Einkarekið lækningafyrirtæki selt fyrir 850 milljónir eftir 585 milljóna arðgreiðslur til hluthafa

Bæði heil­brigð­is­ráð­herra og for­stjóri Sjúkra­trygg­inga eru mót­fallnar arð­greiðslum úr einka­reknum lækn­inga­fyr­ir­tækjum. Eigendur Lækn­is­fræði­legrar mynd­grein­ingar þurfa að taka minnst 100 millj­ónir á ári út úr rekstr­inum til að geta staðið í skilum eftir að hafa keypt fyr­ir­tækið á 850 millj­ónir króna. Sex læknar hafa fengið 180 millj­ónir króna á mann í arð og sölu­hagnað.

Einkarekið lækningafyrirtæki selt fyrir 850 milljónir eftir 585 milljóna arðgreiðslur til hluthafa
Dýr tækja­bún­aður Tækja­bún­aður fyr­ir­tækja eins og Lækn­is­fræði­legrar mynd­grein­ingar er dýr, meðal ann­ars seg­u­l­ómtæki eins og hér sést. Verðmæti tækja félags­ins er tæp­lega 360 millj­ónir króna. Mynd: Sara Jóhannesóttir

Einka­rekna lækn­inga­fyr­ir­tækið, Lækn­is­fræði­leg mynd­grein­ing, sem er fjár­magnað af íslenska rík­inu að um tveimur þriðju hlutum var selt til nýs hlut­hafa fyrir 850 millj­ónir króna í lok árs 2017. Lækn­is­fræði­leg mynd­grein­ing er rekstr­ar­fé­lag röntgen­lækna­stofu sem er stað­sett í Domus Medica í miðbæ Reykja­víkur og sem einnig er með starfs­stöðvar á Bílds­höfða og í Þöngla­bakka. Um 40 manns vinna hjá fyr­ir­tæk­inu sem er langstærsta einka­rekna mynd­grein­ing­ar­fyr­ir­tæki lands­ins á sviði lækn­is­fræði. 

Fyr­ir­tækið hefur síð­ast­liðin ár greitt yfir 100 millj­óna króna arð út til hlut­hafa sinna á ári en tekj­urnar hafa numið röskum millj­arði króna. Árið 2015 fékk félagið til dæmis 683 millj­ónir í tekjur á grund­velli þjón­ustu­samn­ings við íslenska ríkið og almennt séð nema tekj­urnar frá rík­inu á milli 65 og 70 pró­sentum af heild­ar­tekjum fyr­ir­tæk­is­ins. Hlut­haf­arnir hafa því fengið um það bil 10 pró­sent tekn­anna greidd út sem arð. Árið 2015 var arð­ur­inn 98 millj­ónir, 2016 nam arð­greiðslan 124 millj­ónum króna …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Arðgreiðslur

Ráðherra mótfallin arðgreiðslum úr heilbrigðisfyrirtækjum en hyggst ekki beita sér gegn þeim
FréttirArðgreiðslur

Ráðherra mót­fallin arð­greiðslum úr heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum en hyggst ekki beita sér gegn þeim

Nýr for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands hefur störf með látum og lýsir yfir and­stöðu við arð­greiðslur úr einka­reknum heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum. Heil­brigð­is­ráð­herra, Svandís Svav­ars­dóttir, er sam­mála því mati en hyggst ekki beita sér í mál­inu og bendir á að það sé ekki á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar.
Þetta er fólkið sem fær hluta af milljarðaarðinum frá Sjóvá og VÍS
FréttirArðgreiðslur

Þetta er fólkið sem fær hluta af millj­arðaarð­inum frá Sjóvá og VÍS

Stærstu hlut­hafar Sjóvár og VÍS eru líf­eyr­is­sjóðir, bankar og fjár­fest­inga­sjóðir en einnig ein­stak­lingar og eign­ar­halds­fé­lög. Fyr­ir­tækin tvö greiða út sam­tals átta millj­arða króna arð. Síld­ar­vinnslan, for­stjóri B&L, Árni Hauksson og Friðrik Hall­björn Karlsson, Steinunn Jóns­dóttir og óþekkt félag eru meðal þeirra sem fá arð­inn.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár