Þrjár konur eru for­stjórar í skráðu félagi í Kauphöll Íslands. Alls 90 pró­sent for­stjóra eru karlar. Mynd: Samsett

Konur hæfar til að vera forstjórar en áhrif og tengslanet karla koma í veg fyrir að þær séu ráðnar

Árum saman voru engar konur for­stjórar í skráðu félagi á Íslandi. Nú eru þær þrjár, en ein­ungis ein þeirra var ráðin í þegar skráð félag. Það gerð­ist í sept­em­ber 2022. Ný rann­sókn sýnir að þessi staða skýrist ekki af því að konur búi yfir minni hæfni.

Konur eru hæfar til að gegna for­stjóra­stöðum í skráðum fyr­ir­tækjum, en þegar kemur til ráðn­inga for­stjóra skráðra félaga eru þær þó ekki ráðnar til starf­anna þar sem áhrif karla, tengsla­net og íhalds­samar staðalí­myndir af for­ystu­hæfni kvenna og árang­urs­ríkri for­ystu virð­ast ráða ákvörð­unum. Þar með aukast líkur á því að horft sé fram hjá hæfum konum við for­stjóra­val.

Þetta er nið­ur­staða nýrrar rann­sókn á reynslu 22 stjórn­ar­kvenna í skráðum félögum á Íslandi af for­ystu­hæfni, tengsla­neti og stuðn­ingi við konur til að gegna for­stjóra­stöðu sem greint er frá í grein í nýj­ustu útgáfu Tímarits um við­skipti og efna­hags­mál. Greinina skrifa Ásta Dís Óla­dóttir, dós­ent við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, Sigrún Gunn­ars­dóttir, pró­fessor við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, Þóra H. Christiansen, aðjúnkt við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, og Erla S. Krist­jáns­dóttir, pró­fessor við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands.

Í henni segir að í nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar felist tæki­færi fyrir stjórnir skráðra félaga til þess að auka gæði ráðn­inga for­stjóra og jafna kynja­mun með auknum fjöl­breyti­leika og með því að miða ráðn­ing­arnar við árang­urs­ríka hæfni til for­ystu.

Karlar stýra peningum á Íslandi

Kjarninn hefur árum saman fjallað ítar­lega um stöðu kvenna í þeim geirum sem stýra fjár­magni á Íslandi. í þau níu ár sem hann hefur fram­kvæmt úttekt á kynja­hlut­föllum þeirra sem stýra þús­undum millj­arða króna í ýmis fjár­fest­inga­verk­efni hér­lend­is hefur nið­ur­staðan verið svip­uð, karlar eru allt um lykj­andi. Í úttekt­inni í ár, sem birt var seint í maí, kom fram að karl­arnir væru 91 en kon­urnar 13.

Það hefur verið sér­stak­lega áber­andi á hluta­bréfa­mark­aði. Eftir end­ur­reisn hans var lengi vel ein kona for­stjóri í skráðu félagi, Sigrún Ragna Ólafs­dóttir sem stýrði VÍS. Henni var sagt upp í ágúst 2016 og eftir það liðu næstum fimm ár þar til kona varð for­stjóri í skráðu félagi. Það gerð­ist þó ekki í gegnum ráðn­ingu heldur skrán­ingu Íslands­banka, sem stýrt er af Birnu Ein­ars­dóttur. Um ári síð­ar, seint í júní síð­ast­liðn­um, fjölg­aði kon­unum í for­stjóra­stóli skráðs félags um 100 pró­sent, þegar Nova, sem er stýrt af Mar­gréti Tryggva­dótt­ur, var skráð á mark­að.

Í sept­em­ber 2022 gerð­ist það svo að fyrsta konan var ráðin for­stjóri í þegar skráðu félagi frá því að íslenskur hluta­bréfa­mark­aður var end­ur­reistur eftir banka­hrun­ið. Þá var greint frá því að Ásta Sig­ríður Fjeld­sted var ráðin for­stjóri Festi. Á tveimur og hálfum mán­uði fjölg­aði kon­unum sem gegna for­stjóra­stöðu í Kaup­höll Íslands því úr einni í þrjár. Hinum 27 félög­unum sem skráð eru á Aðal­markað og First North mark­að­inn er þó stýrt af körlum. Því eru 90 pró­sent allra for­stjóra í skráðum félögum karlar.

Mark­mið kynja­kvóta­laga aldrei náðst

Lög um kynja­kvóta í stjórnum fyr­ir­tækja á Íslandi voru sam­­­þykkt árið 2010. Þau tóku að fullu gildi í sept­­­em­ber 2013. Lögin segja að fyr­ir­tækjum sem eru með 50 eða fleiri starfs­­­menn þurfi að tryggja að hlut­­­fall hvors kyns sé ekki undir 40 pró­­­sent­­­um. Mark­miðið með laga­­­setn­ing­unni var að „stuðla að jafn­­­­­ari hlut­­­föllum kvenna og karla í áhrifa­­­stöðum í hluta­­­fé­lögum og einka­hluta­­­fé­lögum með auknu gagn­­­sæi og greið­­­ari aðgangi að upp­­­lýs­ing­­­um.“

Von þeirra sem sam­­­þykktu frum­varpið – 32 þing­­­menn úr öllum flokkum nema Sjálf­­­stæð­is­­­flokknum sem áttu þá sæti á þingi – var að fleiri konur í stjórnum myndi leiða til þess að fleiri konur yrðu ráðnar í stjórn­­­un­­­ar­­­stöður og það myndi fjölga tæki­­­færum kvenna.

Hag­­­stofa Íslands tekur árlega saman tölur um hversu margar konur sitji í stjórnum fyr­ir­tækja. Stofn­unin birti nýj­­ustu tölur sín­­­ar, sem sýna stöð­una í lok 2021, á þriðju­dag í síð­­­ustu viku. Þar kom fram að rúm­­­lega fjórð­ung­­­ur, 27 pró­­­sent, allra stjórn­­­­­ar­­­manna í íslenskum fyr­ir­tækjum væru kon­­­ur. Það hlut­­­fall var 24 pró­­­sent árið 2010.

Í fyr­ir­tækjum með fleiri en 50 laun­þega var hlut­­­fall kvenna í stjórnum 19,5 pró­­­sent árið 2010. Árið sem lögin tóku gildi var hlut­­­fallið orðið 30,2 pró­­­sent. Frá þeim tíma hefur lítið gerst. Hlut­­­fallið var 34,7 pró­­­sent í fyrra.

Hlut­­fall kvenna í stöðu fram­­kvæmda­­stjóra hækk­­aði lít­il­­lega á milli ára og var 23,9 pró­­sent en hlut­­fall kvenna í stöðu stjórn­­­ar­­for­­manna var 24,7 pró­­sent í lok árs 2021.

Skortur á fagmennsku í tengslum við ráðningar

Í grein­inni í Tímariti um við­skipti og efna­hags­mál, sem birt var í dag, segir að þrátt fyrir ýmsar form­legar og kerf­is­lægar fram­farir á und­an­förnum árum til þess að jafna kynja­mun hér á landi sé þetta samt sem áður staðan. Þrjár konur stýri skráðum félögum.

Fyrri rann­sókn hafi leitt í ljós upp­lifun stjórn­ar­kvenna skráðra félaga af valda­leysi og skorti á fag­mennsku í tengslum við ráðn­ingar for­stjóra. „Samkvæmt fyrri rann­sóknum snýr for­ystu­hæfni for­stjóra sem teng­ist fjár­hags­legum árangri fyr­ir­tækja einkum að stað­festu, félags­legri færni og auð­mýkt, en fáar rann­sóknir varpa ljósi á mat á for­ystu­hæfni kvenna til þess að gegna æðstu stjórn­un­ar­stöðum.“

Sú rann­sókn sem greinin fjallar um hafi beint sjónum sínum að upp­lifun stjórn­ar­kvenna, sem sitja í stjórnum allra skráðra félaga hér á landi, af mati á for­ystu­hæfni kvenna til þess að gegna for­stjóra­stöðum í skráðum félögum, og af áhrifum tengsla­nets og stuðn­ings við konur á ferli og útkomu ráðn­inga í for­stjóra­stöður í skráðum félögum. Tekin voru við­töl við 22 konur sem eiga sæti í stjórnum allra skráðra félaga á Íslandi og rann­sókn­ar­spurn­ingin sem lagt var upp með er: Hver er reynsla stjórn­ar­kvenna í skráðum félögum af því hvað hefur áhrif á mat á hæfni kvenna til að gegna starfi for­stjóra í skráðu félagi?

Nið­ur­stöð­urnar sýndu að stjórn­ar­konur telja konur hæfar til að gegna for­stjóra­stöð­unni, en þegar til ráðn­inga for­stjóra skráðra félaga kemur voru þær þó ekki ráðnar til starf­anna. Ástæðan var, líkt og áður sagði, sú að áhrif karla, tengsla­net og íhalds­samar staðalí­myndir af for­ystu­hæfni kvenna og árang­urs­ríkri for­ystu virð­ast ráða ákvörð­unum, og þar með aukast líkur á því að horft sé fram hjá hæfum konum við for­stjóra­val. „Í nið­ur­stöð­unum fel­ast skila­boð um tæki­færi fyrir stjórnir skráðra félaga til þess að auka gæði ráðn­inga for­stjóra og jafna kynja­mun með auknum fjöl­breyti­leika og með því að miða ráðn­ing­arnar við árang­urs­ríka hæfni til for­ystu.“

Konur fjár­­­­­mála­ráð­herrar í minna en 17 mán­uði frá 1944

Þegar horft er víðar á áhrifa­­­stöður í sam­­­fé­lag­inu, þar sem pen­ingum er auð­vitað stýrt, en þó með öðrum hætti en í við­­­skipta­líf­inu, hallar víða enn á kon­­­ur. Í rík­­­is­­­stjórn er kynja­hlut­­­fallið til að mynda enn körlum í hag.

Þar sitja sex karlar og fimm kon­­­ur. For­­­sæt­is­ráð­herra er hins vegar konan Katrín Jak­obs­dótt­­­ir. Það er í annað sinn í lýð­veld­is­­­sög­unni sem kona situr í því emb­ætti. Sú fyrsta var Jóhanna Sig­­­urð­­­ar­dóttir sem var for­­­sæt­is­ráð­herra 2009-2013.

Fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra er karl­inn Bjarni Bene­dikts­­­son. Alls hafa 26 ein­stak­l­ingar gegnt þeirri stöðu frá því að lýð­veldið Ísland var stofn­að. Ein­ungis tveir þeirra hafa verið kon­­­ur. Oddný Harð­­­ar­dóttir varð fyrsta konan til að gegna emb­ætti fjár­­­­­mála­ráð­herra þegar hún tók við því á gaml­ár­s­dag 2011.

Oddný sat í emb­ætti í níu mán­uði og þá tók flokks­­­systir hennar Katrín Júl­í­us­dóttir við. Hún sat í emb­ætt­inu í tæpa átta mán­uði. Því hafa konur verið fjár­­­­­mála­ráð­herrar á Íslandi í minna en 17 mán­uði frá árinu 1944.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

konur

Mest lesið undanfarið ár