Marsera um göt­urnar Hægri öfga­menn og nýnas­istar gengdu fylktu liði um Frank­furt (Oder) í jan­úar 2015 til þess að mót­mæla stefnu Merkel í inn­flytj­enda­málum. Mynd: Shutterstock

Morð á þýskum stjórnmálamanni skapar andrúmsloft ógnar og ótta

Ótti ríkir í þýsku sam­fé­lagi eftir morðið á stjórn­mála­mann­inum Walter Lübcke. Samtök nýnas­ista hafa birt dauða­lista á vefnum þar sem fleiri stjórn­mála­mönnum er hótað líf­láti. Örygg­is­lög­regla Þýska­lands þykir hafa sofið á verð­inum gagn­vart þeirri ógn sem stafar af hægri öfga­mönnum.

Morðið á þýska stjórn­mála­mann­inum Walter Lübcke hefur und­an­farnar vikur skekið þýskt sam­fé­lag. Lübcke, sem átti sæti á rík­is­þingi Hesse sem aðal­full­trúi Kassel-borgar, fannst lát­inn í garð­inum fyrir utan heim­ili sitt, þar sem hann hafði verið skot­inn í haus­inn af stuttu færi. Enginn skot­vopn fund­ust á vett­vangi en DNA sýni af Stephan Ernst, 45 ára gömlum öfga hægri­manni fund­ust á fötum Lübcke. Hann ját­aði síðar að hafa myrt stjórn­mála­mann­inn vegna afstöðu hans í mál­efnum flótta­fólks en dró játn­ingu sína síðar til baka. Málið hefur vakið upp óþægi­legar minn­ingar um van­hæfi þýsku örygg­is­lög­regl­unnar, BfV, til þess að takast á við ofbeldi hægri öfga­manna.

Fannst í garð­inum Stjórn­mála­mað­ur­inn Walter Lübcke fannst lát­inn í garð­inum sínum þann 2. júní. Hann hafði verið skot­inn í haus­inn af stuttu færi. 

Þetta er í fyrsta skipti síðan á sjö­unda ára­tugnum sem þýskur stjórn­mála­maður er myrtur og þykir til marks um breytt stjórn­mála­á­stand í Þýska­landi. Flokks­systk­ini Lübcke úr röðum Kristi­legra demókrata hafa meðal ann­ars sakað liðs­menn hægri öfga­flokks­ins Alt­ernative für Deutschland, AfD, um að kynda undir ofbeldi af þessu tagi með eitr­aðri og hættu­legri umræðu­taktík. Meðlimir AfD gera hins­vegar lítið úr ógn­inni af hægri öfga­mönnum og saka stjórn­völd meðal ann­ars um að bera ábyrgð á morð­inu með frjáls­lyndri stefnu sinni í inn­flytj­enda­málum. Rökin eru eitt­hvað á þá leið að hægri öfga­menn væru ein­fald­lega ekki svona reiðir, hrein­lega morð­óðir, hefði Merkel ekki asnast til þess að opna landið fyrir flótta­fólki árið 2015.

Hvað sem slíkri umræðu líður má ljóst vera að þýsk stjórn­mál verða markeruð af atburð­inum til lengri tíma. Sumir ótt­ast að atburður sem þessi geti fælt frjál­synt fólk frá því að taka þátt í stjórn­málum en óhætt er að segja að and­rúms­loftið sem mynd­ast hefur í kjöl­farið sé ekki beint geðs­legt. Stuttu eftir morðið birtu ýmis sam­tök hægri öfga­manna og nýnas­ista dauða­lista víðs­vegar um ver­ald­ar­vef­inn þar sem finna mátti nöfn, heim­il­is­föng og myndir af stjórn­mála­mönnum sem tala máli flótta­fólks og þeir varaðir við að þeir yrðu næstir. Talið er að um þrettán þús­und þýskir nýnas­istar séu til­búnir til þess að beita ofbeldi til að koma mál­stað sínum á fram­færi. Ógnin af hryðju­verkum af þeirra hendi er því sann­ar­lega fyrir hendi.

„Líf þitt mun enda árið 2020“

Fleiri morðtilraunir

Hinn 65 ára gamli Walter Lübcke var rétt eins og flokks­systir hans Angela Merkel mik­ill tals­maður þess að opna Þýska­land fyrir flótta­fólki og taldi það raunar sið­ferð­is­lega skyldu að taka á móti fólki á flótta. Hann hafði gegnt stöðu aðal­full­trúa Kassel á rík­is­þingi Hesse í rúm tíu ár og er lýst sem þöglum manni á oft á tíðum eld­heitu þing­inu, í nýlegri umfjöllun Der Spiegel. Þá hefur flokkur Kristi­legra demókrata, CDU, gefið það út að Lübcke hafi aldrei verið hræddur við að tala mein­ingu sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þýsk stjórnmál

Reynsla

Jón Bjarki Magnússon

Þegar lúx­em­borg­skt skúffu­fé­lag eign­að­ist heim­ilin okkar

Berlín­ar­búar beita ýmsum ráðum til þess að halda niðri leigu­verði í borg sem trekkir að sér sífellt fleiri íbúa. Þegar lúx­em­borg­skt skúffu­fé­lag keypti nýlega litla íbúð­ar­blokk í aust­ur­hluta borg­ar­innar tóku leigj­end­urnir sig saman og börð­ust gegn söl­unni. Íslend­ing­arnir í hús­inu höfðu litla trú á að slík bar­átta gæti skilað árangri.

12 mín. lestur

ErlentÞýsk stjórnmál

Þýska öfga­hægrið missir flugið

Stuðn­ingur við þýska hægri öfga­flokk­inn Alt­ernative für Deutschland, AfD, virð­ist fara dvín­andi sam­kvæmt nýlegum skoð­ana­könn­unum í Þýska­landi. Meðlimir flokks­ins hafa meðal ann­ars talað fyrir því að flótta­menn séu skotnir á landa­mær­unum, gegn fóst­ur­eyð­ingum og kyn­fræðslu barna, og sagt að íslam sam­ræm­ist ekki stjórn­ar­skránni. Eftir að hafa fagnað sigri síð­ast­liðið haust mælist flokk­ur­inn nú aðeins með 8,5 pró­sent fylgi.
Erlent

Angela Merkel, leið­togi hins frjálsa heims

Ýmsir vilja meina að Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, sé leið­togi hins frjálsa heims nú þegar Donald Trump hefur tekið við völdum í Banda­ríkj­unum. Prests­dóttirin Merkel ólst upp í Austur-Þýska­landi. Hún er mennt­aður eðl­is­fræð­ingur og talar reiprenn­andi rúss­nesku. Við fall Berlín­ar­múrs­ins ákvað hún að láta til sín taka á vett­vangi stjórn­mál­anna. Kansl­ar­inn sæk­ist nú eftir end­ur­kjöri fjórða kjör­tíma­bilið í röð en kom­andi ár gæti orðið afdrifa­ríkt í Evrópu nú þegar popúl­ískir hægri flokkar eru að sækja í sig veðrið í álf­unni.

10 mín. lestur

Erlent

Óttast að falskar fréttir grafi undan lýð­ræð­inu í Evrópu

Svoköll­uðum fölskum fréttum hefur fjölgað veru­lega í Þýska­landi á nýju ári. Facebook hefur gert samn­ing við rann­sókn­ar­fjöl­mið­il­inn Correctiv um að sann­reyna þýskar fréttir. Svipaðir samn­ingar hafa verið gerðir í Banda­ríkj­unum. Frönsk og þýsk stjórn­völd ótt­ast að falskar fréttir geti haft veru­leg áhrif á kosn­inga­úr­slit í lönd­unum tveimur. Stjórn­mála­menn nýta sér orð­ræð­una um falskar fréttir í þeim til­gangi að grafa undan gagn­rýn­inni umræðu.

Mest lesið undanfarið ár