Hinir alltumlykjandi lífeyrissjóðir

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga um þriðj­ung af heild­ar­fjár­munum á Íslandi og það hlut­fall mun halda áfram að vaxa á næstu árum. Þeir eiga tæp­lega helm­ing allra hluta­bréfa og sjö af hverjum tíu skulda­bréfum.

Eignir íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu eru um ein og hálf lands­fram­leiðsla og eiga sjóð­irnir um þriðj­ung af heild­ar­fjár­munum á Íslandi.

Í lok árs 2016 áttu íslenskir líf­eyr­is­sjóðir um þriðj­ung af heild­ar­fjár­munum á Íslandi. Eignir kerf­is­ins eru nú um ein og hálf lands­fram­leiðsla. Hrein eign þeirra nam 3.953 millj­örðum króna í lok febr­úar síð­ast­lið­ins. Hún hefur auk­ist um 420 millj­arða króna frá lokum árs 2016. Og spár gera ráð fyrir því að eign­ar­hlutur sjóð­anna í heild­ar­eignum Íslands muni bara halda áfram að aukast á næstu árum og ára­tugum.

Í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands um umsvif líf­eyr­is­sjóða í íslensku efna­hags­lífi sem skilað var til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins 24. októ­ber 2017 og var birt opin­ber­lega í jan­úar síð­ast­liðnum, kom fram að ef líf­eyr­is­sjóð­irnir skili 3,5 pró­sent raun­á­vöxtun á ári mun hlutur þeirra í heild­ar­fjár­muna­eign á Íslandi fara í 35 pró­sent árið 2030. 30 árum síðar, árið 2060, er reiknað með að sjóð­irnir muni eiga 40 pró­sent af heild­ar­fjár­munum á Íslandi. Eigendur sjóð­anna eru Íslend­ingar. Þannig á þjóðin óbeint þessar eignir þótt hún hafi ekki beinan ráð­stöf­un­ar­rétt yfir því fjár­magni sem er inni í líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu þar til að það er greitt út sem líf­eyrir.

Mikill vöxtur á fáum árum

Í skýrsl­unni kom einnig fram að íslensku líf­eyr­is­sjóð­irnir hefðu stækkað mjög hratt á fáum árum. Árið 2006 áttu þeir til að mynda um sex pró­sent allra skráðra hluta­bréfa í íslensku kaup­höll­inni. Tíu árum síðar áttu þeir 41 pró­sent þeirra. Árið 2006 áttu líf­eyr­is­sjóð­irnir 41 pró­sent allra mark­aðs­skulda­bréfa og víxla á Íslandi. Áratug síðar hafði hlut­fallið hækkað í tæp 70 pró­sent. Svigrúm þeirra til að bæta við sig inn­lendum mark­aðs­verð­bréfum, hvort sem um sé að ræða skulda­bréf eða hluta­bréf, er mjög tak­markað nema mark­að­ur­inn stækki.

Það er því eðli­legt að spyrja þeirrar spurn­ingar hvort að íslensku líf­eyr­is­sjóð­irnir verði of stórir fyrir Íslands í nán­ustu fram­tíð?

Það verður umfjöll­un­ar­efni morg­un­verð­ar­fundar sem Lands­sam­tök líf­eyr­is­sjóða og Kjarn­inn standa sam­eig­in­lega að næst­kom­andi mið­viku­dag, 9. maí. Fund­ur­inn fer fram á Grand hótel og stendur yfir milli 8:30 og 10. Fund­inum verður auk þess streymt beint á vef Kjarn­ans.

Fram­sögu­menn á fund­inum verða Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, Gylfi Magn­ús­son, dós­ent í við­skipta­fræði við Háskóla Íslands, Jón Þór Sturlu­son, starf­andi for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og Þor­björn Guð­munds­son, for­maður stjórnar Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða.

Hvatt til þess að horft sé til útlanda

Í jan­úar var líka birt önnur skýrsla starfs­hóps sem skoð­aði hlut­verk líf­eyr­is­sjóða í upp­bygg­ingu atvinnu­lífs á Íslandi. Í nið­ur­stöðu­hluta hennar var lagt til að sjóð­irnir auki vægi erlendra eigna til lengri tíma, verði skyldugir til að móta sér stefnu um stjórn­ar­hætti sem eig­enda í atvinnu­fyr­ir­tækjum og verði skylt að birta að minnsta kosti árlega skýrslu með upp­lýs­ingum um sam­skipti við félög sem þeir fjár­festa í og hvernig þeir greiði atkvæði á hlut­hafa­fund­um.

Þá var því beint til stjórn­valda að skoða, í sam­ráði við hags­muna­að­ila, að breyta lögum þannig að ein­stak­lingar fái auknar heim­ildir til að ráð­stafa við­bót­ar­líf­eyr­is­sparn­aði sínum til hús­næð­is­sparn­aðar og að sjóðs­fé­lagar geti ráð­stafað 3,5 pró­sent af 15,5 pró­sent lág­marks­ið­gjaldi í sér­eign eða hús­næð­is­sparnað að eigin vali.

Kristján Guy Burgess, alþjóða­stjórn­mála­fræð­ingur og ráð­gjafi, skrif­aði ítar­lega grein um málið í Vís­bend­ingu í byrjun apríl. Þar benti hann á að sjóð­irnir þyrfti að dreifa áhættu og velja fjöl­breytta kosti þegar þeir auka við fjár­fest­ingu sína erlendis. „Það er aldrei gott að hafa öll egg í sömu körf­unni, jafn­vel þótt karfan sé stór.“

Kristján Guy sagði einnig að það væri full­kom­lega eðli­legt að gera þá kröfu að við allar fjár­fest­ing­ar­á­kvarð­anir skuli sjóð­irnir miða við að hafa sem best áhrif á umhverfi, sam­fé­lag og stjórn­ar­hætti. „Það er hægt að gera án þess að afsláttur sé gef­inn af ávöxt­un, enda sýna sam­an­burð­ar­vísi­tölur að hægt er að fá betri ávöxtun víða með því að velja ESG-fjár­fest­ing­ar­leiðir umfram hefð­bundna sjóði. Vanti sjóð­ina fyr­ir­mynd­ir, má horfa til þess hvernig nor­rænu líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa staðið að mál­u­m.“

Áhrif á samkeppni

Áður­nefndur starfs­hópur sem skoð­aði hlut­verk líf­eyr­is­sjóð­anna sagði einnig í nið­ur­stöðu sinni að hann hefði áhyggjur af því að víð­tækt eign­ar­hald líf­eyr­is­sjóða inn­an­lands geti „haft áhrif á sam­keppni og þar af leið­andi á verð og þjón­ustu við neyt­end­ur. Þess vegna er áríð­andi að líf­eyr­is­sjóðir marki stefnu um það hvernig þeir beita sér sem hlut­hafar í fyr­ir­tækjum sem þeir eiga hlut í. Þar sem sjóð­irnir byggja á skyldu­að­ild er eðli­legt að gera ríkar kröfur til þeirra um upp­lýs­inga­skyldu gagn­vart sjóð­fé­lög­un­um, eig­endum sjóð­anna.“

Sjóð­irnir gæti mik­illa hags­muna og séu því virkir hlut­hafar í fyr­ir­tækjum sem þeir fjár­festa í. „Sjóð­irnir eiga að leggja metnað í að inn­leiða leið­bein­ingar um stjórn­ar­hætti fyr­ir­tækja og stuðla að því að stjórn­ar­menn fyr­ir­tækja séu sjálf­stæðir í störfum sínum og hafi engin tengsl við til­tekna hlut­hafa umfram aðra.“

Mikil umsvif innanlands þrýstir upp eignarverði

Hag­fræði­stofnun komst að þeirri nið­ur­stöðu að miklar fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða á inn­lendum mark­aði geti þrýst eigna­verði upp á við. „Af þeirri ástæðu gæti verið ráð­legt að halda fjár­fest­ingum hér á landi í hófi. Rök mæla ekki ein­ungis gegn því að sjóð­irnir setji stóran hluta af eignum sínum undir í einu landi - og því litlu - heldur getur líka verið óvar­legt að hætta stórum hluta eigna á sama stað og tekna er afl­að. Þá eru í skýrsl­unni færð rök fyrir því að sér­lega áhættu­samt sé fyrir líf­eyr­is­sjóð­ina að leggja mikið undir á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði. Und­an­far­inn ald­ar­fjórð­ung hefur gengi íslenskra hluta­bréfa sveifl­ast meira en heims­vísi­tala hluta­bréfa í krónum talið.“

Már Guðmundsson er einn framsögumanna á morgunverðarfundinum um stærð lífeyrissjóðakerfisins.
Már Guð­munds­son er einn fram­sögu­manna á morg­un­verð­ar­fund­inum um stærð líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins.

Það var því mat stofn­un­ar­innar að hlut­fall erlendra eigna líf­eyr­is­sjóða eigi á næstu 25 árum að hækka úr 22 pró­sent, líkt og þær eru nú, í 42 pró­sent. Þá fjall­aði Hag­fræði­stofnun um þær raddir sem hefðu heyrst um að stór­felld eigna­kaup líf­eyr­is­sjóða erlendis geti veikt gengi krón­unn­ar. Nið­ur­staða stofn­un­ar­innar er sú að það geti hugs­an­lega ger­st, en að þau áhrif yrðu senni­lega ekki mik­il.

Hætta í sjóðssöfnun og fara í gegnumstreymi

Einn fram­sögu­mann­anna á fund­inum á mið­viku­dag, Gylfi Magn­ús­son, hefur kallað eftir breyt­ingum á líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu vegna þess að hann telur að það sé orðið allt of stórt. Í Silfrinu í mars síð­ast­liðnum sagði hann að íslensku líf­eyr­is­sjóð­irnir væru búnir að kaupa „nán­ast allt sem þeir geta keypt og er vit er í að kaupa.“ Hann sagði einnig að líf­eyr­is­sjóða­kerfið hefði meiri þörf fyrir því að lána fé en lands­menn hefðu fyrir að taka þau lán sem sjóð­irnir bjóða upp á.

Þar kall­aði hann eftir því að kerf­inu yrði í auknum mæli breytt úr sjóðs­söfn­un­ar­kerfi í gegn­um­streym­is­kerfi. Það sé ein­fald­lega ekki hægt að kaupa öll þau inn­lendu verð­bréf sem stefnir í að keypt verði hér inn­an­lands. „Það er heldur ekki sér­stak­lega spenn­andi hug­mynd að fara að kaupa fyrir mörg þús­und millj­arða króna hluta­bréf í útlöndum til þess að halda uppi kerfi sem að hægt væri að gera með tals­vert minni sjóðum og raun og veru örugg­ari líf­eyri.“

Gylfi var á svip­uðum nótum í grein sem hann birti í Vís­bend­ingu í októ­ber 2017. Þar sagði hann að það það blasi við „að óhjá­kvæmi­legt er að skoða betur hvert stefnir í þróun líf­eyr­is­kerfis Íslend­inga og e.t.v. gera á því breyt­ing­ar. Hin mikla hækkun iðgjalda í sjóð­söfn­un­ar­kerf­inu sem samið hefur verið um virð­ist ekki hafa verið hugsuð til enda. Það þarf að gera fyrr eða síð­ar. Jafn­framt virð­ist brýnt að skoða hvort núver­andi kerfi býr nægi­lega vel að þeim elstu, sem eiga almennt lítil rétt­indi í líf­eyr­is­kerf­in­u.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár