Trúverðugleiki Seðlabankans gæti skaðast vegna leka

Verið er að kanna með hvaða hætti leki á afriti af sím­tali milli Davíðs Odds­sonar og Geirs H. Haarde verði rann­sak­aður. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem vitnað er í sím­tal sem tekið var upp í bank­anum án þess að annar aðil­inn vissi af því.

Seðla­banki Íslands hefur ekki tekið ákvörðun um hvernig hann ætlar að bregð­ast við birt­ingu á afriti sím­tals milli Davíðs Odds­sonar, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóra, og Geirs H. Haarde, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, um neyð­ar­lána­veit­ingu til Kaup­þings upp á 500 millj­ónir evra þann 6. októ­ber 2008. Samkvæmt svörum bank­ans er málið enn i skoðun.

Heim­ildir Kjarnans herma að innan bank­ans geri lyk­il­menn sér grein fyrir því að rann­saka þurfi málið með ein­hverjum hætti. Um sé að ræða birt­ingu á trún­að­ar­upp­lýs­ingum sem Seðla­bank­inn hefur barist hart fyrir að t.d. aðrir fjöl­miðlar fái ekki aðgang að, en birt­ust svo í dag­blaði sem fyrr­ver­andi æðsti emb­ætt­is­maður bank­ans stýrir.

Trú­verð­ug­leiki Seðla­bank­ans, jafnt inn­an­lands sem utan, gæti skað­ast vegna máls­ins.

Kjarninn stefndi Seðla­banka Íslands í lok októ­ber til að reyna að fá afhent hljóð­upp­töku af sím­tali Davíðs og Geirs. Seðla­bank­inn hefur ákveðið að taka til varna í því máli og leggur því aug­ljós­lega mikla áherslu á að sím­talið kæmi ekki fyrir augu almenn­ings.

Fjallað var um sím­talið og afleið­ingar þess í nýjasta sjón­varps­þætti Kjarnans á Hring­braut. Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni í glugg­anum hér að ofan.

Fáir símar hljóðritaðir

Innan Seðla­banka Íslands eru fáir símar hljóð­rit­aðir. Þeir sem þannig er háttað um eru símar starfs­manna sem hafa með fjár­mála- og við­skipta­gjörn­inga að gera. Þannig er málum einnig háttað innan stóru fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna hér­lendis. Hand­fylli af símum eru alltaf hljóð­rit­aðir vegna eðlis starfa þeirra sem þá nota. Innan í fjár­mála­kerf­inu vita allir hvaða símar það eru sem eru hljóð­rit­aðir, og sím­töl í þá bera þess merki. Menn vanda sig þegar hringt er í þá síma.

Einn þeirra sem var með hljóð­rit­aðan síma innan Seðla­bank­ans var Sturla Pálsson, sem í dag er fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta og fjar­stýr­ingar í bank­anum. Allir lyk­il­starfs­menn bank­ans vissu að sím­töl í síma Sturlu voru hljóð­rituð.

Í vitna­skýrslu yfir Sturlu hjá sér­stökum sak­sókn­ara árið 2012 kom fram að sím­tal milli Dav­íðs Odds­sonar og Geirs H. Haarde, þar sem rætt var um neyð­ar­lán­veit­ing­una, hafi átt sér stað klukkan 11.57 mánu­dag­inn 6. októ­ber. Þar sagði einnig að það hafi farið fram í gegnum síma Sturlu, sem var við­staddur sím­tal­ið. Davíð sagði í Reykja­vík­ur­bréfi Morg­un­blaðs­ins 18. nóv­em­ber að sam­talið hafi verið tekið upp fyrir til­viljun. Í frétt blaðs­ins um sím­talið sama dag var því haldið fram að hvorki Davíð né Geir hafi vitað að það væri hljóð­ritað, án þess að neinn væri hafður fyrir því.

Við skýrslu­tök­una hjá sér­stökum sak­sókn­ara árið 2012 sagði Sturla hins vegar að Davíð hafi vitað að sími Sturlu væri hljóð­rit­aður og því frekar tekið sím­talið úr síma sam­starfs­manns síns en úr sínum eig­in. Eng­inn annar var við­staddur sím­tal­ið Seðla­banka­megin en þeir tveir, Davíð og Sturla.

Við­mæl­endur Kjarnans sem þekkja vel til máls­ins telja engan vafa á því að Davíð Oddsson vissi nákvæm­lega hvað hann var að gera. Hann vildi að sím­talið yrði tekið upp og þess vegna tók hann það í gegnum síma Sturlu.

Misvísandi frásagnir um ábyrgð

En af hverju? Hvaða máli skipti það? Það skiptir máli þegar ákveða á hvar ábyrgðin á veit­ingu láns­ins liggur. Um hana eru máls­að­ilar nefni­lega alls ekki sam­mála. Yfir­lög­fræð­ingur Seðla­bank­ans sagði til að mynda við rann­sókn­ar­nefnd Alþingis að Seðla­bank­inn hefði ákveðið að veita lánið.

Geir H. Haarde sagði í sjón­varps­við­tali í októ­ber 2014 að Seðla­bank­inn hefði haft fulla heim­ild til að veita lánið. Björn Þor­valds­son, sak­sókn­ari í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða, sagði í mál­flutn­ingi fyrir hér­aðs­dómi telja að þau fölsku hug­hrif sem kaupin hefðu valdið hefðu átt þátt í að Seðla­bank­inn veitti umrætt lán.

Davíð Oddsson sagði í Reykja­vík­ur­bréfi í októ­ber í fyrra að rík­is­stjórn Geirs H. Haarde hefði tekið ákvörð­un­ina. Már Guð­munds­son, núver­andi Seðla­banka­stjóri, hefur hins vegar síðar sagt að ábyrgðin á lán­inu hvíli alltaf á end­anum á Seðla­bank­anum.

Þegar afrit af sam­tali Davíðs og Geirs er lesið er nokkuð skýrt að Davíð vill að Geir segi hvort að veita eigi lánið eða ekki. Á einum stað segir hann t.d. við Geir: „Þú ert að tala um það að við eigum frekar að reyna að hjálpa Kaup­þingi?“ Á öðrum stað, þar sem verið er að ræða veð, spyr Davíð:„Já, já ert þú ekki sam­mála því að við verðum að gera ýtr­ustu kröf­ur?“

Eftir að sím­tal­inu lauk hringdi Davíð í Hreiðar Má Sig­urðs­son, þáver­andi for­stjóra Kaup­þings, og til­kynnti honum að Kaup­þing myndi fá fyr­ir­greiðsl­una sem beðið hefði verið um. Í vitna­skýrsl­unni yfir Sturlu sagði að: „Aðspurður um hvenær sú ákvörðun hefði legið fyrir að SÍ ætl­aði að hjálpa Kaup­þingi en ekki LÍ kvað SP að DO hafa sagt að ekki yrði hæg að bjarga báðum bönk­un­um. DO hafi sagt GHH að þeir fengju þennan pen­ing ekki til baka og að ákvörð­unin hafi í raun verið GHH.“

Davíð kallaði Geir „idjót“

Geir gaf ekki leyfi fyrir birt­ingu sím­tals­ins þegar það var birt í Morg­un­blað­inu. Hann hefur alla tíð verið á móti því að sím­talið yrði birt vegna þess að það sé ólíð­andi að sím­töl for­sæt­is­ráð­herra við emb­ætt­is­menn rík­is­ins séu hljóð­rituð án vit­undar ráð­herr­ans. Einn við­mæl­enda Kjarnans sem rætt hefur málið við Geir sagði að hann teldi sig að leikið hefði verið á sig á mjög við­kvæmum tíma. Davíð hafi vitað upp á hár hvað hann væri að gera.

Þær aðstæður fá stuðn­ing í nokkrum frá­sögnum sem komu fram við skýrslu­töku fyrir rann­sókn­ar­nefnd Alþingis. Jón Steins­son, hag­fræð­ingur, sem búsettur er í Banda­ríkj­unum og er dós­ent við Columbia háskól­ann í New York, var kall­aður til af Geir til að aðstoða við þær aðstæður sem upp voru komnar í byrjun októ­ber 2008. Jón sagði við nefnd­ina að þegar hann hitti Geir fyrst eftir heim­kom­una þá hafi „hann virst vera á barmi tauga­á­falls.“ Hann sagði líka að starfs­menn Seðla­bank­ans hefðu sagt sér að „Davíð Oddsson, for­maður banka­stjórnar Seðla­bank­ans, tal­aði um Geir sem „idjót““.

Þarf formlega beiðni til að afrita símtal

Davíð skrifar aftur um sím­talið í Reykja­vík­ur­bréfi Morg­un­blaðs­ins um liðna helgi. Þar segir hann að ýmsir fjöl­miðlar hafi gefið það til kynna að hann hafi haft afrit af sím­tal­inu með sér úr Seðla­bank­anum þegar hann var knú­inn til að hætta sem seðla­banka­stjóri. Í Reykja­vík­ur­bréf­inu stendur: „En vand­inn er sá, að þetta sím­tal var ekki afritað á meðan sá var í bank­anum. Það var ekki fyrr en löngu síðar, þegar Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis vildi fá að sjá ýmis sím­töl sem kynnu að hafa þýð­ingu fyrir vinnu nefnd­ar­innar, sem haf­ist var handa við afrit sam­tal­anna. Banka­stjór­inn var þá fyrir löngu horf­inn tóm­hentur úr bank­anum og hefur ekki komið inn í það hús síðan.“ Með öðrum orðum þá seg­ist Davíð ekki hafa tekið sím­talið með sér úr Seðla­bank­anum og látið blaða­manni á Morg­un­blað­inu það í té mörgum árum síðar.

Og það er rétt, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, að sím­talið var ekki afritað form­lega á meðan að Davíð var enn í Seðla­bank­anum. Til að fá afrit af hljóð­rit­uðu sím­tali og til að fá leyfi til að hlusta á það þarf að leggja fram beiðni. Hún er alltaf bókuð. Síðan er verk­efnið sent til rit­ara sem skrifar afritið upp og lætur við­kom­andi hafa.

Beiðni til þess að afrita sím­talið var ekki lögð fram, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, fyrr en til stóð að afhenda það rann­sókn­ar­nefnd Alþingis á árinu 2009. Það gerði Sturla Pálsson og innan Seðla­bank­ans er til beiðni fyrir gerð þess afrits. Sú nefnd var skipuð 30. des­em­ber 2008 og lauk störfum með skýrslu­skilum í apríl 2010. Greint var frá því að Davíð myndi hætta sem seðla­banka­stjóri í lok febr­úar 2009, eftir að rann­sókn­ar­nefndin hóf störf.

Þó er alltaf sá mögu­leiki fyrir hendi að afrit hafi verið tekið af sím­tal­inu eftir öðrum leiðum. Eða að það afrit sem hafi verið gert hafi farið víðar en það átti að fara. Þetta er á meðal þess sem verið er að kanna innan Seðla­bank­ans nú.

Ýmsir aðrir hafa haft afrit

Það hafa fleiri ein­ingar innan stjórn­sýsl­unnar fengið afritið af sím­tal­inu fræga. Frétta­stofa RÚV óskaði eftir því árið 2012 að Seðla­bank­inn léti umrædda hljóð­upp­töku af hönd­um, en bank­inn synj­aði beiðni frétta­stof­unnar um afhend­ingu upp­tök­unn­ar. Hljóð­upp­takan væri und­an­skilin upp­lýs­inga­lögum vegna þagn­ar­skyldu­á­kvæða í lögum um Seðla­bank­ann. Frétta­stofan kærði synj­un­ina til Úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál. Í úrskurði nefnd­ar­innar var synjun Seðla­bank­ans stað­fest, en þar kom fram að bank­inn hafi sent Úrskurð­ar­nefnd­inni afrit af útskrift sím­tals­ins í trún­aði, ásamt bréfi þar sem Seðla­bank­inn gerði athuga­semdir við kæru máls­ins.

Frétta­stofa RÚV vildi ekki una nið­ur­stöð­unni og vís­aði úrskurði nefnd­ar­innar til Umboðs­manns Alþing­is, sem gerði ekki athuga­semd við að Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefði synjað frétta­stof­unnar um aðgang að hljóð­upp­töku að fyrr­greindu sím­tali. Í nið­ur­stöðu Umboðs­manns kom fram að emb­ætt­inu hafi sömu­leiðis borist útskrift af sím­tal­inu.

Þá hefur Kjarn­inn heim­ildir fyrir því að útskrift af sím­tali Dav­íðs og Geirs hafi verið sent for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Fjár­laga­nefnd Alþingis sótti fast á sínum tíma að fá afhenda sjálfa hljóð­upp­tök­una af sím­tal­inu, til að glöggva sig á því hvern­ig ­staðið var að lán­veit­ing­unni til Kaup­þings, án árang­urs. Seðla­bank­inn heim­il­aði að lokum nefnd­ar­mönnum fjár­laga­nefndar að lesa útskrift­ina af sím­tal­inu á sér­stökum fundi með full­trúum Seðla­bank­ans. Nefnd­ar­menn fengu hins vegar hvorki að halda eftir ein­tökum af útskrift­inni, né vitna til hennar í opin­berum skýrsl­um.

Það eru því ýmsir sem hafa haft afrit af sím­tal­inu undir höndum. En veru­leik­inn er samt sá að það birt­ist í dag­blaði sem rit­stýrt er af öðrum þeirra sem áttu sam­talið. Sá hefur því alla tíð vitað nákvæm­lega hvert inni­hald sím­tals­ins var.

Símtalið við Mervyn King

Það sem eykur á tor­tryggni gagn­vart Davíð er að hann hefur áður vitnað í sím­tal sem hann átti sem seðla­banka­stjóri, og tekið var upp án vit­neskju þess sem við var rætt. Það sím­tal var við Mervyn King, þá banka­stjóra Eng­lands­banka.

Davíð greindi opin­ber­lega frá efni sím­tals­ins í við­tali við ára­móta­blað Við­skipta­blaðs­ins 2010. Þar sagði hann að í því hefði King hefði lofað að falla frá kröfum á hendur Íslandi vegna Icesave-reikn­ing­anna. Við skýrslu­töku hjá rann­sókn­ar­nefnd Alþingis sagði Árni M. Mathiesen, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, að Davíð hafi á fundi í ráð­herra­bú­staðnum 4. októ­ber 2008 lesið end­ur­rit af sím­tali sínu við King. Það var mat Árna að Davíð væri að leggja „of mikið upp úr orðum Mervyn King“.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar, sem kom út áður en að Davíð greindi frá efni sím­tals­ins í Við­skipta­blað­inu, var ekki birt end­ur­rit af því. Þar segir: „Endurrit af fram­an­greindu sam­tali Davíðs Odds­sonar og Mervyn King ber ekki með sér að Davíð hafi í upp­hafi sam­tals­ins óskað leyfis Mervyn King fyrir því að fá að hljóð­rita það, líkt og skylt er sam­kvæmt 1. mgr. 48. gr. laga nr. 81/2003 um fjar­skipti. Í end­ur­rit­inu kemur einnig fram að Davíð hafi sér­stak­lega nefnt að um trún­að­ar­sam­tal væri að ræða, sbr. orð hans („because we are talking 100% in secrecy and pri­vate“), og að Mervyn King hafi játað því. Af þeirri ástæðu veitti rann­sókn­ar­nefnd Alþingis King tæki­færi til að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi varð­andi hugs­an­lega birt­ingu efnis úr end­ur­riti sam­tals­ins. Í bréfi sem nefnd­inni barst frá Graham Nicholson, lög­fræð­ingi hjá Seðla­banka Bret­lands, dags. 17. des­em­ber 2009, kemur fram að Davíð hafi ekki upp­lýst King um fyr­ir­hug­aða hljóð­ritun sam­tals­ins. Hljóð­rit­unin gangi einnig gegn venjum í sam­skiptum milli seðla­banka. Í sam­tal­inu hafi loks komið fram við­kvæmar upp­lýs­ingar um marg­vís­lega banka. Af hálfu Mervyn King sé því lagst gegn birt­ingu end­ur­rits­ins.“

Því liggur fyrir að Davíð hefur áður brotið trúnað vegna sím­tals sem hann átti sem seðla­banka­stjóri og greint frá inni­haldi þess eftir að hann hætti í því emb­ætti. Það sím­tal var einnig hljóð­ritað án vit­neskju þess sem við var rætt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár