Mynd: Kjarninn.

Í átt að nýrri þjóðarsátt

28 ár eru liðin frá svo­kall­aðri þjóð­ar­sátt á íslenskum vinnu­mark­aði sem lækk­aði verð­bólgu og jók sam­ráð milli verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, atvinnu­rek­enda og rík­is­stjórn­ar­innar. Hversu lík­legt er að sam­bæri­leg sátt náist í næstu kjara­samn­ingum?

„Það getur ekki ríkt þjóð­ar­sátt um þjóð­ar­skömm,“ skrif­aði Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, í pistli sínum í Kvenna­blað­inu síð­asta vor og fjall­aði um ástandið á vinnu­mark­aðnum. Pistill Sól­veigar var einn af mörgum fyr­ir­boðum um aukna hörku í samn­ings­gerð verka­lýðs­fé­laga við atvinnu­rek­endur.

Ræst hefur úr þeim fyr­ir­heitum, en búist er við meiri átökum í kom­andi kjara­við­ræðum vetr­ar­ins en sést hefur um ára­bil. Samhliða harð­ari kröfum verka­lýðs­fé­laga ótt­ast hag­fræð­ingar að sá efna­hags­legi árangur sem náðst hefur vegna 28 ára gam­allar þjóð­ar­sáttar á íslenskum vinnu­mark­aði sé í hættu. En hvers vegna ríkir svo mikil ólga á vinnu­mark­aðnum núna og hvernig væri hægt að róa hana niður?

Þjóðarsáttin

Umrædd þjóð­ar­sátt á vinnu­mark­aði átti sér stað í kjara­samn­ingum árið 1990. Að þeim samn­ingum komu full­trúar atvinnu­rek­enda, verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og rík­is­stjórn­ar­innar, en mark­mið þeirra var að binda enda á þá óreiðu sem ríkt hafði í efna­hags­málum síð­ustu ára­tuga.

Drif­kraftur óstöð­ug­leik­ans voru reglu­bundnar geng­is­fell­ingar stjórn­valda á átt­unda og níunda ára­tugnum sem réð­ust af afkomu sjáv­ar­út­vegs­ins hverju sinni. Þessar geng­is­fell­ingar leiddu svo til hærra verðs inn­fluttra vara, en í kjöl­far þess kröfð­ust laun­þegar hærri launa. Hærri laun þrengdu loks að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum, sem leiddi til ann­arrar geng­is­fell­ingar að hálfu stjórn­valda.

Til við­bótar við þessa víxl­verkun magn­að­ist verð­bólgan svo enn frekar þar sem verka­lýðs­hreyf­ingin var óviss um fram­tíð­ar­verð­lag og upp­færði því kröfur sínar með stuttu milli­bili og tíðum verk­föllum. Með stuttum kjara­samn­ingum, geng­is­fell­ingum og nafn­launa­hækk­unum rauk svo verð­bólgan stjórn­laust upp og náði hámarki árið 1983 í 84,3 pró­sentum.

Ásmundur Stefánsson, fyrrum forseti ASÍ, tekur hér í höndina á Einari Oddi Kristjánssyni, fyrrum formanni Vinnuveitendasambands Íslands, við undirritun Þjóðarsáttarinnar árið 1990.
Ásmundur Stef­áns­son, fyrrum for­seti ASÍ, tekur hér í hönd­ina á Einari Oddi Krist­jáns­syni, fyrrum for­manni Vinnu­veit­enda­sam­bands Íslands, við und­ir­ritun Þjóð­ar­sátt­ar­innar árið 1990.

Kjara­samn­ing­unum árið 1990 var ætlað að kippa fót­unum undan þess­ari þróun. Gegn því skil­yrði að rík­is­stjórnin lækk­aði nafn­vexti og felldi ekki gengi krón­unnar fyrir atvinnu­rek­endur sam­þykktu verka­lýðs­fé­lög hóf­legar launa­hækk­anir til lengri tíma sem byggðu á verð­bólgu­spám. Með þessu móti yrði lífs­kjara­hruni afstýrt sem blasti við, sam­kvæmt verka­lýðs­for­ingjarnum Guðmundi „Jaka“ Guð­munds­syni í við­tali við RÚV.

Með skil­yrðum samn­ings­ins tók hlut­verk verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar stórum breyt­ingum og deildi þannig ábyrgð­inni um fjár­mála­stöð­ug­leika með atvinnu­rek­endum og rík­is­stjórn­inni. Þannig mild­að­ist tónn hreyf­ing­ar­innar gagn­vart tals­mönnum atvinnu­lífs­ins auk þess sem svoköll­uðum „teknókrötum“ með sér­þekk­ingu sem stuðla átti að stöð­ug­leika fjölg­aði innan hennar.

Ætlunin tókst og verð­bólgan snar­lækk­aði á tíunda ára­tugnum sam­hliða stöð­ugum kaup­mátt­ar­vexti og færri verk­föllum. Góður árangur sátt­ar­innar vatt upp á sig og styrkti traust milli verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og atvinnu­rek­enda, sem leiddi til þess að kjara­samn­ingar voru gerðir til lengri tíma.

Frá kröfugöngu verkalýðsfélaganna þann 1. maí síðastliðinn.
Frá kröfu­göngu verka­lýðs­fé­lag­anna þann 1. maí síð­ast­lið­inn.

Hriktir í stoðunum

Mikið hefur gengið á í íslensku efna­hags­lífi frá árinu 1990, en sam­kvæmt inn­an­búð­ar­mönnum úr verka­lýðs­hreyf­ing­unni hefur þó lengst af ríkt gagn­kvæmur skiln­ingur í sam­skiptum hennar við rík­is­stjórn­ina og atvinnu­rek­endur. Þrátt fyrir tíð ósætti þeirra á milli lögðu full­trúar vinnu­mark­að­ar­ins sitt af mörkum til að við­halda verð­stöð­ug­leika, meðal ann­ars með því að taka mið af verð­bólgu­vænt­ingum í kjara­samn­ingum og biðja ekki um of háar launa­hækk­anir þegar kreppti að.

Á síð­ustu árum hefur þó hrikt nokkuð í stoðum þessa sam­komu­lags, en sam­kvæmt Höllu Tinnu Arn­ar­dóttur stjórn­sýslu­fræð­ingi færð­ist aukin harka í sam­skiptum milli rík­is­stjórn­ar­innar og verka­lýðs­fé­laga milli 2011 og 2014. Á því tíma­bili fór meira að bera á verk­föllum og verk­falls­hót­unum auk þess sem mörgum úr verka­lýðs­hreyf­ing­unni þótti erfitt að vinna með rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur ann­ars vegar og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar hins vegar.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR. Mynd: Samsett
Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar og Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR. Mynd: Samsett

Tónninn í verka­lýðs­hreyf­ing­unni hefur svo orðið enn beitt­ari á síð­asta einu og hálfu ári með nýrri for­ystu innan stærstu stétt­ar­fé­laga hennar. Kjarninn hefur áður fjallað um breyttar áherslur Ragnars Þórs Ing­ólfs­sonar og Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, nýrra for­manna VR og Eflingar, en Ragnar hefur boðað til „átaka sem hafa ekki sést í ára­tugi“ verði kröfum stétt­ar­fé­lag­anna ekki mætt og Sólveig Anna lýsti sig sem „bylt­ing­ar­mann­eskju“ í við­tali við Mannlíf í síð­ustu viku.

Sömu­leiðis er búist við harð­ari afstöðu frá ASÍ í kjöl­far nýaf­stað­ins lands­þings sam­bands­ins, en þar tók Drífa Snædal við af Gylfa Arn­björns­syni sem for­seti auk þess sem Vil­hjálmur Birg­is­son var kjör­inn fyrsti vara­for­seti. Sólveig Anna og Ragnar Þór hafa bæði stutt nýja for­ystu ASÍ, en sam­kvæmt Ragnari Þór gengur verka­lýðs­hreyf­ingin óklofin til leiks í kom­andi kjara­samn­inga­við­ræðum með kjöri Drífu og Vil­hjálms.

Breyttar áherslur krist­all­ast í nýjum kröfum VR og Starfs­greina­sam­bands­ins fyrir kom­andi við­ræður, en þar er þess kraf­ist að lág­marks­laun verði 425 þús­und á mán­uði í árs­byrjun 2021. Einnig gera félögin ann­ars konar kröfur á stjórn­völd, meðal ann­ars um 42 þús­und króna árlega launa­hækkun, vaxta­lækkun, stytt­ingu vinnu­vik­unnar og afnám verð­trygg­ingar á neyt­enda­lánum.

Stöðugleikinn í hættu

Kröfur VR og Starfs­greina­sam­bands­ins gætu reynst hættu­legar verð­stöð­ug­leika ef marka má skýrslu sem Gylfi Zoëga hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands skrif­aði fyrir for­sæt­is­ráðu­neytið í ágúst síð­ast­liðnum. Samkvæmt skýrsl­unni er svig­rúm til 4% launa­hækk­ana fyrir næsta árið að óbreyttum við­skipta­kjörum, en kröfur stétt­ar­fé­lag­anna munu leiða til þess að heild­ar­laun hækki um að minnsta kosti 5,6%.

Hækki laun umfram áætl­aða verð-og fram­leiðni­þróun má búast við því að Seðla­bank­inn hækki stýri­vexti sína til að verð­bólgu­mark­mið­inu sé náð. Enn fremur er senni­legt að vextir á neyt­enda­lánum hækki enn frekar ef kröfur VR og Starfs­greina­sam­bands­ins um afnám verð­trygg­ing­ar­innar ná fram að ganga.

Vegna mik­illar launa­hækk­unar og afnáms verð­trygg­ing­ar­innar yrði því erfitt að fram­kvæma þá vaxta­lækkun sem verka­lýðs­fé­lögin krefj­ast án þess að verð­bólga auk­ist veru­lega og rýri þannig kaup­mátt nýhækk­aðra launa. Rannveig Sig­urð­ar­dóttir aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri benti á þetta í við­tali við kvöld­fréttir Stöðvar 2, en þar sagði hún það vera lög­mál að laun geti ekki hækkað umfram fram­leiðni­aukn­ingu.

Í skýrslu sinni nefnir Gylfi einnig þau slæmu áhrif sem of mikil verð­bólga gæti haft á ferða­þjón­ust­una í land­inu. Hátt inn­lent verð­lag gæti þannig valdið fækkun erlendra ferða­manna, en slíkt myndi valda geng­is­lækkun krón­unnar og enn frek­ari verð­bólgu vegna hækkun á verði inn­flutn­ings.

Með öðrum orðum gætu kröfur um of háar launa­hækk­anir og vaxta­lækk­anir á sama tíma raskað við­kvæmt jafn­vægi hag­kerf­is­ins og leitt til keðju­verk­unar sem lætur verð­bólg­una rjúka upp. Fari svo gæti orðið erfitt að ná aftur þjóð­ar­sátt um verð­stöð­ug­leika, líkt og ríkt hefur milli verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, atvinnu­rek­enda og rík­is­stjórn­ar­innar síð­ustu ára­tugi.

Rannveig Sigurðardóttir aðstoðarseðlabankastjóri Mynd: Samsett
Rannveig Sig­urð­ar­dóttir aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri Mynd: Samsett

Ójafn leikur

En hvers vegna hefur tónn verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar breyst svona mikið á und­an­förnum mán­uðum og af hverju taka nýjar kröfur minna til­lit til verð­stöð­ug­leika á sama tíma sem búist við meiri aðgerðum að hálfu stjórn­valda?

Full­trúar atvinnu­rek­enda og síð­asta stjórn ASÍ hafa báðar gefið í skyn að afstöðu­breyt­ingin sé ekki í sam­ræmi við hag­tölur. Samkvæmt þeim hefur verka­lýðs­for­ystan aldrei náð jafn­miklum árangri og eftir Þjóð­ar­sátt­ina árið 1990, þar sem stöðug kaup­mátt­ar­aukn­ing fylgdi ágætum hag­vexti og lágri verð­bólgu.

Stefán Ólafsson, félags­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands og starfs­maður Eflingar, hefur hins vegar gagn­rýnt þennan mál­flutn­ing og segir kaup­mátt­ar­aukn­ingu laun­þega, að teknu til­liti til ráð­stöf­un­ar­tekna og einka­neyslu, í raun hafa minnkað frá árinu 1990 miðað við árin á undan. Einnig bendir Stefán á að ójöfn­uður hafi auk­ist á síð­ustu 28 árum og þannig hafi hlut­deild tekju­lágra í heild­ar­tekjum þjóðar lækkað á tíma­bil­inu. Í aðsendri grein á Kjarn­anum í síð­asta mán­uði greindi Stefán einnig frá breyt­ingum í skatt­byrði á tíma­bil­inu, en með rýrnun per­sónu­af­sláttar og ýmissa bóta auk lægri skatt­pró­sentu á fjár­magnstekjur hafi hún færst frá hærri tekju­hópum og yfir á þá lægri.

Drífa Snædal tók í sama streng og Stefán í við­tali við Kjarnann síð­asta mars og sagði hinn vax­andi ójöfnuð hafa rofið sam­fé­lags­sátt­mál­ann milli verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og rík­is­stjórn­ar­innar. Enn fremur sagði Drífa að nýlegar hækk­anir á launum æðstu emb­ætt­is­manna og ofur­launum for­stjóra fyr­ir­tækja í einka­geir­anum væru sem olía á eld­inn. Viðtalið má sjá í spil­ar­anum hér að ofan.

Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um þessi mál á und­an­förnum dögum. Í leið­ara gær­dags­ins benti Þórður Snær Júl­í­us­son á að verka­lýðs­for­ystan sæki rök­stuðn­ing sinn íslenskar aðstæður sem studdar séu með raun­tölum. Magnús Hall­dórs­son fjall­aði svo sér­stak­lega um hækk­anir kjara­ráðs á launum þing­manna og ráð­herra í leið­ara sínum fyrr í vik­unni á Kjarn­anum, en þar benti hann á að ákvörðun stjórn­valda um að sam­þykkja og verja þessar hækk­anir hafi átt stóran hlut í að skapa þá ólgu sem nú ríkir á vinnu­mark­aði.

Ýmsar leiðir mögulegar

Því er ljóst að stöð­ug­leiki í hag­kerf­inu er í hættu, bæði vegna aðgerða rík­is­stjórn­ar­innar og harð­ari krafna verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Ákall stétt­ar­fé­lag­anna um miklar launa­hækk­anir sam­hliða vaxta­lækkun, banni við verð­trygg­ingu og stytt­ingu vinnu­vik­unnar gætu hæg­lega kynt undir verð­bólgu­bál sem erfitt væri að slökkva. Á hinn bóg­inn spruttu þessar kröfur ekki upp að þurru, þær eru afleið­ingar vax­andi ójöfn­uðar og mik­illa tekju­hækk­ana hinna efna­meiri sem stjórn­völd sam­þykktu með aðgerðum og aðgerð­ar­leysi.

Í áður­nefndri skýrslu Gylfa Zoëga eru ýmsar leiðir nefndar þar sem hægt er að kom­ast til móts við kröfur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar án þess að ógna verð­stöð­ug­leika. Þar ber hæst að nefna vaxta­lækkun með hag­ræð­ingu í banka­kerf­inu, þar sem sam­keppni er ábóta­vant og vaxta­munur mun meiri en í nágranna­löndum. Einnig telur Gylfi að sporna megi við vax­andi ójöfn­uði að ein­hverju leyti ef per­sónu­af­sláttur hækkar í sam­ræmi við með­al­laun í land­inu og nefnir einnig að stytt­ing vinnu­vik­unnar gæti leitt til hærri fram­leiðni.

Hver sem nið­ur­staðan verður við næstu kjara­við­ræður liggur fyrir að mikið þurfi til að nýtt sam­komu­lag muni líta dags­ins ljós. Með gagn­kvæmum skiln­ingi verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, atvinnu­rek­enda og rík­is­stjórn­ar­innar yrði að minnsta kosti auð­veld­ara að koma í veg fyrir mögu­lega þjóð­ar­skömm með vaxta­hækk­unum og verð­bólgu­skoti líkt og á níunda ára­tugnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarabarátta

Mest lesið undanfarið ár