Lágtekjufólkið fékk minni launahækkun og þyngri skattbyrði

Með­al­laun Íslend­inga hækk­uðu um 19 pró­sent milli 2014 og 2017 en hækkun tekju­hæsta 1 pró­sents­ins var tvö­falt meiri, um 40 pró­sent. Í krónu­tölum talið jók tekju­hæsta 0,1 pró­sentið tekjur sínar um sem nemur 70-faldri launa­hækkun verka­manns á sama tíma­bili.

Lágtekjufólkið fékk minni launahækkun og þyngri skattbyrði

For­stjórar og aðal­fram­kvæmda­stjórar fyr­ir­tækja fengu að með­al­tali 22 pró­senta launa­hækkun á tíma­bil­inu 2014 til 2017.

Á sama tíma­bili fékk fólk sem starfar við fisk­vinnslu og ræst­ingar, að miklu leyti erlent vinnu­afl, 14 pró­senta og 16 pró­senta hækkun.

Kjara­deil­urnar sem nú standa yfir hverf­ast meðal ann­ars um lífs­kjör þess­ara stétta, lág­tekju­fólks sem ekki hefur notið efna­hags­upp­gangs­ins í sama mæli og aðrir hópar. 

Mynd: Stundin.

Forstjórar fengu fimm sinnum meiri krónutöluhækkun 

Sam­an­burður Stund­ar­innar á launa­þróun byggir á gögnum úr launa­rann­sókn Hag­stof­unnar en miðað er við með­al­tal heild­ar­launa full­vinn­andi fólks eftir starfs­stéttum og núvirt sam­kvæmt verð­lagi árs­ins 2017. 

Með­al­laun Íslend­inga hækk­uðu um 19 pró­sent milli 2014 og 2017 og lág­marks­laun um 24 pró­sent. Afgreiðslu­fólk í dag­vöru­versl­unum var að með­al­tali með 69 þús­und krónum hærri mán­að­ar­laun árið 2017 heldur en árið 2014.

Hjá for­stjórum og aðal­fram­kvæmda­stjórum var krónu­tölu­hækk­unin 324 þús­und krónur, eða hátt í þre­föld hækkun með­al­launa. Mán­að­ar­laun stjórn­end­anna hækk­uðu þannig meira en sem nemur heilum mán­að­ar­launum mann­eskju sem lifir á lág­marks­launum.

Myndin hér að ofan birt­ist í umfjöllun Stund­ar­innar um ójöfnuð sum­arið 2018.

0,1 prósentið fékk 70-falda hækkun verkamanns

Hækkun atvinnu­tekna hjá starfs­stétt­unum er auð­vitað miklu minni en sú gríð­ar­lega aukn­ing fjár­magnstekna sem rann til allra tekju­hæstu Íslend­inga á sama tíma­bili.

Tekju­hæstu 5 pró­sent heim­ila juku heild­ar­tekjur sínar um 31,5 pró­sent sam­kvæmt gögnum rík­is­skatt­stjóra, tekju­hæsta 1 pró­sent heim­ila hækk­aði um 40 pró­sent og tekju­hæsta 0,1 pró­sentið um 55 pró­sent frá 2014 til 2017. Þetta fólk greiðir alla jafna lægra hlut­fall tekna sinna í skatt en almennir laun­þegar, enda eru tekjur þess að miklu leyti fjár­magnstekjur, svo sem sölu­hagn­aður og arð­greiðslur, og skatt­lagðar miklu minna en atvinnu­tekjur.

Heild­ar­árs­tekjur heim­ilis sem til­heyrir tekju­hæsta 0,1 pró­sent­inu á Íslandi voru að með­al­tali 96 millj­ónum hærri árið 2017 heldur en árið 2014. Í krónu­tölum talið hækk­uðu þannig mán­að­ar­tekjur þessa hóps 70 sinnum meira en mán­að­ar­laun verka­manna sem starfa við hús­bygg­ingar og 58 sinnum meira en laun hjúkr­un­ar­fræð­inga og ljós­mæðra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár