Mynd: Heiða Helgadóttir

Þriggja ára martröð hjúkrunarfræðings

Ásta Kristín Andr­és­dóttir hefur gengið í gegnum ægi­lega lífs­reynslu. Fyrir þremur árum lést sjúk­lingur hennar og hún var sökuð um mann­dráp af gáleysi og ákærð. Hún glímir við kvíða­röskun og vildi ekki lifa lengur. Dóttir hennar þurfti hjálp sál­fræð­ings. Áður hafði ölv­aður öku­maður kostað systur hennar lífið.

Ekkert varð eins og það áður var eftir þennan dag á gjör­gæslu Lands­spít­al­ans 3. októ­ber 2012. Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur hafði verið kölluð á fund yfir­manna sinna dag­inn eftir tvö­falda vakt á spít­al­anum sem hófst snemma um morg­un­inn og lauk seint um kvöld. Sá sorg­legi atburður hafði átt sér stað á vakt­inni að 73 ára sjúk­lingur and­að­ist. Eins og alltaf tók Ásta Kristín and­látið inn á sig. Hún hafði valið sér það starf að hjúkra til lífs en dauð­inn er gjarnan stutt undan með sorg­inni sem oft­ast fylgir. Hún átti sér einskis ills von þegar hún var boðuð á fund með yfir­mönnum sínum dag­inn eftir. Á skrif­stofu yfir­manns­ins kom í ljós að erindið var að biðja hana að fara í gegnum vakt­ina sína, alveg fram að aðdrag­anda and­láts­ins. Og hún var spurð spurn­inga sem vörð­uðu fram­göngu hennar sjálfrar. Þegar hún hafði lokið við að skýra frá atburða­rásinni var hún spurð hvort hún hefði tæmt loft úr svoköll­uðum kraga sem teng­ist önd­un­ar­vél og hindrað þannig að sjúk­lingur gæti andað frá sér. Hún upp­lifði þetta sem upp­lýs­inga­gjöf til sín og því laust niður sem eld­ingu í höfuð hennar að hún kynni að hafa gert eitt­hvað sem kost­aði mann­inn lífið. 

„Ég brast í óstöðv­andi grát,” segir Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur á Lands­spít­a­lunum, sem á síð­ustu þremur árum hefur gengið þá þrauta­göngu að vera sökuð um að hafa orðið sjúk­lingi sínum að bana. Í raun mundi hún ekki eftir því hvort hún hefði tæmt lofið eða ekki. Slíkt er svo hvers­dags­leg aðgerð að menn fram­kvæma hana ósjálfrátt og án 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár