­ar­sýn. Menn sem áður sinntu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár