Sigurplan Davíðs Oddssonar

Stundin kynnti sér hern­að­ar­á­ætlun umdeildasta stjórn­mála­manns síð­ari ára, sem vinnur að end­ur­komu á valda­stól. Kosn­inga­stjórar hans úr röðum Sjálf­stæð­is­flokks­ins og útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins hyggj­ast virkja hóp til að breyta við­horfi til hans á sam­fé­lags­miðlum. Davíð Oddsson hefur mótað goð­sögn um sjálfan sig sem hann kynnir mark­visst. Hann ætlar að verða mót­vægið við „sál­rænum vanda“ þjóð­ar­innar. Goð­sögnin sem hann kynnir þjóð­inni sam­ræm­ist hins vegar ekki sög­unni.

Davíð Oddsson, sem hefur aldrei tapað í kosn­ingum, hefur sett saman her­deild sam­setta af aðilum úr Sjálf­stæð­is­flokknum og útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, sem leggur drög að því að hann verði kjör­inn for­seti Íslands í næsta mán­uði.

Hluti af her­bragð­inu er að fá her sjálf­boða­liða til þess að svara gagn­rýni fólks á Davíð á Facebook. Annar hluti er að gefa þá mynd af Davíð að hann sé hress og skemmti­legur og standi vakt­ina betur en aðrir. Þriðji hlut­inn hern­að­ar­á­ætl­unar Davíðs er að grafa undan öðrum fram­bjóð­endum.

Blaða­maður Stund­ar­innar skráði sig sem sjál­boða­liða hjá kosn­ingateymi Davíðs Odds­sonar til að kynna sér aðferðir umdeildasta stjórn­mála­manns síð­ustu ára­tuga á Íslandi, sem nú vinnur að því að ná for­dæma­lausri stöðu með sam­teng­ingu for­seta­emb­ætt­is­ins og rík­is­stjórn­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár