Mynd: Kristinn Magnússon

„Ég trúði því ekki að við fengjum að búa þarna“

Íslend­ingar hafa tekið á móti 549 flótta­mönnum frá því fyrstu flótta­menn­irnir komu hingað til lands frá Ung­verja­landi árið 1956. Flestir hafa komið frá Balkanskag­anum. Að auki hafa 700 manns sótt um hæli hér á landi frá árinu 2008 og búist er við að met­fjöldi hæl­is­leit­enda komi hingað til lands á þessu ári, eða á bil­inu 200 til 250. Á síð­ast­liðnum fjórum árum hefur hins vegar ein­ungis 49 verið veitt hæli. Að baki hverri tölu eru mann­eskja. Hér er saga Biljönu Boloban.

Nafn: Biljana Boloban.
Aldur: 21 árs.
Upp­runa­land: Króatía/Serbía.
Kom til Íslands árið 2001.
Starf: Nemi í félags­ráð­gjöf við Háskóla Íslands og stuðn­ings­full­trúi á skamm­tíma­vistun fyrir fatl­aða.

Biljana Boloban var tæp­lega níu ára gömul þegar hún kom hingað til lands árið 2001 ásamt for­eldrum sínum og yngri systur. Hún hefur tekið virkan þátt í umræðum um flótta­fólk, bæði í fjöl­miðlum og á sam­skipta­miðlum. Á stuttri ævi hefur hún fengið að kynn­ast flótta, fátækt og mik­illi neyð í stríðs­hrjáðu landi. Hún hefur einnig fengið að kynn­ast íslenskri fátækt, sem hún segir ekki sam­bæri­lega þeirri sem hún bjó við í Serbíu.

Fjölskyldan aðskilin á flótta

Árið 1991 braust út stríð í fyrrum Júgóslavíu þegar Slóvenía og Króatía lýstu yfir sjálf­stæði. Serbar streitt­ust á móti og reyndu hvað þeir gátu til að koma í veg fyrir að Júgóslavía klofn­aði. Í ágúst árið 1995 hrósuðu Króatar síðan sigri þegar um tvö hund­ruð þús­und Serbar í Krajina hér­aði voru reknir frá Króatíu. Fjöl­skylda Biljönu var í þeim hópi.

„Allt í einu var okkur bara sagt að flýja,“ byrjar Biljana en hún var ekki nema tveggja ára gömul þegar hún varð að flýja heim­ili sitt í flýti. „Enginn tími gafst til und­ir­bún­ings og fjöl­skyldan fór öll af stað á sitt­hvorum tíma, í sitt­hvorum bílnum. Ég sat í fangi móður minnar í flutn­inga­bíl, pabbi var í öðrum bíl og amma og afi voru einnig aðskilin. Í flutn­inga­bílnum voru fleiri mæður með börn sín og okkur var skammt­aður matur. Mamma seg­ist stundum hafa þurft að láta mig gráta, hún kleip mig, svo ég fengi mjólk að 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár