Gosið í Fimm­vörðu­hálsi Tíðni eld­gosa gæti auk­ist vegna bráðn­unar jökla.

Eldgos og aðrar hamfarir verða skæðari

Tíðni eld­gosa gæti auk­ist vegna bráðn­unar jökla af völdum lofts­lags­breyt­inga. Flóð, fár­viðri og eldar verða tíð­ari og heilsa lands­manna versnar. Iðgjöld skyldu­trygg­inga hús­eig­enda munu hækka vegna auk­innar hættu á ham­förum.

Nái kvika undan bráðn­uðum jöklum upp á yfir­borðið gæti Ísland staðið frammi fyrir því sem sam­svarar einu Eyja­fjalla­jök­uls­gosi á 7 ára fresti. Tíðni flóða og ofsa­veðra mun einnig aukast af völdum lofts­lags­breyt­inga og heilsa lands­manna versna vegna margra sam­spilandi þátta.

Í skýrslu vís­inda­nefndar um lofts­lags­breyt­ingar kemur fram að vegna bráðn­unar jökla geti tíðni eld­gosa auk­ist eða umfang þeirra orðið meira vegna kviku­fram­leiðslu neð­ar­lega í jarð­skorp­unni sem nær upp á yfir­borðið. Erfitt er að meta hversu mikið af kvik­unni nær upp á yfir­borðið og hversu langan tíma það mun taka. Í sviðs­mynd þar sem gert er ráð fyrir að 25 pró­sent kvik­unnar skili sér á yfir­borðið má gera ráð fyrir því sem nemur einu Eyja­fjalla­jök­uls­gosi á 7 ára fresti. Gosið árið 2010 olli miklu tjóni og stöðv­aði flug­um­ferð í Evrópu á viku tíma­bili vegna ösku. Ekki er auð­velt að spá hversu langan tíma það tekur kvik­una að kom­ast upp, en …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamfarahlýnun

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár