Mynd: Pressphotos

Inngrip í íslensku alþingiskosningarnar

Flest bendir til þess að íslenskir kjós­endur hafi séð nei­kvæðar aug­lýs­ingar gegn and­stæð­ingum Sjálf­stæð­is­flokks­ins mörgum milljón sinnum. Formaður flokks­ins hefur ekki for­dæmt nafn­lausar aug­lýs­ingar.

Tvær þing­kosn­ingar í röð hafa flokkar sem hafa mælst stærri en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í skoð­ana­könn­unum verið teknir fyrir í áróð­urs­her­ferðum með mynd­böndum og myndum sem dreift er á sam­fé­lags­miðlum. Myndbönd frá einum nafn­lausum hópi, með leynda fjár­mögnun, hafa fengið vel á aðra milljón spil­ana og hefur hver Íslend­ingur að með­al­tali séð þau fimm til sex sinnum. Og áróð­ur­inn virð­ist hafa haft áhrif á nið­ur­stöðu alþing­is­kosn­ing­anna.

Inngrip nafn­lausra aðila með leyni­legu fjár­magni í íslensku alþing­is­kosn­ing­arnar virð­ist hlut­falls­lega mun umfangs­meira en inn­grip rúss­neskra yfir­valda í banda­rísku for­seta­kosn­ing­arnar, sem rann­sakað er af Banda­rísku alrík­is­lög­regl­unni og hefur verið tekið fyrir í leyni­þjón­ustu­nefnd öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings. 

Að með­al­tali hefur hver Íslend­ingur séð tvö áróð­urs­mynd­bönd frá nafn­lausa aug­lýsand­anum Kosn­ingar 2017 með leyni­legri fjár­mögnun á mynd­banda­vefnum YouTube. Það segir aðeins brot af sög­unni, því að með­al­tali hefur áróð­urs­mynd­band verið spilað fjórum til fimm sinnum á hvern Íslend­ing af sömu aðilum á Facebook, eða vel yfir milljón sinnum. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2017

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár