Mynd: Reitir

Hlutabréfaverð skaust upp á sama tíma og afkoma flestra félaga varð verri

Úrvals­vísi­tala íslensku Kaup­hall­ar­innar hefur hækkað um 80 pró­sent á einu ári. Alls jókst mark­aðsvirði 17 af þeim 19 félögum sem skráð eru í hana í fyrra. Samt skil­uðu 14 af þessum 19 félögum verri afkomu en á síð­asta ári en þau gerðu 2020.

Síðasta ár var gjöf­ult fyrir eig­endur hluta­bréfa á Íslandi. Alls hækk­aði úrvals­vísi­talan, sem mælir gengi bréfa í þeim tíu skráðu félögum sem eru með mestan selj­an­leika, um 20,5 pró­sent. Sú tala er þó vill­andi þar sem Icelandair var inni í vísi­töl­unni þangað til í des­em­ber í fyrra, en bréf í flug­fé­lag­inu lækk­uðu alls um 78,3 pró­sent á árinu 2020.

Níu þeirra tíu félaga sem mynda hana núna hækk­uðu í verði í fyrra. Mest allra hækk­aði Kvika banki, alls um 63,5 pró­sent, og svo TM, sem Kvika er að fara að sam­ein­ast í náinni fram­tíð, sem hækk­aði um 53,6 pró­sent.

Alls hækk­uðu tólf þeirra 19 félaga sem skráð eru á Aðal­markað hér­lendis um 26,9 til 63,5 pró­sent. Önnur fimm hækk­uðu um 2,9 til 12,6 pró­sent. Og tvö lækk­uðu: áður­nefnt Icelandair Group og fast­eigna­fé­lagið Reitir, sem lækk­aði um 2,9 pró­sent.

Hækk­un­ar­hrinan hefur að mestu haldið áfram á þessu ári. Alls hefur úrvals­vísi­talan hækkað um tólf pró­sent frá ára­mótum og þegar hækkun hennar er skoðuð frá lægsta punkti síð­asta árs, 23. mars 2020, þá hefur vísi­talan hækkað um 80 pró­sent. Það þýðir að ef fjár­festir sem átti hluta­bréfa­safn sem er sam­an­sett á sama hátt og úrvals­vísi­talan og var metið á einn millj­arð króna fyrir ári síðan, þá myndi hann hagn­ast um 800 millj­ónir króna ef hann seldi bréfin í dag.

14 af 19 félögum skiluðu verri afkomu

Það er eðli­legt að velta fyrir sér hvað veldur þessum miklu hækk­unum. Fátt í und­ir­liggj­andi rekstri flestra félag­anna í Kauphöll Íslands bendir til þess að virði þeirra ætti að hækka. Raunar er það þannig að 14 af 19 félögum sem skráð eru á Aðal­markað skil­uðu verri afkomu á árinu 2020 en á árinu 2019. Þ.e. hagn­aður þeirra dróst saman og í einu til­felli, hjá Icelandair Group, þá jókst tapið stór­kost­lega milli ára. Flug­fé­lagið tap­aði 7,8 millj­örðum króna árið 2019 en heilum 51 millj­arði króna í fyrra.

Þetta gerð­ist þrátt fyrir að þessi stærstu fyr­ir­tæki á Íslandi ættu, miðað við þróun mála, átt að hafa lækkað fjár­magns­kostnað sinn á síð­asta ári, enda vextir á Íslandi í sögu­legu lág­marki.

Af þeim félögum sem skiluðu betri afkomu 2020 en 2019 var viðsnúningurinn mestur hjá Arion banka. Benedikt Gíslason er bankastjóri hans.
Af þeim félögum sem skil­uðu betri afkomu 2020 en 2019 var við­snún­ing­ur­inn mestur hjá Arion banka. Benedikt Gíslason er banka­stjóri hans.

Fjöldi við­skipta jókst hins vegar mikið á síð­asta ári þegar þau voru 56.337, eða 226 á dag. Því er ljóst að fleiri eru að sýsla með hluta­bréf en áður. Ástæður þess má rekja til kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, að minnsta kosti að hluta. Ein­stak­lingar geta ekki lengur eytt pen­ingum í ýmis­legt sem þeir gátu áður eytt í, t.d. ferða­lög. Auk þess hafa launa­hækk­anir átt sér stað frá því að far­ald­ur­inn skall á, sparn­aður hefur hlað­ist upp og ofan á það hafa skuldir heim­ila lands­ins auk­ist mikið vegna fjár­fest­inga, þó aðal­lega í íbúð­ar­hús­næði.

Það eru 58 pró­sent fleiri við­skipti en voru á árinu 2019 og mesti fjöldi við­skipta á hluta­bréfa­mark­aði í tólf ár, eða frá hru­nár­inu 2008. Íslenskur hluta­bréfa­mark­aður nær þurrk­að­ist út eftir banka­hrunið í októ­ber það ár og því má segja að árið í fyrra sé metár hins end­ur­reista hluta­bréfa­mark­aðar þegar kemur að fjölda við­skipta.

Munur á þeim sem gengu betur

Þau fimm félög sem skil­uðu betri afkomu á síð­asta ári en árið þar á undan voru heldur ekki steypt í sama mót. Þannig jókst hagn­aður Arion banka úr 1,1 millj­arði króna í tæp­lega 12,5 millj­arða króna og hagn­aður TM fór úr 1,9 millj­arði króna í 5,3 millj­arða króna. Fyrr­nefndi bank­inn hefur líka til­kynnt að skila 18 millj­örðum króna til hlut­hafa sinna í formi arð­greiðslna og end­ur­kaupa á hluta­bréfum á þessu ári og að hann stefni að því að skila yfir 50 millj­örðum króna til hlut­hafa á næstu árum.

Í til­felli síð­ar­nefnda félags­ins telst með í hagn­aði tekju­fært und­ir­verð vegna kaupa á fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Lykli upp á tæpa 2,3 millj­arða króna, en rekstr­ar­hagn­aður TM var 3,4 millj­arðar króna í fyrra. Sjóvá bætti líka vel við hagn­að­inn sinn, og fóru úr 3,9 millj­örðum króna 2019 í 5,3 millj­arða króna hagnað á árinu 2020. Þá stór­batn­aði rekstur Eimskips, sem gerir upp í evrum. Hagnaður þess félags fór úr einni milljón evra í 4,5 millj­ónir evra. Á loka­gengi síð­asta árs var sá hagn­aður rétt rúm­lega 700 millj­ónir króna. 
Fimmta félagið sem bætti afkomu sína, tap­aði samt á síð­asta ári. Þar er um að ræða fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tækið Sýn sem lækk­aði tap­rekstur sinn á milli ára úr 1.748 millj­ónum króna í 405 millj­ónir króna.

Hagnaður Eimskips jókst milli ára.
Hagnaður Eimskips jókst milli ára.

Til við­bótar við þessa hækkun öfl­uðu skráð félög sér 29 millj­arða króna á mark­aði, en þar bar hluta­fjár­út­boð Icelandair Group hæst, enda þriðja stærsta hluta­fjár­út­boð í sögu íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins. Samhliða varð tvö­földun á fjölda ein­stak­linga sem áttu bréf skráð á mark­aðnum, enda þátt­taka almenn­ings í hluta­fjár­út­boði Icelandair Group mikil.

Alþjóðleg þróun

Þessi staða er sann­ar­lega ekki ein­skorðuð við Íslands.

Eftir að hluta­bréfa­verð hrundi í heim­inum frá lokum febr­úar í fyrra og fram til 23. mars 2020 þá tókst að snúa stöð­unni á hluta­bréfa­mörk­uðum við með umfangs­miklum aðgerðum seðla­banka og þjóð­ríkja. Þar vís­uðu Banda­ríkin veg­inn.

Vextir lækk­uðu sem gerðu fjár­magn ódýr­ara og pen­ingum var bók­staf­lega dælt inn í hag­kerfi heims til að halda þeim gang­andi á meðan að heims­far­ald­ur­inn gengur yfir.

Í Banda­ríkj­unum hafa hluta­bréf að jafn­aði hækkað með svip­uðum hætti og hér­lendis. Þar eru uppi miklar áhyggjur af því að verið sé að blása upp hluta­bréfa­bólu. Ekkert í und­ir­liggj­andi rekstri margra skráðra félaga þár rétt­læti heldur þá miklu hækkun sem sást á síð­asta ári. Upp­á­halds­dæmi flestra sér­fræð­inga er raf­bíla­fram­leið­and­inn Tesla. Á árinu 2020 hækk­uðu bréf í félag­inu um meira en 700 pró­sent, Tesla komst inn á lista yfir tíu stærstu fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna og varð verð­mæt­asti bíla­fram­leið­andi í heimi. Elon Musk, stofn­andi Tesla, varð fyrir vikið þriðji rík­asti maður heims.

Miðað við mark­aðsvirði var Tesla orðið meira virði en sam­keppn­is­að­il­arnir Toyota, Volkswagen, General Motors, Ford, Fiat Chrysler, Nissan and Daimler sam­an­lagt. Toyota eitt og sér seldi um tíu millj­ónir bif­reiða á ári. Í fyrra seld­ust 367.500 Teslur.

Pundið í Elon Musk og Teslu hækkaði verulega í virði á síðasta ári.
Pundið í Elon Musk og Teslu hækk­aði veru­lega í virði á síð­asta ári.

Tesla er að byggja tvær risa­verk­smiðjur og félagið hefur skilað hagn­aði fimm árs­fjórð­unga í röð. Sá hagn­aður er þó ekki mikil og Toyota hagn­að­ist um sex sinnum hærri upp­hæð á þriðja árs­fjórð­ungi í fyrra en Tesla gerði á öllu þessu fimm árs­fjórð­unga tíma­bili.

Gagnrýnisraddir heyrast

Á meðal þeirra sem hafa gagn­rýnt þessa stöðu er banda­ríski fjár­festir­inn Seth Klarman, stofn­andi vog­un­ar­sjóðs­ins Baupost Group, sem er meðal ann­ars stór eig­andi í Bakkavör Group, félags sem á rætur sínar að rekja til Íslands. Alls stýra sjóðir innan Baupost um 30 millj­örðum dala, eða rúm­lega 3.800 millj­örðum króna. Til sam­an­burðar var verg lands­fram­leiðsla alls íslenska hag­kerf­is­ins undir þrjú þús­und milj­örðum króna í fyrra.

Í bréfi sem hann skrif­aði til fjár­festa fyrr á þessu ári, og birt var að hluta í Financial Times, benti Klarman á að hin umfangs­mikla inn­spýt­ing á ódýru eða nær ókeypis pen­ingum inn á fjár­mála­mark­aði hafi farið langt með að eyða allri áhættu sem fylgi fjár­fest­ingu í hluta­bréfum.

Fyrir vikið sé nær ómögu­legt að meta raun­veru­lega stöðu efna­hags­lífs­ins. Klarman líkti því við að reyna að meta hvort ein­hver sé með hita eftir að við­kom­andi hafði tekið stóran skammt af hita­lækk­andi lyfjum. „Líkt og með froska í vatni sem er hægt og rólega verið að hita upp að suðu, þá er verið að skil­yrða fjár­festa til að átta sig ekki á hætt­unni,“ skrif­aði Klarman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár