Mynd: Kristinn Magnússon

Svona eignastu náttúruperlu og græðir milljarða

Saga Bláa lóns­ins er saga mann­gerðrar nátt­úruperlu sem varð til fyrir slysni en er í dag einn fjöl­sótt­asti ferða­manna­staður Íslands. En sagan hefur einnig að geyma póli­tísk átök og afdrifa­ríkar ákvarð­anir sem færðu eig­endum Bláa lóns­ins nátt­úruperluna end­ur­gjalds­laust á sínum tíma. Maðurinn sem tók veiga­miklar póli­tískar ákvarð­anir um fram­tíð Bláa lóns­ins, bæði sem for­seti bæj­ar­stjórnar í Grinda­vík og stjórn­ar­for­maður Hita­veitu Suð­ur­nesja, er í dag næst­stærsti ein­staki hlut­hafi Bláa Lónsins.

Hvernig eign­ast maður nátt­úruperlu? Í flestum til­fellum er svarið ósköp ein­falt; ein­hver ann­að­hvort erfði eða keypti jörð sem hefur að geyma stór­brot­inn foss, leynd­ar­dóms­fullan helli eða gos­hver. Tilfelli Bláa lóns­ins er hins vegar ein­stakt, bæði vegna þess að hér er um mann­gerða nátt­úruperlu að ræða, umhverf­is­spjöll sem óvart urðu eitt helsta aðdrátt­ar­afl Íslands, og fyrir þær sakir að núver­andi eig­endur nátt­úruperlunnar fengu hana í raun og veru póli­tískt afhenta á sínum tíma. 

En það er ekki nóg að eiga nátt­úruperlu. Dæmin sanna að óvirð­ing fyrir nátt­úr­unni og skamm­tíma­gróða­sjón­ar­mið geta spillt jafn­vel hinni feg­urstu nátt­úru, á meðan upp­bygg­ing og sómi geta breytt nátt­úruperlu í óstöðv­andi pen­inga­vél. En hvernig græðir maður millj­arða á nátt­úruperlu? Grímur Sæmund­sen á svarið við þeirri spurn­ingu. 

Umhverfisspjöll verða baðstaður

Bláa lónið varð til þegar gufu­afls­stöð Hita­veitu Suð­ur­nesja hóf starf­semi sína við Svarts­engi árið 1976. Þegar fyrstu bor­anir eftir heitu vatni í Svarts­engi hófust árið 1971 varð ljóst að vatnið sem úr bor­hol­unni kom var salt, en það inni­heldur um það bil þriðj­ung af seltu sjávar auk fjöl­margra upp­leystra efna. Jarð­sjór­inn kemur upp á yfir­borðið sem 240 gráðu heit gufa og er hún notuð til að hita fersk­vatn fyrir Hita­veitu Suð­ur­nesja. Þegar þessu ferli lýkur þétt­ist gufan og frá orku­ver­inu kemur um 80 til 100 gráðu heitt affalls­vatn sem er leitt út í hraunið við stöð­ina. Í raun­inni má segja að um nátt­úru­spjöll sé að ræða. Við kóln­un­ina fellur meðal ann­ars út kís­il­leir sem þéttir botn hrauns­ins og myndar heitt uppi­stöðu­lón úr jarð­sjó. Bláhvíti lit­ur­inn er tal­inn stafa af kís­ilnum í vatn­inu.

Það var síðan árið 1981 að ungur Kefl­vík­ingur og psori­asis-sjúk­lingur, Valur Mar­geirs­son, hóf að baða sig í útfalls­vatn­inu með leyfi for­stjóra Hita­veitu Suð­ur­nesja. „Ég minn­ist þess að mér kom þessi ósk á óvart, ég vissi að vísu af lón­inu, en hafði ákveðna mein­ingu um að þar væri ekki hent­ugur staður til almenn­ings­baða, enda vís­ast að slys, sem af því hlyt­ust, myndu skapa hita­veit­unni skaða­bóta­skyldu,“ rifj­aði Ingólfur Aðal­steins­son, þáver­andi for­stjóri Hita­veitu Suð­ur­nesja, upp í blaða­grein nokkrum árum síðar. „Það þarf ekki að orð­lengja það, að við­mæl­andi minn sann­færði mig um að hann tæki á sig allar skyldur, aðeins ef hann fengi að gera til­raunir með að baða sig í þessu lit­fagra lóni.“ 

Valur vildi láta reyna á hvort vatnið myndi draga úr ein­kennum sjúk­dóms­ins. Eftir að hafa farið í lónið í þrjá daga hvarf allur kláði og pirr­ingur sem mynd­ast þegar hrúðrið kemur á psori­asis-blett­ina. Viku seinna fór hann til húð­sjúk­dóma­læknis, sem sá að honum var að batna og hvatti lækn­ir­inn hann til að halda áfram og taldi í lagi að hann færi tvisvar á dag, sem hann gerði. Eftir þrjár vikur var hann svo til alveg laus við útbrotin. Síðar þegar Valur sagði frá lækn­inga­mætti lóns­ins í sam­tali við blaða­mann mun Valur hafa kallað stað­inn „Bláa lónið“ og var nafnið strax gripið á lofti.

Lækn­inga­máttur lóns­ins spurð­ist fljótt út og hófu fleiri psori­asis-sjúk­lingar að baða sig í lón­inu. Samtök psori­asis- og exem­sjúk­linga létu í fram­hald­inu koma upp skúr við lónið svo félag­arnir gætu klætt sig úr og í, farið í steypi­bað og ljósa­böð. Aðstaðan fyrstu árin var hins vegar ekki upp á marga fiska, en um var að ræða kaldan og þröngan fyrr­ver­andi vinnu­skúr sem Ístak hf. lán­aði sam­tök­unum, og varð sífellt fyrir barð­inu á skemmd­ar­vörgum.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár