Reyna að taka ábyrgð á áhrifum neyslunnar

Kristján, Ásta, Anna, Arna, Rakel og Hafdís breyta neyslu­venjum sínum til að vinna gegn ham­fara­hlýnun af manna­völdum og annarri mengun.

Stefán Gíslason, umhverf­is­stjórn­un­ar­fræð­ingur segir breyt­ingar á neyslu­venjum mik­il­vægan þátt í að berj­ast gegn ham­fara­hlýnun.

Varðandi neyslu segir Stefán að stærstu lið­irnir séu þrír. „Það er bíll­inn, buffið og bústað­ur­inn. Sem sagt stærstu umhverf­is­þætt­irnir í rekstri venju­legrar fjöl­skyldu. Buffið á við um mat­væli, bíl­inn sam­göngur og bústað­ur­inn, við getum sagt að það sé öll önnur neysla, allar vör­urnar sem finn­ast á heim­il­inu. Þar má nefna hús­gögn, leik­föng, föt, raf­tæki og inn­rétt­ingar.“  

Stefán Gíslason

Stefán segir stærsta boð­orðið þegar kemur að neyslu vera að kaupa minna. Hann telur fólk vera að kaupa hluti sem það þarf ekki. „Ég hef reynt að tala um þetta þannig að þegar fólk er að kaupa eitt­hvað sem það þarf ekki er það að henda hluta úr ævi sinni. Meðal Íslend­ingur fær 20.000 krónur á dag eftir skatt fyrir vinnu sína. Ef hann kaupir sér hlut sem kostar 20.000 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamfarahlýnun

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár