Mynd: Pressphotos

Loforðin sem ganga ekki upp

Stjórn­mála­flokk­arnir boða stór­aukin útgjöld til ýmissa mála­flokka en tekju­öfl­un­ar­hug­myndir þeirra eru umdeildar og mis­raun­hæfar. Einn flokk­ur­inn boðar bæði stór­felldar skatta­lækk­anir og 100 millj­arða við­bót­ar­út­gjöld til inn­viða­upp­bygg­ingar.

Talsvert ójafn­vægi ríkir milli útgjalda­lof­orða stjórn­mála­flokka og þeirrar tekju­öfl­unar sem þeir lýsa sig reiðu­búna til að ráð­ast í. Stundin rýndi í kosn­inga­lof­orð þeirra níu stjórn­mála­flokka sem bjóða fram til Alþingis í öllum kjör­dæmum og fékk fjóra sér­fræð­inga til þess að meta lof­orðin út frá því hvort raun­hæft og skyn­sam­legt væri að hrinda þeim í fram­kvæmd. 

Flestir flokk­arnir lofa stór­auknum útgjöldum til upp­bygg­ingar inn­viða í íslensku sam­fé­lagi, en hug­myndir þeirra um öflun tekna eru óljósar. Athygli vekur að eng­inn flokkur boðar bein­línis hærri skatta á almenn­ing; þvert á móti er talað um að lækka álögur á lands­menn en um leið að stór­auka fjár­út­lát hins opin­bera til ýmissa mála­flokka.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn kallar eftir því á vef­síðu sinni að bank­arnir greiði rík­inu allt að 100 millj­arða króna í sér­stakar arð­greiðslur á næstu árum. Í stað þess að leggja áherslu á að þessir fjár­munir verði nýttir til að greiða niður skuldir hins opin­bera, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2017

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár