Mynd: Pexels

Meðallaun forstjóra í Kauphöll Íslands voru 4,8 milljónir á mánuði

Sá for­stjóri í Kauphöll Íslands sem hafði hæstu mán­að­ar­launin fékk 13,5 millj­ónir króna greiddar á mán­uði. Það eru rúm­lega tvö­föld mán­að­ar­laun þess sem kemur á næst á eftir. Fleiri karlar sem heita Árni stýra skráðum félögum á Íslandi en konur.

Með­al­laun for­stjóra þeirra 19 félaga sem skráð eru á Aðal­mark­aði Kaup­hallar Íslands í fyrra voru rétt um 4,8 millj­ónir króna. Það eru aðeins hærri með­al­laun en voru í Kaup­höll­inni árið 2019 og alls hækk­uðu tíu for­stjórar í launum í fyrra en níu lækk­uðu. Í flestum til­fellum var um litlar breyt­ingar að ræða.

Til sam­an­burðar má nefna að mið­gildi heild­ar­launa hér­lendis árið 2019 var 655 þús­und krónur á mán­uði. Það þýðir að helm­ingur vinnu­mark­að­ar­ins var með mán­að­ar­laun undir þeirri tölu á því ári. For­stjór­arnir í Kaup­höll­inni eru með rúm­lega sjöföld mið­gild­is­laun að með­al­tali á mán­uði.

Árni Oddur sker sig úr

Mestu skiptir að laun Árna Odds Þórð­ar­sonar, for­stjóra Marel, fóru úr um tólf millj­ónum króna í 13,5 millj­ónir króna á mán­uði. Vert er að taka fram að laun Árna Odds eru í evrum og evran styrkt­ist umtals­vert gagn­vart krónu á árinu. Þegar þau eru skoðuð í evrum lækk­uðu launin, sem eru bæði föst laun og árang­urstengdir bónusar, um 1,7 pró­sent. Til við­bótar við þessi laun þá vann Árni Oddur sér inn umtals­verða kaup­rétti sem metnir voru á 334 þús­und evrur, um 52,1 millj­ónir króna, á síð­asta ári og fékk umtals­verða upp­hæð í mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð.

Árni Oddur er með rúm­lega tvö­föld mán­að­ar­laun þeirra sem koma næst á eftir honum á list­anum en þess ber að geta að Marel er langstærsta félagið sem skráð er í Kauphöll Íslands, auk þess sem bréf félags­ins eru einnig skráð á markað í Amster­dam. Heild­ar­virði allra skráðra hluta­bréfa á íslenska mark­aðnum, bæði Aðal­mark­aði og First North, var 1.563 millj­arðar króna í lok síð­asta árs. Af þeirri upp­hæð var virði Marel um 608 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót, eða 39 pró­sent af heild­ar­virði Kaup­hall­ar­innar.

Mark­aðsvirði Marel hækk­aði alls um 28,3 pró­sent á síð­asta ári og um 65,9 pró­sent árið 2019. Mark­aðsvirðið á síð­asta ári einu saman jókst um 288 millj­arða króna.

Kona á leiðinni í Kauphöllina

Eitt félag, Heima­vellir, var afskráð úr Kauphöll Íslands í fyrra, og ekk­ert nýtt bætt­ist við á Aðal­markað. Félögin á honum voru því 19 í árs­lok. Búið er að til­kynna um skrán­ingu tveggja nýrra félaga á markað það sem af er þessu ári, Íslands­banka og Síld­ar­vinnsl­unnar. Búist er við því að skrán­ing þeirra beggja verði að veru­leika seint í vor eða snemma í sumar.

Verði skrán­ing Íslands­banka að veru­leika mun það ger­ast að kona, Birna Ein­ars­dóttir, stýrir skráðu félagi á Íslandi í fyrsta sinn í tæp fimm ár. Síðasta konan til að vera for­stjóri hjá skráðu félagi var Sigrún Ragna Ólafs­dóttir, sem var sagt upp störfum hjá VÍS í ágúst 2016.

Það hafa samt sem áður verið vend­ingar á þeim tíma. Á árinu 2019 skiptu til að mynda átta af 20 félögum um for­stjóra, en réðu öll karl í stað karls. Minna var um for­stjóra­skipti í fyrra, en þó hætti Finnur Árnason hjá Högum og Finnur Oddsson tók við af honum. Við það losn­aði for­stjóra­staðan hjá Origo og Jón Björns­son var ráð­inn í hana.

Eins og stendur eru þó tveir karlar sem heita Árni for­stjórar skráðra félaga á Íslandi en engar konur. Á tíma­bili voru líka tveir menn sem heita Finnur for­stjórar í skráðum félögum.

Til að setja þá stöðu í sam­hengi þá hétu 1.587 manns Árni að for­nafni á Íslandi í byrjun árs 2019. Á sama tíma báru 283 Finnur sem fyrsta eig­in­nafn. Í lok síð­asta árs bjuggu 179.680 konur á Íslandi.

Svipað meðaltal og síðustu ár

Meðaltal launa for­stjóra í Kaup­höll­inni lækk­uðu lít­il­lega milli áranna 2018 og 2019. Þau voru 4,8 millj­ónir króna árið 2018 en 4,7 millj­ónir króna ári síðar, sam­kvæmt sam­an­tekt Kjarnans á upp­lýs­ingum um launa­greiðslur úr árs­reikn­ingum allra skráðra félaga. Í fyrra hækk­uðu þau svo lít­il­lega aftur, en að mestu, líkt og áður sagði, vegna hækk­ana á launum for­stjóra Marel sem útskýr­ast af veik­ingu krón­unnar.

Vert er að taka fram að inni í laun­unum eru í næstum öllum til­fellum ekki mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð en það var í mörgum til­fellum í kringum tíu millj­ónir króna á ári hjá Kaup­hall­ar­for­stjórum á síð­asta ári.

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, er í sérflokki þegar kemur að launakjörum.
Árni Oddur Þórð­ar­son, for­stjóri Marel, er í sér­flokki þegar kemur að launa­kjörum.

Í öðru sæti á launa­list­anum eru for­stjórar smá­sölurisanna sem skráð eru á markað, Eggert Þór Krist­ó­fers­son hjá Festi og Finnur Árnason hjá Högum. ert er að taka fram að launa­kjör Finns eru fyrir rekstr­ar­árið 2019/2020, en Hagar eru með ann­ars konar upp­gjörsár en önnur félög. Það hefst 1. mars, ekki 1. febr­úar. Þeir lækk­uðu þó báðir í launum, Eggert í 5,6 millj­ónir króna á mán­uði og Finnur í 5,8 millj­ónir króna á mán­uði, en báðir höfðu haft 6,1 milljón krónur á mán­uði að með­al­tali árið 2019.

Bankastjórar á svipuðu róli

Laun Bene­dikts Gísla­sonar, for­stjóra Arion banka, hækk­uðu úr 4,7 í 4,8 millj­ónir króna að jafn­aði á mán­uði. Auk þess er við lýði kaupauka­kerfi innan Arion banka sem mun gera honum kleift að fá allt að 25 pró­sent af árs­launum sínum í bónus og kaup­rétt­ar­kerfi þar sem banka­stjór­anum býðst að kaupa bréf í bank­anum á verði sem er vel undir núver­andi mark­aðsvirði hans.

Gildi líf­eyr­is­sjóður, stærsti ein­staki eig­andi Arion banka, hefur gert athuga­semd við launa­kjör æðstu stjórn­enda bank­ans og og mun leggja fram bókum þess efnis á aðal­fundi bank­ans sem fram fer í dag. Þar segir meðal ann­ars að laun stjórn­enda bank­ans virð­ist að mati sjóðs­ins „þegar til­lit er tekið til mögu­leika á árang­urstengdum greiðsl­um, kaup­réttum og áskrift­ar­rétt­ind­um, hærri en það sem gengur og ger­ist hjá öðrum íslenskum bönkum og skráðum fyr­ir­tækjum sem starfa á íslenskum mark­að­i.“

Mik­il­vægt er að mati Gildis að ef félög ákveði að not­ast við árang­urstengd launa­kerfi sé gætt heild­ar­sam­heng­is. Til dæmis að föst laun séu þá lægri sam­an­borið við félög þar sem slík kerfi eru ekki til stað­ar. „Þá er mik­il­vægt að slíkt kerfi hvetji ekki til óeðli­legar áhættu­töku,“ segir í bók­un­inni.

Hinn banka­stjór­inn á meðal kaup­hall­ar­for­stjóra, Marinó Örn Tryggva­son hjá Kviku, var með 4,3 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun að með­al­tali í fyrra og lækk­aði lít­il­lega á milli ára.

Níu lækkuðu milli ára

Alls lækk­uðu laun níu for­stjóra á síð­asta ári. Mest lækk­uðu laun for­stjóra Origo, úr 5,1 í 4,1 milljón króna, en Jón Björns­son tók við því starfi af Finni Oddssyni seint í ágúst 2020 þegar sá síð­ar­nefndi færði sig í for­stjóra­stól­inn hjá Högum. Finnur hóf störf hjá Högum í lok júní. Í árs­reikn­ingi Origo kemur fram að hann hafi fengið alls 67,1 milljón krónur í upp­gjörs­greiðslu í fyrra.

Laun Boga Nils Boga­sonar, for­stjóra Icelandair Group, lækk­uðu líka um 600 þús­und krónur á mán­uði, úr 4,6 í fjórar millj­ónir króna. Icelandair tap­aði enda 51 millj­arði króna í fyrra og þurfti að sækja sér mikið nýtt hlutafé til að takast á við rekstr­ar­erf­ið­leika sem skap­ast höfðu vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Þá var Icelandair það ein­staka fyr­ir­tæki sem fékk mesta aðstoð frá hinu opin­bera í gegnum þau úrræði sem stjórn­völd buðu fyr­ir­tækjum upp á vegna far­ald­urs­ins.

Með­al­laun Heiðars Guð­jóns­sonar, for­stjóra Sýnar, lækka líka umtals­vert á milli ára en Sýn tap­aði 405 millj­ónum krónum í fyrra. Þá lækk­uðu laun Guð­mundar Krist­jáns­sonar, for­stjóra Brims, niður í um 3,2 millj­ónir króna á mán­uði. Hann fór í leyfi sem for­stjóri félags­ins hluta úr síð­asta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið undanfarið ár