„Ég treysti Íslendingum ekki lengur“

Sara Qujakitsoq kom til Íslands frá Græn­landi í sumar til að safna pen­ingum fyrir námi en seg­ist hafa verið svikin af íslenskum yfir­manni sínum. Málið er með­höndlað sem mansals­mál af verka­lýðs­fé­lög­unum, en lög­reglan hætti rann­sókn.

„Ég treysti Íslendingum ekki lengur“

„Ég var hrædd um að hann myndi sparka mér út og ég myndi ekki hafa neinn stað til að fara á og enga vini eða ætt­ingja til að leita til,“ segir hin 36 ára Sara Qujakitsoq. Á tíma­bil­inu 18. maí til 21. júlí á þessu ári vann hún á Hnjót Guesthouse, gisti­heim­ili á Vest­fjörðum. Hún vann frá morgni til nætur, en fékk aðeins 270.305 krónur útborg­aðar fyrir vinn­una á tíma­bil­inu. Eigandi Hnjóts segir að ekk­ert óeðli­legt hafi farið fram, að Sara hafi ekki verið með neina vinnu­skyldu og hafi getað ráð­stafað tíma sínum sjálf.

Sara er frá Qaanaaq, á Norður-Græn­landi, en flutti til Nuuk árið 2013 í leit að tæki­færum. Þegar hún heyrði að vinur sinn hafi afþakkað sum­ar­starf hjá íslenskum bónda sem væri mik­ill Græn­lands­vinur hafði hún sam­band við hann. Bóndinn heitir Kristinn Þór Egilsson og rekur meðal ann­ars Hnjót Guesthouse. Þegar hún heyrði frá öðrum kunn­ingja sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár