Afsláttur, ávöxtun og gríðarlegur gengishagnaður

Fjár­festar sem komu fyrstir með pen­inga í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans mega nú losa fjár­fest­ingar sínar. Þeir fengu 49 millj­arða í virð­is­aukn­ingu og geng­is­hagnað upp á rúm­lega 80 millj­arða. Fáir hafa grætt jafn mikið á hrun­inu og þessi hópur.

Þeir aðilar sem komu með 1.100 millj­ónir evra inn í íslenskt hag­kerfi í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands myndu fá um 1.840 millj­ónir evra fyrir þær krónur sem þeir skiptu evr­unum sínum í miðað við gengi dags­ins í dag. Því hefur styrk­ing íslensku krón­unnar gert það að verkum að geng­is­hagn­aður við­kom­andi aðila er 67 pró­sent. Sá geng­is­hagn­aður, mældur í íslenskum krónum á gengi dags­ins í dag, er 83,6 millj­arðar króna. Í ljósi þess að heim­ildir til að færa pen­inga út úr íslenskum fjár­magns­höftum voru rýmkaðar umtals­vert í fyrra­haust, og enn meira um liðin ára­mót, geta þeir sem komu með pen­inga í gegnum fjár­fest­inga­leið­ina farið hægt og rólega að færa þá pen­inga í aðra gjald­miðla.

Ekki er þó víst að allir þeir sem komu með fé inn í landið með þessum hætti vilji fara í burtu alveg strax. Allt útlit er nefni­lega fyrir áfram­hald­andi styrk­ingu krón­unnar næstu miss­erin, og þar af leið­andi auk­inn geng­is­hagnað fyrir þá sem bíða lengur.

Hagnaður upp á annað hundrað milljarða

Þeir aðilar sem komu með pen­inga í gegnum fjár­fest­inga­leið­ina fengu einnig að skipta evr­unum sínum í íslenskar krónur á mun betra gengi en venju­legum Íslend­ingum bauðst í næsta banka. Samtals fengu þeir 206 millj­arða króna fyrir evr­urnar sem þeir fluttu inn til lands­ins í gegnum leið­ina. Ef þeim hefði verið skipt í banka á því gengi sem almenn­ingi bauðst hefðu feng­ist 157 millj­arðar króna fyrir þær. Virð­is­aukn­ingin sem þeir aðilar sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina fengu vegna hennar var því 48,7 millj­arðar króna.

Ef eng­inn þeirra sem kom með pen­inga inn í íslenskt hag­kerfi í gegnum fjár­fest­inga­leið­ina hefur farið út með hann aftur þá er sam­an­lagður geng­is­hagn­aður og virð­is­aukn­ing vegna hag­stæðs gengis þeirra sem bauðst að nýta sér leið­ina rúm­lega 132 millj­arðar króna. Þá á auð­vitað eftir að telja með þann hagnað sem við­kom­andi höfðu af því að fjár­festa á Íslandi á árum þar sem nán­ast allir fjár­fest­ing­ar­mögu­leikar skil­uðu mik­illi arð­semi.

Var fyrst og fremst fyrir ríkt fólk

Til­gangur fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar var að vinna á hinni svoköll­uðu snjó­hengju. Þ.e. krónu­eignum erlendra aðila sem voru fastar inni í íslenskum höftum og ómögu­legt var að hleypa út úr þeim án þess að það myndi hafa gíf­ur­legar nei­kvæðar afleið­ingar á greiðslu­jöfnuð.

Þeir sem tóku þátt í leið­inni komu með gjald­eyri og fengu að skipta honum í íslenskar krónur á mun hag­stæð­ara gengi en öðrum bauðst.

Þeir sem tóku á sig „tapið“ í þessum við­skiptum voru aðilar sem áttu krónur fastar innan hafta en vildu kom­ast út úr íslenska hag­kerf­inu með þær. Seðla­bank­inn var síðan í hlut­verki milli­göngu­að­ila í við­skipt­unum.

Alls fóru fram 21 svona útboð á árunum 2012-2015. Framan af tíma­bil­inu gátu ein­ungis þeir sem áttu 50 þús­und evrur eða meira tekið þátt í útboð­unum. Í byrjun árs 2013 var sú upp­hæð jafn­gildi um 8,1 milljón króna sam­kvæmt gengi Seðla­banka Íslands. Það er því ljóst að fyrst og fremst ríku fólki, sem átti yfir átta millj­ónir króna í lausu fé, stóð þessi leið til boða. Lág­markið var síðar lækkað í 25 þús­und evrur, eða rúm­lega fjórar millj­ónir króna á þáver­andi gengi.

20 prósent afsláttur á íslenskum eignum

Að með­al­tali fékkst um 20 pró­sent afsláttur á eignum á Íslandi með því að fara þessa leið. Sá bögg­ull fylgdi skamm­rifi að það þurfti að binda fjár­fest­ing­una í eignum í fimm ár hið minnsta, en það mátti þó greiða arð af fjár­fest­ing­unum út á meðan að á þeim tíma stóð. Margir not­færðu sér þetta með því gefa sjálfir út skulda­bréf í íslensku félagi, selja sjálfum sér þau skulda­bréf og láta síðan vexti á þeim vera háa eða þorra upp­greiðslu á fyrstu árum útgáf­unnar. Þannig var hægt að losa upp­hæð­ina sem var flutt til lands­ins mun fyrr en Seðla­banki Íslands hafði ætlað, og nota hana í annað.

Már Guðmundsson er seðlabankastjóri, og hefur gengt því starfi frá árinu 2009.
Már Guð­munds­son er seðla­banka­stjóri, og hefur gengt því starfi frá árinu 2009.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Seðla­banka Íslands var um 47,2 pró­sent af því fjár­magnsinn­streymi sem kom til lands­ins fest í skulda­bréfum, um 40 pró­sent í hluta­bréfum, 12,2 pró­sent í fast­eignum og 0,6 pró­sent í verð­bréfa­sjóðum. Fyrir þá sem bundu þessa pen­inga raun­veru­lega í t.d. fast­eignum eða hluta­bréfum þá hefur arð­semi þeirra verið gríð­ar­leg. Úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar hefur hækkað um 81 pró­sent frá því að fjár­fest­ing­ar­leiðin hóf göngu sína og fram til dags­ins í dag. Fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað um 47 pró­sent.

Þá á eftir að taka inn geng­is­á­hrifin ef fjár­fest­ingin er mæld í evrum. Íslenska krónan hefur nefni­lega styrkst gríð­ar­lega á þessu tíma­bili og þeir sem keyptu hræó­dýrar íslenskar krónur á eft­ir­hrunsár­unum og eiga þær enn munu inn­leysa gríð­ar­legan geng­is­hagnað þegar þeir skipta þeim aftur í evrur eða aðra mynt með tíð og tíma.

Í síð­asta mán­uði, febr­úar 2017, voru liðin fimm ár frá því að fyrsti hóp­ur­inn sem kom með pen­inga í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina mátti fara aftur út úr íslensku hag­kerfi með pen­ing­anna. Fimm ára bind­ingin var liðin. Miðað við gengi evru í dag myndu fást um 1.840 millj­ónir evra fyrir allar þær íslensku krónur sem seldar voru vegna fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar. Geng­is­hagn­aður þess hóps sem fékk að nýta sér þessa leið er því um 740 millj­ónir evra, eða 83,6 millj­arðar króna á gengi dags­ins í dag.

Hvernig sem litið er á það þá hafa þeir sem fengu að taka þátt í fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands hagn­ast óheyri­lega á því. Þeir fengu 48,7 millj­arða króna í afslátt á íslenskum eignum sem þeir geta nú inn­leyst. Þeir fengu nán­ast for­dæma­lausa ávöxtun á fjár­fest­ingar sínar, sér­stak­lega í hluta­bréfum og fast­eignum. Og þeir geta inn­leyst um 84 millj­arða króna geng­is­hagnað.

Íslendingar áttu 35 prósent af upphæðinni

Það voru ekki bara útlend­ingar sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Alls komu 794 inn­lendir aðilar með pen­inga inn í íslenskt hag­kerfi með þessum hætti. Um er að ræða 35 pró­sent þeirrar upp­hæðar sem kom inn í landið með þessum hætti. Það þýðir að þriðja hver króna sem var seld með afslætti í gegnum leið­ina var seld inn­lendum aðila.

Alls fengu þessir aðilar 72 millj­arða króna fyrir um 385 millj­ónir evra sem þeir skiptu. Virð­is­aukn­ingin sem þeir fengu vegna þess góða gengis sem Seðla­banki Íslands bauð efn­uðu fólki upp á í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina var um 17 millj­arðar króna. Til við­bótar myndi geng­is­hagn­aður hóps­ins, ef öllum krón­unum sem keyptar voru yrði skipt í evrur í dag, vera 256,5 millj­ónir evra, eða 28,8 millj­arðar króna. Það þýðir að inn­lendir aðilar hafa hagn­ast um 45,8 millj­arða króna vegna virð­is­aukn­ingar og geng­is­hagn­aðar. Til við­bótar kemur hagn­aður vegna þess að fjár­fest­ingar þeirra, sem flestar voru á bruna­út­sölu­verði á tíma­bil­inu sem fjár­fest­ing­ar­leiðin var í boði, hafa hækkað gríð­ar­lega í verði.

Trúnaður um hverjir fengu að nýta leiðina

Seðla­banki Íslands hefur aldrei viljað upp­lýsa um hvaða aðilar það voru sem fengu að nýta sér þetta ein­staka við­skipta­tæki­færi. Kjarninn hefur marg­sinnis beint fyr­ir­spurnum um málið til hans, en bank­inn hefur ávallt borið fyrir sig þagn­ar­skyldu. Bankaráð Seðla­banka Íslands, sem er póli­tískt skipað, tók undir þá afstöðu í lok jan­úar síð­ast­lið­ins.

Á meðal þeirra sem fjöl­miðlar hafa þó upp­ljóstrað um að hafi nýtt sér þessa leið eru félög í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­munds­sona, Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, Jóns Ólafs­sonar, Jóns Von Tetzchner, knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar, Ólafs Ólafs­sonar, Hjör­leifs Jak­obs­sonar, Ármanns Þor­valds­sonar, Kjartans Gunn­ars­sonar, Skúla Mogensen, rekstr­ar­fé­lags Iceland Foods, Alvogen, Karls og Stein­gríms Wernerssona og danskra eig­enda Húsa­smiðj­unnar.

Ákveðin skil­yrði voru fyrir því að mega fara í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Á meðal þeirra er að fjár­festir­inn væri raun­veru­legur eig­andi þeirra fjár­muna sem hann ætlar sér að flytja inn til lands­ins. Auk þess er óheim­ilt að flytja fjár­muni fyrir hönd ann­ars eða ann­arra aðila. Annað skil­yrði var að fjár­festir lægi„ekki undir rök­studdum grun hjá gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­bank­ans um meint brot, ákærður af hand­hafa ákæru­valds eða kærður til lög­reglu af Seðla­bank­anum, og máli vegna þess sé enn ólokið hjá ákæru­valdi eða lög­reglu“.

Skil­mál­unum var þó breytt í des­em­ber 2012 þegar því var bætt inn að þeir aðilar sem lágu undir rök­studdum grun hjá gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­bank­ans um meint brot mættu ekki heldur taka þátt í útboðum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar.

Engar tak­mark­anir voru hins vegar á þátt­töku í fjár­fest­ing­ar­leið­inni fyrir aðila sem voru til rann­sóknar eða jafn­vel í ákæru­ferli hjá öðrum emb­ættum en gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­bank­ans.

Í skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­­­svæð­um, sem birt var í byrjun jan­ú­ar, er fjallað um fjár­­­fest­ing­­ar­­leið Seðla­­banka Íslands og því meðal ann­­ars velt upp hvort hún hafi orðið til þess að hluti af fjár­­­magn­inu frá aflands­­svæð­um, sem orðið hafi til með ólög­­mætum hætti, hafi skilað sér Íslands með geng­is­af­slætti í gegnum fjár­­­fest­ing­­ar­­leið­ina.

Orð­rétt segir í skýrsl­unni: „Miðlun upp­­lýs­inga um fjár­­­magns­flæði inn og út úr land­inu, t.d. aflandskrónur sem fluttar hafa verið til lands­ins og eins þátt­­taka í fjár­­­fest­ing­­ar­­leið Seðla­­bank­ans er ekki til stað­­ar. Sér í lagi hefur skatt­yf­­ir­völdum ekki verið gert við­vart af hálfu Seðla­­bank­ans þegar um grun­­sam­­legar fjár­­­magnstil­­færslur er að ræða. Æski­­legt má telja að sam­­starf væri um miðlun upp­­lýs­inga á milli þess­­ara stofn­ana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár