Ógagn­sæið hjá GAMMA Öfugt við Almenna leigu­fé­lag GAMMA þá iiggur eig­enda­hópur Heima­valla fyrir og sam­anstendur hann af þekktum efn­uðum fjár­festum og líf­eyr­is­sjóðum. Sam­an­lagt eiga þessi félög um 3.500 íbúðir. Mynd: Shutterstock

Hvernig eigendur leigufélaga GAMMA og Heimavalla ætla að græða á 3500 heimilum

Þeir sögu­legu atburðir eiga sér stað að tvö leigu­fé­lög í eigu fjár­festa verða skráð á markað á Íslandi. Óljóst hvort hlut­hafar Heima­valla og Almenna leigu­fé­lags GAMMA eru skamm­tíma- eða lang­tíma­fjár­festar. Mögu­leiki á skjót­fengnum gróða á leigu­í­búðum eftir fáheyrt góð­æri á íslenska fast­eigna­mark­aðnum.

 Stofn­andi sænska hús­gagna­fram­leið­and­ans Ikea, Ingvar Kamprad, gaf það út ítrekað meðan hann lifði að fyr­ir­tækið skyldi aldrei skráð á hluta­bréfa­markað. Ein af ástæð­unum sem Kamprad nefndi fyrir því var að hluta­bréfa­mark­aðir stjórn­ist af skamm­tíma­hags­munum. „Með þeirri skamm­sýnu gróða­hugsun sem ein­kennir hluta­bréfa­mark­að­inn hefðum við aldrei náð svona mik­illi vel­gengni,“ sagði Kamprad í við­tali árið 2008.

Ingvar Kamprad lést nú í lok jan­úar og var víða fjallað um þá ósk hans – eina af hans síð­ustu – að Ikea myndi aldrei fara á hluta­bréfa­markað. Í einu af síð­ustu við­töl­unum sem tekið var við Kamprad, við­tali leik­stjór­ans og leik­ar­ans Felix Hern­grens við hann í fyrra, sagði Kamprad meðal ann­ars: „Ég vona að Ikea eigi etir að lifa lengi og að fyr­ir­tækið verði aldrei skráð á hluta­bréfa­markað,“ sagði Kamprad. 

Ástæð­urnar fyrir því að Ikea á ekki að fara á hluta­bréfa­markað eru nokkrar.  Kamprad vildi halda eign­ar­hald­inu á fyr­ir­tæk­inu innan fjöl­skyldu sinnar sem lang­tíma­fjár­fest­ingu, Ikea …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Leigumarkaðurinn

Telja mikið eignarhald hagnaðardrifinna leigufélaga skýra skarpar verðhækkanir á Suðurnesjum
FréttirLeigumarkaðurinn

Telja mikið eign­ar­hald hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga skýra skarpar verð­hækk­anir á Suð­ur­nesjum

Leigu­verð heldur áfram að hækka víð­ast hvar á land­inu sam­kvæmt nýjasta mán­að­ar­riti Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unnar. Athygli vekur að verð fyrir leigu­í­búðir á Suð­ur­nesjum hefur hækkað óvenju hratt á síð­ustu sex mán­uðum. Telja skýrslu­höf­undar að það megi rekja til óvenju hás hlut­falls leigu­í­búða í eigu ein­stak­linga og hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga.
Óheyrilegar verðhækkanir á leigumarkaði: „Þeir eru eins og óðir hanar í mannaskít“
NeytendurLeigumarkaðurinn

Óheyri­legar verð­hækk­anir á leigu­mark­aði: „Þeir eru eins og óðir hanar í manna­skít“

Aug­lýs­ing sem birt­ist á fast­eigna­vefnum Igloo hefur vakið mikla athygli og umræðu. Þar er fjög­urra her­bergja íbúð í Reykja­vík aug­lýst til leigu fyrir 550.000 krónur á mán­uði. Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Leigj­enda­sam­tak­anna, segir stöð­una vera grafal­var­lega. Hann segir mörg heim­ili á leigu­mark­aði búi í dag við grimmi­lega og kerf­is­bundna fjár­kúgun.
Staða fjölskyldna á leigumarkaði hríðversnar milli ára
FréttirLeigumarkaðurinn

Staða fjöl­skyldna á leigu­mark­aði hríð­versnar milli ára

Samkvæmt nið­ur­stöðum leigukönn­unar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar versn­aði samn­ingstaða leigj­enda gagn­vart leigu­sölum umtals­vert milli áranna 2022 og 2023. Könnunin bendir einnig þess að bæði hafi leigu­verð hækkað og fram­boð á hús­næði við hæfi dreg­ist saman milli ára. Þróunin leggst þyngst á fjöl­skyldur sem bjuggu við þrengri kost árið 2023 í sam­an­burði við árið 2022.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár