Svona var hægt að spila á höftin eins og fiðlu...og græða á því

Í ákæru gegn meintum fjársvik­ara má sjá hvernig hann nýtti sér fjár­magns­höftin til að hagn­ast. Maðurinn bjó til sýnd­ar­við­skipti til að koma hund­ruð millj­óna út úr höft­unum og kom síðan aftur til baka með pen­ing­anna í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans.

Fjár­magns­höft hafa verið við lýði á Íslandi frá því í nóv­em­ber 2008. Þau voru sett svo að umfangs­miklar krónu­eignir, meðal ann­ars kröfu­hafa föllnu bank­anna, væri ekki skipt yfir í aðra gjald­miðla með til­heyr­andi búsifjum og geng­is­falli fyrir Ísland. Höftin þýddu að flestir Íslend­ingar gátu ekki skipt krón­unum sínum í annan gjald­eyri nema í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum og með heim­ild yfir­valda. Þeir þurftu t.d. að fram­vísa flug­far­seðli í banka til að kaupa ferða­gjald­eyri. Og slík gjald­eyr­is­við­skipti voru auk þess tak­mörkuð við hámarks­fjár­hæðir. Búið var til mjög umfangs­mikið gjald­eyr­is­eft­ir­lit innan Seðla­banka Íslands, sem hafði eft­ir­lit með gjald­eyr­is­við­skiptum þjóð­ar­innar, og þaðan voru veittar allskyns und­an­þágur, enda blasti við að inn­flutn­ings- og útflutn­ings­fyr­ir­tæki þurftu að skipta krónum í gjald­eyri eða gjald­eyri í krónur til að geta haldið starf­semi sinni áfram.

Til þess að fá að gera slíkt þurftu fyr­ir­tæki meðal ann­ars að sýna fram á að um raun­veru­leg vöru- eða þjón­ustu­við­skipti væri að ræða. Þetta var sér­stak­lega mik­il­vægt til að jafn­ræðis yrði gætt. Þ.e. að fjár­magns­eig­endur gætu ekki nýtt sér hafta­á­standið til að hagn­ast á meðan að launa­fólk, sem fékk borgað í krónum og lifði fjár­hags­lega einn mánuð í einu, axl­aði aðlögun geng­is­falls og efna­hags­hruns í gegnum heim­il­is­bók­haldið sitt.

Fyrir liggur að margir fjár­magns­eig­endur komu pen­ingum út úr íslensku hag­kerfi áður en gengið féll við hrunið og áður en að höft voru sett. Það sést meðal ann­ars á því að eignir Íslend­inga á hinni frægu Tortola-eyju fjór­föld­uð­ust frá lokum árs 2007 og fram til loka árs 2015 og eru nú um 32 millj­arðar króna.

Fjárfestingarleið sett upp fyrir ríka fólkið

Til að reyna að losa um þann þrýst­ing sem var innan hafta, þ.e. það fjár­magn sem vildi kom­ast út úr íslenskum höftum, ákvað Seðla­banki Íslands að setja upp svo­kall­aða fjár­fest­ing­ar­leið. Alls fóru fram 21 svona útboð á árunum 2012-2015.

Í henni fólst að óþol­in­móðir krónu­eig­endur máttu fara út á gengi sem var mun óhag­stæð­ara en skráð gengi, svo lengi sem að mót­að­ilar fund­ust sem voru til­búnir að selja gjald­eyri fyrir krónur. Þessir mót­að­ilar fengu þá 20 pró­sent virð­is­aukn­ingu á pen­ing­anna sína með því að skipta þeim í krónur. Þ.e. afslátt á íslenskum eignum.

Rúmlega þriðj­ungur þeirra 208 millj­arða króna sem flæddu inn í Ísland með þessum hætti voru pen­ingar íslenskra aðila. Alls voru þeir 794 tals­ins. Seðla­banki Íslands hefur aldrei viljað upp­lýsa um hverjir það voru sem fengu að nýta sér þessa leið og borið fyrir sig trúnað. Ljóst er vegna þeirra tak­markanna sem settar voru á umfang fjár­fest­inga að leiðin stóð þó fyrst og fremst ríku fólki til boða. Og ríkt fólk nýtti sér hana í miklum mæli til að verða enn rík­ara.

Kjarninn hefur greint frá því að sam­tals hafi virð­is­aukn­ing þeirra sem nýttu sér leið­ina verið 49 millj­arðar króna. Auk þess hefur styrk­ing krón­unnar á und­an­förnum árum gert það að verkum að geng­is­hagn­aður þeirra er rúm­lega 80 millj­arðar króna. Þá á eftir að taka til­lit til þeirrar ávöxt­unar sem þessi hópur hefur fengið á t.d. hluta­bréf og fast­eignir sem þeir hafa fjár­fest í hér á landi á hafta­tímum. Úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar hefur hækkað um 81 pró­sent frá því að fjár­fest­ing­ar­leiðin hóf göngu sína og fram til dags­ins í dag. Fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað um 47 pró­sent.

Það má því ætla að líkur séu á því að hóp­ur­inn sem fékk að nýta sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina hafi allt að tvö­faldað pen­ing­anna sína á und­an­förnum árum.

Aftur í sviðsljósið

Fjár­fest­ing­ar­leiðin komst aftur í sviðs­ljósið í byrjun árs 2017 þegar skýrsla starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­­­svæð­um fjall­aði um hana. Þar var því meðal ann­­ars velt upp hvort hún hafi orðið til þess að hluti af fjár­­­magn­inu frá aflands­­svæð­um, sem orðið hafi til með ólög­­mætum hætti, hafi skilað sér Íslands með geng­is­af­slætti í gegnum fjár­­­fest­ing­­ar­­leið­ina.

Orð­rétt segir í skýrsl­unni: „Miðlun upp­­lýs­inga um fjár­­­magns­flæði inn og út úr land­inu, t.d. aflandskrónur sem fluttar hafa verið til lands­ins og eins þátt­­taka í fjár­­­fest­ing­­ar­­leið Seðla­­bank­ans er ekki til stað­­ar. Sér í lagi hefur skatt­yf­­ir­völdum ekki verið gert við­vart af hálfu Seðla­­bank­ans þegar um grun­­sam­­legar fjár­­­magnstil­­færslur er að ræða. Æski­­legt má telja að sam­­starf væri um miðlun upp­­lýs­inga á milli þess­­ara stofn­ana.“

Í „hringferðinni“ felst að koma peningum úr félagi A í gjaldeyri og þykjast síðan kaupa vöru og þjónustu af félagi B, sem er í eigu sama aðila. B nýtir sér síðan fjárfestingarleiðina með því að kaupa skuldabréf af C (undir stjórn sömu aðila) og við þetta fjölgar krónum þeirra um 20 prósent. Seðlabankinn gerði engar athugasemdir við þessi viðskipti.
Í „hring­ferð­inni“ felst að koma pen­ingum úr félagi A í gjald­eyri og þykj­ast síðan kaupa vöru og þjón­ustu af félagi B, sem er í eigu sama aðila. B nýtir sér síðan fjár­fest­ing­ar­leið­ina með því að kaupa skulda­bréf af C (undir stjórn sömu aðila) og við þetta fjölgar krónum þeirra um 20 pró­sent. Seðla­bank­inn gerði engar athuga­semdir við þessi við­skipti.

Kjarninn greindi frá því í kjöl­farið að engar til­kynn­ingar hafi borist til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu hér­aðs­sak­sókn­ara vegna fjár­festa sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina.

Um liðna helgi greindi Kjarninn síðan frá því að Seðla­banki Ísland hafi mátt inn­leysa þriðj­ung fjár­fest­ingar aðila sem nýttu fjár­fest­ing­ar­leið hans ef þeir urðu upp­vísir að því að brjóta gegn kvöðum sem giltu um við­skiptin. Í svari bank­ans við fyrir­spurn Kjarnans kom fram að hann teldi engan hafa brotið gegn kvöð­unum og því hafi hann ekki inn­leyst neitt.

Ákæra á hendur meintum fjársvikara

Miðað við svör Seðla­bank­ans virð­ist því allt hafa verið með felldu í fjár­fest­ing­ar­leið­inni. Þ.e. að þar hafi fjár­magns­eig­endur bara verið að sækja sér gríð­ar­legan ávinn­ing í boði rík­is­stofn­unar sem bauðst bara þeim sem áttu margar millj­ónir króna í lausu fé, og erlendum gjald­eyri, utan hafta.

En svindl­aði eng­inn á þessu kerfi? Reyndi eng­inn að koma pen­ingum út úr höftum með ólög­mætum hætti svo hann gæti komið þeim aftur heim og fengið virð­is­aukn­ing­una? Tók eng­inn „hring­inn“ svo­kall­aða?

Kjarninn hefur undir höndum ákæru í máli þar sem manni á fer­tugs­aldri er gefið að hafa svikið tugi millj­óna króna af nokkrum ein­stak­lingum með því að hafa „vakið og styrkt þá röngu hug­mynd“ hjá þeim um að hann starf­rækti fjár­fest­ing­ar­sjóð í Banda­ríkj­unum og tekið við fé af þeim til að fjár­festa. Fénu ráð­staf­aði mað­ur­inn hins vegar, sam­kvæmt ákæru, í eigin þágu eða ann­ars „með þeim hætti að ekki tengd­ist eða gat sam­rýmst ætl­uðum fjár­fest­ingum“. Brota­þol­arnir í mál­inu hafa ekk­ert end­ur­heimt af því fé sem þeir töldu sig hafa verið að leggja inn í banda­ríska fjár­fest­ing­ar­sjóð­inn til fjár­fest­ingar. Greint hefur verið frá meintum fjársvikum manns­ins áður í íslenskum fjöl­miðlum.

Aðalmeðferð í máli héraðssaksóknara gegn meinta fjársvikaranum verður í byrjun apríl næstkomandi. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Aðal­með­ferð í máli hér­aðs­sak­sókn­ara gegn meinta fjársvik­ar­anum verður í byrjun apríl næst­kom­andi. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Maðurinn er hins vegar einnig ákærður fyrir meiri­háttar brot gegn lögum um gjald­eyr­is­mál með því að hafa í 18 til­vikum notað inn­stæður í íslenskum krónum, skipt þeim í erlendan gjald­eyri og látið senda þann gjald­eyri til útlanda með sím­greiðslu. Greiðsl­urnar fóru inn á reikn­ing erlends félags í hans eigu. Til þess að fá að gera þetta lét mað­ur­inn sem að hann væri að greiða fyrir vöru og þjón­ustu. Vanda­málið við þetta var að bæði kaup­and­inn og selj­and­inn voru í eigu hans sjálfs. Þegar við­skipta­banki manns­ins neit­aði í eitt skiptið að fram­kvæma sím­greiðslu fram­vís­aði mað­ur­inn fölsuðum reikn­ingi til að sýna fram á raun­veru­leika sýnd­ar­við­skiptana.

Ákæru­valdið telur að fjár­magns­flutn­ingar manns­ins til Banda­ríkj­anna hafi tengst „hring­streymi fjár­muna“ sem hafi skilað sér aftur til baka til Íslands. End­ur­koma þeirra var í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands, og þá með veru­legri virð­is­aukn­ingu.

Hringferð peninga til að græða á höftunum

Til ein­föld­unar virkar „hring­ferð pen­ing­anna“ svona:

Maðurinn þyk­ist vera að eiga vöru- eða þjón­ustu við­skipti við félag í Banda­ríkj­unum, sem hann á sjálfur. Þannig fær hann að skipta íslenskum krónum í gjald­eyri á skráð gengi og milli­færa hann inn á banka­reikn­ing banda­ríska félags­ins, sem hann átti sjálfur. Fénu var síðan ráð­stafað til að fjár­magna þátt­töku banda­ríska félags­ins í fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands þar sem hægt var að kaupa íslenskar krónur á 20 pró­sent afslætti, þ.e. á hag­stæð­ara gengi en þeim hafði verið skipt í gjald­eyri á. Banda­ríska félagið „keypti“ síðan verð­bréf útgefin af íslensku félagi sem mað­ur­inn réði á þeim tíma. Hring­ferð pen­ing­anna er því lokið án þess að nein raun­veru­leg við­skipti hafi átt sér stað en búið að er að ná í 20 pró­sent virð­is­aukn­ingu á það fjár­magn sem fór þessa leið. Samkvæmt ákæru er um umtals­verða upp­hæð að ræða, eða 207,3 millj­ónir króna. Ávinn­ingur manns­ins hleypur því á tugum millj­óna króna .

Í ákærunni kemur fram að hér­aðs­sak­sókn­ari byggi mála­til­búnað sinn á því að „í reynd hafi engir raun­veru­legir reikn­ingar legið til grund­vallar fjár­magns­hreyf­ingum og gjald­eyr­is­við­skiptum ákærða[...]og að þau hafi að öðru leyti ekki tengst neins konar vöru- og þjón­ustu­við­skiptum hans eða íslenskra félaga hans við við­tak­endur greiðsln­anna, þ.e. ákærða sjálfan eða banda­rísk félög hans.[...]Í öðrum gögnum máls­ins er heldur ekk­ert sem fær stutt, og raunar þvert á móti, að ákærði sjálfur eða við­kom­andi inn­lend félög hans hafi átt í vöru- og þjón­ustu­við­skiptum við ákærða sjálfan í útlöndum eða við­kom­andi banda­rísk félög hans.“

Þá bendi nið­ur­stöður rann­sóknar emb­ætt­is­ins til þess að sím­greiðsl­urnar og gjald­eyr­is­við­skiptin hafi í reynd ekki verið annað en liður í „hátt­semi ákærða og fleiri sem sam­kvæmt áður sögðu var til rann­sóknar í mál­inu sem ætluð fjár­svik hans og fleiri gegn Seðla­banka Íslands í tengslum við þátt­töku banda­rísks félags hans[...] í svo­nefndri fjár­fest­inga­leið bank­ans. Gögn máls­ins um þetta sýna að þessar sím­greiðslur og til­svar­andi gjald­eyr­is­við­skipti ákærða voru ekki liður í neinum vöru- og þjón­ustu­við­skiptum heldur þess í stað hluti af viða­meiri fjár­magns­flutn­ingum sem tengd­ust þátt­töku hins banda­ríska félags ákærða [...]í gjald­eyr­is­út­boði Seðla­banka Íslands vegna svo­kall­aðrar fjár­fest­ing­ar­leiðar bank­ans. Sú þátt­taka var skipu­lögð og fram­kvæmd af ákærða af hálfu félags­ins og var að öllu leyti á fölskum for­sendum[...]Umræddir fjár­magns­flutn­ingar ein­kennd­ust meðal ann­ars af hring­streymi fjár­muna milli félags ákærða[...] í Banda­ríkj­unum og félaga ákærða á Íslandi.“

Þrátt fyrir að gera þurfi grein fyrir upp­runa fjár­muna sem komu til lands­ins í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands, og að gilda ættu hömlur til að hindra „hring­streymi fjár­magns“, þá var ekk­ert gert til að stöðva þessi „við­skipti“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár