Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alþingiskosningar og samfélagsmiðlar: Hverja reyndu flokkarnir að nálgast og hvernig?

Í nýlegu áliti Per­sónu­verndar um sam­fé­lags­miðla­notkun stjórn­mála­flokka fyrir síð­ustu tvennar Alþing­is­kosn­ingar má lesa ýmis­legt for­vitni­legt um það hvernig flokk­arnir reyndu að ná til fólks með keyptum skila­boðum á sam­fé­lags­miðlum.

Mið­flokk­ur­inn reyndi sér­stak­lega að ná til bæði bænda og lækna með aug­lýs­ingum sínum á net­inu fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar, á meðan Sam­fylk­ingin herj­aði til dæmis á konur í þétt­býli sem sögð­ust hafa áhuga á Evr­ópu­sam­band­inu, lýð­ræði og dýrum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn reyndi að ná til fólks með pólskan upp­runa með því að beina aug­lýs­ingum sér­stak­lega að þeim sem, auk ann­ars, höfðu látið sér lynda við pólska her­inn á Facebook.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýlegu áliti Per­sónu­verndar, sem réð­ist í frum­kvæð­is­at­hugun á því hvernig íslensku stjórn­mála­flokk­arnir hafa notað per­sónu­upp­lýs­ingar til að koma skila­boðum til kjós­enda á sam­fé­lags­miðlum fyrir síð­ustu tvennar Alþing­is­kosn­ingar.

Fjallað var um álitið hér á Kjarn­anum í upp­hafi mán­aðar, en fyrir utan þær efn­is­legu ábend­ingar og nið­ur­stöður sem Per­sónu­vernd setti fram má finna ýmis­legt for­vitni­legt í þeim svörum sem stjórn­mála­flokk­arnir voru krafðir um af hálfu Per­sónu­verndar og Per­sónu­vernd tekur dæmi um.

Per­sónu­vernd krafði flokk­ana um ansi ítar­leg svör í þess­ari frum­kvæð­is­at­hugun. Stofn­unin óskaði nefni­lega eftir „tæm­andi taln­ingu á öllum þeim breytum og/eða mark­hópum sem skil­greindir hefðu verið og not­aðir og á því hvernig aug­lýs­ingum eða skila­boðum hefði verið beint að hverjum til­teknum hópi og á hvaða sam­fé­lags­miðli.“

Svör flokk­anna við spurn­ingum Per­sónu­verndar virð­ast hafa verið mis­gagnsæ og mis­ít­ar­leg, en af þeim má ráða að tölu­verður munur er á því hvernig flokk­arnir nálg­ast staf­ræna mark­aðs­setn­ingu, eða öllu heldur nálg­uð­ust, frá haustinu 2015 og fram að kosn­ing­unum í októ­ber 2017.

Þannig má án efa segja að Flokkur fólks­ins hafi lagt minnsta áherslu á að það, af flokk­unum átta sem eiga sæti á þingi, að reyna að ná til sér­tækra hópa kjós­enda á Facebook. Samkvæmt stuttu svari flokks­ins til Per­sónu­verndar keypti hann aug­lýs­ingar á miðl­inum sem beindust til allra á Íslandi, 18 ára og eldri. Samtals var um 140 þús­und krónum varið í þær aug­lýs­ingar. Aðrir flokkar lögðu meira í að smíða mark­hópa til þess að koma skila­boðum sínum áleiðis.

Persónuvernd spurði flokkana út í eftirfarandi:

  1. Hvort net­föng og síma­númer félags­manna hefðu verið notuð til þess að beina skila­boðum eða aug­lýs­ingum til þeirra á sam­fé­lags­miðlum á umræddu tíma­bili.
  2. Hvaða notkun félags­menn við­kom­andi stjórn­mála­sam­taka hefðu sam­þykkt á net­föngum og síma­núm­erum þeirra.
  3. Hvaða sam­fé­lags­miðlar hefðu verið not­aðir og hvaða aðferðir eða leiðir hefðu verið not­aðar til þess að miðla upp­lýs­ingum til kjós­enda á sam­fé­lags­miðlum.
  4. Hvaða aug­lýs­inga­stofa og/eða grein­ing­ar­að­ila hefði verið leitað til vegna miðl­unar upp­lýs­inga frá við­kom­andi stjórn­mála­sam­tökum á sam­fé­lags­miðlum, hvernig þjón­usta hefði verið keypt af þeim og hvort gerður hefði verið vinnslu­samn­ingur þar að lút­andi, hefði til­efni verið til þess.
  5. Hvort unnin hefði verið ein­hvers konar mark­hópa­grein­ing í því skyni að miðla upp­lýs­ingum til til­tek­inna hópa á sam­fé­lags­miðlum og hvað hefði falist í henni.
  6. Hvort not­ast hefði verið við svokölluð mark­aðs­torg upp­lýs­inga.
  7. Upp­lýs­ingar um allar breytur og/eða hópa sem skil­greindir hefðu verið og hvernig aug­lýs­ingum eða skila­boðum hefði verið beint að hverjum til­teknum hópi.
  8. Hvort allt það efni sem við­kom­andi stjórn­mála­sam­tök hefðu birt eða aðrir birt fyrir þeirra hönd á sam­fé­lags­miðlum á umræddu tíma­bili hefði borið með sér að hafa stafað frá þeim stjórn­mála­sam­tökum.
Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn
Mynd: Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

Sjálfstæðisflokkurinn sveigði hjá vinstrisinnuðum netverjum

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, fjöl­menn­asti stjórn­mála­flokkur lands­ins og sá flokkur sem vafa­lítið er með öfl­ug­ustu og best smurðu kosn­inga­vél­ina, rakti í svari sínu við spurn­ingum Per­sónu­verndar að aug­lýst hefði verið bæði á Facebook og Instagram með því að not­ast við þá mark­hópa sem þar er boðið upp á.

Flokk­ur­inn not­aði þannig hefð­bundnar breytur á borð við aldur, búsetu, kyn, fjöl­skyldu­hagi og áhuga­mál, sem flestir not­endur sam­fé­lags­mið­ils­ins gera aðgengi­legar, til þess að koma skila­boðum sínum áleiðis til ákveð­inna mark­hópa. Einnig sagði flokk­ur­inn Per­sónu­vernd frá því að hann hefði notað félaga­tal sitt til þess að búa til lista á Facebook, en notað dulkóðun til þess að miðla ekki upp­lýs­ingum um félaga í flokknum til Facebook á per­sónu­grein­an­legu formi.

Eitt dæmi um mark­hóp, sem sér­stak­lega var reynt að ná til af hálfu Sjálf­stæð­is­flokks­ins, voru allir 18 ára og eldri í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur með áherslu á þá sem höfðu lýst yfir áhuga á pólska hernum, pólsku, Facebook-síð­unni „ég elska Pólland“, borg­unum Gdansk og Varsjá og menn­ingu í Póllandi, auk þeirra sem höfðu búið í Póllandi sam­kvæmt Facebook.

Þá kom einnig fyrir að flokk­ur­inn úti­lok­aði aug­lýs­ingar sínar frá til­teknum hópum og sér­stak­lega er nefnt sem dæmi að flokk­ur­inn hafi beðið Facebook um að beina aug­lýs­ingum ekki að fólki sem hafði áhuga á „vinstri stjórn­málum“ eins og það er orðað í sam­an­tekt Per­sónu­verndar á svörum flokks­ins.

Flokk­ur­inn starf­aði með aug­lýs­inga­stof­unni Jónsson & Le’Macks í kosn­inga­bar­átt­unum 2016 og 2017 og ann­að­ist aug­lýs­inga­stofan meðal ann­ars það verk­efni að miðla vef­borða­aug­lýs­ingum í gegnum Google og aug­lýs­ingum inn á YouTube.

Þá kemur að kostn­að­inum, en Per­sónu­vernd spurði alla flokk­ana hversu miklum fjár­munum hefði verið varið í kaup á þjón­ustu sam­fé­lags­miðla, aug­lýs­inga­stofa og grein­ing­ar­að­ila á því tíma­bili sem frum­kvæð­is­at­hug­unin laut.

Í svari sínu til Per­sónu­verndar sagð­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn skilja spurn­ingu stofn­un­ar­innar svo að ein­ungis væri óskað eftir upp­lýs­ingum um kostnað vegna notk­unar sam­fé­lags­miðla, en ekki vegna hefð­bund­inna aug­lýs­inga í öðrum miðlum eins og sjón­varpi eða dag­blöðum. Tekið skal fram að stjórn­mála­flokk­arnir lögðu mis­mun­andi skiln­ing í spurn­ingu Per­sónu­verndar um kostn­að­inn og sumir gáfu upp allan kostnað sinn við aug­lýs­ingar án þess að sund­ur­liðað væri hvað fór hvert. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn svar­aði nokkuð ítar­lega.

Fram kom í svari flokks­ins að hann hefði aug­lýs­inga­stofu sam­tals 4,6 millj­ónir króna vegna efn­is­fram­leiðslu fyrir sam­fé­lags­miðla. Við þetta bæt­ast tæpar 5,4 millj­ónir sem flokk­ur­inn greiddi fyrir birt­ingu aug­lýs­inga á Facebook (og þá líka Instagram, sem er í eigu Facebook), tæpar 900 þús­und krónur sem flokk­ur­inn greiddi Google fyrir vef­borða­aug­lýs­ingar og 620.000 krónur sem flokk­ur­inn greiddi fyrir birt­ingu aug­lýs­inga á YouTube. Flokk­ur­inn byrj­aði að kaupa aug­lýs­ingar á YouTube árið 2017, en hafði ekki eytt krónu þar á árunum 2015 og 2016.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn varði þannig um 11,5 millj­ónum króna í efn­is­fram­leiðslu og aug­lýs­ingar á sam­fé­lags­miðlum á tveggja ára tíma­bili fyrir kosn­ing­arnar 2017. 

Vinstri græn birtu ekki auglýsingar fyrir fólki sem lét sér líka við Vinstri græn á Facebook

Vinstri græn not­uðu Facebook til þess að smíða mark­hópa sam­kvæmt ýmsum breytum. Í svari flokks­ins til Per­sónu­verndar sagði að alls hefði flokk­ur­inn skil­greint 23 hópa sem aug­lýs­ingum var svo beint að, en sér­stak­lega var tekið fram að aug­lýs­ingum Vinstri grænna hafi ekki verið beint að þeim ein­stak­lingum sem höfðu látið sér líka við síðu flokks­ins á Facebook.

Tvö dæmi um mark­hópa Vinstri grænna eru tekin í áliti Per­sónu­verndar. Sá fyrri voru allir 18 ára og eldri í 25 kíló­metra rad­íus frá Selfossi og sagður nokkuð dæmi­gerður mark­hópur, en sá síð­ari sem dæmi er nefnt um byggð­ist á ítar­legri breytum en almennt tíðk­uð­ust. Áhugamál voru á meðal þess sem not­ast var við í því til­felli og reyndi flokk­ur­inn þannig að ná til fólks sem hafði lýst yfir áhuga á Aust­ur­landi, menntun, raf­einda­smá­sjám, vinstri­stefnu og umhverf­is­vernd, svo eitt­hvað sé nefnt.

Varðandi kostnað, þá seg­ist flokk­ur­inn hafa varið alls um 21 milljón í kynn­ing­ar­efni og fram­leiðslu þess fyrir kosn­ing­arnar 2016 og 2017 sam­an­lagt, en ekki er ljóst af því svari hversu mikið fór í að fram­leiða efni sem dreift var á net­inu. Flokk­ur­inn segir þó að tæp­lega sjöhund­ruð þús­und krónur hafi farið í að kaupa aug­lýs­ingar á Facebook.

Einnig er tekið fram í svari flokks­ins að hann hafi verið í við­skiptum við fyr­ir­tækið MediaCom og notað það sem milli­lið við fjöl­miðla vegna aug­lýs­inga á vef­síðum fjöl­miðla.

Miðflokkurinn beindi heilbrigðisstefnunni beint í fang lækna

Mið­flokk­ur­inn hag­nýtti sér augýs­inga­kerfi Facebook til þess að birta aug­lýs­ingar bæði á Facebook og Instagram og seg­ist hafa notað inn­byggðar still­ingar Facebook til að smíða mark­hópana. Flokk­ur­inn tekur sér­stak­lega fram að stundum hafi þeir sem lýst höfðu yfir áhuga á Independence Party, Sjálf­stæð­is­flokknum, sér­stak­lega verið úti­lok­aðir frá aug­lýs­ingum Mið­flokks­ins.

Þá tekur flokk­ur­inn fram að aug­lýs­ingum hafi verið beint að þeim sem höfðu látið sér líka við Facebook-síðu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­manns flokks­ins og þeim ein­stak­lingum „sem líkt­ust þeim“ í þeirri merk­ingu að reynt var að ná til svo­kall­aðra lík­inda­mark­hópa (e. lookalike audiences) með þar til gerðri þjón­ustu sem Facebook býður upp á við mark­hópa­gerð.

Í þessu til­felli var þannig sá hópur sem fylgdi Sigmundi Davíð á Facebook not­aður til þess að finna aðra not­endur á Facebook sem voru ef til vill með sam­bæri­leg áhuga­mál eða lýð­fræði­breytur.

Mið­flokk­ur­inn nýtti sér einnig upp­lýs­ingar um nöfn, búsetu og afmæl­is­dag í kjör­skrá til þess að ná til fólks á Facebook og búa þannig til sinn eigin mark­hóp (e. custom audience) á Facebook. Með þess­ari aðferð beindi flokk­ur­inn aug­lýs­ingum að bændum (fólki með póst­númer í dreif­býli) og fólki yngra en 25 ára. Flokk­ur­inn seg­ist einnig hafa notað list­ann yfir bændur til þess að búa til lík­inda­mark­hópa fólks sem hafði svipuð áhuga­mál og lýð­fræði­breytur og bændur.

Flokk­ur­inn gefur það einnig upp, í svari sínu til Per­sónu­verndar, að sér­stak­lega hafi verið reynt að ná til heil­brigð­is­starfs­manna með skila­boð sem tengd­ust breyttri stað­setn­ingu Land­spít­ala og öðrum áherslum varð­andi heil­brigð­is­stefnu flokks­ins. Þannig var smíð­aður mark­hópur fólks sem hafði lýst yfir áhuga á lækn­is­fræði á Facebook og starfs­heiti í heil­brigð­is­stétt voru einnig notuð, svo sem barna-, hjarta-, svæf­ingar-, tauga-, lýta- og húð­sjúk­dóma­læknir.

Mið­flokk­ur­inn réði fyr­ir­tækið Innut til þess að afmarka fyrir sig mark­hópana og sjá um birt­ing­ar­á­ætlun aug­lýs­inga og seg­ist hafa varið rúmum 1,3 millj­ónum vegna þjón­ustu sam­fé­lags­miðla, grein­ing­ar­að­ila og aug­lýs­inga­stofa í aðdrag­anda kosn­ing­anna árið 2017, en flokk­ur­inn var stofn­aður skömmu fyrir kosn­ingar það haustið.

Samfylkingin herjaði á vini þeirra sem fylgja flokknum á Facebook

Sam­fylk­ing sagði Per­sónu­vernd að flokk­ur­inn hefði notað bæði Facebook og Instagram til þess að beina skila­boðum að ákveðnum mark­hópum. Eitt dæmi um mark­hóp, sem Sam­fylk­ingin not­að­ist við, voru konur á aldr­inum 25-64 ára, í þétt­býli, sem höfðu látið Facebook vita af áhuga sínum á mann­rétt­indum, þró­un­ar­að­stoð, Evr­ópu­sam­band­inu, UNICEF, UN Women, lýð­ræði og dýrum.

Flokk­ur­inn birti aug­lýs­ingar fyrir fylgj­endum flokks­ins á Facebook og það sem meira er, þá birti flokk­ur­inn aug­lýs­ingar sínar einnig fyrir Facebook-vinum fylgj­enda flokks­ins, auk vina þeirra sem höfðu átt sam­skipti við síðu flokks­ins á Facebook. Þetta var, sam­kvæmt svari flokks­ins, bæði gert með og án frek­ari breyta.

Sam­fylk­ingin tjáði Per­sónu­vernd að flokk­ur­inn hefði notað fyr­ir­tækið Webmom til að setja aug­lýs­ingar á Facebook og beina þeim til hópa sem fyr­ir­tækið taldi eiga við, „byggt á reynslu sinni, þekk­ingu og sam­tölum við flokk­inn.“ Fyr­ir­tækið fékk þannig ekki fyr­ir­mæli um að beina skila­boðum til ákveð­inna hópa eða ein­stak­linga á sam­fé­lags­miðlum, heldur treysti Sam­fylk­ingin fyr­ir­tæk­inu fyrir því að ná til almenn­ings.

Sam­fylk­ingin sagði Per­sónu­vernd að flokk­ur­inn hefði varið alls 46.107.939 kr. til kaupa á þjón­ustu sam­fé­lags­miðla, grein­ing­ar­að­ila og aug­lýs­inga­stofa á umræddu tveggja ára tíma­bili, en sund­ur­liðar þann kostnað ekki frekar.

Viðreisn reyndi að ná til háskólaborgara og fyrirtækjaeigenda

Viðreisn sagði Per­sónu­vernd að flokk­ur­inn hefði notað Facebook, Instagram, Google og YouTube til að ná til kjós­enda með aug­lýs­ingum, stöðu­færslum, ljós­myndum og mynd­böndum.

Flokk­ur­inn sagð­ist, líkt og flestir aðrir flokkar, hafa notað hefð­bundnar breytur eins og kyn, aldur og áhuga­mál til þess að smíða mark­hópa fyrir aug­lýs­ingar á Facebook og þar með einnig á Instagram og Messen­ger, miðlum í eigu Facebook. Viðreisn birti aug­lýs­ingar sér­stak­lega fyrir þeim sem höfðu látið sér líka við flokk­inn á Facebook.

Viðreisn veitti Per­sónu­vernd upp­lýs­ingar um þá mark­hópa sem höfðu verið not­aðir. Einn ítar­legur mark­hópur er til­tek­inn sem dæmi í áliti Per­sónu­verndar, en í því til­felli þar reyndi Viðreisn að ná til fólks á suð­vest­ur­horn­inu lands­ins, 18 ára og eldri, með sér­staka áherslu á að ná til fólks sem væri í háskóla eða hefði lokið háskóla­námi.

Í mark­hópnum var fólk sem hafði tjáð Facebook að það hefði áhuga á frum­kvöðla­starf­semi og sprota­fyr­ir­tækjum, auk fyr­ir­tækja­eig­enda, sjálf­stætt starf­andi fólks og fólks sem var með starfs­heiti á borð við fram­kvæmda­stjóri, for­maður, verk­efna­stjóri, fjár­mála­stjóri, for­stjóri og fleiri í þeim dúr.

Viðreisn birti einnig vef­borða í Google-aug­lýs­ingum, þar á meðal á YouTube, fyrir öllum þeim sem bjuggu á Íslandi, voru 18 ára eða eldri og hafa íslensku, ensku eða pólsku að móð­ur­máli.

Viðreisn fékk Hugs­miðj­una til að sníða kynn­ing­ar­á­tak sem byggð­ist á mark­hópa­grein­ingu flokks­ins, en sú var unnin á grund­velli kosn­inga­rann­sóknar Félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands og skoð­ana­kann­ana.

Flokk­ur­inn seg­ist hafa varið um 6,2 millj­ónum fyrir kaup á þjón­ustu sam­fé­lags­miðla, grein­ing­ar­að­ila og aug­lýs­inga­stof­ana á þessu tveggja ára tíma­bili fyrir kosn­ing­arnar árið 2017, en sund­ur­liðar kostn­að­inn ekki frekar.

Fámálir Píratar gátu einungis staðfest tvær breytur

Svör Pírata við spurn­ingum Per­sónu­verndar virð­ast hafa verið ansi snubb­ótt, sam­kvæmt því sem fram kemur í áliti stofn­un­ar­innar, en flokk­ur­inn sagð­ist hafa notað Facebook til þess að ná til til­tek­ins hóps ein­stak­linga með sniðnum aug­lýs­ingum.

Píratar sögð­ust ein­ungis geta stað­fest að not­ast hefði verið við tvær breytur, þ.e. stað­setn­ingu (Ísland) og ald­urs­hópa (18-35 ára og 18 ára og eldri).

Flokk­ur­inn sagði Per­sónu­vernd að hann hefði notað aug­lýs­inga­stof­una Maura og ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Ofvitann í kosn­inga­bar­áttu sinni.

Píratar sögð­ust hafa varið alls 30.561.050 kr. í aug­lýs­ingar á umræddu tveggja ára tíma­bili, en tóku fram að undir það falli prent­kostn­aður. Flokk­ur­inn sagði Per­sónu­vernd að nán­ari útskýr­ingar á kostn­aði mætti finna í árs­reikn­ingum flokks­ins.

Framsókn keyrði netföng flokksfélaga inn á Facebook

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn not­aði Facebook eins og hinir flokk­arnir til þess að koma skila­boðum til kjós­enda, en flokk­ur­inn keyrði einnig net­föng á þriðja þús­und flokks­manna sinna úr félaga­tal­inu og inn á Facebook í aðdrag­anda kosn­ing­anna árið 2017. Aug­lýs­ingum var sér­stak­lega beint til þessa hóps, bæði á Facebook og Instagram.

Tekið skal fram að upp­lýs­ing­arnar úr félaga­tali Fram­sóknar virð­ast, rétt eins og upp­lýs­ing­arnar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lét Facebook í té, hafa verið dulkóð­aðar áður en þær eru sendar til Facebook, sam­kvæmt því sem fram kemur í áliti Per­sónu­verndar.

Framsókn birti aug­lýs­ingar fyrir þeim sem höfðu látið sér lynda við flokk­inn á Facebook og rétt eins og hjá Sam­fylk­ing­unni var aug­lýs­ingum flokks­ins einnig beint til vina þeirra sem fylgdu flokknum á Facebook. Samkvæmt svari flokks­ins hag­nýtti hann sér ekki, öfugt við flesta aðra flokka, skil­greind áhuga­mál Facebook-not­enda til þess að ná til ein­staka hópa, heldur ein­ungis breytur á borð við stað­setn­ingu, aldur og kyn.

Flokk­ur­inn sagði Per­sónu­vernd að fyrir kosn­ing­arnar 2017 hefði hann ráð­ist í alls 18 her­ferðir hjá Google, sex á YouTube, níu Google dis­play-her­ferðir og þrjár leit­ar­orða­her­ferðir. Mark­hóp­arnir þar voru að sögn flokks­ins flokk­aðir niður eftir aldri, kyni og land­svæði og einnig var leit­ast við að ná til hópa fólks eftir áhuga­sviði, til dæmis þeirra sem hafi lýst áhuga á að fylgj­ast með frétta­síðum, fjár­málum, við­skipta­síðum og tækni­málum.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn samdi við sam­fé­lags­miðla­fyr­ir­tækið Sahara um að ann­ast Facebook-síður flokks­ins, bæði aðal­síðu flokks­ins og síður kjör­dæma­sam­band­anna, en sagði umsjón með und­ir­síðum aðild­ar­fé­laga flokks­ins hafa verið í höndum ein­staka flokks­manna. Flokk­ur­inn samdi við aug­lýs­inga­stof­una Hvíta húsið fyrir kosn­ing­arnar 2017 og ann­að­ist aug­lýs­inga­stofan, sam­kvæmt svari flokks­ins, meðal ann­ars gerð aug­lýs­inga, birt­ingar, stefnu­mótun og grein­ingar á skoð­ana­könn­unum.

Einnig sagð­ist flokk­ur­inn hafa notað mark­hópa­grein­ingu af Zenter og könnun frá MMR til þess að átta sig á því hverjir væru lík­legir til þess að vera mót­tæki­legir fyrir skila­boðum flokks­ins.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sagð­ist hafa varið sam­tals 6.496.198 kr. til kaupa á þjón­ustu sam­fé­lags­miðla og kost­unar á sam­fé­lags­miðlum á því tveggja ára tíma­bili sem Per­sónu­vernd spurði um.

Persónuvernd leggur til endurskoðun kosningalaga með tilliti til notkunar samfélagsmiðla

Í áliti Per­sónu­verndar er fjallað mjög ítar­lega um notkun per­sónu­upp­lýs­inga á sam­fé­lags­miðlum í tengslum við kosn­ingar, eins og áður hefur verið fjallað um. Stofn­unin finnur sig knúna til að árétta að vinnsla stjórn­mála­sam­taka á við­kvæmum per­sónu­upp­lýs­ingum kjós­enda, svo sem um stjórn­mála­skoð­anir, verði að byggj­ast á afdrátt­ar­lausu sam­þykki.

Stofn­unin setti fram nokkrar til­lögur um notkun per­sónu­upp­lýs­inga á sam­fé­lags­miðlum í tengslum við kosn­ingar. Meðal ann­ars að stjórn­mála­sam­tök og önnur hlut­að­eig­andi stjórn­völd vinni að sam­eig­in­legum verk­lags­reglum, í sam­ráði við Per­sónu­vernd, til að unnt verði að tryggja gagn­sæi við vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga á sam­fé­lags­miðlum í tengslum við kosn­ingar í fram­tíð­inni. Þessar verk­lags­reglur verði svo kynntar fyrir starfs­fólki flokk­anna og öllum sem fyrir þá vinna, þar á meðal aug­lýs­inga­stofum og grein­ing­ar­að­ilum.

Þá leggur Per­sónu­vernd einnig til að stofn­unin ráð­ist í sér­stakt kynn­ing­ar­á­tak, í sam­starfi við dóms­mála­ráðu­neytið og lands­kjör­stjórn, til þess að fræða almenn­ing um þá vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga sem á sér stað á sam­fé­lags­miðlum í tengslum við kosn­ingar og einnig að lög um kosn­ingar til Alþingis verði end­ur­skoðuð í tengslum við mark­aðs­setn­ingu stjórn­mála­flokka, með áherslu á notkun sam­fé­lags­miðla, enda lögin ekki smíðuð á tímum þar sem sam­fé­lags­miðlar voru alltum­lykj­andi eins og þeir eru í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár