Mynd: Bára Huld Beck

Ríkisstjórnin vill auka gagnsæið hjá 30 óskráðum en þjóðhagslega mikilvægum fyrirtækjum

Í drögum að nýju frum­varpi, sem rík­is­stjórnin hefur lagt fram til að auka traust á íslenskt atvinnu­líf, er lagt til að skil­grein­ing á „ein­ingum tengdum almanna­hags­munum“ verði víkkuð veru­lega út og nái meðal ann­ars til stór­iðju og sjáv­ar­út­vegs­risa.

Rík­is­stjórnin hefur lagt fram drög að frum­varpi í sam­ráðs­gátt stjórn­valda sem hefur þann til­gangi að láta stærri sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, stór­iðju- og orku­fyr­ir­tæki, flug­fé­lög, fjar­skipta­fé­lög og skipa­fé­lög sem stunda milli­landa­flutn­inga verða skil­greind sem „ein­ingar tengdar almanna­hags­munum“ jafn­vel þótt þau séu ekki skráð á hluta­bréfa­markað. Gera má ráð fyrir að rúm­lega 30 fyr­ir­tæki bæt­ist við skil­grein­ing­una „ein­ing tengd almanna­hags­munum“ verði frum­varpið óbreytt að lögum en um helm­ingur þeirra eru sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki.

Um slík fyr­ir­tæki, sem þá telj­ast kerf­is­lega mik­il­væg, gilda mun strang­ari reglur um gagn­sæi og upp­lýs­inga­gjöf en önnur. Með öðrum orðum, þau munu þurfa að sýna mun meira inn á hvað þau eru að gera en hingað til og allar kröfur sem gerðar verða til þeirra verða auknar veru­lega. Þessar breyt­ingar eiga að und­ir­strika „þjóð­hags­legt mik­il­vægi“ slíkra fyr­ir­tækja.

Til að und­ir­strika þetta enn frekar segir í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varps­drög­unum að ástæða þess að þetta sé mik­il­væg breyt­ing sé meðal ann­ars sú að „röskun á starf­semi, þjón­ustu eða rekstri slíkra félaga getur haft umtals­verð áhrif á efna­hags­starf­semi eða stöð­ug­leika vegna þess hversu umfangs­mikil hún er, mark­aðs­hlut­deildar hennar, mik­il­vægi á atvinnu­mark­aði, tengsla við aðra starf­semi, flækju­stigs eða starf­semi yfir landa­mæri eða vegna þess að önnur sam­bæri­leg starf­semi eða rekstur hér á landi er tak­mörkuð eða ekki í boði. Þá þykir einnig rétt að gera auknar kröfur til félaga sem með starf­semi sinni standa fyrir nýt­ingu á auð­lindum þjóð­ar­innar, s.s. nytja­stofnum á Íslands­miðum eða orku­auð­lindum.“

Sjávarútvegur og stóriðja þurfa að auka upplýsingagjöf

Breyt­ing­arnar munu ná yfir öll fyr­ir­tæki í áður­nefndum atvinnu­flokkum sem telj­ast sem stór félög eða stórar sam­stæður í skiln­ingi árs­reikn­inga­laga. Til að telj­ast til slíkra þarf fyr­ir­tæki að fara yfir mörk á að minnsta kosti tveimur af þremur við­miðum sett eru fram í lög­unum. Þau eru fyrir sam­stæðu að nið­ur­stöðu­tala efna­hags­reikn­ings sé að minnsta kosti þrír millj­arðar króna, að hrein velta sé að minnsta kosti sex millj­arðar króna eða að með­al­fjöldi árs­verka sé að minnsta kosti 250. Fyrir stór félög þarf að upp­fylla tvennt af eft­ir­far­andi þrennu: að eiga heild­ar­eignir yfir þremur millj­örðum króna, að vera með hreina veltu sem er yfir sex millj­örðum króna eða að vera með með­al­fjölda árs­verka yfir 250.

Verði frum­varpið að lögum mun það ná til 30 fyr­ir­tækja sem eru ekki skil­greind kerf­is­lega mik­il­væg í lögum í dag. Flest þeirra eru ekki skráð á hluta­bréfa­markað og lúta því ekki þeim auknu skil­yrðum um upp­lýs­inga­gjöf sem fylgir því. Þó eru sum það, til dæmis Brim, Síminn og Eimskip.

Um helm­ingur þeirra sem bæt­ast við eru stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins (meðal ann­ars Samherji). Á meðal ann­arra fyr­ir­tækja sem falla munu þar undir eru allra stærstu fyr­ir­tækin sem stunda stór­iðju og stór­tæk raf­orku­kaup hér­lendis (til dæmis Río Tinto á Íslandi í Straums­vík, Alcoa Fjarða­láls og Norð­ur­áls), óskráð fjar­skipta­fyr­ir­tæki á borð við Nova og óskráð skipa­fé­lög á borð við Samskip.

Á meðal þeirra fyrirtækja sem munu falla undir nýju skilgreininguna um þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki er Samherji.
Á meðal þeirra fyr­ir­tækja sem munu falla undir nýju skil­grein­ing­una um þjóð­hags­lega mik­il­væg fyr­ir­tæki er Samherji.

Frum­varpið er liður í aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar sem miða að því að auka traust á íslensku atvinnu­lífi með því að gera rík­ari kröfur um gagn­sæi í rekstri stærri óskráðra fyr­ir­tækja. Það er samið í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu í sam­vinnu við for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ráðu­neyti, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti og sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráðu­neyti. Því koma ráðu­neytin sem stýrt er af for­mönnum allra þriggja stjórn­ar­flokk­anna að gerð frum­varps­ins.

Gjaldfrjáls aðgangur að ársreikningum

Til við­bótar við ofan­greint er einnig lögð til sú grund­vall­ar­breyt­ing að árs­reikn­ingar og sam­stæðu­reikn­ingar allra félaga sem skila árs­reikn­ingi sínum til árs­reikn­inga­skrár verði aðgengi­legir almenn­ingi og fjöl­miðlum að kostn­að­ar­lausu á opin­beru vef­svæði. Í frum­varps­drög­unum segir að með breyt­ing­unni sé meðal ann­ars ætl­unin að auka aðgengi almenn­ings að upp­lýs­ingum sem félögum sé skylt að útlista í árs­reikn­ingi. „Eðlilegt þykir að almenn­ingur hafi greiðan aðgang að slíkum upp­lýs­ingum frá félögum. Greiðari aðgangur að árs­reikn­ingum er til þess fall­inn að auka aðhald með rekstri félaga, stuðla að upp­lýstri umræðu og efla þannig traust almenn­ings.“

Frumvarp um gjald­frjálst aðgengi almenn­ings og fjöl­miðla liggur reyndar þegar fyrir á Alþingi. Það var lagt fram af Birni Leví Gunn­ars­syni, þing­manni Pírata, í fyrra­haust. Mælt var fyrir því fyrr á þessu ári og það gekk til efna­hags- og við­skipta­nefndar í jan­úar. Umsagn­ar­frestur hags­muna­að­ila vegna þess rennur út í dag.

Björn Leví Gunnarsson er fyrsti flutningsmaður frumvarps sem þegar hefur verið mælt fyrir, og leggur til að aðgangur að ársreikningum verði gjaldfrjáls.
Björn Leví Gunn­ars­son er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps sem þegar hefur verið mælt fyrir, og leggur til að aðgangur að árs­reikn­ingum verði gjald­frjáls.

Á meðal þeirra sem hafa lýst yfir stuðn­ingi við breyt­ing­una í umsögnum sínum eru Kjarninn, Blaða­manna­fé­lag Íslands og Alþýðu­sam­band Íslands. Á meðal þess fram kom í umsögn Kjarnans um málið, sem skilað var inn í byrjun viku, er að sú gjald­taka sem sé til staðar, og skil­aði m.a. Rík­is­skatt­stjóra 134 millj­ónum krónum í tekjur á árinu 2017, kemur í veg fyrir að Kjarninn og aðrir miðlar sem fjalla um íslenskt atvinnu­líf ráð­ist í umfangs­miklar úttektir á atvinnu­greinum og tak­marki kaup sín á efni úr áður­nefndum skrám við það allra nauð­syn­leg­asta, enda safn­ast hratt upp umtals­verður kostn­aður ef mikið af gögnum eru sótt.

Þeir sem hagn­ist af núver­andi fyr­ir­komu­lagi virð­ast fyrst og síð­ast vera þriðju aðilar sem selja aðgang að upp­lýs­ingum um fyr­ir­tæki sem milli­liðir. „Fjár­hags­legir hags­munir þeirra fyr­ir­tækja, sem eru örfá, geta vart trompað lýð­ræð­is­legt mik­il­vægi þess að fjöl­miðlar og almenn­ingur allur hafi frjálst, frítt og tak­marka­laust aðgengi að opin­berum upp­lýs­ingum um fyr­ir­tækin sem starfa hér­lendis.“

Í frum­varps­drögum rík­is­stjórn­ar­innar sem birt voru í gær segir að ljóst sé að ríkið verði af tekjum verði frum­varpið að lögum, þar sem árs­reikn­inga­skrá verðu óheim­ilt að taka gjald fyrir aðgengi að árs­reikn­ingum félaga sem birtir verða á opin­beru vef­svæði. Auk þess sem kostn­aður muni hljót­ast af smíði tækni­legrar lausnar svo hægt sé að birta árs­reikn­inga á opin­beru vef­svæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið undanfarið ár