Langvarandi átök milljarðamæringa hafa áhrif á allt samfélagið

Átök­um þeirra Björgólfs Thors Björgólfs­son­ar og Ró­berts Wessman hef­ur ver­ið líkt við leðjuslag, þar sem ekk­ert er heil­agt. Í þess­um átök­um hef­ur Björgólf­ur með­al ann­ars stað­ið að leyni­legri fjár­mögn­un fjöl­miðla og njósn­um, með að­stoð lög­reglu.

Langvarandi átök milljarðamæringa hafa áhrif á allt samfélagið

Njósnamál fyrirtækisins PPP, sem hafði eftirlit með fjölda fólks fyrir atbeina auðkýfingsins Björgólfs Thors Björgólfssonar, á sér rúmlega tveggja áratuga aðdraganda. Inn í málið blandast annar milljarðamæringur, Róbert Wessman, fjandsamlegar yfirtökur, lyfjafyrirtækið Actavis, allnokkrir fjölmiðlar, furðulegar skærur og að lokum fjöldi einkamála þar sem auðkýfingarnir stefndu hvor öðrum á víxl. Deilur Róberts og Björgólfs rista djúpt og eru uppnefndar leðjuslagur milljarðamæringanna í samtölum við þá sem til þekkja og ræddu við Heimildina. Fjölmiðlalandslag á Íslandi hefur gjörbreyst vegna þessara erja og nú fylgist þjóðin með andaktug eftir að RÚV greindi frá umfangsmiklum njósnaaðgerðum, sem lögregluþjónn er sagður hafa tekið þátt í og hefur verið vikið frá störfum. Peðin eru fallin, en kóngarnir sæta færis í þessari klaufalegu refskák, sem hefur staðið yfir um árabil og er nú á forsíðum flestra fjölmiðla.

Upplifði blekkingar

Róbert Wessman varð forstjóri lyfjafyrirtækisins Delta árið 2002 og þótti fyrirtækið vænlegt til árangurs á …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár