Myndband: Heiða Helgadóttir

„Ég lít ekki lengur á hann sem pabba minn“

Anna Kjart­ans­dóttir ólst upp hjá dæmdum barn­a­níð­ingi og ofbeld­is­fullri stjúpu, meðal ann­ars á Höfn í Horna­firði. Faðir hennar situr nú í gæslu­varð­haldi vegna gruns um að hafa brotið gegn þriðju dóttur sinni og stjúpa hennar var dæmd fyrir ofbeldið. Engin heim­ild er í lögum til að grípa til fyr­ir­byggj­andi aðgerða til að vernda börn í þessum aðstæðum. Anna segir frá mis­þyrm­ingum sem hún mátti þola á heim­il­inu.

Nokkrir mán­uðir voru liðnir frá því að hún fór út af heim­il­inu og nú átti hún loks að fá að hitta yngri systk­ini sín. Full til­hlökk­unar gekk hún inn í Smára­lind­ina, sím­inn titr­aði, systir hennar lét vita að hún biði hennar á efri hæð­inni. Anna fylgd­ist með fólk­inu í kringum sig og fann hvernig eft­ir­vænt­ingin stig­magn­að­ist á leið­inni upp rúllu­stig­ann, þar til allt í einu að hún rak augun í fjöl­skyld­una. Henni var illa brugðið, líkt og hún hefði fengið högg í mag­ann, þegar hún sá hver beið hennar. Þarna stóðu ekki aðeins systk­ini hennar, eins og rætt var um, heldur faðir þeirra, sem hún, Anna Gílaphon Kjart­ans­dóttir, hafði kært fyrir nauðgun, og stjúp­móð­irin sem hún hafði kært fyrir heim­il­is­of­beldi.

Átti að vera með nálgunarbann 

Sárin á lík­ama …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Brot Kjartans Adolfssonar

Bera ör barnæskunnar ævilangt: „Við vorum með sár úti um allt“
ViðtalBrot Kjartans Adolfssonar

Bera ör barn­æsk­unnar ævi­langt: „Við vorum með sár úti um allt“

Linda ólst upp á heim­ili með dæmdum barn­a­níð­ingi og konu sem var síðar dæmd fyrir mis­þyrm­ingar gagn­vart börn­unum. Frá því að alsystir hennar leit­aði til lög­reglu leið eitt og hálft ár þar til Linda komst í fóstur. Á þeim tíma versnuðu aðstæður á heim­il­inu. Enn lengri tími leið þar til yngri systk­ini þeirra voru fjar­lægð þaðan.
„Vona að pabbi fái þann dóm sem hann verðskuldar“
ViðtalBrot Kjartans Adolfssonar

„Vona að pabbi fái þann dóm sem hann verð­skuldar“

Guðrún Kjart­ans­dóttir var barn að aldri þegar faðir hennar mis­not­aði hana. Nýlega var hann færður í gæslu­varð­hald vegna gruns um að hafa brotið gegn þriðju dóttur sinni. Guðrún hefur alltaf haft áhyggjur af systk­inum sínum, reynt að fylgj­ast með og höfða til sam­visku föður síns, en furðar sig á því af hverju dæmdir barn­a­níð­ingar fái að halda heim­ili með börnum. Hún stígur fram með móður sinni, Katrínu Magn­ús­dóttur, í von um að stjórn­völd end­ur­skoði mis­bresti í kerf­inu svo betur sé hægt að vernda börn.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár