Kínverska ríkið setur 700 til 800 milljónir í rannsóknarmiðstöð um norðurljósin

Þegar sam­skipti Íslands og Kína voru sem best á árunum eftir hrunið var ákveðið að byggja norð­ur­ljósamið­stöð í Þing­eyj­ar­sýslu sem var liður í sam­starfi ríkj­anna. Kína fjár­magnar verk­efnið alfarið í gegnum norð­ur­skauta­stofnun sína. Fram­kvæmda­stjóri sjálfs­eign­ar­stofn­unar um mið­stöð­ina segir að hún hafi verið notuð í verk­efnið þar sem Kína hafi ekki mátt eiga landið sjálft.

Kínverska ríkið setur 700 til 800 milljónir í rannsóknarmiðstöð um norðurljósin

Kín­verska heim­skauta­stofn­unin hefur sett á milli 700 og 800 millj­ónir króna til að byggja upp norð­ur­ljósa­rann­sókn­ar­mið­stöð sína á jörð­inni Kárhóli í Þing­eyj­ar­sýslu. Þetta segir fram­kvæmda­stjóri sjálfs­eign­ar­stofn­un­ar­innar Aurora Observatory, sem stofnuð var utan um verk­efnið. 

Umrædd sjálfs­eign­ar­stofnun var búin til þar sem íslensk lög koma í veg fyrir eign­ar­hald erlendra ríkja og stofn­ana á íslensku landi. „Sjálfs­eign­ar­stofn­unin var búin til sem tækni­legt útfærslu­at­riði vegna hind­r­ana í íslenskum lögum um erlent eign­ar­hald á landi. Þess vegna var sú leið farin að láta sjálfs­eign­ar­stofn­un­ina eiga þetta,“ segir Reinhard.

„Sjálfs­eign­ar­stofn­unin var búin til sem tækni­legt útfærslu­at­riði vegna hind­r­ana í íslenskum lögum um erlent eign­ar­hald á landi.“
Reinhard Reyn­is­son,
fram­kvæmda­stjóri Aurora

Fram­kvæmdin og sam­starfið við kín­versku stofn­un­ina byggir á sam­starfs­samn­ingi sem íslenska ríkið gerði við kín­versk stjórn­völd um sam­vinnu á Norð­ur­slóðum árið 2012. Íslenska stofn­unin RANNÍS er aðili að þessum samn­ingi og eiga …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kína og Ísland

Áhyggjur Norðmanna af njósnum Kína og spegilmyndin Ísland
FréttirKína og Ísland

Áhyggjur Norð­manna af njósnum Kína og speg­il­myndin Ísland

Yfirvöld örygg­is­mála í Noregi hafa áhyggjur af mögu­legri mis­notkun yfir­valda í Kína á sam­skipta­miðl­inum TikTok. Inger Haugland hjá norsku örygg­is­lög­regl­unni PST varar Norðmenn við að nota mið­il­inn. Ísland er eft­ir­bátur hinna Norð­ur­land­anna í varnar- og net­ör­ygg­is­málum og er ekki með sams konar við­búnað og þau gagn­vart mögu­legum njósnum erlendra ríkja eins og Kína og Rúss­lands.
Katrín: Starfsemi kínversku rannsóknarmiðstöðvarinnar aldrei farið fyrir þjóðaröryggisráð
FréttirKína og Ísland

Katrín: Starf­semi kín­versku rann­sókn­ar­mið­stöðv­ar­innar aldrei farið fyrir þjóðar­ör­ygg­is­ráð

Málefni norð­ur­ljósa­rann­sókn­ar­mið­stöðvar Kín­versku heim­skauta­stofn­un­ar­innar í Þing­eyj­ar­sýslu hafa aldrei farið fyrir þjóðar­ör­ygg­is­ráð Íslands. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að eft­ir­lit með rann­sókn­ar­mið­stöð­inni sé hendi ráð­herra háskóla­mála. NATO hefur meðal ann­ars haft áhyggjur af rann­sókn­ar­mið­stöð­inni.
Þingmaður spyr Katrínu um eftirlit með kínversku rannsóknarmiðstöðinni
FréttirKína og Ísland

Þing­maður spyr Katrínu um eft­ir­lit með kín­versku rann­sókn­ar­mið­stöð­inni

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, hefur spurt Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra spurn­inga um kín­versku rann­sókn­ar­mið­stöð­ina á Kárhóli í Þing­eyj­ar­sýslu. NATO og nágranna­ríki Íslands hafa lýst yfir áhyggjum af starf­semi rann­sókn­ar­mið­stöðv­ar­innar vegna mögu­legra áhrifa á þjóðar­ör­yggi. Íslensk stjórn­völd hafa haft litla yfir­sýn yfir starf­semi rann­sókn­ar­mið­stöðv­ar­innar.
Önnur ríki hafa áhyggjur af norðurljósamiðstöð Kína á Íslandi
FréttirKína og Ísland

Önnur ríki hafa áhyggjur af norð­ur­ljósamið­stöð Kína á Íslandi

Sér­fræð­ingar í þjóðar­ör­ygg­is­málum fjalla um norð­ur­ljósa­rann­sókn­ar­mið­stöð Kína á Kárhóli í rit­gerð. Einn af höf­und­unum, Gregory Falco, segir að stað­setn­ing rann­sókn­ar­mið­stöðv­ar­innar á Íslandi sé of mikil til­viljun í hans huga. NATO og önnur ríki á norð­ur­hveli jarðar hafa áhyggjur af því að Kína stundi eft­ir­lit og njósnir á Íslandi í gegnum mið­stöð­ina.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár