Hinum Norðurlöndunum hefur tekist að bjóða kvótaflóttafólk velkomið í heimsfaraldrinum

Enginn kvótaflótta­maður kom til Íslands í fyrra og ein­ungis 11 af þeim 100 sem átti að bjóða vel­komin í fyrra sam­kvæmt ákvörð­unum stjórn­valda eru komin. Kjarninn kann­aði hvernig hinum Norð­ur­lönd­unum hefur gengið að bjóða flótta­fólk vel­komið á tímum veiru.

Þrátt fyrir að heims­far­ald­ur­inn hafi óum­deil­an­lega sett strik í reikn­ing­inn varð­andi mót­töku kvótaflótta­manna hafa flest hin Norð­ur­löndin þegar náð að taka við góðum skerf af þeim kvótaflótta­mönnum sem ríkin ætl­uðu sér að taka á móti í fyrra og á þessu ári.

Ísland, á sama tíma, náði ekki að taka á móti neinum kvótaflótta­manni í fyrra, en til stóð og stendur enn að taka á móti alls 100 manns, sam­kvæmt ákvörð­unum stjórn­valda. Ellefu manns komu til lands­ins undir lok júní úr þeim fimmtán manna hópi sem íslensk stjórn­völd buð­ust til að taka við úr Moria-flótta­manna­búð­unum á Lesbos í Grikk­landi, eftir að eldur braust þar út síð­asta haust.

Móttaka ann­arra flótta­manna, Sýr­lend­inga sem eru staddir í Líbanon, flótta­fólki frá Keníu og afgönsku flótta­fólki sem er stað­sett í Íran, hefur hins vegar ekki kom­ist til fram­kvæmda. Samkvæmt svörum sem Kjarninn fékk frá félags­mála­ráðu­neyt­inu munu við­töl og fræðsla fyrir hóp­inn sem er í Líbanon fara fram núna um miðjan mán­uð­inn og eru fjöl­skyld­urnar frá Sýrlandi vænt­an­legar til lands­ins fyrri hluta sept­em­ber­mán­aðar.

Afganska flótta­fólkið hefur þegar farið í við­töl og fengið stutta fræðslu um hvað bíði þeirra á Íslandi og núna er unnið að því í sam­starfi við Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna að útvega nauð­syn­leg ferða­gögn. Vonir standa til að hóp­ur­inn komi til lands­ins á haust­mán­uðum en ferða­til­högun mun ekki liggja fyrir fyrr en búið er að ganga frá ferða­gögnum.

„Varðandi hóp­inn í Kenía hafa verið meiri tafir en und­ir­bún­ingur er haf­inn,“ sam­kvæmt svari frá félags­mála­ráðu­neyt­inu.

Stefnt að því að taka við 100 í ár til viðbótar við þau sem eru nú væntanleg

Samkvæmt svörum frá félags­mála­ráðu­neyt­inu er það stefna rík­is­stjórn­ar­innar að taka á móti 100 kvótaflótta­mönnum árið 2021, til við­bótar við þá 100 sem stefnt var að því að taka á móti árið 2020.

„Vegna þeirra tafa sem hafa orðið á mót­töku hóps­ins sem átti að koma árið 2020 hefur und­ir­bún­ingur vegna nýs hóps taf­ist. Stefna stjórn­valda hefur ekk­ert breyst þó að ljóst sé að tafir séu á mót­töku árin 2020 og 2021,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins, en íslensk stjórn­völd hafa aldrei ætlað sér að taka á móti fleiri kvótaflótta­mönnum á einu ári og raunin er nú.

Kjarninn leit­aði til þeirra opin­beru aðila í Noregi, Danmörku og Finn­landi sem sjá um mót­ttóku kvótaflótta­fólks og spurð­ist fyrir um hversu margir ein­stak­lingar hefðu komið af þeim fjölda sem áætlað var að taka á móti í fyrra og það sem af er þessu ári og hvernig mót­t­töku­ferlið hefði gengið, á tímum heims­far­ald­urs. Hvað Svíþjóð varðar var stuðst við upp­lýs­ingar í skýrslu frá flótta­manna­stofnun lands­ins, þar sem svör við þeim spurn­ingum sem á blaða­manni brunnu var að finna.

Svíar tóku við 3.599 af 5.000 í fyrra og ætla að bæta það upp í ár

Svíþjóð hefur löngum tekið á móti fleiri kvótaflótta­mönnum en önnur ríki á Norð­ur­löndum. Í fyrra var stefnan sett á að taka á móti 5.000 manns til lands­ins, en ein­ungis náð­ist að taka á móti 3.599 manns af þeim kvóta.

Vand­kvæði vegna far­ald­urs­ins ollu trufl­unum í starfi bæði Flótta­manna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNHCR) og Alþjóð­legu fólks­flutn­inga­stofn­un­ar­innar (IOM) og sænska flótta­manna­stofn­unin ákvað að flytja enga kvótaflótta­menn til lands­ins frá mars og fram í ágúst í fyrra, sam­kvæmt því sem segir í skýrslu sænsku flótta­manna­stofn­un­ar­innar um starf árs­ins 2020.

„Þar sem það verk­efni að koma fólki sem þarf vernd fyrir á nýjum stað er gríð­ar­lega mik­il­vægt hélt sænska flótta­manna­stofn­unin áfram með að flytja fólk til Sví­þjóðar um miðjan ágúst og út árið,“ segir í skýrslu sænsku stofn­un­ar­innar.

Þar kemur einnig fram að sökum þess að verr hafi gengið að taka á móti flótta­fólki en gert var ráð fyrir hafi sænska rík­is­stjórnin ákveðið að veita flótta­manna­stofn­un­inni tæki­færi til þess að fylla þau pláss sem ekki tókst að nýta í fyrra. Í ár ætla Svíar því að taka á móti 6.401 kvótaflótta­manni, í stað 5.000 eins og áður hafði verið stefnt að.

Danmörk tók við 31 kvótaflóttamanni í fyrra

Danir hafa á und­an­förnum árum, sam­fara öðrum breyt­ingum sem gerðar hafa verið á lögum um mál­efni fólks á flótta þar í landi, dregið veru­lega úr mót­töku kvótaflótta­manna og tóku raunar ekki á móti neinum slíkum á árunum 2018 né 2019 og ein­ungis fimm flótta­mönnum árið 2017, sam­kvæmt tölum frá UNHCR. Á árunum 2010-2016 tóku Danir á móti á milli 320 og 650 kvótaflótta­mönnum árlega.

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarninn fékk frá dönsku inn­flytj­enda­þjón­ust­unni, sem heyrir undir ráðu­neyti inn­flytj­enda­mála og aðlög­unar þar í landi, tók Danmörk á móti 31 kvótaflótta­manni í fyrra. Fólkið kom til lands­ins á kvóta sem ákvarð­aður var af dönskum stjórn­völdum árið 2019.

Kvóti árs­ins 2020 hjóð­aði upp síðan á 200 flótta­menn, sem allir munu koma frá Rúanda. Enginn þeirra er enn kom­inn, en búist er við að þeir komi síðar á þessu ári, sam­kvæmt svari dönsku stofn­un­ar­innar.

Danir hættu að taka við kvótaflóttamönnum í ráðherratíð Inger Støjberg, sem fór með útlendingamál.
Danir hættu að taka við kvótaflótta­mönnum í ráð­herra­tíð Inger Støjberg, sem fór með útlend­inga­mál.

Þar segir einnig frá því að COVID-far­ald­ur­inn hafi sett strik í reikn­ing­inn í starfi bæði UNHCR og IOM í Rúanda. Danska inn­flytj­enda­þjón­ustan hafi vegna far­ald­urs­ins neyðst til þess að fresta nám­skeiðum um danskt sam­fé­lag sem haldin eru fyrir flótta­menn á erlendri grundu áður en fólkið er flutt til nýrra heim­kynna í Danmörku. Þar er boðin kennsla um danskt sam­fé­lag, venjur og hefðir og grund­vall­ar­rétt­indi borg­ara.

Rík­is­stjórnin er ekki búin að gefa út kvóta Dan­merkur fyrir árið 2021, en UNHCR hefur í skýrslum sínum hvatt Dani til þess að taka á móti fleiri kvótaflótta­mönnum en þeir gera nú.

Litlir hópar koma á nánast hverjum degi til Noregs

Far­ald­ur­inn hefur flækt mót­töku flótta­manna til Noregs mjög, sam­kvæmt svörum sem Kjarninn fékk frá norsku útlend­inga­stofn­un­inni. Flutn­ingur flótta­fólks hefur þannig taf­ist gríð­ar­lega, bæði vegna sótt­varna­ráð­staf­ana og reglu­gerða þeim tengdum og sökum þess að starfs­menn stofn­un­ar­innar hafa ekki getað ferð­ast og tekið við­töl við fólkið sem er á leið­inni til lands­ins.

„Við erum að fram­kvæma fjar­við­töl yfir Teams og Skype. Það er tíma­frekara og við náum að afgreiða mun færri mál en áður en far­ald­ur­inn hófst,“ segir í svari frá fjöl­miðla­full­trúa stofn­un­ar­innar til Kjarnans.

Þrátt fyrir þetta tók Noregur á móti 1.504 kvótaflótta­mönnum í fyrra, sam­kvæmt tölum frá UNHCR. Það sem af er ári er búið að sam­þykkja að taka á móti 1.573 flótta­mönnum og þann 4. ágúst höfðu 1.147 manns þegar komið til Noregs. Það eru „litlir hópar að koma á nán­ast hverjum ein­asta degi,“ sam­kvæmt svari frá útlend­inga­stofn­un­inni en margir þeirra sem komu nú eru í hópi þeirra sem sam­þykkt var að taka við í fyrra.

Norðmenn hafa frá árinu 2015 tekið á móti 2.200-3.150 flótta­mönnum árlega, nema í fyrra þegar fjöld­inn fór niður í 1.504, sem áður segir.

Finnar náðu að taka við 661 af 850

Þrátt fyrir far­ald­ur­inn náðu Finnar að bjóða vel­komna hátt hlut­fall af þeim kvótaflótta­mönnum sem þeir höfðu ætlað sér að taka á móti, eða 661 af þeim 850 ein­stak­lingum sem rík­is­stjórn lands­ins ákvað að taka á móti.

Kvótinn fyrir árið 2021 hefur verið hækk­aður og stefnt er að því að taka á móti 1.050 manns á þessu ári. Í lok júlí var búið að taka við 280 manns, en sam­kvæmt sér­fræð­ingi í inn­an­rík­is­ráðu­neyti Finn­lands sem veitti Kjarn­anum svar standa vonir til þess að kom­ast nærri mark­mið­inu um að taka á móti 1.050 kvótaflótta­menn vel­komna á haust­mán­uðum.

Ferða­tak­mark­anir og far­ald­urs­flækjur komu í veg fyrir að sendi­nefndir Finna kæmust utan til þess að taka við­töl við flótta­menn, en sam­kvæmt svörum inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins kom tæknin að miklu gagni við að halda mót­töku­ferl­inu gang­andi.

Í svar­inu frá Finn­landi segir jafn­framt að UNHCR hafi hvatt mót­töku­ríki til þess að nota fjar­við­töl með hjálp tölvu­tækn­innar og máls­skjöl til þess að meta þörf fólks og reynslan af þessu hafi verið jákvæð. Nánast hafi tek­ist að halda í áætl­anir rík­is­ins um mót­töku kvótaflótta­fólks.

„Að sjálf­sögðu kjósum við þó frekar venju­legar sendi­farir og viljum halda þeim áfram eins fljótt og mögu­legt er,“ segir í svar­inu frá finnska ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár