Fólkið í landinu kýs sér nýja verkalýðsforystu

Miklar svipt­ingar hafa verið innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar á síð­ustu miss­erum og búast má við miklum átökum í kom­andi kjara­við­ræðum vetr­ar­ins.

Ný for­ysta haslar sér völl í verka­lýðs­fé­lögum lands­ins en spáð er fyrir um mikil átök í kjara­samn­ings­við­ræðum sem framundan eru. VR og Starfs­greina­sam­bandið kefj­ast þess að í árs­byrjun 2021 verði lægstu laun 425 þús­und krónur á mán­uði. Þá gera félögin einnig kröfur á stjórn­völd, meðal ann­ars um mikla íbúða­upp­bygg­ingu, afnám verð­trygg­ingar á neyt­enda­lánum, að fæð­ing­ar­or­lof verði lengt og að lægstu laun verði skatt­frjáls. Ekki eru allir á eitt sáttir um ágæti þess­ara krafa og hafa Samtök atvinnu­lífs­ins, sem og fjár­mála­ráð­herr­ann sagt þær óraun­hæfar.

Ekki verður þó um villst að aðilda­menn verka­lýðs­fé­lag­ana kalli eftir breyt­ingum, þar sem mikil nýliðun hefur orðið á síð­asta einu og hálfa ári. Rödd bar­átt­unnar hefur skipt um tón og það lýsir sér í breyttum áherslum þessa nýja for­yrstu­fólks.

Forseti ASÍ í fyrsta skiptið kona

Drífa Snædal, sem starfað hefur sem fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands Íslands (SGS), var kjörin nýr for­seti ASÍ á 43. þingi sam­bands­ins í gær – fyrst kvenna – en ásamt henni bauð sig fram til emb­ætt­is­ins Sverrir Mar Alberts­son fram­kvæmda­stjóri og stjórn­ar­maður Afls. Hún hlaut 192 atkvæði eða 65,8 pró­sent en Sverrir Mar fékk 100 atkvæði eða 34,2 pró­sent. Sömu­leiðis var Vil­hjálmur Birg­is­son kjör­inn 1. vara­for­seti ASÍ á þing­inu. Í kringum 300 full­trúar frá 48 stétt­ar­fé­lögum kusu nýja for­ystu­menn Alþýðu­sam­band Íslands í gær.

Gylfi Arn­björns­son, frá­far­andi for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, til­kynnti í júní síð­ast­liðnum á mið­stjórn­ar­fundi sam­bands­ins að hann hygð­ist ekki bjóða sig fram til end­ur­kjörs. Stjórn VR lýsti yfir van­trausti á Gylfa í maí síð­ast­liðnum. Aðal­fundur stétt­ar­fé­lags­ins Fram­sýnar sam­þykkti jafn­framt van­traust á hann, sem og Verka­lýðs­fé­lag Akra­nes sem gerði slíkt hið sama.

Gylfi svar­aði Ragnaði í sam­tali við Morg­un­blaðið á sínum tíma og sagði að þeir hefðu verið ósam­­mála um leiðir í kjara­bar­áttu en að honum þótti nokkuð merki­­legt að Ragnar vildi fara fram með þessu offorsi til þess að banna umræðu. „Ég er tals­maður þess að eiga sam­tal, bæði við sam­herja mína og and­­stæð­inga og ég lít nú á Ragn­ar sem sam­herja minn. Við erum að sinna bar­áttu sömu hóp­anna,“ sagði hann.

Fundur ASÍ 28. febrúar 2018. Mynd: Bára Huld Beck
Fundur ASÍ 28. febr­úar 2018. Mynd: Bára Huld Beck

Samingar héldu

Verka­lýðs­for­ystan kaus að segja ekki upp kjara­samn­ingum sínum við Sam­tök atvinnu­lífs­ins þann 28. febr­ú­ar síð­ast­lið­inn og munu samn­ing­arnir því gilda til ára­móta. Kosn­ing þessa efnis á for­manna­fundi ASÍ var tví­sýn og greiddu meðal ann­ars full­trúar tveggja stærstu aðild­ar­fé­lag­anna, VR og Efl­ing­ar, atkvæði með því að slíta samn­ingum ASÍ við SA. Þar með var ljóst að full­­trúar meiri­hluta félags­­­manna ASÍ væru á þeirri skoð­un. Hins vegar þurfti einnig meiri­hluta atkvæða for­­manna þeirra aðild­­ar­­fé­laga sem atkvæða­rétt áttu á fund­in­­um. Meiri­hluti þeirra kaus að halda sam­ing­unum til streitu.

Í jan­úar síð­ast­liðnum til­kynnti Sól­veig Anna Jóns­dóttir um fram­boð sitt til for­manns emb­ættis í Efl­ingu stétt­ar­fé­lagi, en innan vébanda félags­ins eru 28 þús­und félags­menn. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, studdi Sól­veigu Önnu til for­ystu, en hann sigr­aði með yfir­­­burð­um í for­­manns­­kosn­­ing­u í mars í fyrra og hlaut tæp­­lega 63 pró­­sent atkvæða. Sól­veig Anna hafði betur í for­ystu­kjöri Efl­ingar í byrjun mars með rúm­lega 80 pró­sent atkvæða.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar.

Ástandið orðið algjörlega óþolandi

Í ítar­legu við­tali við Mannlíf sem kom út í gær segir Sólveig Anna að ef fólk sé orðið svo klikkað og svo langt leidd af firr­ingu mann­fjand­sam­legrar hug­mynda­fræði að það sé allt í einu orðið bylt­ing­ar­kennt að fólk geti lifað af dag­vinnu­laun­unum sínum og að skatt­kerfið verði mótað af þörfum þeirra sem raun­veru­lega vinna vinn­una, þá hljóti hún að vera stolt af því að segj­ast vera bylt­ing­ar­mann­eskja.

„Ég hef lifað og starfað sem lág­launa­kona á Íslandi frá árinu 2008. Mér líður eins og það ástand sem að við erum látin búa við sé orðið algjör­lega óþol­andi. Mér finn­st, og því fólki sem mannar list­ann með mér, að sú verka­lýðs­bar­átta sem hefur verið rekin hér, að tími hennar sé ein­fald­lega lið­in. Hún hefur ekki skilað okkur þeim lífs­kjörum sem við teljum okkur eiga rétt á og við teljum að það sé ein­fald­lega tíma­bært að breyta um taktík og breyta um áhersl­ur,“ sagði hún jafn­framt í við­tali við Kjarnann í febr­úar síð­ast­liðnum.

Hún sagði að lág­launa­fólki væri gert að búa við mikið órétt­læti í stétt­skiptu arð­ráns­sam­fé­lagi þar sem það fengi laun sem það gæti ekki lifað af, þyrfti að vinna í fleiri en einni vinnu, gæti ekki lagt nokkuð fyrir og gæti ekki tryggt efna­hags­legt öryggi. Eftir hús­næð­is­mark­að­ur­inn fór á flug með til­heyr­andi verð­hækk­unum á eignum og leigu hefði staðan síðan versnað mjög mik­ið. „Við teljum að það sé þörf á miklum breyt­ingum til þess að við séum ekki ein­fald­lega bara vinnu­afl á útsölu. Mann­eskjur sem njóti fullra rétt­inda og eigi rétt á góðu og mann­sæm­andi líf­i.“

Kallaði eftir nýrri hugsun

Ragnar Þór Ing­ólfs­son var kjör­inn for­maður VR, stærsta stétta­fé­lags lands­ins, í mars á síð­asta ári og hefur verið áber­andi í opin­berri umræðu síðan.

Í pistli sem birt­ist á Kjarn­anum í lok síð­asta árs kall­aði hann eftir nýrri hugsun innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og sagði að félags­menn stétt­ar­fé­laga þyrftu að vakna.

„Ég kalla eftir frek­ari nýliðun og nýrri hugsun innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og kalla eftir því að hún vakni af þeim með­virkn­is­blundi sem hún hefur sofið árum sam­an. Félags­menn stétt­ar­fé­laga þurfa að vakna og sjá til þess að við sem erum í for­svari vinnum vinn­una okkar í stað þess að vakna við það einn dag­inn að vera í frjálsu falli í klóm kerf­is­ins vegna atvinnu­miss­is, erf­iðra veik­inda eða ann­ara áfalla sem dunið geta á okkur þegar minnst var­ir.

Megi 2018 verða ár kerf­is­breyt­inga og árið sem við vöknum og nýtum sam­taka­mátt hreyf­ing­ar­innar til raun­veru­legra breyt­inga,“ sagði Ragnar Þór.

Dró framboð sitt til baka

Ragnar Þór bauð sig fram í emb­ætti 1. vara­for­seta ASÍ en dró fram­boðið til baka í gær til að skapa sátt inn­an sam­bands­ins. Vil­hjálm­ur Birg­is­son for­maður Verka­lýðsfé­lags Akra­ness var kjör­inn 1. vara­for­seti á þing­inu, eins og fram hefur komið.

Í sam­tali við mbl.is sagði Ragnar Þór að hann hefði tekið ákvörðun um að draga fram­boðið til baka til að skapa sátt inn­an hreyf­ing­ar­inn­ar. Hann telur hana ennþá vera upp­fulla af vondri póli­tík og taum­lausu hatri. Hann kvaðst von­ast til að breið sátt mynd­að­ist eft­ir að hann stigi til hliðar.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR.

Ekki allir á eitt sáttir

Ekki eru allir á sömu skoðun og for­ystu­menn verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar en Hörður Ægisson rit­stjóri Mark­að­ar­ins hefur verið ötull við skrifin en hann sagði í leið­ara í síð­ustu viku stöð­una ekki líta vel út. „Líkur á að svart­sýn­ustu spár um þró­un­ina á vinnu­mark­aði í vetur – verk­föll og skæru­að­gerðir – verði að veru­leika hafa auk­ist til muna nú þegar Starfs­greina­sam­band Íslands og VR, stærstu verka­lýðs­fé­lög lands­ins, hafa sett fram kröfur sínar í kjara­við­ræðum. Þeim verður ekki lýst öðru­vísi en sem sturluðum og í engum takti við efna­hags­legan veru­leika. Fyrir atvinnu­rek­endur – og íslensk stjórn­völd – er þess vegna aug­ljóst að við þeim kröfum verður aldrei hægt að verða. Ekki er að sjá hvernig bilið milli við­semj­enda verður brúað á kom­andi vikum og mán­uðum. Afleið­ingin er áfram­hald­andi óvissa fyrir íslenskt efna­hags­líf og þrýst­ingur á gengi krón­unnar,“ skrif­aði hann.

Sól­veig Anna for­maður Eflingar gagn­rýndi pistil­inn harð­lega á facebook-síðu sinni í kjöl­farið. „Ég finn mig knúna til að bregð­ast við leið­ara Frétta­blaðs­ins, „Stærsta ógn­in”, sem birt­ist á föstu­dag­inn var. Þó langar mig það ekk­ert. Mér langar ekki að virða fólk sem beitir hik­laust hót­unum við­lits. En því miður er svo komið fyrir tals­mönnum óbreytts ástands að þeir hika ekki við reyna að kúga vinn­andi fólk til hlýðni með sjúkri og við­bjóðs­legri orð­ræðu og þá er auð­vitað ekki um annað að ræða en að sýna að í mér rennur blóð­.“

Hún sagði að til­gang­ur­inn með skrifum Harðar væri að „skelfa fólk til hlýðni og að búa til tæki­færi fyrir hóf­stillt­ari og jarð­bundn­ari tals­menn arð­ráns­ins til að stíga fram sem málsvara skyn­semi og stöð­ug­leika.“

Sól­veig Anna túlk­aði skrif Harðar á þá leið að hann væri að stilla sjálfum sér upp sem rödd skyn­sem­innar „en það er ekki hægt að segja annað en að móð­ur­sýkis­kenndir heimsenda­spá­dómar hans ein­kenn­ist af alveg hreint ein­stakri van­still­ing­u.“

Kröfurnar stórkarlalegar, óraunhæfar og óútfærðar

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur sagt kröfur for­ystu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar um að lægstu laun verði skatt­frjáls stór­karla­legar, óraun­hæfar og óút­færðar. Þær hefðu í för með sér stór­aukna skatt­heimtu á milli­tekju­fólk. Þetta kom fram í fréttum RÚV þann 23. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Hann sagði stjórn­völd leggja áherslu á góð sam­skipti við vinnu­mark­að­inn en fara þyrfti yfir vænt­ing­arnar af yfir­vegun. Hann sagði að nú þegar hefði nýtt hús­næð­is­bóta­kefi verið tekið upp og veru­legir fjár­munir settir í stofn­styrki fyrir félög sem reisa leigu­í­búðir fyrir tekju­lága.

„Varðandi skatt­kerfið þá finn­ast mér það nokkuð stór­karla­legar hug­myndir sem við fyrstu sýn eru algjör­lega óút­færðar nema menn segja bara að það væri gott ef laun upp að 400 þús­und yrðu skatt­laus, þá þarf að botna þá vísu. Ef menn ætla að láta tekju­skatts­kerfið skila sömu tekjum, þá þarf að stór­hækka skatta á milli­tekju­fólk og öll laun sem eru þar fyrir ofan,“ sagði Bjarni.

Hann sagði enn fremur að ef for­ystu­fólk verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar væri að meina eitt­hvað annað, þá þyrfti að gera betur grein fyrir því. „Mín fyrstu við­brögð varð­andi skatta­málin eru að þetta algjör­lega óút­fært og mér sýn­ist að þetta sé algjör­lega óraun­hæft.“

„Ég sakna þess að menn tali meira um þætti sem ég held að skipti miklu fyrir heim­ilin í land­inu og fyr­ir­tækin. Stöðugt verð­lag, lægri vextir, hvað getum við gert til að halda betur um stöð­ug­leik­ann. hvað getum við gert sam­eig­in­lega til að ná slíkum árangri. Vegna þess að þetta hangir allt saman. Mér finnst að menn eigi að leggja mikið virði í að við­halda hér lágum vöxtum og lít­illi verð­bólgu,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarabarátta

Mest lesið undanfarið ár