Mynd: Bára Huld Beck

Ásættanlegur fórnarkostnaður við frekari opnun landamæra sem var aldrei metinn

Þann 12. maí var kynnt ákvörðun um að draga úr tak­mörk­unum á landa­mærum Íslands um miðjan júní. Til grund­vallar þeirra ákvörðun, sem fól í sér að fleiri ferða­mönnum var hleypt inn í landið, lá mat á hag­rænum áhrifum þess á ferða­þjón­ustu.

Þann 12. maí boð­aði rík­is­stjórn Íslands til blaða­manna­fundar. Við­staddir voru alls sex ráð­herrar, eða meiri­hluti þeirra. Auk þeirra voru emb­ætt­is­menn við­staddir í Þjóð­menn­ing­ar­hús­inu ásamt fjölda aðstoð­ar­manna ráð­herra. Viðföng fund­ar­ins og fylgi­sveit þeirra voru raunar mun fjöl­menn­ari hópur en blaða- og frétta­menn­irnir, sem voru nær engir utan full­trúa sjón­varps­stöðv­anna tveggja.

Þessi staða varð til þess að bók­staf­lega engin spurn­ing var lögð fram eftir að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hafði lokið máli sínu. Þess í stað spurði hún: „Engar spurn­ingar? Engar spurn­ingar? Hvar er Björn Ingi?“

Í kjöl­farið var sitt hvor ráð­herr­ann kall­aður í sjón­varps­við­tal og hinir stóðu eins og illa gerðir hlutir eftir, án þess að hafa lagt nokkuð til mála á fund­inum og án þess að eft­ir­spurn hafi verið hjá fáum fjöl­miðla­mönnum á svæð­inu eftir skoð­unum þeirra á ákvörð­un­inni.

Búið til súrefni fyrir ferðaþjónustu

Til­gangur fund­ar­ins var að kynna ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar um að stefna að því, eigi síðar en 15. júní 2020, að bjóða upp á skimun á landa­mærum Íslands í stað tveggja vikna sótt­kvíar sem kraf­ist hafði verið mán­uð­ina á undan.

Ísland lok­að­ist aldrei fyrir umheim­inum. Umheim­ur­inn lok­aði hins vegar að mestu á Ísland um tíma með ákvörð­unum sem teknar voru í mars, fyrst af Banda­ríkj­unum og svo af ýmsum Evr­ópu­löndum. Þ.e. helstu við­skipta­löndum okkar. Það hefur hins vegar verið hægt að fá und­an­þágur frá tveggja vikna sótt­kví með ýmsum hætti og í gegnum COVID-ástandið þá hefur verið slæð­ingur af fólki sem fer um alþjóða­flug­völl­inn í Keflavík.

En nú átti að stíga stærra skref og losa veru­lega um tak­mark­anir.

Samhliða var skýrsla stýri­hóps um aflétt­ingu ferða­tak­mark­ana birt á vef stjórn­ar­ráðs­ins, en hún var unnin á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Í þeim hópi sátu ráðu­neyt­is­stjórar sex ráðu­neyta: for­sæt­is­ráðu­neytis, heil­brigð­is­ráðu­neytis, atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis, dóms­mála­ráðu­neytis, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytis og utan­rík­is­ráðu­neytis. Ráð­herrar allra þeirra ráðu­neyta voru við­staddir blaða­manna­fund­inn.

Stýri­hóp­ur­inn hafði fundað fimm sinnum frá því að hann var settur saman 21. apríl og að auki átt fundi með Þórólfi Guðn­a­syni sótt­varna­lækni, Ölmu D. Möller land­lækni, Víði Reyn­is­syni yfir­lög­reglu­þjóni og Kára Stef­áns­syni, for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar.

Í skila­bréfi starfs­hóps­ins sagði meðal ann­ars: „Ekki þarf að fjöl­yrða um hin miklu efna­hags­legu áhrif sem far­ald­ur­inn hefur haft hér á landi. Það eru því miklir hags­munir tengdir því að tak­ist að koma efna­hags­líf­inu aftur á skrið. Um leið er mik­il­vægt að hafa í huga að ef of geyst er farið getur komið dýr­keypt bakslag í bar­átt­una gegn veirunni hér innan lands og þá er betur heima setið en af stað er farið.“

Ísland markaðssett til að auka eftirspurn ferðamanna

Á þessum tíma hafði tek­ist að koma böndum á COVID-19 far­ald­ur­inn á Íslandi og búið var að losa um harðar hömlur sem höfðu verið við lýði vikum saman á athafna­frelsi fólks. Íslend­ingar voru eins frjálsir og hægt var að vera við þessar aðstæður, og mun frjáls­ari – innan eigin landamæra – en flestar aðrar þjóðir í heim­inum.

Mikill þrýstingur hefur verið frá ferðaþjónustunni á að gera ferðalög til Íslands auðveldari.
Mikill þrýst­ingur hefur verið frá ferða­þjón­ust­unni á að gera ferða­lög til Íslands auð­veld­ari.

Sem hluti af efna­hags­að­gerðum sínum hafði rík­is­stjórnin heitið 1,5 millj­arði króna í mark­aðs­verk­efni fyrir íslenska ferða­þjón­ustu til að bregð­ast við nei­kvæðum áhrifum heims­far­ald­urs á hana.

Verk­efnið fékk heitið „Ísland – Saman í sókn“ og á grund­velli þess voru meðal ann­ars settir upp gulir öskur­há­tal­arar á nokkrum stöðum á land­inu. Markmið verk­efn­is­ins er skýrt: að auka eft­ir­spurn eftir íslenskri ferða­þjón­ustu, styrkja ímynd Íslands sem áfanga­staðar og við­halda sam­keppn­is­stöðu íslenskrar ferða­þjón­ustu og ann­arra útflutn­ings­greina.

Með öðrum orðum að lokka fleiri ferða­menn til lands­ins við fyrsta mögu­lega tæki­færi.

Mikið að umfangi

Ferða­þjón­ustan hafði enda vaxið gríð­ar­lega á und­an­förnum árum. Í fyrra komu um tvær millj­ónir ferða­manna til Íslands og um 25 þús­und manns unnu beint í ferða­þjón­ustu. Útflutn­ings­verð­mæti hennar voru 370 millj­arðar króna á árinu 2019, eða 35 pró­sent heild­ar­út­flutn­ings. Þó er vert að taka fram að í þeirri tölu vigtar flug­rekstur mjög mikið og inn­flutn­ings­kostn­aður, til dæmis á dýru elds­neyti á flug­vélar, er umtals­verður á móti. Auk þess kallar ferða­þjón­usta á mik­inn inn­flutn­ing á mat­vælum.

Ferða­þjón­ustan var enda átta pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu á síð­asta ári, sam­kvæmt útreikn­ingum Hagstofu Íslands. Það er meira en sjáv­ar­út­vegur, en ekki jafn mikið og ætla mætti miðað við hið gríð­ar­lega umfang geirans.

Á sama tíma var það sem kallað er verð­mæti inn­fluttrar ferða­þjón­ustu, það sem Íslend­ingar eyddu á ferða­lögum erlendis, 200 millj­arðar króna.

Semsagt: ferða­menn eyddu 370 millj­örðum króna á Íslandi á ári og Íslend­ingar eyddu 200 millj­örðum krónum á ári í útlöndum.

Tvö sjónarmið

Flestar efna­hags­legar hjálp­ar­að­gerðir sem rík­is­stjórnin hefur kynnt til leiks, hvort sem um er að ræða hluta­bóta­leið, upp­sagn­ar­styrkir, brúar- og stuðn­ings­lán, lok­un­ar­styrkir, mark­aðsá­tak eða Ferða­gjöfin, hafa beinst að ferða­þjón­ustu og tengdum greinum fyrst og síð­ast.

Það átti því kannski ekki að koma mörgum á óvart að mik­ill þrýst­ingur var á að, við fyrsta mögu­lega tæki­færi, yrði opnað fyrir mögu­lega tekju­sókn þessa geira að nýju. Og opna jafn­vel landa­mæri lands­ins frekar með auknum til­slök­unum gagn­vart þeim sem hingað vildu koma.

Stýri­hóp­ur­inn sem skip­aður var æðstu emb­ætt­is­mönnum sex ráðu­neyta tók að sér að fram­kvæma hag­rænt mat á því að losa um ferða­tak­mark­anir og fékk skrif­stofu efna­hags­mála í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu til að vinna punkta um það.

Í minn­is­blaði skrif­stof­unnar, sem er dag­sett 30. apríl 2020, segir að við aflétt­ingu sótt­varn­ar­að­gerða við landa­mæri tak­ist á tvö efna­hags­leg meg­in­sjón­ar­mið. Annars vegar ávinn­ingur af því að létta ferða­tak­mörk­unum og hins vegar kostn­aður sem fellur til ef far­ald­ur­inn tekur sig upp að nýju.

Hagræn áhrif á ferðaþjónustu bara metin

Þar segir að mikið sé til þess að vinna að draga megi úr ferða­tak­mörk­unum hratt og örugg­lega og sér­stak­lega til­tekið að áhrif þess væru meg­in­um­fjöll­un­ar­efni minn­is­blaðs­ins. Af þeim átta blað­síðum sem minn­is­blaðið telur eru um sjö og hálfri varið í hag­rænt mat á áhrifum aflétt­ingar á ferða­þjón­ustu.

Sex línum er varið í að taka fram að efna­hags­leg áhrif þess að far­ald­ur­inn gæti tekið sig upp að nýju á Íslandi gætu orðið veru­leg. Í þeim segir: „Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn gerir t.d. ráð fyrir að hag­kerfi heims­ins vaxi um eitt pró­sent árið 2021 í stað 5,8 pró­sent ef far­ald­ur­inn tekur sig upp að nýju á næsta ári. Ætla má að hver mán­uður af hörðum sótt­varn­ar­að­gerðum inn­an­lands minnki einka­neyslu hér á landi um hátt í eitt pró­sentu­stig á árs­grund­velli. Einka­neyslan er um helm­ingur lands­fram­leiðsl­unnar. Minni utan­lands­ferðir Íslend­inga og neysla erlendis vegna ferða­tak­mark­ana milli landa eru ekki með­talin í þessu mati.“

Aðallega talað við ferðaþjónustuna

Stýri­hóp­ur­inn setti líka á fót vinnu­hóp til að velta upp hug­myndum um opnun landamæra í kjöl­far kór­ónu­veiru. Sigurður Kári Árnason, yfir­lög­fræð­ingur í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu, Guð­mundur Daði Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri hjá Isavia, og Skarp­héð­inn B. Stein­ars­son ferða­mála­stjóri sátu í honum.

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, var á meðal þeirra sem vinnuhópurinn ræddi við.
Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri SAF, var á meðal þeirra sem vinnu­hóp­ur­inn ræddi við.

Í drögum að erind­is­bréfi fyrir hóp­inn sagði að atvinnu­vega­ráðu­neytið í sam­ráði við sam­göngu- og sveitat­stjórn­ar­ráðu­neytið væri að leita til hags­muna­að­ila í ferða­þjón­ustu og „öðrum iðn­aði“ um að móta til­lögur að atvinnu­starf­semi á tímum tak­mark­ana.

Í minn­is­blaði vinnu­hóps­ins, sem er dag­sett 1. maí, segir að hann hafi verið kall­aður til starfa 27. apríl, eða fimm dögum fyrr. Á fund hans hefðu komið Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, Styrmir Þór Bragason, fram­kvæmda­stjóri Arctic Adventures, Eva María Lange, fram­kvæmda­stjóri Pink Iceland, Ásberg Jónsson, fram­kvæmda­stjóri Nordic Visitor, Hilmar Sig­urðs­son, for­stjóri Saga film, og Davíð Torfi Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri Íslands­hót­ela.

Hópurinn hafi auk þess átt fund með þeim Pétri Ósk­ars­syni, Einari Hansen Tómassyni, Sigríði Dögg Guð­munds­dóttur og Karli Guð­munds­syni hjá Íslands­stofu. „Þá hafa full­trúar vinnu­hóps­ins rætt við fjöl­marga aðra um við­fangs­efnið og aflað gagna og upp­lýs­inga.“

Á ofan­greindri upp­taln­ingu má sjá að nær ein­vörð­ungu var rætt við aðila í ferða­þjón­ustu í vinnu hóps­ins. Eina und­an­tekn­ingin var for­stjóri Saga film. Auk þess voru tveir af þeim þremur ein­stak­lingum sem sátu í vinnu­hópnum frá ferða­þjón­ustu­ein­ingum.

Mikið óvissa en kostnaðurinn ekki greindur

Til við­bótar við skýrslu stýri­hóps­ins vann fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið grein­ar­gerð um efna­hags­leg sjón­ar­mið við losun ferða­tak­mark­ana sem birt var í byrjun júní. Þar var þremur val­kostum velt upp um málið: algjör opnun án skimunar, opnun með skimun eða áfram­haldi gildi þáver­andi reglna um sótt­kví við komu til lands­ins.

Við vinnslu grein­ar­gerð­ar­innar var leitað sjón­ar­miða sótt­varn­ar­læknis, yfir­læknis smit­sjúk­dóma­deildar Land­spít­al­ans og Samtaka ferða­þjón­ust­unnar. Auk þess var rætt við hag­fræð­ing­ana dr. Axel Hall, Friðrik Má Bald­urs­son, Gunnar Har­alds­son, Gylfa Zoega, dr. Tinnu Laufeyju Ásgeirs­dóttur, Tryggva Guð­munds­son og Rósu Björk Sveins­dóttur og Pálmar Þor­steins­son frá Seðla­banka Íslands.

Í grein­ar­gerð­inni, sem nú er verið að upp­færa, segir meðal ann­ars að efna­hags­leg áhrif los­unar ferða­tak­mark­ana séu hjúpuð mik­illi óvissu. „Greining þeirra er í eðli sínu þjóð­hags­leg kostn­aðar- og ábata­grein­ing. Grund­vallaró­vissa ríkir hins vegar um kostn­að­ar­hlið grein­ing­ar­innar. Sú óvissa byggir ann­ars vegar á því að gögn um útbreiðslu veirunnar eru víða óáreið­an­leg og ómögu­legt virð­ist að spá fyrir um þróun og áhrif far­ald­urs­ins blossi hann upp að nýju. Hins vegar þarf að meta kostnað vegna far­ald­urs­ins og sótt­varn­ar­að­gerða á heilsu, líf og lífs­gæði sem reyn­ist oft átaka­efni þótt til séu hag­ræn tæki til þess verks. Ábatinn er þekkt­ari, ekki síst þegar kemur að hag­rænum ábata þjóð­ar­bús­ins af ferða­mönnum.“

Ráðuneyti Bjarna Benediktssonar vann greinargerðum efnahagsleg áhrif losunar ferðatakmarkana.
Ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar vann grein­ar­gerðum efna­hags­leg áhrif los­unar ferða­tak­mark­ana.

Því fjallar grein­ar­gerðin að uppi­stöðu um þann ábata sem hægt væri að hafa af ferða­mönnum með frek­ari opnun landamæra.

Á grund­velli ofan­greindrar vinnu, og þeirrar stað­reyndar að í maí og júní liðu oft margir dagar eða vikur án þess að smit greind­ist á Íslandi, var ákveðið að opna frekar landa­mæri lands­ins með því að taka upp sýna­töku í stað tveggja vikna sótt­kvíar. Nokkru síðar var liðkað enn meira til með því að fjölga löndum á lista yfir „örugg lönd“, sem þurftu ekki einu sinni að fara í skimun, og taldi sá listi þá m.a. Þýska­land, Danmörku, Grænland og Færeyjar. Fyrir vikið fóru 132 þús­und far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl í júlí­mán­uði.

Hörð gagnrýni hagfræðinga

Blaða­manna­fund­ur­inn 12. maí, ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar og skýrsla starfs­hóps­ins hafa ratað aftur í sviðs­ljósið und­an­farna daga, í ljósi þess að önnur bylgja af COVID-19 far­aldr­inum hefur skollið á, með þeim afleið­ingum að herða hefur þurft sótt­varn­ar­að­gerðir og það mikla frelsi sem komið var á hér­lendis er nú í hættu.

Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði, birti grein á Kjarn­anum á fimmtu­dag þar sem hann sagði að ákvörðun um opnun landa­mæta og rýmk­andi ákvarð­anir í sótt­vörnum virt­ust hafa verið teknar á grund­velli þrýst­ings hags­muna­gæslu­manna í ferða­þjón­ustu og þröngra hags­muna umbjóð­enda þeirra, en ekki á grund­velli hag­ræns upp­gjörs á kostn­aði og ábata. Hann minnt­ist þar einnig á að Norðmenn hafi látið vinna slíkt upp­gjör í apríl þar sem fram hafi komið að það sem mestu skipti væri að halda útbreiðslu niðri og kom­ast hjá því að loka skólum og leik­skólum vegna þess hversu hamlandi slíkar lok­anir eru á atvinnu­lífið almennt. „Íslensk stjórn­völd þekkja til þeirrar vinnu en hafa ekki látið vinna til­svar­andi álits­gerð mér vit­an­lega. Það er skaði því hugs­an­lega hefði nið­ur­staða slíkrar vinnu haft áhrif,“ skrif­aði Þórólfur.

Daginn eftir birt­ist grein Gylfa Zoega, pró­fess­ors í hag­fræði, í Vís­bend­ingu, þar sem hann færði hag­fræði­leg rök fyrir því að stjórn­völd hefðu gert mis­tök með því að opna landa­mæri Íslands frekar. „Með ákvörð­unum sínum um opnun lands­ins hafa stjórn­völd stefnt mik­il­vægum almanna­gæðum í hættu sem eru þau gæði að geta hitt annað fólk, lært með öðru fólki, unnið með öðru fólki og verslað við annað fólk. Og þar með er efna­hag lands­ins einnig stefnt í hætt­u.“

Tinna Laufey Ásgeirs­dóttir, sem er líka pró­fessor í hag­fræði og sér­fræð­ingur í heilsu­hag­fræði, bætt­ist svo í hóp gagn­rýnenda í byrjun viku þegar hún sagði að ákvörð­unin um að opna frekar landa­mærin væri „mikil áhætta fyrir lít­inn ávinn­ing“. Eftir því sem tím­inn hafi liðið hafi orðið ljóst að kostn­að­ur­inn af áhætt­unni sé svo mik­ill að það hefði borgað sig að við­hafa mjög strangar reglur um ferðir fólks yfir landa­mærin og þær sótt­varnir sem hver og einn far­þegi þarf að hlíta.

Almannagæði

Gylfi Zoega hafði áður varað við þeirri stöðu sem komin var upp, í erindi sem hann hélt á mál­þing­inu „Út úr kóf­inu“ sem haldið var í hátíð­ar­sal Háskóla Íslands í byrjun júní.

Þar sagði hann meðal ann­ars að hag­kerfið myndi ná sér á strik þótt að fjöldi ferða­manna myndi ekki koma til lands­ins, svo fremi sem að annar far­aldur kór­ónu­veiru myndi ekki skella á síðar á árinu. „Góður árangur í sótt­vörnum í vor hefur skapað almanna­gæði sem bæta lífs­kjör og örva hag­vöxt.“

Í sam­tali við RÚV í kjöl­farið sagði Gylfi að þetta væru almanna­gæði eins og „að geta búið í landi þar sem að er ekki far­sótt, þar sem að fólk getur mætt í vinnu, farið út að borða, það getur hist. Og þessi almanna­gæði eru svo mik­il­væg að maður má passa sig að gera ekk­ert sem að stefnir þeim í voða.“

Hann sagði enn fremur að það að bíða með opnun landamæra hefði gildi. Hags­munir fárra, þeirra sem starfa í ferða­þjón­ustu, mættu ekki verða til þess að heilsu og afkomu ann­arra væri stefnt í hætt­u.

Í grein­inni í Vís­bend­ingu sagði Gylfi að stjórn­völd á Íslandi hafi löngum látið stjórn­ast af ráð­andi atvinnu­greinum. „Með því að opna landið í sumar var hætt­unni boðið heim að önnur bylgja far­ald­urs­ins lam­aði þjóð­líf og efna­hags­líf. Sérstaða Íslands hefur falist í því und­an­farna mán­uði að hér hefur líf fólks verið næsta eðli­legt á meðan grímu­klæddar þjóðir í nágrenn­inu glíma við það ill­leys­an­lega vanda­mál hversu mikið eigi að aflétta sótt­vörnum innan lands til þess að efla efna­hag þótt smitum fari fjöl­gangi.“

Engin heildstæð athugun

Stór hluti af gagn­rýni bæði Þórólfs og Gylfa var sú að við und­ir­bún­ing ákvörð­unar um að opna landa­mæri Íslands frekar um miðjan júní hafi ekki verið gerð heild­stæð athugun á efna­hags­legum áhrifum opn­un­ar­innar.

Þar vís­uðu þeir í áður­nefnda skýrslu stýri­hóps um aflétt­ingu ferða­tak­mark­ana sem birt var sam­hliða því að áform um frek­ari opnun voru kynnt í maí, og lá til grund­vallar þeirri ákvörðun, og grein­ar­gerð fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sem einnig var fjallað um hér að ofan.

Í skýrslu stýri­hóps­ins er það sér­stak­lega tekið fram að það hafi blasað við að viss áhætta væri fólgin í því að draga úr sótt­varna­ráð­stöf­unum hér­lendis og liðka fyrir ferða­lögum til og fá land­inu. Þar segir hins vegar líka: „Á hinn bóg­inn má segja að með því að staða sótt­varna er nú með ágætum inn­lands og í ljósi þess að aukin ferða­lög til og frá land­inu verða fyrr eða síðar óhjá­kvæmi­leg þá sé nú tíma­bært að huga að til­slök­unum. Að ýmsu leyti sé það hag­stætt nú vegna þess að ferða­lög milli landa séu hvort eð er í lág­marki og því svig­rúm til staðar til að prófa sig áfram án þess að missa tök á ástand­inu.“

Við þetta bætt­ust veiga­mikil efna­hags­leg rök sem mældu, sam­kvæmt skýrslu­höf­undum, með til­slök­unum. „Verk­efnið má því orða svo að meta þurfi hvað sé ásætt­an­legt að taka mikla áhættu í hverju skrefi sem stigið verður í átt til aflétt­ingar ferða­tak­mark­ana. Og jafn­framt hvernig megi grípa til var­úð­ar­ráð­staf­ana sam­hliða til­slök­unum til að takast á við mögu­leg smit sem upp kunna að koma í kjöl­farið.“

Einhliða málsvarar

Í Vís­bend­ing­ar­grein Gylfa Zoega var bent á að við und­ir­bún­ing ákvörð­un­ar­innar hafi engan málsvara verið að finna fyrir aðrar greinar eða hópa sem tapa ef veitan tæki að dreifa sér um sam­fé­lagið að nýju.

Hann nefndi sem dæmi nem­endur í fram­halds­skólum og háskól­um, eldri kyn­slóð­ina, starfs­fólk og við­skipta­vini í þjón­ustu­geir­anum sem sé stærsti hluti efna­hags­lífs­ins, og almenn­ing sem hafi verið mikið létt þegar sóttin hafði verið kveðin niður í júní. „Af frétta­flutn­ingi má ráða að svo til einu hags­mun­irnir sem skipta máli séu hags­munir ferða­þjón­ustu. Þessi áhersla kemur glöggt fram í grein­ar­gerðum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í júní og stýri­hóps um afnám ferða­tak­mark­ana í maí. Sjaldan hefur verið aug­ljósar hversu mikil áhrif ein atvinnu­grein getur haft á ákvarð­anir stjórn­valda.“

Ásættanleg áhætta

Þór­dís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála, svar­aði um helg­ina og sagði gagn­rýni Gylfa og Þór­ólfs Matth­í­as­son­ar, slá sig „svo­lítið eins og að fagna góðu stuði í gleð­skap á mið­nætti án þess að hugsa út í haus­verk­inn að morgn­i.“

Það hafi komið henni á óvart að Gylfi skuli í grein sinni í Vís­bend­ingu leggja áherslu á að Ísland þurfi ekki erlenda ferða­­menn því að staða efna­hags­­mála sé framar von­um. „Ég þekki ekki marga sem ætla að fara hring­inn í októ­ber,“ skrif­aði ráð­herr­ann.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hefur hafnað gagnrýni hagfræðinganna.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir hefur hafnað gagn­rýni hag­fræð­ing­anna.

Hún bætti við, í sam­tali við RÚV á laug­ar­dag, að áhættan af því að skima og hleypa fólki inn í landið væri lítil og að hún gæti ekki fall­ist á þau rök að hún sé svo mikil að það ætti að loka land­inu og ekki hleypa fólki inn. „Þannig að áhættan er í mínum huga ásætt­an­­leg.“

Önnur ríki brugðust öðruvísi við

Gylfi svar­aði þessu í grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í gær. Það er í fyrsta sinn sem hann hefur, að eigin sögn, séð til­efni til að skrif­ast á við stjórn­mála­mann. Og hann von­ast til að þurfa ekki að gera það aftur.

Í svar­grein sinni skrif­aði Gylfi að önnur ríki hafi brugð­ist við far­aldr­inum með hætti sem Ísland hefði getað horft til. Til dæmis hafi annað eyríki, Nýja-­Sjá­land, ákveðið að nota sér­stöðu sína til þess að hafa strangar sótt­varnir á landa­mærum og vernda þannig inn­lent hag­kerfi og sam­fé­lag uns lyf og bólu­efni koma til hjálp­ar. „Í nágrenni okkar mælir utan­rík­is­ráðu­neyti Nor­egs, svo dæmi sé tek­ið, með því að Norð­menn ferð­ist ekki til útlanda nema brýn­ustu nauð­syn beri til.“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra mót­mælti ekki ábend­ingum Gylfa í sam­tali við sama blað í morgun en sagði það fjarri lagi að hags­munir ferða­þjón­ust­unnar hafi verið settir í fyr­ir­rúm við ákvörð­un­ar­töku rík­is­stjórn­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár