Mynd: Einar Ólason/ÖBÍ

Öryrkjar enn og aftur látnir sitja á hakanum

„Það er verið að svelta fólk þangað til það tekur til­boði stjórn­valda,“ segir for­maður Öryrkja­banda­lags­ins. Hver rík­is­stjórnin á fætur annarri hefur frestað því að fylgja eftir umdeildum breyt­ingum á kerf­inu og öryrkjar drag­ast aftur úr í lífs­kjörum.

Í vel­ferð­ar­kafla sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar kemur skýrt fram að breyt­ingar á bóta­kerf­inu muni fara fram í sam­ráði við for­svars­menn örorku­líf­eyr­is­þega til að ein­falda kerfið og efla líf­eyr­is­þega til sam­fé­lags­þátt­töku. Formaður Öryrkja­banda­lags Íslands segir að raunin sé að það sé verið að reyna að neyða öryrkja og banda­lagið til að sam­þykkja nýtt kerfi með því að halda aftur kjara­bótum þeirra.

Tveir starfs­hópar vinna að end­ur­bótum á almanna­trygg­inga­kerf­inu, annar fag­hópur úr vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu, og svo sam­ráðs­hópur skip­aður af stjórn­mála­mönnum og full­trúum hags­muna­fé­laga sem hafa aðild að mál­inu. Eitt af verk­efnum þessa starfs­hópa er að vinna að inn­leið­ingu á starfs­getu­mati í stað örorku­mats, en það felur í sér að örorku­líf­eyr­is­þegar eru metnir út frá hæfni sinni en ekki skerð­ingu. Búist er við til­lögum starfs­hópanna á fyrri hluta næsta árs.

Hug­myndir um upp­töku á starfs­getu­mati komu fyrst fram árið 2007 í skýrslu svo­kall­aðrar Bolla­nefndar. Málið var á lygnum sjó í næstu tveimur rík­is­stjórnum þangað til Eygló Harð­ar­dóttir varð félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra og skip­aði Pét­urs­nefnd til að leggja fram til­lögur til laga­breyt­inga. Reynt var án árang­urs að ýta mál­inu í gegn fyrir stjórn­ar­slit 2016 þrátt fyrir að það hafi ekki tek­ist að full­þróa til­lög­urnar.

Takmörkuð atvinnutækifæri fatlaðs fólks

Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar setti málið í stjórn­ar­sátt­mála sinn, en Þor­steinn Víglunds­son, þáver­andi félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, sagði í við­tali við Stundina að frum­varp um upp­töku starfs­getu­mats yrði að liggja fyrir í síð­asta lagi haustið 2018. Ekki varð úr því sökum stjórn­ar­slita, en núver­andi rík­is­stjórn hefur unnið að upp­töku mats­ins í gegnum áður­nefnda starfs­hópa.

Á mál­þingi Öryrkja­banda­lags­ins í sept­em­ber síð­ast­liðnum kynnti áður­nefndi sam­ráðs­hópur hug­myndir sínar, en mik­ill munur var á fram­sögum nefnd­ar­manna. Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og tals­maður hans í hópnum, tal­aði um mik­il­vægi þess að nýja kerfið yrði ein­fald­ara og skil­virkara og sagði að „lyk­ill­inn í því að gera kerfið mann­sæm­andi er að króna á móti krónu verði afnumið“, en þar vís­aði hann í flókið kerfi um frí­tekju­mörk öryrkja sem lækka bætur ein­stak­linga sem fá skatt­skyld laun eða bætur.

Lyk­il­at­riði að afnema krónu á móti krónuÁsmundur Frið­riks­son sagði á mál­þingi Öryrkja­banda­lags­ins að það væri nauð­syn­legt að afnema krónu á móti krónu skerð­ingu öryrkja til að gera kerfið mann­sæm­andi, en hefur ekki lagt fram frum­varp þess efnis.

„Um ára­mótin vil ég sjá stórt skref ger­ast,“ sagði Ásmundur. „Samhliða þess að við tökum starfs­getu­matið þarf að vinna að auk­inni atvinnu­þátt­töku þeirra sem eiga mögu­leika á því. [...] Þar verðum við að vinna saman og gefa atvinnu­líf­inu tæki­færi eða mögu­leika til að hafa vilja og áhuga á því að ráða þetta fólk í vinnu.“

Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands og með­limur í sam­ráðs­hópnum, segir að þess­ari ósk­hyggju sem banda­lagið deilir hafi ekki fylgt neinar aðgerðir stjórn­valda. „Fatlað fólk á ekki sömu mögu­leika á því að fá vinnu á almennum mark­aði og ófötl­uðu fólki,“ segir hún. „Jafnvel ef þú ert með rétta menntun og rétt­indi þá eru ekki til nein lög um við­eig­andi aðlögun á vinnu­stað og atvinnu­lífið hefur ekki ennþá ávarpað eða horft á hvernig hægt væri að inn­leiða slíkt.“

Það getur kostað vinnu­staði miklar fjár­hæðir að bæta úr aðgeng­is­málum sínum eða breyta vinnu­ferlum til að fólk sem fellur ekki í normið geti tekið þátt. „Við erum ekki búin að sjá hvernig atvinnu­lífið ætlar að bregð­ast við,“ segir Þuríður.

Brotið gegn stjórnarsáttmála

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar stendur að: „Fyrsta skref af hálfu stjórn­valda verður að skipu­leggja fram­boð hluta­starfa hjá hinu opin­bera fyrir fólk með skerta starfs­getu en á síð­ari stigum er mik­il­vægt að atvinnu­lífið taki virkan þátt í því verk­efni.“ Þetta hljómar keim­líkt til­lögum sem Ellen Calmon, þáver­andi for­maður Öryrkja­banda­lags­ins, lagði til við Stundina þegar blaðið fjall­aði um starfs­getu­matið fyrir ári.

Brýtur stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar sinnarÁsmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­ráð­herra, segir að ekki hafi enn haf­ist vinna við það sem stjórn­ar­sátt­máli rík­is­stjórn­ar­innar kallar „fyrsta skref“ stjórn­valda í að breyta núver­andi bóta­kerfi.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, fékk fyrir stuttu fyr­ir­spurn um hvernig mið­aði að vinnu þessa fyrsta skrefs stjórn­valda, en svar hans var að hún væri ekki enn hafin. „Þegar nið­ur­stöður um skipu­lag kerf­is­ins liggja fyrir verður haf­ist handa við að skipu­leggja hvernig fram­boð starfa hjá hinu opin­bera, sem ætluð eru fólki með skerta starfs­getu, verður aukið“, svar­aði hann skrif­lega.

Þuríður segir þetta til marks um öfuga for­gangs­röðun rík­is­stjórn­ar­innar og dæmi um hvernig kjara­bótum öryrkja er haldið frá þeim þangað til þeir sam­þykkja nýtt kerfi. „Við erum til­neydd til að fylgja þessu þrátt fyrir að við höfum bent á að það sé hægt að gera ýmsa brag­ar­bót á kerf­inu án þess að koll­varpa öllu. Ef króna á móti krónu skerð­ing er tekin út þá myndi það eitt og sér skapa mik­inn hvata fyrir þá sem geta unnið til að vinna.“

„Ef króna á móti krónu skerð­ing er tekin út þá myndi það eitt og sér skapa mik­inn hvata fyrir þá sem geta unnið til að vinna.“

Þuríður nefnir þróun atvinnu­leys­is­bóta í ár sem annað dæmi um hvernig öryrkjar hafa verið skildir eftir. Í ár hækk­uðu þær bæt­urnar úr 227.417 krónum í 270.000 á mán­uði á meðan að örorku­líf­eyr­inn hækk­aði aðeins um 4,7 pró­sent. „Mér finnst ekki slæmt að atvinnu­leys­is­bætur fari upp í 270.000 krónur, mér finnst það, ef eitt­hvað, of lágt, en örorku­líf­eyrir hefur sögu­lega alltaf verið aðeins hærri en bæt­urnar, en hann helst stríp­aður í 204.352 krónum eftir skatt. Það eru margir sem þurfa að lifa á honum.“

Andi laganna ekki virtur

Sú hækkun sem verður á örorku­líf­eyr­inum 2019 sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi er mun lægri en lög um almanna­trygg­ingar gera ráð fyrir. Þau voru end­ur­skoðuð 1997 og tekið fram í 69. grein að bætur skulu breyt­ast árlega og: „taka mið af launa­þróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verð­lag sam­kvæmt vísi­tölu neyslu­verðs“. Ef rýnt er í umsagnir um laga­frum­varpið kemur fram að þessi teng­ing við vísi­tölu neyslu­verðs er aðeins til staðar til að vernda líf­eyr­is­þega gegn því ef neyslu­verð hækkar meira en almenn laun.

Laun hækka hlut­falls­lega meira en líf­eyriEf skoð­aðar eru árlegar pró­sentu­hækk­anir með­al­launa og örorku­líf­eyris sést að líf­eyr­inn hefur aðeins hækkað hlut­falls­lega meira en með­al­laun fimm sinnum síð­ustu 20 ár: 1998, 2002, 2009, 2012, og 2017. Ef örorku­líf­eyri myndi hald­ast við launa­þróun væri hann að minnsta kosti 51,7% hærri.

Davíð Oddsson, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sagði í ræðu 9. des­em­ber 1997 að teng­ing líf­eyris við „almenna launa­taxta hafi ekki alltaf skilað bóta­þegum sann­gjarnri nið­ur­stöðu í ljósi þeirra launa­hækk­ana sem orðið hafa á almennum vinnu­mark­aði“. En ef launa­þróun og þróun örorku­líf­eyris er borin saman síð­ustu 20 ár sést ber­sýni­lega að kjaragliðnun upp á 51,7 pró­sent hefur átt sér stað. Af þessum 20 árum hafa laun hækkað hlut­falls­lega meira á milli ára en örorku­líf­eyrir 15 sinnum.

Því er ekki hægt að segja að andi lag­anna frá 1997 hafi fylgt útfærslu þeirra.

Starfsgetumat hefur leitt til dauðsfalla

Þuríður nefnir að þótt ýmis­legt gott sé að sjá í til­lögum starfs­hóps­ins, að þá búi margir ein­stak­lingar við núver­andi kerfi og séu í mjög við­kvæmri stöðu; ekki þarf að raska miklu í lífi þeirra til að skapa hættu­á­stand fyrir það og afkom­endur þeirra. Reynsla nágranna­landa okkar af upp­töku starfs­getu­mats hefur líka verið mjög nei­kvæð og á tímum hættu­leg.

Hefur ekki séð neinar alvöru kjara­bæturÞuríður Harpa segir að ÖBÍ sé af öllum vilja gert til að vinna með stjórn­völdum en að sam­ráð um kjara­bætur sé aðeins til að nafni til og að banda­lag­inu hafi ekki borist neinar raun­veru­legar til­lögur um kjara­bætur síð­asta ára­tug­inn.

Rann­sóknir benda til þess að starfs­getu­matið í Bret­landi og víðar hafi ekki leitt til þess mark­miðs að koma bóta­þegum í vinnu, heldur hafi þeir sem eru metnir hæfir til vinnu færst yfir á aðra bóta­flokka eins og atvinnu­leys­is­bætur eða fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­laga sinna. Alls 2.380 manns lét­ust á þriggja ára tíma­bili skömmu eftir að hafa verið metnir hæfir til vinnu í Bret­landi. Mann­rétt­inda­stofa Sam­ein­uðu þjóð­anna hefur gagn­rýnt þessa útfærslu á starfs­getu­mati fyrir að brjóta gegn mann­rétt­indum fatl­aðra.

Öryrkja­banda­lagið er ekki eitt í að leggj­ast gegn upp­töku starfs­getu­mats­ins, en með þeim í hópi eru stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins, VR og Efling, auk Alþýðu­sam­bands Íslands. 

„Það er verið að svelta fólk“

„Stjórn­völd vilja hampa okkur sem mann­rétt­inda­þjóð og eru að reyna að taka mið af samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks, en hér er ekk­ert sam­ráð,“ segir Þuríður. „Það er ein­fald­lega verið að taka skref til að fækka öryrkjum og neyða þá til að sam­þykkja nýtt kerfi. Það er verið að svelta fólk þangað til það tekur til­boði þeirra. Mér finnst þetta bein­línis vera ofbeldi, að vera beittur svona þrýst­ingi af stjórn­völdum og að það hafi ekki verið stigin nein alvöru skref til að bæta kjör þessa við­kvæma hóps síð­asta ára­tug. Það er klárt að það á ekki að hækka grunn­líf­eyri eða minnka skerð­ingar fyrr en við sættum okkur við þetta kerfi.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

BDV-ríkisstjórnin

Taugin milli Katrínar og Bjarna og límið í ríkisstjórninni
SkýringBDV-ríkisstjórnin

Taugin milli Katrínar og Bjarna og límið í rík­is­stjórn­inni

Ein af þeim spurn­ingum sem vaknað hafa á þessu kjör­tíma­bili er hvort traust og eða vin­ar­þel Katrínar Jak­obs­dóttur og Bjarna Bene­dikts­sonar sé límið sem heldur rík­is­stjórn­inni saman í gegnum súrt og sætt. Sögulegt for­dæmi er fyrir því að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og stjórn­mála­aflsins lengst til vinstri á Alþingi hafi verið haldið saman af meðal ann­ars trausti milli for­manna flokk­anna.
Nýtt úrræði fyrir eldri borgara nýtist helst vel stæðum körlum
ÚttektBDV-ríkisstjórnin

Nýtt úrræði fyrir eldri borg­ara nýt­ist helst vel stæðum körlum

Tæplega 30% ein­stak­linga sem fá elli­líf­eyri í dag frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins mæta skil­yrðum um sveigj­an­lega töku elli­líf­eyris sem félags- og jafn­rétt­is­ráð­herra sam­þykkti á síð­ustu dögum síð­asta árs. Hags­muna­að­illar eru ósáttir við kjör aldr­aðra og að ráð­ist sé í svona sér­tækar aðgerðir á meðan að almennir elli­líf­eyr­is­þegar geta ekki þegið mikil laun.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár