Meirihlutinn í Reykjavík á tæpasta vaði – Framsókn á fleygiferð

Meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn Reykja­víkur á um helm­ings­líkur á því að halda velli, sam­kvæmt síð­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar. Framsókn virð­ist ætla að ná inn fjórum full­trúum í borg­ar­stjórn.

Frá oddvitakappræðum í gærkvöldi.
Frá odd­vita­kapp­ræðum í gær­kvöldi. Mynd: Bára Huld Beck

Rúmlega helm­ings­líkur eru á því að meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Pírata, Vinstri grænna og Við­reisnar haldi velli í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum dags­ins, sam­kvæmt nýj­ustu og um leið síð­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar fyrir kosn­ing­arnar. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nú í fyrsta skipti með fjóra full­trúa inni í borg­ar­stjórn.

Sam­hliða kosn­­inga­­spánni er einnig keyrð sæta­­spá. Hún er fram­­­kvæmd þannig að keyrðar eru 100 þús­und sýnd­­­ar­­­kosn­­­ingar miðað við fylgi flokka í kosn­­­inga­­­spánni. Í hverri þeirra er úthlutað 23 borg­­­ar­­­full­­­trúum og þar sem sýnd­­­ar­­­kosn­­­ing­­­arnar eru allar með inn­­­­­byggða óvissu þá getur fylgi flokka í hverri ein­stakri sýnd­­­ar­­­kosn­­­ingu stundum verið hærra og stundum lægra, þótt með­­­al­­­tal kosn­­­ing­anna allra sé það sama og kom fram í kosn­­­inga­­­spánni.

Sætaspáin sýnir meirihlutann fallinn

Þegar líkur ein­stakra fram­bjóð­enda flokk­anna á því að kom­ast inn eru teknar saman teikn­ast upp sú mynd að Píratar fá þrjá menn kjörna en ekki fjóra eins og þegar sæta­spáin var keyrð fyrr í vik­unni. Þá sekkur meiri­hlut­inn niður í ell­efu full­trúa, þar sem bæði Viðreisn og Sam­fylk­ing tapa einum borg­ar­full­trúa sam­kvæmt nið­ur­stöð­unum. Hægt er að sjá sæta­­spánna hér að neð­an:

Sam­fylk­ingin verður stærsti flokk­ur­inn í borg­ar­stjórn sam­kvæmt kosn­inga­spánni og mælist nú með 23,9 pró­sent fylgi og sex borg­ar­full­trúa. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn kemur næstur þar á eftir, með 20,4 pró­sent fylgi, rúmum tíu pró­sentum minna en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum árið 2018. Það myndi skila flokknum fimm borg­ar­full­trúum.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist svo með 14,8 pró­sent, sem myndi skila fjórum borg­ar­full­trúum til flokks­ins. Flokk­ur­inn á engan borg­ar­full­trúa í dag eftir að hafa fengið 3,2 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum árið 2018, er boð­inn var fram B-listi undir merkjum Fram­sóknar og flug­valla­vina.

Píratar dala ögn frá síð­ustu kosn­inga­spá og mæl­ast nú með 14,4 pró­sent fylgi og þrjá full­trúa í borg­ar­stjórn. Sú nið­ur­staða yrði þó nokkur sigur fyrir flokk­inn, sem fékk 7,7 pró­sent atkvæða í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018.

Þéttur pakki í neðri hlutanum

Töluvert bil er síðan niður í aðra flokka. Sós­í­alista­flokk­ur­inn yrði fimmti stærsti flokk­ur­inn sam­kvæmt kosn­inga­spánni með 7 pró­sent fylgi og bætir við sig borg­ar­full­trúa sem áður segir, en Viðreisn dalar nokkuð og mælist nú með 6,3 pró­senta fylgi, sem myndi þýða að Pawel Bartoszek for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs borg­ar­innar kæm­ist ekki inn í borg­ar­stjórn að nýju.

Flokkur fólks­ins mælist með 4,8 pró­senta fylgi sem myndi skila Kolbrúnu Bald­urs­dóttur aftur inn í borg­ar­stjórn og Vinstri græn yrði minnsti flokk­ur­inn í borg­ar­stjórn Reykja­víkur ef spáin gengi eftir, en flokk­ur­inn mælist nú með 4,6 pró­senta fylgi, sem dugir til þess að halda Líf Magneu­dóttur inni í borg­ar­stjórn.

Fylgi Mið­flokks­ins mælist 2,6 pró­sent sam­kvæmt kosn­inga­spánni, sem myndi ekki duga til þess að ná odd­vit­anum Ómari Má Jónssyni inn í borg­ar­stjórn. Sam­an­lagt fylgi Ábyrgrar fram­tíðar og Reykja­víkur, bestu borg­ar­innar mælist nú 1,2 pró­sent og mun hvor­ugur flokk­ur­inn ná að setja mark sitt á borg­ar­málin verði það nið­ur­staðan.

Frá oddvitakappræðunum sem fram fóru á RÚV í gærkvöldi.
Frá odd­vita­kapp­ræð­unum sem fram fóru á RÚV í gær­kvöldi.

85 prósent líkur á að hægt verði að mynda meirihluta S, B og P

Þegar kosn­inga­spáin var keyrð í upp­hafi vik­unnar var ekki útlit fyrir að mikil spenna yrði um hvort meiri­hlut­inn í borg­inni héldi eða ekki, en sú staða hefur heldur betur breyst í ljósi síð­ustu kann­ana.

Samkvæmt keyrslu 100 þús­und sýnd­ar­kosn­inga eru nú 54 pró­sent líkur á að þeir fjórir flokkar sem meiri­hlut­ann mynda nái 12 borg­ar­full­trúum á ný.

Meiri líkur eru á því að hægt yrði að mynda meiri­hluta þar sem Sós­í­alista­flokk­ur­inn kæmi inn fyrir Viðreisn, eða 59 pró­sent. Einnig eru sem fyrr miklar líkur á því að Sam­fylk­ingin, Framsókn og Píratar gætu myndað þriggja flokka meiri­hluta en þær eru nú 85 pró­sent, eða á svip­uðu reki og þær hafa verið í vik­unni.

Enn er vand­séð hvaða leið Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á að finna til valda í Reykja­vík, sam­kvæmt kosn­inga­spánni, en ef hún yrði fær yrði hún í gegnum sam­starf við Framsókn og einn til tvo flokka til við­bótar.

Nú eru 31 pró­sent líkur á því að Sjálf­stæð­is­flokkur, Framsókn, Flokkur fólks­ins og Viðreisn gætu náð nægi­legum fjölda full­trúa til að geta unnið saman og 13 pró­sent líkur eru á því að Sjálf­stæð­is­flokkur, Viðreisn og Framsókn gætu náð meiri­hluta. Tveggja pró­senta líkur eru á að Sjálf­stæð­is­flokkur og Framsókn nái tólf full­trúum sam­an­lagt.

Það skal þó ekki úti­loka að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fái meira upp úr kjör­köss­unum en kann­anir und­an­far­inna daga hafa verið að sýna, en eins og kom fram í umfjöllun Kjarnans í gær hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á síð­ustu árum oft verið van­met­inn í kosn­ingum og það gerð­ist líka í borg­inni árið 2018 – þá var kjör­fylgi flokks­ins rúmum þremur pró­sentu­stigum meira en síð­asta kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar sagði til um.

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks.
Hildur Björns­dóttir odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks.

Kann­­anir í nýj­­ustu kosn­­inga­­spá fyrir borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ingar 14. maí:

  • Skoð­ana­könnun Prósent 4. – 9. maí (15,8%)
  • Skoð­ana­könnun Maskínu 6. – 11. maí (17,1%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 9. – 13. maí (37,0%)
  • Skoð­ana­könnun Maskínu 12. – 13. maí (30,1%)

Hvað er kosn­­­­inga­­­­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­­­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­­­ar­­­legt magn af upp­­­lýs­ing­­­um. Þessar upp­­­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræð­i­­­leg­­­ar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­­­lifir stjórn­­­­­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­­­­­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­­­ast svo við að túlka nið­­­ur­­­stöð­­­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­­­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­­­­­mál­anna.

Allar þessar kann­­anir og allar mög­u­­legar túlk­­anir á nið­­ur­­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferð­­um. Hvor könn­unin er nákvæm­­ari? Hverri skal treysta bet­­ur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­­andi hefur ekki for­­sendur til að meta áreið­an­­leika hverrar könn­un­­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið undanfarið ár