Mynd: WOW air

Eina leiðin til að bjarga WOW air

WOW air hefur sagt upp hund­ruð starfs­manna, hættir að fljúga til Indlands og Los Angeles og mun hafa fækkað vélum sínum úr 24 í 11 á mjög skömmum tíma. For­stjór­inn við­ur­kennir að rangar ákvarð­anir í rekstri séu ástæða stöð­unnar.

„Í stuttu máli misstum við ein­beit­ing­una og byrj­uðum að hegða okkur eins og hefð­bundið flug­fé­lag. Þessi mis­tök hafa næstum því kostað okkur fyr­ir­tækið þar sem tapið árið 2018 hefur stig­magn­ast und­an­farna mán­uði vegna slæmrar fjár­hags­legrar afkomu. Það er afar mik­il­vægt að taka fram að ég kenni engum nema sjálfum mér um þessi mis­tök.“

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í tölvu­pósti sem Skúli Mogensen, for­stjóri, stofn­andi og eig­andi WOW air, sendi á starfs­fólk sitt fyrr í dag. Þetta er annar tónn en hefur verið í yfir­lýs­ingum Skúla og WOW air und­an­farið. Í frétta­til­kynn­ingu vegna níu mán­aða upp­gjörs félags­ins kom fram að rekstr­inum kom fram að skað­leg umfjöllun í kringum, og í tengslum við, skulda­bréfa­út­boð WOW air í sept­em­ber hefði haft mikið að segja um stöð­una ásamt erf­iðum ytri aðstæðum. Nú segir Skúli að rangar ákvarð­anir stjórn­enda ráði þar mestu um.

Ástæður þess að Skúli sendi póst­inn er ákvörðun um að draga starf­semi félags­ins veru­lega saman. Vélum hefur nú fækkað úr 24 í ell­efu á mjög skömmum tíma, áfanga­stöðum fækkað og hund­ruð manns munu missa vinn­una. Þar ef eru 111 fast­ráðnir starfs­menn auk hluta­starfs­manna og verk­taka. Talið er að heild­ar­fjöldi þeirra sem missi vinn­una séu um 350 tals­ins. Starfs­menn WOW air eftir end­ur­skipu­lagn­ing­una verða um eitt þús­und tals­ins.

Í póst­inum rekur Skúli þær ákvarð­anir sem WOW air tók sem orsakað hafa þá stöðu sem er uppi. Þær helstu eru, að mati Skúla, að flækja rekst­ur­inn með því að bæta við breið­þotum og bæta við Premium- og Comfy- vörum sem hafi verið fjarri upp­runa­legri hug­sjón hans um ofur­lág­far­gjald­ar­fé­lag.

Legið í loftinu mánuðum saman

Það hefur legið í loft­inu að gripið yrði til drastískra aðgerða hjá WOW air um nokk­urra mán­aða skeið. Eftir margra ára sig­ur­för, þar sem WOW air óx á ógn­ar­hraða ár frá ári, með til­heyr­andi jákvæðum áhrifum fyrir íslenskt efna­hags­líf, varð þeim sem til þekkja, eða þurfa að hafa eft­ir­lit með starf­sem­inni, ljóst fyrir um ári síðan að fjár­hags­staðan var í besta falli við­kvæm. WOW air átti ein­fald­lega ekki laust fé til að takast á við sveiflur í rekstri sínum og hækk­anir á heims­mark­aðs­verð á olíu, hærri launa­kostn­aðar vegna gengis krón­unnar, og hörð sam­keppni sem hélt verði niðri unnu saman að því að gera stöð­una enn verri.

Félagið réðst í skulda­bréfa­út­boð sem áttu að klár­ast í ágúst. Þegar skil­málar þess útboðs voru birtir af íslenskum fjöl­miðlum, meðal ann­ars Kjarn­anum, var fjár­hags­staða WOW air í fyrsta sinn opin­beruð að hluta. Fram að þeim tíma hafði félagið, sem er ekki skráð á markað og lýtur því ekki sömu skyldum varð­andi upp­lýs­inga­gjöf og t.d. Icelandair, getað valið þær upp­lýs­ingar sem birtar voru hverju sinni. Líkt og oft vill verða í þannig til­fellum voru jákvæðu upp­lýs­ing­arnar, sem snér­ust t.d. um vöxt í fjölda far­þega, ofan á þegar sendar voru út frétta­til­kynn­ingar. Þann 17. sept­em­ber birt­ist svo við­tal við Skúla í Financial Times þar sem hann sagð­ist ætla að skrá félagið á markað og selja helm­ing innan við helm­ing þess í gegnum slíkt hluta­fjár­út­boð fyrir allt að 33 millj­arða króna. Daginn eftir var til­kynnt um að

skulda­bréfa­út­boð­inu væri lokið. Nið­ur­staðan var þess eðlis að fáir höfðu trú á að það myndi duga til að bjarga WOW air.

Skúli keypti sjálfur í útboðinu

Alls kyns fyr­ir­varar voru settir inn í end­an­lega skil­mála sem fólu meðal ann­ars í sér að WOW air þyrfti að stand­ast reglu­leg álags­próf sem þurftu að sýna að eigið fé félags­ins ekki lægra en 25 millj­ónir dala fyrstu tólf mán­uð­ina eftir útgáf­una og 30-35 millj­ónir dala eftir það. Auk þess kom fram að vaxta­greiðslum sem féllu til vegna skulda­bréfa­út­boðs­ins yrðu færðar á fjár­vörslu­reikn­ing. Og vext­irnir sem WOW air sam­þykkti að greiða voru hærri en vextir í útboðum ann­arra evr­ópska flug­fé­laga sem farið hafa fram á und­an­förnum árum, eða um níu pró­sent ofan á þriggja mán­aða Euribor vexti.

Það kom enda síðar á dag­inn að eft­ir­spurnin eftir þátt­töku í útboð­inu, sem átti að skila um 60 millj­ónum evra í hús, var ekki eins og látið hafði verið með hana. Skúli Mogensen keypti meðal ann­ars sjálfur í útgáf­unni fyrir um 770 millj­ónir króna.

Icelandair ætlaði að kaupa en hætti svo við

Fyrstu helg­ina í nóv­em­ber var vand­inn orð­inn þannig að ekki var við unað. Skúli Mogensen leit­aði til helsta keppi­naut­ar­ins, Icelandair, og bað þá um að kaupa WOW air. Kaup­samn­ingur, með fjöl­mörgum fyr­ir­vörum, var und­ir­rit­aður 5. nóv­em­ber. Uppgefið kaup­verð, sem átti að greiða með hlutum í Icelandair, var um tveir millj­arðar króna miðað gengi Icelandair þegar til­kynnt var um kaup­in. Það gat þó lækkað ef áreið­an­leika­könnun sýndi aðra stöðu en gengið var út frá, sem varð nið­ur­stað­an.

29. nóv­em­ber var birt til­kynn­ing um að Icelandair væri hætt við kaupin. Grein­ingar og áreið­an­leikak­ann­anir sem Icelandair hafði látið fram­kvæma vegna fyr­ir­hug­aðra kaupa á WOW air höfðu ein­fald­lega leitt í ljós að við­skiptin stóð­ust ekki þær for­sendur sem gerðar voru við und­ir­ritun kaup­samn­ings­ins.

Helstu for­sendur kaup­samn­ings Icelandair WOW air voru þær að sam­komu­lag myndi nást við leigu­sala WOW air, að stað­fest­ing myndi fást á því að for­gangs­réttur flug­manna myndi ekki eiga við um flug­menn WOW air og að sam­komu­lag myndi nást við skulda­bréfa­eig­endur WOW air. Ekk­ert af þessu var leitt til lykta áður en að ákveðið var að hætta við kaup­in. Þá var sér­stakur fyr­ir­vari um nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­un­ar, sem Deloitte og Logs fram­kvæmdu. Það grunn­mat liggur fyrir en er trún­að­ar­mál en í kynn­ing­unni segir að „fyrstu nið­ur­stöður gáfu til kynna meiri fjár­þörf en gert var ráð fyrir auk ann­arra atriða.“

Mikið tap og hliðarviðræður við annan fjárfesti

Ljóst var að áhyggjur voru þegar farnar látnar á sér kræla á meðal þeirra sem áttu í við­skiptum við WOW air áður en til­kynnt var um að kaupin myndu ekki ganga eftir. Félagið þurfti til að mynda að skila fjórum Airbus vélum til leigu­sala sinna nokkrum dögum áður. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans var það skýrt merki um að ótti var til staðar við það að WOW air myndi fara í greiðslu­þrot sem gæti leitt til þess að flug­vellir gætu kyrr­sett vélar félags­ins vegna van­gold­inna lend­ing­ar­gjalda.


WOW air tap­aði alls 33,6 millj­­ónum dala, sem jafn­­­gildir um 4,2 millj­­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Á sama tíma­bili í fyrra nam tap félags­­ins 13,5 millj­­ónum dala, jafn­­virði tæp­­lega 1,7 millj­­arða króna miðað við núver­andi gengi. EBITDA félags­­ins fór úr því að vera jákvæð um 8,8 millj­­ónir dala fyrstu níu mán­uði síð­­asta árs í að vera nei­­kvæð um 18,9 millj­­ónir dala nú, sem er um 2,3 millj­­arða íslenskra króna.

Sama dag og Icelandair hætti við kaupin þá var til­kynnt um að banda­ríska félagið Indigo Partners hefði náð sam­komu­lagi um fjár­fest­ingu í WOW air. Sú til­kynn­ing kom veru­lega á óvart, sér­stak­lega vegna þess að eina leiðin sem var til staðar til að fá sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins fyrir sam­runa Icelandair og WOW air var sú að þau kaup þyrftu að vera eini mögu­leik­inn í stöð­unni. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans fóru við­ræður við eft­ir­litið fram á þeim grund­velli að WOW air væri fyr­ir­tæki á fallandi fæti.

Því vakti það furðu þegar Skúli Mogensen greindi frá því að hann hefði verið í við­ræðum við annan fjár­sterkan aðila um fjár­fest­ingu í WOW air sam­hliða við­ræðum við Icelandair.

Flotinn nú tæplega helmingur af því sem hann var

Fyrr í vik­unni greindi Samuel Engel, pistla­höf­undur Forbes á sviði flug­mála, frá því að lík­legt yrði að Indigo Partners, sem myndi alltaf verða ráð­andi aðili í eign­ar­haldi WOW air ef það fjár­festi í félag­inu, myndi beita sér með þeim hætti að WOW air myndi leggja niður kostn­að­ar­söm flug og hag­ræða mikið í rekstri, meðal ann­ars með því að vera með starfs­fólk sem er með lág laun.

Í pistl­inum nefndi hann að sýnin sem Bill Franke, hinn 81 árs gamli stofn­andi og helsti eig­andi Indigo Partners, sé með sé sú að skera niður kostnað eins og hægt er, vera með hag­kvæman flug­véla­flota, og vera síðan með góða sam­legð í rekstr­in­um. Þetta hafi verið gert með Wizz Air og Frontier, með góðum árangri.


WOW air gæti þar með endað sem sýnd­ar­flug­fé­lag, þ.e. flug­fé­lag sem selji miða í gegnum gott vöru­merki en síðan séu önur félög sem fljúgi flug­vél­unum á áfanga­staði.

Segja má að hluti af þess­ari spá Engel hafi ræst í dag þegar WOW air til­kynnti um að vélum félags­ins muni fækka enn frekar, og verði í nán­ustu fram­tíð ell­efu eftir að hafa verið 24 fyrir nokkrum vikum síðan. Fjölda­upp­sagnir eru þegar hafnar og hætt hefur verið við kostn­að­ar­söm flug, meðal ann­ars til Indlands, en jóm­frú­ar­ferð WOW air þangað var farin um síð­ustu helgi. Samkvæmt til­kynn­ingu verður síð­asta flug frá Nýju Delí 20. jan­úar næst­kom­andi og frá Los Angeles í Banda­ríkj­unum 14. jan­úar 2019.

Í tölvu­pósti Skúla Mogensen til starfs­manna sem sendur var fyrr í dag segir að nú muni WOW air snúa aftur til róta sinna og ein­beita sér að kjarna­starf­semi sinni sem hafi reynst vel fram til árs­ins 2017. Flækjur á rekstr­inum síðan séu orsök þeirrar stöðu sem nú er uppi. „Þetta er ákaf­lega sárs­auka­fullur lær­dómur vegna þess að á sama tíma höfum við byggt upp eitt­hvað ein­stakt með Wow air og þó að þetta krefj­ist þess að við tökum eitt erfitt skref aftur á bak til skamms tíma litið er ég sann­færður um að það geri okkur kleift að taka tvö skref áfram til lengri tíma litið og tryggi að Wow air dafni til fram­tíðar.

Að þeim lík­indum að við fáum Indigo Partners sem fjár­festi vil ég hverfa aftur til upp­haf­legrar hug­sjónar okkar og sýna fram á að við getum sann­ar­lega byggt upp frá­bært lág­far­gjalda­fé­lag á lengri leiðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið undanfarið ár