Handsprengjum sífellt kastað inn í kjaraviðræður

Lengi hefur blasað við að mjög við­kvæm staða væri uppi á vinnu­mark­aði. Vegna þess voru stjórnir rík­is­fyr­ir­tækja beðnar um að sýna hóf­semi í launa­hækk­unum for­stjóra sinna þegar vald yfir þeim var fært aftur til þeirra.

Íslenska ríkið á tvo af þremur stóru við­skipta­bönk­unum, Lands­bank­ann og Íslands­banka. Nýleg rann­sókn sem gerð var fyrir starfs­hóp sem vann Hvítbók um fjár­mála­kerfið sýndi að 61,2 pró­sent lands­manna eru jákvæðir gagn­vart því að íslenska ríkið sé eig­andi þeirra.

Sama rann­sókn sýndi að ein­ungis 16 pró­sent treysta bönkum. Ástæðuna fyrir traust­leys­inu er ekki ein­ungis að finna í banka­hrun­inu sem varð fyrir rúmum ára­tug, og afleið­ingum þess. Þvert á móti voru þau orð sem flestum Íslend­ingum datt í hug þegar lýsa átti banka­kerf­inu orð eins og háir vextir, dýrt, okur, glæp­a­starf­semi, spill­ing og græðgi. Þar á eftir komu orð á borð við og van­traust, há laun, bónusar og eig­in­hags­muna­semi.

Óánægja almenn­ings með bank­anna sína snýr því ekki að eign­ar­haldi þeirra, heldur þeirri þjón­ustu sem þeir veita og þeirri menn­ingu sem þeir virð­ast end­ur­spegla. Menningu græðgi og spill­ingar, sam­kvæmt nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­innar.

Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði sem situr í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, kom inn á þetta í erindi sem hann hélt á morg­un­verð­ar­fundi Fjár­mála­eft­ir­lits­ins síð­ast­lið­inn þriðju­dag. Þar spurði hann meðal ann­ars af hverju nokkur ætti að treysta banka­kerf­inu? „Til að fólk treysti manni þarf maður að vera traust­vekj­andi og það skortir tölu­vert upp á það.“

Gylfi sagði bank­ana vilj­andi seta verð­skrá sína fram með flóknum og óskýrum hætti þannig að neyt­endur ættu ekki mögu­leika á því að bera þær saman. Þetta, og önnur óskýr starf­semi bank­anna, skili rentu sem sé ekki notuð til að bæta kjör til almenn­ings heldur til að greiða há laun til starfs­fólks fjár­mála­fyr­ir­tækja, skila miklum hagn­aði og til að byggja nýjar bygg­ingar. Þar vís­aði hann til áætl­ana um að byggja nýjar höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans við hlið Hörpu sem eiga að kosta að minnsta kosti níu millj­arða króna, og nettó sjö millj­arða króna þegar búið er að selja aðrar fast­eignir bank­ans upp í kostn­að­inn. „Lands­banka­húsið er tíu sinnum dýr­ara fyrir Ísland heldur en múr­inn við landa­mæri Mexíkó sem Banda­ríkja­for­seti vill byggja. Af hverju? Þetta eru pen­ingar almenn­ings,“ spurði Gylfi.

Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði, hélt eldmessu um bankana á morgunverðarfundi Fjármálaeftirlitsins í vikunni. Mynd: Skjáskot
Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, hélt eld­messu um bank­ana á morg­un­verð­ar­fundi Fjár­mála­eft­ir­lits­ins í vik­unni. Mynd: Skjáskot

Sam­bæri­leg skila­boð hafa komið ann­ars staðar frá. Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, skrif­aði blaða­grein í des­em­ber 2018 með fyr­ir­sögn­inni „Ríkið getur lækkað vexti“. Þar sagði Sigurður að í Hvít­bók­inni hafi komið fram að með­al­vextir útlána íslensku bank­anna hafi verið 5,8 pró­sent á árinu 2017 en með­al­vextir skulda bank­anna 3,2 pró­sent. „Á því ári var því 2,6 pró­sentu­stiga munur á með­al­tals­vöxtum vaxta­ber­andi eigna og skulda íslenskra banka. M.ö.o var álagn­ing íslensku bank­anna 45 pró­sent[...]Háir vextir útlána bank­anna skýr­ast því að mjög stórum hluta af þess­ari háu álagn­ingu þeirra.“

Sigurður sagði að það væri íslenska rík­is­ins að hag­ræða í banka­kerf­inu, bæta þannig kjör, stuðla að meiri skil­virkni og auka verð­mæta­sköpun. Það yrði gert með því að minnka rekstr­ar­kostnað. Og um það bil helm­ingur hans er launa­kostn­aður.

Öllum ljóst viðkvæmni kjaradeilna

Nú standa yfir ein­hverjar við­kvæm­ustu kjara­við­ræður sem átt hafa sér stað í ára­tugi á Íslandi. Í kröfu­gerðum, sem félags­menn sam­þykktu, var til að mynda farið fram á að lág­marks­laun yrði hækkuð úr 300 þús­und krónum í 425 þús­und krónur á nokkrum árum. Ef verka­lýðs­hreyf­ingin á að víkja frá þessum kröfum þá þurfa stjórn­völd að koma að borð­inu með til­lögur sem skili skjól­stæð­ingum hennar nægi­legum kjara­bótum. Með öðrum orðum verður ríkið að borga fyrir kjara­bætur launa­fólks, ekki atvinnu­lífið. Það þarf ríkið að gera með skatt­kerf­is­breyt­ingum sem færa skatt­byrði af lág- og milli­tekju­hópum og eykur jöfn­un­ar­hlut­verk skatt­kerf­is­ins, meðal ann­ars með auknum milli­færslum í gegnum bóta­kerfi. Að end­ingu er farið fram á sér­tækar aðgerðir til að rétta hlut þeirra sem hafa farið hall­oka á hús­næð­is­mark­aði á síð­ustu árum. Allir sem koma að kjara­við­ræðum gera sér grein fyrir því að svona er staðan og að lausnin á hinni erf­iðu stöðu felst í mála­miðlun á þessum for­sendum.

Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, ræddi þessa stöðu meðal ann­ars í þætt­inum 21 á Hring­braut nýverið.

En það er fleira sem verka­lýðs­hreyf­ingin, og raunar þorri almenn­ings, fór fram á. Að hópar sem hafa mun hærri laun en flestir lands­menn fari ekki fram úr sér í launa­hækk­unum heldur beri skyn­bragð á það sem sé að ger­ast í sam­fé­lag­inu.

Það virð­ist hins vegar vera erfitt fyrir þá sem hafa vald til slíkra ákvarð­ana, að bera slíkt skyn­bragð og ganga í takt við kröfur þorra almenn­ings.

Tilmæli ráðherra hunsuð

Það má segja að fyrsta sprengjan sem kastað var inn á vinnu­mark­að­inn hafi verið 44,3 pró­sent hækkun á launum þing­manna, og tug­pró­senta­hækkun á launum æðstu ráða­manna, sem ákveðin var af kjara­ráði og gerð opin­ber á kjör­dag 2016. Skömmu áður höfðu aðstoð­ar­menn ráð­herra verið hækk­aðir um allt að 35 pró­sent.

Við ský­lausri kröfu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar um að það yrði undið ofan af þessum hækk­unum, til að tryggja sátt­ar­grund­völl um laun á vinnu­mark­aði, hefur ekki verið orðið. Þess í stað var ákveðið að færa ýmsa undan kjara­ráði og á end­anum að leggja fyr­ir­bærið niður, en leyfa ráða­mönnum að halda hinum miklu hækk­unum.

Í árs­lok 2016, þegar enn var stjórn­ar­kreppa í land­inu og ekki hafði tek­ist að mynda rík­is­stjórn, var ákveðið að færa ákvarð­anir um laun for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja frá kjara­ráði til stjórna fyr­ir­tækj­anna sjálfra. Benedikt Jóhann­es­son tók síðan við sem fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra í jan­úar 2017 og eitt af hans fyrstu verkum var að senda bréf á stjórnir allra rík­is­fyr­ir­tækja. Í bréf­inu beindi Benedikt þeim til­mælum til stjórn­anna að þær myndu stilla öllum launa­hækk­unum í hóf eftir að þær myndu fá ákvörð­un­ar­vald yfir launum for­stjóra um mitt ár 2017. Í bréf­inu stóð að ástæða hafi verið til þess að „vekja sér­staka athygli á mik­il­vægi þess að stjórnir hafi í huga áhrif launa­á­kvarð­ana á stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði og ábyrgð félag­anna í því sam­bandi. Æski­legt er að launa­á­kvarð­anir séu var­kár­ar, að forð­ast sé að ákvarða miklar launa­breyt­ingar á stuttu tíma­bili en þess í stað gætt að laun séu hækkuð með reglu­bundnum hætti til sam­ræmis við almenna launa­þró­un.“

Afrit af bréf­inu var svo sent aftur til allra stjórn­anna dag­inn áður en að launa­á­kvörð­un­ar­valdið var fært til þeirra. Auk þess fund­aði Benedikt með for­mönnum stjórna stærstu rík­is­fyr­ir­tækj­anna þann 10. ágúst 2017 og fór þá enn yfir efni bréfs­ins.

Benedikt Jóhannesson sendi skýr tilmæli til stjórna ríkisfyrirtækja. Þau voru hunsuð.
Benedikt Jóhann­es­son sendi skýr til­mæli til stjórna rík­is­fyr­ir­tækja. Þau voru hunsuð.

Stjórnir flesta stærstu fyr­ir­tækj­anna í rík­i­s­eigu huns­uðu til­mælin og hækk­uðu laun for­stjóra sinna langt umfram almenna launa­þró­un. Benedikt sagði í við­tali við Kastljós í vik­unni að hans mestu mis­tök sem ráð­herra hafi verið þau að hafa ekki rekið þær stjórnir sem það gerðu.

Sumir gengu á lagið...

Þegar árs­reikn­ingar rík­is­fyr­ir­tækja vegna árs­ins 2017 fóru að birt­ast á fyrstu mán­uðum árs­ins 2018 kom í ljós að stjórnir þeirra höfðu gengið á lagið. For­stjóri Lands­virkj­unar, Hörður Arnarson, hækk­aði til að mynda úr tveimur millj­ónum króna í tæpar 3,3 millj­ónir króna á mán­uði eftir að launa­á­kvörð­un­ar­valdið var fært til stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins.

Stjórn­ar­for­maður Lands­virkj­unar er Jónas Þór Guð­munds­son, til­nefndur af fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Hann er líka í starfs­kjara­nefnd stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins og var for­maður kjara­ráðs sem full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks. Laun stjórn­ar­manna Lands­virkj­unnar, sem allir eru póli­tískt skip­aðir, hækk­uðu líka um tæp 50 pró­sent sam­kvæmt ákvörðun starfs­kjara­nefndar.

Laun for­stjóra Íslands­pósts, Ingi­mundar Sig­ur­páls­sonar, hækk­uðu líka gríð­ar­lega mikið, eða um 25 pró­sent, við til­færsl­una. Hann var með um 1,8 milljón króna á mán­uði eftir hana.

Þetta gerð­ist þrátt fyrir að Íslands­póstur hafi glímt við gríð­ar­legan rekstr­ar­vanda að und­an­förnu sem birt­ist meðal ann­ars í því að fyr­ir­tækið þyrfti að fá 500 milljón króna neyð­ar­lán frá rík­inu til að bregð­ast við lausa­fjár­skorti í lok síð­asta árs, sem alls óvíst er að hægt verði að greiða til baka.

Stjórnin sjálf hefur einnig hækkað vel sín eigin laun. Alls hafa stjórn­ar­laun hækkað um 65 pró­sent frá árinu 2014. Í fyrra var ákveðið að almenn laun stjórn­ar­manna myndu hækka úr 140 þús­und krónum á mán­uði í 165 þús­und krón­ur. Laun for­manns stjórnar, Bjarna Jóns­sonar, eru tvö­föld laun stjórn­ar­manns og fór hann því úr 280 þús­und krónum á mán­uði og upp í 330 þús­und krón­ur. Hækk­unin nam því tæpum 18 pró­sent­u­m. Þetta sýna fund­ar­gerðir stjórnar sem Frétta­blaðið greindi frá fyrr í febr­úar. Vara­for­maður stjórnar Íslands­pósts er Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra.

...Og þá gengu allir á lagið

Annar for­stjóri sem færð­ist undan kjara­ráði á árinu 2017 er Guð­mundur Ingi Ásmunds­son, for­stjóri Lands­nets. Laun hans hækk­uðu um tvær millj­ónir króna árinu 2017 og námu heild­ar­laun hans á árs­grund­velli 21,7 millj­ónum króna, eða um 1,8 millj­ónum króna á mán­uði. Það var hækkun um rúm tíu pró­sent.

Fjölgað var í stjórn Lands­nets úr þremur í fimm á árinu 2017. Samhliða jókst launa­kostn­aður vegna stjórn­ar­starfa um tæp 53 pró­sent. Með­al­kostn­aður á hvern stjórn­ar­mann á mán­uði var um 200 þús­und krónur. Sigrún Björn Jak­obs­dóttir, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Akureyri, er stjórn­ar­for­maður Lands­nets.

Fleiri rík­is­for­stjórar hafa hækkað umtals­vert í launum. Laun Magnúsar Geirs Þórð­ar­sonar útvarps­stjóra RÚV hækk­uðu um 16 pró­­­sent í 1,8 millj­­­ónir króna á mán­uði á árinu 2017. Kostn­aður vegna stjórn­ar­launa hækk­aði að sama skapi um 21 pró­sent. Stjórn­ar­form­rður RÚV á því ári var Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Á aðal­fundi í fyrra var Kári Jónasson,fyrr­ver­andi frétta­stjóri hjá RÚV og rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, kjör­inn for­maður.

Laun for­stjóra Isavia, Björns Óla Hauks­sonar, hækk­uðu um 36 pró­sent við það að ákvörðun um laun rík­is­for­stjóra voru flutt til stjórna. Laun hans eftir breyt­ing­una voru tæp­lega 2,4 millj­ónir króna á mán­uði.

Ingimundur Sigurpálsson hækkaði í launum á tveimur vígstöðum, annars vegar sem forstjóri Íslandspósts og hins vegar sem stjórnarformaður Isavia.
Ingi­mundur Sig­ur­páls­son hækk­aði í launum á tveimur víg­stöðum, ann­ars vegar sem for­stjóri Íslands­pósts og hins vegar sem stjórn­ar­for­maður Isavia.

Stjórn­ar­for­maður Isavia er Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri Íslands­pósts. Mán­að­ar­laun hans fyrir það auka­starf voru 360 þús­und krónur á árinu 2017 og höfðu þá hækkað um rúm­lega 30 pró­sent frá árinu 2014.

Blessaðir bankarnir

En mesta úlfúðin hefur verið vegna launa­kjara þeirra sem stýra rík­is­bönk­unum tveimur, Lands­bank­anum og Íslands­banka. Banka­sýsla rík­is­ins fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í þeim. Stjórn­ar­for­maður hennar er Lárus Blöndal, sem leiddi líka starfs­hóp­inn sem vann Hvít­bók­ina um fjár­mála­kerfið. Það var Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, sem skip­aði hann í bæði hlut­verkin.

Í árs­reikn­ingi Lands­bank­ans fyrir árið 2018, sem birtur var fyrir rúmri viku, kom fram að laun banka­stjór­ans, Lilju Bjarkar Ein­ars­dóttur, hefðu verið hækkuð í 3,8 millj­ónir króna á mán­uði, sem þýðir að laun hennar hafa hækkað um tæp­lega 82 pró­sent á um tveimur árum, en þau voru tæp­lega 2,1 milljón króna áður en að ákvörðun um laun hennar var færð undan kjara­ráði.

Til við­bótar hafa kjör banka­ráðs­ins líka hækkað umtals­vert og fram yfir almenna launa­þróun. Þannig hækk­uðu til að mynda heild­ar­laun for­manns banka­ráðs, Helgu Bjarkar Eiríks­dóttur, úr 800 þús­und krónum í 925 þús­und krónur milli áranna 2016 og 2017. Á árinu 2018 hækk­uðu heild­ar­laun hennar svo aftur og hún var að með­al­tali með 966 þús­und krónur í laun í fyrra sam­kvæmt nýbirtum árs­reikn­ingi.

Íslands­banki færð­ist aftur í rík­i­s­eigu eftir að stöð­ug­leika­samn­ingar voru gerðir við kröfu­hafa föllnu bank­anna. Við það urðu starfs­menn bank­ans allir rík­is­starfs­menn og ákvörðun um laun banka­stjór­ans, Birnu Ein­ars­dóttur, færð­ist undir kjara­ráð. Birna var með alls um 4,8 millj­ónir króna í laun og árang­urstengdar greiðslur að með­al­tali á mán­uði á árinu 2016.

Í jan­úar 2017 úrskurð­aði kjara­ráð að lækka ætti laun hennar í rúm­lega tvær millj­ónir króna á mán­uði. Sú launa­lækkun kom þó aldrei til fram­kvæmda þar sem Birna var með tólf mán­aða upp­sagn­ar­frest. Ákvörðun um launa­kjör hennar færð­ist svo aftur til stjórnar Íslands­banka um mitt ár 2017.

Birna var einnig með 4,8 millj­ónir króna í laun á árinu 2017. Til við­bótar fékk hún eina milljón króna á mán­uði í mót­fram­lag atvinnu­rek­anda í líf­eyr­is­sjóð.

Birna Einarsdóttir og Friðrik Sophusson stýra Íslandsbanka.
Birna Ein­ars­dóttir og Friðrik Soph­us­son stýra Íslands­banka.

Í vik­unni sendi Íslands­­­banki frá sér til­­kynn­ingu þar sem fram kom að Birna hefði óskað eftir því í nóv­­em­ber síð­­ast­liðnum að laun hennar yrðu lækkuð og að þau séu nú 4,2 millj­­ónir króna á mán­uði. Sú tala er þó ekki tæm­andi fyrir heild­ar­kjör hennar heldur tekur ein­ungis mið af launum. Ef bif­reið­ar­hlunn­indi og áætl­aður kaup­auki á þessu ári eru reiknuð með verða með­al­tals­laun Birnu á mán­uði á árinu 2019 um 4,8 millj­ónir króna. Sú kjara­breyt­ing tók gildi 1. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Í fyrra, á árinu 2018, hækk­uðu heild­ar­laun hennar hins vegar umtals­vert. Þá námu laun, bif­reið­ar­hlunn­indi og kaup­auki að með­al­tali 5,3 millj­ónum króna á mán­uði.

Friðrik Soph­us­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er stjórn­ar­for­maður Íslands­banka. Hann fékk alls um 883 þús­und krónur mán­að­ar­lega í laun á árinu 2017. Þau laun hækk­uðu um 14,5 pró­sent á milli 2016 og 2017. Launin hækk­uðu svo aftur í fyrra, um 6,6 pró­sent. Þá námu með­al­laun Friðriks 942 þús­und krónum á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár