Mynd: Bára Huld Beck

Íslenska ríkið tekur 146,5 krónur af hverjum seldum lítra af bensíni sem hefur aldrei kostað fleiri krónur

Bens­ín­verð er sums staðar komið yfir 300 krónur á lítra. Við­mið­un­ar­verð á þessu mest not­aða elds­neyti íslenskra heim­ila hefur hækkað um meira en helm­ing frá því í maí 2020, og hefur aldrei verið hærra.

Við­mið­un­ar­verð á bens­ín­verði hér­lendis, sam­kvæmt nýj­ustu bens­ín­vakt Kjarnans, var 294,8 krónur á lítra. Af þeirri tölu tekur íslenska ríkið 146,5 krónur, eða tæp­lega 50 pró­sent, til sín í formi virð­is­auka­skatts, almenns bens­ín­gjalds, sér­stakt bens­ín­gjalds og kolefn­is­gjalds. Hlutur rík­is­ins hefur aldrei verið hærri í krónum tali. Frá því í maí 2020 hafa tekjur rík­is­ins vegna sölu á elds­neyti auk­ist um 17,5 pró­sent vegna verð­hækk­ana á elds­neyti. Hækkunin er að mestu til­komin vegna þess að virð­is­auka­skattur sem leggst á seldan bens­ín­lítra skilar meiru í rík­is­kass­ann eftir því sem útsölu­verð hækkar. Hin gjöldin eru öll föst krónu­tala sem var reyndar hækkuð lít­il­lega í byrjun árs.

Við­mið­un­ar­verðið náði því að vera hæsta krónu­tala frá upp­hafi í febr­úar síð­ast­liðnum. Síðan þá hefur það hækkað um 8,8 pró­sent. Frá því í maí 2020 hefur bens­ín­verð hér­lendis hækkað um 52 pró­sent. Vert er að taka fram að ef tekið er til­lit til verð­bólgu þá var elds­neyt­is­verð hærra árið 2012 en það er nú. Upp­reiknað miðað við þróun vísi­tölu neyslu­verðs þá kost­aði bens­ín­lítr­inn í apríl 2012 tæp­lega 353 krónur.

Mik­il­vægt er að hafa í huga að við­mið­un­ar­verðið miðar við næst­lægstu verð­­­­tölu í yfir­­­­lit­i síð­­­unnar Bens­ín­verð.is, sem hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Seiður heldur úti, til að forð­­­­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­­­­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­­­­ar­verðið er þó ætið með lægstu verð­­­um. Hæstu verð á bens­íni í dag er nú 303,9 krónur á bens­ín­lítra, á ýmsum bens­ín­stöðvum N1, en lægsta verðið er 260,9 krónur á lítra, á bens­ín­stöð Costco. Því munar sem stendur 16,5 pró­sent á hæsta og lægsta verði.

Verðið getur hækkað meira

Ástæðuna fyrir hækk­unum síð­ustu vikur er að finna í gríð­ar­legum hækk­unum á heims­mark­aðs­verði á jarð­efna­elds­neyti vegna inn­rásar Rússa í Úkraínu. Líklegt inn­kaupa­verð íslenskra elds­neyt­is­sala hefur hækkað um 24,3 pró­sent á innan við mán­uði og um 58,4 pró­sent frá því um miðjan des­em­ber. Ljóst má vera að hækk­anir á heims­mark­aði hafa verið meiri en hækk­anir á inn­kaupa­verði íslensku elds­neyt­is­sal­anna og því má búast við því að verðið geti hækkað enn meira þegar næstu pant­anir af bens­íni ber­ast til lands­ins.

Kjarninn greindi frá því í lok febr­úar að spá fjár­fest­inga­bank­ans J.P. Morgan um elds­neyt­is­hækk­anir vegna inn­rásar Rússa í Úkraínu gerði ráð fyrir að verð á bens­íni gæti farið upp í 327 krónur á lítra á næstu mán­uðum, ef gengi krónu gagn­vart Banda­ríkja­dal héld­ist óbreytt. Það hefur veikst um yfir sex pró­sent frá því að inn­rásin hófst sem þýðir að bens­ínið verður enn dýr­ara en ella.

Hefur mikil áhrif á heimilisbókhaldið

Ísland fram­­­leiðir vit­an­­­lega ekk­ert jarð­efna­elds­­­neyti heldur flytur það allt inn. Bíl­­ar sem nota jarð­efna­elds­­­neyti er enn í miklum meiri­hluta hér­lend­is. Sam­­­kvæmt tölum Hag­­­stofu Íslands voru bensín og dísil­bíl­arnir um 320 þús­und í lok árs 2020.

Því hafa skarpar hækk­anir á elds­neyt­is­verði mikil áhrif á rekstr­ar­kostnað heim­ila. Ef horft er til þeirrar hækk­unar sem orðið hefur á við­mið­un­ar­verði frá því í maí 2020 þarf sá sem eyddi að jafn­aði 15 þús­und krónum á mán­uði í bensín þá þarf nú að borga 22.800 krónur fyrir sama magn af bens­íni. Á árs­grund­velli er það auk­inn kostn­aður um 93.600 krónur. Sú tala hefur hækkað um meira en 22 þús­und krónur síð­ast­lið­inn mánuð.

Til við­bótar er elds­neyt­is­verð einn helsti inn­flutti orsaka­valdur verð­bólgu hér­lendis. Þegar heims­mark­aðs­verð hækkar, eða krónan veik­ist, þá leiðir það til hærri verð­bólgu vegna inn­flutn­ings á elds­neyti, sem verður fyrir vikið dýr­ari. Verð­bólgan er sem stendur 6,2 pró­sent og hefur ekki verið hærri í næstum tíu ár. Hinar miklu hækk­anir á elds­neyt­is­verði síð­ustu daga og vikur munu auka verð­bólgu­þrýst­ing umtals­vert.

Í Frétta­blað­inu í dag var greint frá því að Alþýðu­sam­band Íslands, Félag íslenskra bif­reið­ar­eig­enda, Neyt­enda­sam­tökin og fleiri félög hefðu kraf­ist þess að rík­is­stjórnin lækki skatta á bensín tíma­bundið vegna hækk­ana eða beiti sér með öðrum hætti til að létta byrðar almenn­ings.

Olíufélögin taka minna til sín

Í útreikn­ingum Bens­ín­vakt­ar­innar er hlutur olíu­­­­­fé­lags­ reikn­aður sem afgangs­­­stærð þegar búið er að draga frá hlut­­­deild rík­­­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra og lík­­­­­leg­t inn­kaupa­verð á honum frá reikn­uðu við­mið­un­­­ar­verði, enda hald­­­góðar upp­­­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­­­ar­liði olíu­­­­­fé­lag­anna ekki opin­ber­­­ar.

Samkvæmt þeim útreikn­ingum má vera ljóst að olíu­fé­lögin eru ekki að velta öllum verð­hækk­unum á heims­mark­aði út í verðið sem neyt­endur þurfa að borga við dæl­urnar. Hlutur olíu­fé­lags í hverjum seldum lítra er í dag 38,8 krónur á lítra og lækkar um tíu pró­sent milli mán­aða. Hann hefur ekki verið minni síðan í sept­em­ber í fyrra en hann fór í 58,8 krónur á lítra í des­em­ber síð­ast­liðnum. Síðan þá hefur sá hlutur í seldum bens­ín­lítra sem rennur til olíu­fé­laga í krónum talið dreg­ist saman um 30 pró­sent.

Frétta­skýr­ingin hefur verið upp­færð þar sem reikni­vélin sem hún byggir á inni­hélt ekki hækk­anir á föstum krónu­tölu­gjöldum sem leggj­ast á elds­neyti og tóku gildi í byrjun árs. Þær hækk­anir juku hlut rík­is­ins í hverjum seldum olíu­lítra um 2,2 krónur. Það hefur nú verið lagað og allar upp­lýs­ingar nú réttar.

Gögn og aðferðafræði

Hér að ofan er birt nið­ur­staða útreikn­inga og áætl­unar á því hvernig verð á lítra af bens­íni skipt­ist milli aðila í fram­setn­ingu GRID.

  • Við­mið­un­ar­verð er fengið frá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Seið ehf. sem meðal ann­ars heldur úti síð­unni Bens­ín­verð.is og fylgst hefur með bens­ín­verði á flestum bens­ín­stöðum lands­ins dag­lega síðan 2007. Miðað er við næst­lægstu verð­tölu í yfir­lit­inu til að forð­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.
  • Hlutur rík­is­ins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlut­falls­legir. Upp­lýs­ingar um breyt­ingar á skatta­lögum eru fengnar frá Við­skipta­ráði sem fylgst hefur með slíkum breyt­ingum um ára­bil.
  • Líklegt inn­kaupa­verð er reiknað útfrá verði á bens­íni til afhend­ingar í New York-höfn í upp­hafi mán­aðar frá banda­rísku orku­stofn­un­inni EIA og mið­gengi doll­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­stand­andi mán­uði frá Seðla­banka Íslands. Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­punkti vegna lag­er­stöðu, skamm­tíma­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­upp­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veitum. Mismunur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­leitt mjög lít­ill.
  • Hlutur olíu­fé­lags er loks reikn­aður sem afgangs­stærð enda hald­góðar upp­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­ar­liði olíu­fé­lag­anna ekki opin­berar. Hafa ber í huga að þar sem við­mið­un­ar­verð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill ein­hverju hærri sé litið til heild­ar­við­skipta með bensín á Íslandi.

Verð­upp­lýs­ingar mið­ast við verð­lag hvers tíma. Gögnin eru upp­færð mán­að­ar­lega í kringum 15. hvers mán­aðar. Fyr­ir­vari er gerður um skekkju­mörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreikn­aða liði. Ábend­ingar um villur, lag­fær­ingar og betrumbætur skal senda á gogn@kjarninn.is og er tekið fagn­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvaktin

Mest lesið undanfarið ár