Lækkun bankaskatts rýrir tekjur ríkissjóðs um tæpa sex milljarða

Þegar banka­skattur verður lækk­aður munu tekjur rík­is­sjóðs af honum drag­ast saman um 5,7 millj­arða. Þar sem ríkið á tvo banka fær það líka óbeint hluta af þeim ávinn­ingi í sinn hlut. Arion banki ætti að hagn­ast um tvo millj­arða á breyt­ing­unni.

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur ætlar að lækka sér­stakan banka­skatt sem leggst á hluta inn­láns­stofn­ana á Íslandi á næstu árum. Skatt­ur­inn verður lækk­aður úr 0,376 pró­sent af öllum skuldum fjár­mála­fyr­ir­tækja umfram 50 millj­arða króna í 0,145 pró­sent.

Sem stendur leggst banka­skatt­ur­inn aðal­lega á þrjá banka: Lands­bank­ann, Íslands­banka og Arion banka. Alls er áætlað að hann skili rík­inu 9,2 millj­örðum króna í tekjur á árinu 2018.

Miðað við áætl­aðar tekjur rík­is­ins af skatt­inum í ár mun breyt­ingin gera það að verkum að skatt­ur­inn mun árlega verða rúm­lega 3,5 millj­arðar króna eftir breyt­ingu. Því mun ríkið verða af um 5,7 millj­örðum króna í tekjum vegna breyt­ing­ar­innar, miðað við óbreytta skulda­stöðu bank­anna. Auki þeir skuldir sínar myndi upp­hæðin hækka.

Í til­felli Lands­bank­ans og Íslands­banka skiptir þessi breyt­ing í raun litlu. Íslenska ríkið á þá banka nán­ast að öllu leyti og ávinn­ingur þeirra af lækkun banka­skatts leggst ein­fald­lega við eigið fé þeirra kjósi bank­arnir ekki að skila ávinn­ingnum til við­skipta­vina sinna. Ríkið fær því á end­anum alltaf þann ávinn­ing.

Arion banki er hins vegar að öllu leyti í einka­eigu. Hann greiddi um 3,2 millj­arða króna í banka­skatt í fyrra. Ef búið væri að lækka skatt­inn þá hefði sú greiðsla verið um tveimur millj­örðum krónum lægri.

Tekjuöflun og til að draga úr áhættusækni

Banka­skatt­ur­inn var fyrst lagður á af rík­is­stjórn­ ­Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna í árs­lok 2010. Í frum­varp­inu stóð að mark­mið lag­anna væri tví­þætt: „ann­ars vega að afla rík­inu tekna til að mæta þeim mikla ­kostn­aði sem fallið hefur á rík­is­sjóðs vegna hruns íslenska fjár­mála­kerf­is­ins, hins vegar að draga úr áhættu­sækni fjár­mála­fyr­ir­tækja með því að leggja sér­stakan skatt á skuld­ir þeirra vegna þeirrar kerf­is­á­hættu með til­heyr­andi kostn­aði sem áhættu­söm ­starf­semi þeirra getur haft í för með sér fyrir þjóð­ar­bú­ið.“ Skatt­pró­sentan var ákveðin 0,041 pró­sent. Þegar þessi skattur var lagður á vor­u slitabú föllnu bank­anna und­an­skilin greiðslu hans.

Þegar rík­is­stjórn­ Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks kynnti áform sín um skulda­leið­rétt­ingu á völdum verð­tryggðum hús­næð­is­lánum í nóv­em­ber 2013 kom í ljós að rík­is­sjóður myndi fjár­magna þær.

Til að auka tekjur sínar svo hægt yrði að standa undir þessum aukna kostn­aði átti að hækka hinn sér­staka banka­skatt enn meira og láta hann auk þess ná til fjár­mála­fyr­ir­tækja í slita­ferli. Á end­anum var hann hækk­aður úr 0,041 pró­sent skulda fjár­mála­fyr­ir­tækja í 0,376 ­pró­sent.

Þessi hækk­un, sem var afgreidd á Alþingi í des­em­ber 2013, skil­aði því að skatt­ur­inn skil­aði 36,5 millj­arðar króna á árinu 2014. Ári síðar skil­aði hann 31,9 millj­örðum króna.

Samið við kröfuhafa en samt rukkað áfram

Á því ári, 2015, var samið við kröfu­hafa föllnu bank­anna um upp­gjör á slita­búum þeirra. Nið­ur­staðan var að mestu sú að þeir gáfu eftir eignir sínar í íslenskum krónum til íslenska rík­is­ins en fengu í stað­inn að klára nauða­samn­inga sína og greiða út erlendar eignir. Um leið hættu slita­búin að greiða banka­skatt­inn og hann lækk­aði því umtals­vert.

Þessi leið hafði raunar blasað við lengi sem eina lausnin enda myndi allt útflæði á íslenskum krónum út úr hag­kerf­inu ógna greiðslu­stöð­ug­leika. Því má segja að banka­skatt­ur­inn hafi í raun verið lítið annað en fyr­ir­fram­greiðsla á pen­ingum út úr bönk­unum og slita­bú­unum sem myndu hvort eð er enda í rík­is­sjóði með einum eða öðrum hætti. Í dag er gert ráð fyrir því að virði þeirra stöð­ug­leika­fram­laga sem verða inn­heimt utan þeirrar fyr­ir­fram­greiðslu verði um 458 millj­arðar króna.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson leiddu ríkisstjórnina sem samdi við kröfuhafa föllnu bankanna um stöðugleikaframlögin. Þeir samningar gerðu kleift að klára nauðasamninga slitabúanna.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son leiddu rík­is­stjórn­ina sem samdi við kröfu­hafa föllnu bank­anna um stöð­ug­leika­fram­lögin. Þeir samn­ingar gerðu kleift að klára nauða­samn­inga slita­bú­anna.

Þrátt fyrir að búið væri að semja við kröfu­haf­anna, og að tveir bankar af þremur væru komnir nær alveg í eigu rík­is­ins, hélt það áfram að rukka inn banka­skatt. Árið 2016 var hann tæp­lega níu millj­arðar króna og 8,8 millj­örðum króna árið 2017. Í ár er áætlað að hann skili 9,2 millj­örðum króna í rík­is­kass­ann. Gangi það eftir hefur ríkið haft rúm­lega 95 millj­arða króna í tekjur af skatt­inum frá því að hann var hækk­aður árið 2013.

Mun lækkun bankaskatts skila betri kjörum?

Banka­skatt­ur­inn hefur líka verið risa­stórt neyt­enda­mál, að minnsta kosti ef útskýr­ingar við­skipta­bank­anna sem greiða hann eru teknar trú­an­legar. Þegar Líf­eyr­is­sjóð­ir lands­ins hófu að bjóða miklu betri kjör á íbúða­lánum en við­skipta­bank­arnir haustið 2015 bentu þeir m.a. á að líf­eyr­is­sjóðir þyrftu ekki að borga ­banka­skatt.

Í einka­sam­tölum hafa stjórn­endur bank­anna sagt að þeir geti boðið almenn­ingi betri kjör ef þeir væru ekki að borga bankakatt­inn. Hann sé bein­línis álag ofan á útlán.

Með­ öðrum orðum sé almenn­ingur að borga banka­skatt­inn, að minnsta kosti að hluta. Katrín Júl­í­us­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra og núver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja, sagði í sjón­varps­þætti Kjarnans fyrir tæpu ári síðan að bank­arnir stæðu ekki jafn­fætis líf­eyr­is­sjóðum þar sem banka­skatt­ur­inn sé bara lagður á banka.

Það sama eigi við gagn­vart erlendum lán­veit­end­um, sem séu aftur orðnir mjög sterkir hjá stóru fyr­ir­tækj­unum á Íslandi. „Þannig að sam­keppn­is­staða bank­anna hefur skekkst mjög mikið og þetta getur til lengri tíma haft mjög alvar­leg áhrif á eigna­söfn þess­ara banka og við skulum þá ekki gleyma því að bank­arnir eru í eigu rík­is­ins og skatt­borgar­anna að tveimur þriðju hluta til. Þannig að virði eigna skatt­borgar­anna í þessu til­viki eru og geta rýrnað þegar til lengri tíma lætur ef þessi skattur heldur áfram vegna þess að sam­keppn­is­staðan er ekki sú sama,“ sagði Katrín.

Það verður því áhuga­vert að fylgj­ast með hvort að lækkun á banka­skatti muni skila íslenskum heim­ilum og fyr­ir­tækjum betri kjörum hjá bönk­unum, líkt og þeir hafa sagt að aðgerðin muni gera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár