Svikna kynslóðin í landi jakkafatanna
Íslenski draumurinn er í uppnámi. Í einfaldaðri mynd sér ungt fólk nú fram á að flytja á jaðarsvæði, borga leigu til GAMMA og greiða vegtolla á leið í og úr þjónustustörfum fyrir ferðamenn til að fjármagna vegakerfi fyrir ferðamenn. Á þessari öld hafa ráðstöfunartekjur elsta aldurshópsins aukist rúmlega fimmtánfalt meira en ráðstöfunartekjur fólks undir þrítugu og eignir safnast saman hjá eldri kynslóðinni.