James Ratcliffe Ríkasti maður Bret­lands og við­skipta­fé­lagar hans eiga um 1% alls íslensks lands. Mynd: Ineos.com

Vill ekki staðfesta hvort Ratcliffe hafi keypt fleiri jarðir

Sam­starfs­menn auð­kýf­ings­ins James Ratcliffe eru orðnir stjórn­ar­menn í félögum sem voru í eigu Jóhann­esar Krist­ins­sonar. Félögin eiga fjölda jarða á Norð­aust­ur­landi. Gísli Ásgeirs­son, nýr fram­kvæmda­stjóri félag­anna, vill ekki stað­festa hvort þau hafi skipt um hendur.

Fram­kvæmda­stjóri félaga sem halda utan um fjölda land­ar­eigna á Norð­aust­ur­landi getur ekki stað­fest hvort auð­kýf­ing­ur­inn James Ratcliffe hafi keypt þau af við­skipta­fé­lögum sínum. Sam­starfs­menn Ratcliffe tóku í febr­úar við stjórn­ar­sætum í félög­unum.

„Þetta teng­ist eigna­skiptum á hluta­bréfum að ein­hverju leyti, já,“ segir Gísli Ásgeirs­son, fram­kvæmda­stjóri félag­anna og Veiði­klúbbs­ins Strengs. „Þetta eru félög sem tengj­ast jörðum fyrir austan. Ég get ekki stað­fest eða hrakið þetta. Þetta eru svo­lítið mörg félög og ég hrein­lega man ekki hvernig þessu var stillt upp.“

Ratcliffe er rík­asti maður Bret­lands og hefur hann ásamt við­skipta­fé­lögum sínum keypt tugi jarða und­an­farin ár í Vopna­firði og Þistil­firði, sem flestar eru við lax­veiðiár. Sam­starfs­menn Ratcliffe hjá efnaris­anum Ineos, þeir William Bain Reid og Jonathan Frank Ginns, hafa haft milli­göngu um mörg við­skipt­anna. Jóhannes Krist­ins­son, áður kenndur við Fons …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár