Mynd: Heiða Helgadóttir

Drottningin í teboðinu

Sigríður Á. Andersen er einn hægri­s­inn­að­asti stjórn­mála­maður lands­ins. Karl Th. Birg­is­son skrifar um það sem hefur ein­kennt hana sem stjórn­mála­mann og það sem hefur ekki verið sjá­an­legt.

Fyrir því má færa gild rök að Sigríður Á. Andersen sé hægri­s­inn­að­asti stjórn­mála­mað­ur­inn á Alþingi.

Allur mál­flutn­ingur hennar end­ur­ómar sígilt ákall hægri manns­ins um lægri skatta, minni rík­is­af­skipti og meiri einka­rekstur, líka í vel­ferð­ar­þjón­ust­unni, minna eft­ir­lit og færri reglur í atvinnu­líf­inu, efa­semdir um nauð­syn aðgerða í umhverf­is­málum, hálf­gerða fyr­ir­litn­ingu á jafn­rétt­is­bar­átt­unni og nokkuð harðan tón í mál­efnum inn­flytj­enda. Svo nokkuð sé nefnt.

Frumleg á þingi

Þessum skoð­unum Sigríðar sér þó ekki víða stað í þing­málum sem hún hefur flutt. Hún hefur raunar ekki lagt þau fram mjög mörg sem óbreyttur þing­maður.

Fyrsta mál hennar var fremur óvenju­legt. Það fól í sér að bannað yrði að skipa ein­stak­ling í emb­ætti á vegum rík­is­ins ef sá sinn sami hefði verið settur til að gegna því und­an­liðna tólf mán­uði. Setning í emb­ætti er jafnan tíma­bundin og gripið til hennar með skömmum fyr­ir­vara og við óvenju­bundnar aðstæður. Gert er ráð …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár